Víkurfréttir - 19.12.2002, Page 56
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
ÖRN ARNARSON EVRÓPUMEISTARI í SUNDI
Orn Arnarson gerði heldur betur garðinn frægan á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug
sem fram fór i Þýskalandi i síðustu viku. Orn tók þátt í þremur einstaklingsgreinum og
tveimur boðsundsgreinum ogvar útkoman glæsileg. Fyrst varð hann Evópumeistari í 200
m baksundi, þá fjórði í 50 m baksundi og synti síðan með boðsundssveitinni í 4x50 m skrið-
sundi þar sem hann bætti (slandsmetið. Loks varð hann þriðji i 100 m baksundi á nýju ís-
lands- og Norðurlandameti.
Öm á ekki langt að sækja
frama sinn í sundgreininni.
Faðir hans, Öm Ólafsson, var
mjög frambærilegur sundmað-
ur á yngri ámm en hann hætti
hins vegar keppni aðeins 17 ára
gamall. „Ég mætti strax með
honum í laugina þegar ég var
yngri og hann kenndi mér að
synda. Þannig byijaði þetta allt
saman hjá mér.“
Það varð ljóst snemma að Öm
ætti eftir að verða afreksmaður
í íþróttinni. „Það fór kannski að
verða áberandi þegar ég var 13
ára. Þá fór ég að stækka og tím-
amir hreinlega hmndu niður
hjá mér. Ég fór síðan að láta að
mér kveða þegar ég var 15-16
ára gamall. Ég setti svo mitt
fysta fullorðins Islandsmet á
Sundmeistaramóti íslands í
Eyjum 1997, þegar ég var 15
ára gamall. Það var í 400 m
skriðsundi." Islandsmetin síðan
þá em orðin mörg og til marks
um hversu langt Öm hefúr náð
þá á hann nú Islandsmet í öll-
um sundgreinum í 25 metra
laug nema bringusundunum og
í 50 m laug vantar hann aðeins
met í nokkmm sundum til að
geta státað af því sama. Ekki
slæmt hjá þessum 21 árs pilti,
sem þó er elsti virki sundmaður
íslands á alþjóðavettvangi.
Öm segir líkamsbyggingu sína
gera það að verkum að það
henti honum vel að synda bak-
sund. „Ég er bæði með langar
hendur og fætur og búkurinn er
mjór, bæði bijóstkassinn og rif-
beinsbúrið. Þetta vaxtarlag
hentar vel fyrir baksund og
skriðsund.“
Ánægður með þetta ár
Fyrsta stóra alþjóðlega mótið
sem Öm tók þátt í var Evrópu-
meistaramótið í 25 m laug í
Rostock 1996. Og þau hafa
verið mörg sem hann hefiir tek-
ið þátt í síðan, ofl með frábær-
um árangri. „Góður sundmaður
er hins vegar á toppnum á bil-
inu 23-28 ára þannig að ég ætti
enn að eiga nokkur góð ár eft-
ir,“ segir Óm.
Það má segja að leið Amar hafi
legið jafnt og þétt upp á við,
kannski ef frá er talið árið í ár,
þar sem minna hefur borið á
honum í keppni en ofi áður.
Öm er reyndar ekki sammála
því að fyrri hluti ársins hafi
verið mislukkaður eins og
margir hafi viljað halda fram.
„Ég lenti m.a. í fjórða sæti á
heimsmeistaramóti í 25 m laug
í april sem ég held að geti seint
talist mislukkað. Ég keppti hins
vegar ekki á Evrópumeistara-
mótinu í 50 m laug í sumar en
enda svo árið vel í Þýskalandi.
Ég hef kannski gert minna í ár
en fyrri ár en ég er sáttur við
árið hjá mér í heild.“
Öm var hins vegar meira í
sviðsljósinu á árinu fyrir annað
en árangurinn í lauginni. Það
vakti m.a. mikla athygli þegar
hann ákvað að skipta bæði um
félag og þjálfara. Brian Marsh-
all sundþjálfari hjá SH hafði
þjálfað hann í sex ár en nú
söðlaði Öm um og gekk til liðs
við íþróttabandalag Reykjanes-
bæjar þar sem Steindór Gunn-
arsson þjálfar hann núna. „Það
var mikið fjallað um þessi fé-
lagaskipti mín í fjölmiðlum og
mörgum fannst þetta mjög vit-
laus ákvörðun. Mér fannst ég
hins vegar þurfa að breyta um
umhverfi og breyta aðeins til
svo að ég fengi hreinlega ekki
yfir mig nóg af íþróttinni. Bri-
an Marshall var búinn að vera
aðalþjálfarinn minn í sex ár og
samstarf okkar hafði alltaf
gengið vel og það gerði þessa
ákvörðun kannski enn djarfari.
Ég er ekki viss um að maigir
hefðu þorað að gera þetta á
þessum tímapunkti. En þetta
hefiir greinilega borgað sig
mjög vel og ég er mjög ánægð-
ur á Suðumesjunum."
Öm segir Brian og Steindór
mjög ólíka þjálfara. „Áherslur
þeirra em mjög mismunandi.
Steindór leggur mikið upp úr
styrktarþjálfun sem ég hef ver-
ið mikið i í vetur og leggur
einnig mikla áherslu á tækniæf-
ingar. Brian var meira í þoli og
ég synti fleiri metra á æfingum
56