Víkurfréttir - 26.09.2002, Side 17
39. tölublað • fimmtudagurinn 26. september 2002
Rúnar Arnarson formaður
stjórnar knattspyrnu-
deildarinnar.
Samið um skuldir Knatt-
spyrnudeildar Keflavíkur
Síðasta haust námu skuld-
ir Knattspyrnudeildar
Keflavíkur tæpum 60
milljónum króna og segir Rún-
ar Arnarson formaður stjórnar
knattspyrnudcildarinnar að
fyrir síðustu áramót hafi verið
hafist handa við aö gera áætl-
un um lækkun skulda deildar-
innar: „Við fórum á fullt í
þessa vinnu síðasta haust og
frá þeim tíma hefur okkur tek-
ist að semja um allar skuldir
dcildarinnar. I áætlunum okk-
ar gerum við ráð fyrir því að
skuldirnar verði greiddar nið-
ur á 5 árum.“
Stjórn knattspyrnudeildarinnar
hefur unnið náið með aðalstjóm
Keflavíkur, Reykjanesbæ, Spari-
sjóði Keflavíkur og Nesprýði ehf.
að lausn þessara mála: „Við höf-
um gert langtíma rekstrarsamn-
ing við Reykjanesbæ um rekstur
knattspymuvallana hér i bænum
og við höfum getað notað hluta
af þeim peningum til að greiða
niður skuldir. Nesprýði sér um
allan rekstur á völlunum og það
er þess vegna sem félagið hefur
getað notað hluta af þeim rekstr-
arpeningum til greiðslu skulda.
Meginþorri skulda deildarinnar
llggur hjá Sparisjóði Keflavíkur
og við höfitm átt mjög gott sam-
starf við Sparisjóðinn um skuld-
breytingar og greiðslu skulda á 5
árum.“ Rúnar segir að það sé
bjart framundan hjá Knatt-
spymudeildinni og að reksturinn
í ár verði réttu megin við núllið:
„Við reiknum með að á næstu 4
árum náum við að greiða allar
okkar skuldir niður eins og gert
er ráð fyrir i okkar áætlunum,"
segir Rúnar að lokum.
Tekjutenging leikskólagjalda
- einstæðir foreldrar
Abæjarstjórnarfundi þann
17.september sl. sam-
þykkti bæjarstjórn
Reykjanesbæjar tillögu Skóla-
og fræðsluráðs um eitt tima-
gjald á leikskólum. Tillagan
var samþykkt nteð 6 atkvæð-
um sjálfstæöismanna gegn 5
atkvæðum minnihlutans.
Hingað til hafa gjaldflokkar á
leikskólum verið 2, almennt
gjald og gjald fýrir einstæða for-
eldra og námsmenn. í Reykjavík
er gjaldflokkarnir 3 og í öllum
sveitarfélögunum í kringum okk-
ur eru gjaldflokkar fleiri en 1.
Þessi fækkun gjaldflokka mun
hafa þau áhrif, að einstæðir for-
eldrar sem oftast eru einstæðar
mæður, þurfa að sækja um niður-
greiðslu leikskólagjalda og verða
síðan metnar af leikskólafulltrúa
og Fjölskyldu- og félagsþjónustu
Reykjanesbæjar eftir reglum sem
ekki hafa verið útfærðar.
Eins og aðrar niðurgreiðslur
sveitarfélagsins munu þessar nið-
urgreiðslur verða tekjutengdar.
Því verður það hlutskipti margra
einstæðra foreldra að greiða al-
menna gjaldið vegna of hárra
tekna. Einstæðum foreldrar í
Reykjanesbæ verður gert erfið-
ara fýrir með þessu, nú þarf að
hafa fyrir því að fá lækkun á
gjaldi. Tekjutenging af þessu tagi
mun lækka ráðstöfunartekjur ein-
stæðra foreldra verulega. En
þetta er alveg í anda sjálfstæðis-
manna að höggva í þá sem
minnst þola. Hvar ber þá næst
niður?
Guðbrandur Einarsson
bœjaifulltrúi Sani-
jylkingarinnar
FRETTIR
Harður slagur í nýju
I komandi alþingiskosningum
sem fara fram þann 10. maí á
næsta ári verður í fyrsta sinn
kosið samkvæmt nýrri kjör-
dæmaskipan. Samkvæmt núver-
andi kjördæmaskipan er
Reykjaneskjördæmi með 8
þingmenn, en þegar Suðurlands-
kjördæmi og Reykjaneskjör-
dæmi verða sameinuð í nýju
Suðurkjördæmi verða þingmenn
kjördæmisins 10 talsins. Sam-
kvæmt núverandi kjördæma-
skipan eru þingmenn Reykja-
nes- og Suðurlandskjördæma 14
talsins. Það má því segja að
þingmönnum kjördæmisins
fækki, með nýrri kjördæmaskip-
an um 4 þingmenn, þrátt fyrir að
nýja Suðurkjördæmið verði
mun stærra, en það nær frá
Reykjanestá austur fyrir Homa-
fjörð að Hvalnesskriðum. Suð-
urkjördæmið verður stærsta
kjördæmi landsins ef miðað er
við landfræðilegar forsendur.
Þingmönnum á landsbyggðinni
fækkar á kostnað höfúðborgar-
svæðisins, en Suðurlandskjör-
dæmi á kost á einu jöfnunar-
þingsæti. 40% kjósenda hins
nýja Suðurkjördæmis eru á Suð-
urnesjum og því hlýtur staóa
Suðumesjamanna að vera nokk-
uð sterk í nýja kjördæminu. Það
er ljóst að það verður hörð sam-
keppni um sæti á listum stjóm-
málaflokkana í nýja kjördæm-
inu en nú þegar hafa nokkrir
þingmenn Reykjaneskjördæmis
þegar gefið það út að þeir muni
sækjast eftir þingsæti. Þessir
þingmenn eru Sigríður Jóhann-
esdóttir fyrir Samfylkinguna,
Hjálmar Arnason fyrir Fram-
sóknarflokkinn og Kristján Páls-
son fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Ámi Ragnar Ámason hefúr ekki
enn gert upp hug sinn í þessum
málum. Ekki er enn ljóst með
hvaða hætti uppröðun á listana
verður, þ.e. hvort um prófkjör
eða uppstillingu verður að ræða,
en ljóst er að baráttan verður
gríðarlega hörð. Nú þegar er
„slagurinn" hafinn og ferðast
frambjóðendur um nýja kjör-
dæmið hver i kapp við annan.
Baráttan verður sérstaklega hörð
þar sem þingmenn em að átta
kjördæmi
sig á hinu pólitíska landslagi í
nýja kjördæminu og munu án
efa nota tímann vel fram að
kosningum við að kynna sig í
hinu nýja víðfeðma kjördæmi.
Eftirtalin Sveitarfélög verða í
Suðurkjördæmi:
Sveitarfélagið Hornafjörður,
Skaftárhreppur, Mýrdalshrepp-
ur, Austur-Eyjafjallahreppur,
Vestur-Eyjafjallahreppur, Aust-
ur-Landeyjahreppur, Vestur-
Landeyjahreppur, Fljótshlíðar-
hreppur, Hvolhreppur, Rangár-
vallahreppur, Holta- og Land-
sveit, Ásahreppur, Djúpárhrepp-
ur, Vestmannaeyjabær, Gaul-
veijabæjarhreppur, Sveitarfélag-
ið Árborg, Hraungerðishreppur,
Villingaholtshreppur, Skeiða-
hreppur, Gnúpverjahreppur,
Hrunamannahreppur, Biskups-
tungnahreppur, Laugardals-
hreppur, Grímsnes- og Grafn-
ingshreppur, Þingvallahreppur,
Hveragerðisbær, Sveitarfélagið
Ölfus, Grindavíkurkaupstaður,
Sandgerðisbær, Gerðahreppur,
Reykjanesbær og Vatnsleysu-
strandarhreppur.
Freddie
Filmore með
samkomu í
Grindavík
íslandsvinurinn Fr eddie
Filmore Sr., verður með sam-
komu í Verkalýðshúsinu
Grindavík Fimmtudaginn 3.
október klukkan 20. Aðgang-
ur er ókeypis og allir eru
hjartanlega velkomnir.
Freddie Filmore Sr. er for-
stöðumaður og stofnandi
Freedom Ministries kirkjunn-
ar í Apopka í Flórida síðan
árið 1979. Freddie Filmore
hefur kröftuga smurningu
yfir sér sem gerir honum
kleift að tala skýrt og skorin-
ort til áheyrenda sem Guð
leiðir til þjónustu hans. Hann
þráir hreinleika og heilag-
leika á göngu sinni með Guði
og smitar út frá sér nærveru
Guðs í sínu daglega lífi.
Dagana 4. og 5. október
verðu Freddie Filmore síðan
með kennslufyrirlestur og
verður það auglýst siðar.
BÆNDAQUjffl
Laugardaginn 28. september,
mœting kl. 11.30.
Rœst út aföllum teigum,
allir rœstir á sama tíma.
Bœndur:
Örn Ævar Hjartarson, Islandsmeistari 2001
og Guðm. Rúnar Hallgrímsson,
Toyotameistari 2001.
ímótslok verða veitingar og afhending
viðurkenningar fyrir hin ýmsu mót sumarsins.
Ekkert mótsgjald.
17