Víkurfréttir - 26.09.2002, Qupperneq 19
39. tölublað • fimmtudagurinn 26. september 2002
Hvetuv til vandaðri
vinnubragða meirihlutans
Bæjarfulltrúi Samfylking-
arinnar segir sjálfstæöis-
menn í Reykjanesbæ
beita fyrir sig embættismönn-
um, vitandi það að kjörnir
bæjarfulltrúar beri höfuð
ábyrgð á því að keypt hafi ver-
ið kennslustofa án heimildar.
Guðbrandur Einarsson, bæj-
arfulltrúi Samfylkingarinnar,
lagði fram eftirfarandi bókun
vegna kennslustofu við Heiðar-
skóla í Keflavík á síðasta fundi
bæjarstjórnar Reykjanesbæj-
ár:
,,Undirritaður lagði ífam á bæjar-
stjómarfundi þann 3. september
2002 fyrirspum vegna kennslu-
stofu sem búið var að kaupa og
koma á sinn stað án heimildar. 1
bæjarráði þann 12. september sl.
var málið tekið fyrir og lagt írarn
bréf umhverfis- og tæknisviðs
vegna málsins. I bréfi heldur
embættismaðurinn þvi fram að
orð hans á bæjarráðsfundi þann
13. júni sl. hafi fallið í þá vem að
reikna mætti með kaupum á
þriðju kennslustofúnni. Undirrit-
aður mætti sem varamaður á um-
ræddan bæjarráðsfund og stað-
festir hér að viðkomandi embætt-
ismaður var ekki kallaður inn á
fundinn undir þessum lið. Þenn-
an lið sem var 20. liður á dagskrá
skýrði bæjarstjóri og gerði það
vel. Hins vegar var viðkomandi
embættismaður kallaður inn á
fúndinn til þess að gefa skýringar
á lið 21 og 22 sem fjölluðu um
tilboð sem farið var í án þess að
gert væri ráð fyrir þeim í fjár-
hagsáætlun að öllu leyti. Því
miður grípa sjálfstæðismenn til
þess að beita fyrir sig embættis-
manni í málinu vitandi að kjömir
bæjarfúlltrúar bera höfúð ábyrgð.
Eg mun ekki gera ffekari athuga-
semdir í þessu máli en vil hvetja
til vandaðri vinnubragða í ffam-
haldinu.
Guðbrandur Einarsson “.
Stjórn DS samþykkir
framkvæmdir í Garði
Stjórn Dvalarlieintila skipulagi og byggist samþykkt
aldraðra á Suðurnesj- stjórnarinnar á því og breyttri
um hefur samþykkt afstöðu Reykjanesbæjar sem
fyrir sitt levti að Gerðahrepp- fallið hefur frá andstöðu sinni.
ur fái að byggja tíu íhúöir Sigurður Jónsson, sveitarstjóri í
fyrir aldraða á eignarlóö Garði, vonast til að aðstaða
hjúkrunarheimilisins Garð- sveitarstjórnanna liggi fyrir eff-
vangs í Garði. Samþykktin cr ir fúndi bæjarstjóma og hrepps-
þó háð santþykki sveitarfélag- nefnda í byrjun næsta mánaðar
anna fjögurra sem eiga aöild þannig að fljótlega verði hægt
að heimilinu. Suðurnesjasíða að hefjast handa við fram-
Morgunhlaösins grcinir frá kvæmdir.
þessu í morgun. Bygging íbúðanna var boðin út
Stjóm DS lagðist á sínum tíma í vor og býður verktakinn eftir
gegn uppbyggingu sem Gerða- leyfi til framkvæmda, segir í
hreppur áformaði á lóð Garð- Morgunblaðinu.
vangs. Hreppurinn breytti síðar
Leiðrétting
í viðtali við Kristján Gunnarsson, formann Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur sem birtist í Víkurfféttum sem kom út sl. fímmtu-
dag birtist meinleg villa, en þar er talað um Samband Sunnlenskra
sveitarfélaga sem misritaðist, en að sjálfsögðu var átt við Samband
sveitarfélaga á Suðumesjum. Vikurfféttir biðjast velvirðingar
á þessum mistökum.
Ekki slakað á í
útivistarmálum
í Reykjanesbæ
Forvarnar- og útivistarmál
á Ljósanótt í Reykjanes-
bæ voru til umfjöllunar á
síðasta fundi Tómstunda- og
íþróttaráðs Reykjanesbæjar.
Þar segir að þrátt fyrir að vel hafi
tekist til að þessu sinni með af-
skipti m.a. af unglingum þetta
kvöld og nótt, verði hvergi slak-
að á í útivistarmálum bama og
ungmenna og þeim skilaboðum
verði komið til foreldra að á
Ljósanótt er lögð rík áhersla á
samveru fjölskyldunnar og að
ábyrgðin er foreldranna að úti-
vistarreglumar séu virtar.
Tómstunda- og íþróttaráð lýsir
ánægju með starffækslu upplýs-
inga- og öryggismiðstöðvar að
Hafnargötu 8 og þakkar eigend-
um hússins fyrir afnotin. Jafn-
ffamt þakkarflR félögum í Pútt-
klúbbi Suðumesja fyrir veitta að-
stoð, m.a. við að liðsinna týndum
bömum.
Björgunarhundar
æfðu á Suðurnesjum
Eélagar í Björgunarhundasveit
Islands æfðu hunda sýna um
helgina á tveimur stööum á
Suðurnesjum. Hundarnir og
þjálfarar þeirra voru hér í boði
Björgunarhundasveitar Suður-
nesja, sem starfar undir merkj-
um Björgunarsveitarinnar Suð-
urnes. Æfingar fóru fram við
Trölladyngju á laugardag og i
Svartsengi á sunnudag.
Þegar æfingum lauk var komið
saman í björgunarstöðinni viö
1 loltsgötu í Njarðvík þar scm
menn og hundar báru saman
bækur sínar.
REYKJANESBÆR
ÚtMstatíml bama
Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanes-
bæjar vekur athygli foreldra á að
frá 1. september til 1. maí er útivistar-
tími bama sem hér segir:
Böm, 12 ára og yngri, mega ekki vera á
aimannafæri eftir klukkan 20 nema í
fylgd með fullorðnum.
Böm, sem em á aldrinum 13 til 16 ára,
skulu að sama skapi ekki vera á almanna-
færi eftir klukkan 22, enda séu þau ekki |
á heimferð frá viðurkenndri skóla-,
íþrótta eða æskulýðssamkomu.
: Ef foreldrar virða útivistartímann munu
bömin læra að sætta sig við hann.
Kannanir benda til að öryggi bama sé
meiri hætta búin eftir að löglegum
útivistartíma lýkur.
Félagsmálastjóri
NU GETUR ÞU LÆRT 0G NAD T0KUM A
á 3 kvöldum: 1., 3ja og 8. okt.
Þú þarft aðeins að hafa skrifblokk og gott skap meðferðis. Allt annað
(skrautskriftarpenni, gyllingarpenni, forskriftarbók o.þ.h.)
allt þetta innifalið í vægu þátttökugjaldi.
ALLIR geta lært skrautskrift: Börn, aldraðir, örvhentir, illa skrifandi o.s.frv.
Þetta er auðveldara en þú heldur. Kennari er Jens Guð., vinsælasti
skrautskriftarkennarinn hérlendis og í nágrannalöndum,
m.a. vegna hraðvirkrar kennslutækni.
Láttu vini þína vita af þessu tækifæri til að vinna sér inn aukatekjur /
í framtíðinni með því að skrautrita firmamerki, auglýsingar,
tilkynningar, viðurkenningarskjöl, heiðursskjöl, meistarabréf,
jarðarfaraborða, nöfn fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka,
innan í bækur...
Væri ekki gaman að skrautskrifa innan í jólakortin og -bækurnar? /
Svona námskeið hefur löngum verið vinsæl jólagjöf.
Upplýsingar og innritun hjá Miöstöð símenntunar
á Suðurnesjum, sími 421 7500
Banana Boat
STÆRÐIN skiptir máli!
Græna Banana Boat hreina Aloe Vera gelið græðir og kælir.
Tvöfalt meira magn, helmingi lægra verð!
• Exem? Sóriasis? Húðþurrkur? Kláði?
Prófaðu gula Banana Boat E-gelið eða Naturica Ört+
• Banana Boat sjálfbrúnkukremið sigraði í vísindalegri samanburðarrannsól
bandaríska tímaritsins Glamour.
• Sólbrúnkufestandi Banana Boat After Sun Body Lotion lengir endingu
sólbrunkunnar um 7 - 9 vikur og hindrar ótímabæra öldrun húðarinnar.
• Embrace sólkremin eru hlaðin kynæsandi ferónómum.
Tilraunir sýna að þau auka aðráttaraflið um 83%.
• Blek-bomban er úr hraðvirkri sólarolíu og kolkrabbableki.
Blekið er að uþþistöðu melanin, sama efnið og er brúni litur sólbrunkunna
Fæst í apótekum, sólbaðsstofum, snyrtivöruverslunum.
Einnig í verslun Bláa geislans, Brautarholti 4 í Reykjavík og Aloe Vera,
Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði.