Víkurfréttir - 26.09.2002, Qupperneq 15
—
Foreldrar áttu
ánægjulegan
eftirmiðdag
íðastliðinn laugardag
var haldið málþing í
Fjölbrautaskóla Suður-
nesja sem bar yfirskriftina
„Aftur í skóla“ Þar flutti Ámi
Sigfússon bæjarstióri Reykja-
ncsbæjar ávarp, Olafur Grét-
ar Gunnarsson tjölskyldu- og
stjórnunarráðgjafi flutti fyr-
irlestur um ofdekrun, Maja
Potrajak frá fyrrum
Júgoslavíu las ljóð á íslcnsku,
sýnd var myndin Brot og síð-
an tók fólk þátt í ýmsum mál-
stofum.
Góður rómur var gerður að
málþinginu sem foreldrafélögin
á Suðumesjum stóðu að ásamt
Ólafi Grétari. Tilgangur mál-
þingsins var að kynna foreldr-
um leiðir til að styrkja sig í
sínu vandasama hlutverki með
iýrirlestrum og kynna íyrir for-
eldrum námskeið sem hjálpa
þeim að styðja bömin sín til að
ná þeim árangri í námi sem
geta þeirra leyfir. Það er stað-
reynd að líðan barna og for-
eldra hefiir áhrif á námsárangur.
Málþingið var vel sótt og vakti
stuttmyndin Brot eftir kvik-
myndakonuna Helenu Stefáns-
dóttir sérstaka hrifningu. Gam-
an er að geta þess að Helena á
ættir að rekja til Suðumesja þar
sem hún hóf sína grunnskóla-
göngu. Erindi hennar vakti for-
eldra til umhugsunar ekki síður
en mynd hennar.
Guðbjöm Herbert Gunnarsson
sem sá um bamagæsluna ásamt
körfuboltastelpum úr 10. flokki
i Keflavik sagði að börnin
hefðu unað sér vel á meðan for-
eldrar námu það sem fram fór.
Stúlkumar nutu þess að gæta
bamanna og leggja sitt af mörk-
um. Getum við öll verið stolt af
unglingunum okkar.
Foreldrar á Suðumesjum sýndu
það eins og oft áður að þeir em
meðvitaðir um ábyrgðina sem
fylgir uppeldishlutverkinu og
að þeir þurfa að leita leiða til
að styðja sig og styrkja. Liður í
því er að blanda geði við aðra
foreldra sér til gagns og gam-
ans. Ellert Eiríksson var mál-
þingsstjóri og skilaði því hlut-
verki af stakri prýði. Aðstaða og
starfsfólk Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja hjálpaði til að skapa
hlýtt og afslappað andrúmsloft.
Em þeim sem stóðu að þinginu
færðar þakkir fyrir ftamtakið.
Helga Margrél
Guðinundsdóttir
39. tölublað • fimmtudagurinn 26. september 2002
Lokað vegna alþjóða bílasýningar
föstudaginn 27. september.
Opnum aftur þriðjudaginn
Dagdvöl aldraðra við Suð-
urgötu í Keflavík fagnaði
10 ára afmæli í gær,
mánudaginn 23. september. I
tilefni dagsins voru rjómatert-
ur og smurbrauð á borðum og
gestum boðið upp á kafTi, kakó
og gosdrykki. í dag sækja
nítján cinstaklingar dagdvölina
hvern virkan dag en þegar
starfsemin byrjaði fyrir tíu
árum voru einstaklnigarnir tíu.
1 tilefni afmælisins var þeim
Rósu Teitsdóttur og Aðalbergi
Þórarinsssyni færð blóm en þau
hafa tekið virkan þátt í starfi
dagdvalarinnar ffá opnun hennar
fýriráratug.
Opið hús
Laugardaginn 28. september kl.
10-16 verður opið hús í dagdvöl
aldraðra, Suðurgötu 12-14,
Reykjanesbæ.
Dagdvölin er starfandi að Suður-
götu 12 -14 og hefur verið starf-
rækt þar frá upphafi, fyrst um
sinn í hluta af neðstu hæð húss-
ins í samvinnu við félagsstarf
aldraðra en síðustu árin á allri
hæðinni.
Dagdvöl er stuðningsúrræði fýrir
eldri borgara sem búa í heima-
húsum þar sem boðið er upp á
keyrslu til og frá heimili, böðun,
fúllt fæði, ýmsa tómstundaiðju,
félagsþjónustu o.fl.
Dagdvölin er starffækt á vegum
Fjölskyldu- og félagsþjónustu
Reykjanesbæjar með daggjöld-
um ffá Heilbrigðis- og tygginga-
málaráðuneytinu. í byrjun voru
leyfi frá ráðuneytinu fyrir !0
dvalargesti en i dag em leyfin 19
og hafa þau verið fullnýtt frá
upphafí.
Lögð er áhersla á persónulega
þjónustu og reynt er að sinna
hveijum einstaklingi á hans eigin
forsendum eftir fremsta megni.
Þessi gerð af þjónustuúrræði er
það form sem hefur verið að
ryðja sér til rúms á síðustu ámm.
Dagdvöl fýrir aldraða hefur þann
kost í for með sér að einstakling-
urinn getur búið lengur heima og
dregur úr stofnanavist.Mikil
ánægja hefur verið hjá dvalar-
gestum og starfsfólki með þetta
þjónustuform þar sem markmið-
ið er að veita hinum aldraða um-
hyggju og stuðla að sjálfstæði
hans. Bæjarbúar verið hjartan-
lega velkomnir í Dagdvölina
laugardaginn 28. september n.k.
Það verður kaffí á könnunni.
L0KAÐ
Inga Lóa Guðmundsdóttir, for-
stöðumaður Dagdvalar aldraðra
ásamt þeim Rósu Teitsdóttur og
Aðalbergi Þórarinssyni með
VF-mynd: Hilmar Bragi
Losun afbeitu í gám
Gámi undir afbeitu hefur verið komið fyrir á svceðinu sunnan við
Bakkalág, þarsem nú er losunarstaður fyrir garðaúrgang. Gámurinn
verður framvegis tcemdur reglulega. Vakin er sérstök athygli á að
losun þess konar úrgangs annars staðar á svceðinu er með öllu
óheimil. Skorað er á viðkomandi aðila að hagnýta sér þessa aðstöðu
og koma þar með í veg fyrir óþrif og fjölgun meindýra.
1. október kl. 10.
Sfmt
Brekkustíg 38 • Njarðvík
Bœjartceknifrceðingur Grindavíkur
Sími 421 8808
■■■■■
15