Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2016 „Við öxlum okkar ábyrgð“ Í fréttum hafa verið dæmi umeinbeitta brotastarfsemi íbyggingar- og framleiðsluiðn- aði. Það er nokkuð sem Samtök iðnaðarins fordæma og sætta sig ekki við að verði liðið. Við erum mjög skýr hvað það varðar.“ Þetta segir Almar Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, en tilefnið er umfjöllun Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins fyrir tveimur vikum um aðbúnað erlends vinnuafls á Íslandi. Hafandi sagt þetta varar Almar við alhæfingum og upphrópunum í þessu sambandi. „Málið er alvar- legt og allir eru sammála um að uppræta þurfi þessa brota- starfsemi. Við skulum hins vegar forðast að alhæfa út frá einstökum málum og setja þannig svartan blett á heiðvirð fyrirtæki í bygg- ingariðnaði. Um tólf þúsund manns starfa í greininni og það er óþolandi að allt það fólk liggi að ósekju undir ámæli. Þetta er stór bransi og mikilvægur fyrir Ísland. Þess vegna þarf traust að ríkja.“ Ákveðið aðlögunarferli Honum þykir mjög mikilvægt að gera greinarmun á einbeittri brotastarfsemi annars vegar og mistökum hins vegar. „Þegar að- ilar eru annaðhvort að hefja starf- semi eða auka starfsemi mjög mik- ið þurfa þeir gjarnan að leita til erlends starfsfólks í fyrsta skipti eða aftur eftir langt hlé. Lífið er nú einu sinni þannig að enginn starfsmaður kemur fullskapaður til vinnu á fyrsta degi, hann fer í gegnum ákveðna aðlögun, og sama á við um fyrirtæki. Meðan á þess- ari aðlögun stendur geta orðið mistök. Það þýðir að ákveðið leið- réttingarferli fer í gang og menn læra af reynslunni og sjá til þess að mistökin eigi sér ekki stað aft- ur. Það er grundvallarmunur á þessu og einbeittum brotavilja.“ Almar segir þessi mistök bæði geta snúið að launamálum og al- mennum aðbúnaði starfsmanna. „Þegar mál af þessu tagi koma upp er það yfirleitt fullur ásetn- ingur vinnuveitanda að bæta hlut starfsmanna.“ Spurður hvort þetta bendi ekki til þess að skortur gæti verið á upplýsingaflæði í greininni, úr því að mönnum verði á mistök af þessu tagi, segir Almar það ekki útilokað. „Það er eitt af því sem við höfum verið að skoða sér- staklega og auðvitað stendur ekki á okkur að framkalla þá fræðslu sem til þarf. Við höfum til dæmis lagt mikla áherslu á að kenna mönnum að nota tól og tæki gæða- stjórnunar sem kveðið er á um í byggingarreglugerð frá árinu 2012. Við gerum líka skýra kröfu um faglegt hæfi og nú er unnið að verkefni sem við köllum „heil- brigðisvottorð fyrirtækja í mann- virkjagerð“ sem hefur beinlínis það markmið að skerpa á atriðum sem varða fjárhagslegt og faglegt hæfi aðila í iðnaðinum. Þarna eru m.a. atriði sem munu nýtast í bar- áttu gegn kennitöluflakki. Við finnum að þeim fyrirtækjum sem innleitt hafa gæðastjórnun gengur yfirleitt vel að fást við þessi verk- efni, svo sem að ráða fólk frá út- löndum.“ Til að fyrirbyggja allan mis- skilning segir Almar að til staðar séu eftirlits- og framfylgdarúrræði sem Samtök atvinnulífsins hafi beitt sér fyrir af miklum mynd- arskap. „Um það er ASÍ fullkunn- ugt.“ Almar skýrir tóninn í umræð- unni núna að hluta til þannig að umsvif í byggingariðnaði og mann- virkjagerð hafi aukist hratt á skömmum tíma og því sé í auknum mæli þörf fyrir erlent vinnuafl til að leggjast á árarnar með okkur. „Ísland er þannig markaður að hann þarf á sveigjanleika að halda.“ Spurður hvort þetta kalli ekki á hraðari vinnubrögð til að gyrða megi alfarið fyrir brot og mistök svarar Almar: „Við erum að vinna þetta eins hratt og við mögulega getum. Það er mjög mikilvægt að vanda vel til verka. Við öxlum okk- ar ábyrgð.“ Skýrar útboðsreglur Verkkaupi getur líka lagt sitt af mörkum og Almar hrósar opinber- um verkkaupum hjá ríki og borg fyrir að setja af stað samvinnu um skýrari útboðsreglur til að taka á brotastarfsemi. „Á móti kemur að ekki er alltaf auðvelt að meta hvort um brot er að ræða. Því megum við ekki gleyma.“ Starfsmannaleigur hafa fléttast inn í umræðuna og segir Almar að regluverkið í kringum þær sé og verði nokkuð flókið. Til dæmis þurfi að gera greinarmun á inn- lendri og erlendri leigu, skattalega sé það ekki sami hluturinn enda þótt báðir aðilar starfi á Evrópska efnahagssvæðinu. „Mannaráðn- ingar í byggingariðnaði geta verið verkefnabundnar en í hagsveifl- unni núna er það frekar þannig að fyrirtæki eru að bæta við sig mannskap sem þau síðan færa milli svæða. Þess heldur höfum við hvatt menn til að kynna sér málin vel og gera hlutina eftir kúnstar- innar reglum.“ Morgunblaðið/Ómar Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, fordæmir einbeitta brotastarfsemi í byggingariðnaði en varar við alhæfingum. Mikilvægt sé að gera greinarmun á einbeittum brotum og mistökum sem menn læri af og láti ekki endurtaka sig. Í úttektinni hér í blaðinu fyrir tveimur vikum ræddi Halldór Grönvold, aðstoðarfram- kvæmdastjóri ASÍ, um þá stað- reynd að sumt af þessu erlenda vinnuafli komi frá ríkjum þar sem kjör og öll réttindi séu allt önnur og mikið lakari en hér þekkist, kjarasamningar oft ekki til og verkalýðshreyfingin veik og áhrifalítil. Spurður hvort þetta sé útbreitt vanda- mál vill Almar ekki taka svo djúpt í árinni. „En þetta er þekkt viðfangsefni og ef verk- takar eru vísvitandi að blekkja starfsmenn fordæmum við það enda er það brotastarfsemi. Til að bregðast við þessu er hins vegar mikilvægt að fara í réttu aðgerðirnar og útfærslan skiptir máli. Það að innleiða hér mjög harkalega keðjuábyrgð getur þýtt að verið sé að setja íþyngj- andi ábyrgð á einn aðila í keðj- unni umfram aðra. Enda þótt ábyrgð sé auðvitað nauðsynleg má hún ekki verða óútfylltur tékki.“ Spurður hvort hann sé þá andvígur því að keðjuábyrgð sé bundin í lög hér á landi, líkt og þekkist til dæmis í Noregi, svar- ar Almar: „Það þarf mögulega að styrkja löggjöf og eftirlit og það eru samtöl í gangi undir for- ystu velferðarráðuneytisins um umbætur á þessu sviði og við, Samtök atvinnulífsins og Sam- tök ferðaþjónustunnar komum að þeirri vinnu. Lykilatriðið í þessu sambandi er að búa ekki til kerfi sem verður séríslenskt og íþyngjandi, ekki síst fyrir verkkaupa í landinu, svo sem ríkið, sveitarfélög og orkufyr- irtækin, sem eru í almannaeigu og bera kostnaðinn.“ Kerfið verði ekki íþyngjandi Við gerum líka skýra kröfu um faglegt hæfi og nú er unnið að verk- efni sem við köllum „heilbrigðisvottorð fyrirtækja í mannvirkja- gerð“ sem hefur beinlínis það markmið að skerpa á atriðum sem varða fjárhagslegt og faglegt hæfi aðila í iðnaðinum. Almar Guðmundsson. INNLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is Atvinnuleysi er með minnsta móti á Íslandi um þessar mundir og Almar segir kannanir Sam- taka iðnaðarins ekki benda til þess að erlent vinnuafl sem hing- að hefur streymt undanfarna mánuði sé að taka vinnu af ís- lenskum iðnaðarmönnum. „Við erum lítið land og höfum verið með sveiflukennt hagkerfi þann- ig að erlent vinnuafl er blessun en ekki bölvun. Það hjálpar okk- ur að glíma við sveiflur, byggja upp samfélagið og auka velferð.“ Almar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Morgunblaðið/Styrmir Kári Bitnar ekki á Íslendingum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.