Víkurfréttir - 26.09.2002, Page 12
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
MAÐUR VIKUNNAR
„Myndi selja félags-
heimilið Festi ef ég væri
bæjarstjóri í einn dag“
- segir Eiríkur Tómasson útgerðarmaður en hann
svaraði nokkrum spurningum í léttum dúr. Eiríkur
er maður vikunnar að þessu sinni.
Nal'n: EirikurTómasson
Fædd/-ur hvar og hvcnær: 17.05.53 í Reykjavík
Atvinna: Forstjóri Þorbjamar Fiskaness hf.
Maki: Margrét Gunnarsdóttir
Börn: 4 strákar
Hvaða bækur ertu að lesa núna? Ævisaga Jónasar Hallgrims-
sonar
Hvað er það fyrsta sem þér kemur í hug, þegar þú vaknar á
morgnana? Kíkja út á sjóinn.
Ef þú gætir unnið viö Itvað sem er, hvað væri það? Sjávarútveg
eins og hann var þegar ég var að bytja, með netaútgerð, síldarútveg
og saltfiskvinnslu.
Hvað er það allra skemmtilegasta sem þú gerir? Vera á vélsleða
í fogru veðri á fjöllum með góðum hópi fólks.
Hvað fer mcst í taugarnar á þér, og hvers vegna? Sviksemi og
leti- ástæða augljós.
Ef þú værir bæjarstjúri í einn dag hvað væri það fyrsta sem þú
myndir gcra? Líklega selja félagsheimilið Festi. Það ertíma-
skekkja hjá sveitarfélögum eins og Grindavik að eiga og reka slíka
starfsemi.
Áttu þér draum sem þú átt eftir að láta rætast? Já.
Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Fara út að skokka og synda.
Hvað finnst þér mikilvægt að gera? Standa mig í einkalífí og
starfi.
Hvað er með öllu ónauðsynlegt í lífi þínu? Skartgripir.
Hvað er það nauðsynlegasta í lífi þínu? Góð heilsa og góð fjöl-
skylda.
Borðar þú morgunmat? Já lítillega.
Gætir þú lifaö án síma, sjónvarps, og tölvu? Líklega, en það
myndi margt breytast.
Hvaö er mikilvægasta hcimilistækiö á heimili þínu, og hvers
vegna? Fjarstýringin á sjónvarpinu, hún gerir manni kleift að horfa
á tvo leiki í einu.
Hvað er þaó neyðarlcgasta sem þú hefur gert? Það verðurekki
upplýst, en úr einhvetju er að velja.
Áttu þér fyrirmynd? Enga eina, en ég vehi því stundum fýrir mér
hegðun og framkomu fólks, bæði í jákvæðum og neikvæðum
skilningi.
Lífsmottó? Þegar markmiðunum hefur verið náð að setja sér ný.
Daglegarfréttir
frá Suðurnesjum
Víkurfréttir á Netinu
www.vf.is
ÞÓRKÖTLUSTAÐARÉTT
Kristján Pálsson alþingismaður tók lagið með þeim Dagbjarti Einarssyni fiskverkanda og Guðmundi
Sigurðssyni stórsöngvara og hestamanni í Þórkötlustaðarétt við Grindavík síðdegis á sunnudag.
Réttirnar voru síðbúnar þar sem ekki tókst að smala á laugardag vegna þoku.