Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 45
29.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 „If you’re gonna die, die with your boots on,“ söng Iron Maiden hástöfum um árið. Segja má að trymb- illinn Nick Menza hafi tekið þá félaga á orðinu, hneig niður og dó á miðjum tónleikum með hljómsveit sinni OHM í Los Angeles síðastliðinn laugardag. Hann var aðeins 51 árs að aldri. Menza er þekktastur fyrir starf sitt með einu mesta þrassbandi sögunnar, Megadeth. Afrekaði það raunar að vera rekinn úr þeirri ágætu sveit tvisvar. Menza gekk í Megadeth árið 1989, eftir að hafa leyst forvera sinn, Chuck Behler, af um tíma, og lék inn á frægustu plötu sveit- arinnar, Rust in Peace eða Hvíl í ryði, ári síðar. Árið 1998 þurfti Menza að undirgangast aðgerð á hné til að fjarlægja góðkynja æxli. Í stað þess að aflýsa tónleikum réð Megadeth Jimmy DeGrasso til að leysa Menza af hólmi á meðan hann greri sára sinna. Á sjúkrabeðinum fékk hann á hinn bóginn símtal frá leiðtoga Mega- deth, Dave Mustaine, þar sem honum var tjáð að ekki væri lengur þörf fyrir krafta hans. Mustaine lagði Megadeth niður árið 2002 vegna meiðsla sem hann varð fyrir á hendi. Þegar hann endurreisti bandið tveimur árum síðar bauð hann Menza að vera með. Vék honum þó jafn- harðan úr bandinu aftur á þeim forsendum að hann væri ekki í nægilega góðri leikæfingu til að túra. Menza er annar Megadeth- trymbillinn sem fellur í valinn, en Gar Samuelson, sem lék inn á fyrstu tvær plötur sveitarinnar, sálaðist árið 1999. Banamein hans var lifrarbilun. Meðal þeirra sem minnst hafa Menza með hlýju eru Dave Must- aine og David Ellefson, bassaleik- ari Megadeth. Nick heitinn Menza kom fyrst fram tveggja ára að aldri. TRYMBILLINN NICK MENZA ALLUR Rekinn á sjúkrabeðinum Dave Mustaine Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið gefur út glæsilegt sumarblað um Tísku & förðun fimmtudaginn 2. júní. Fjallað verður um tískuna sumarið 2016 í fatnaði, förðun og snyrtingu auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. PÖNTUN AUGLÝSINGA: til kl. 16 mánudaginn 30.maí NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is -Meira fyrir lesendur SJÓNVARP Spjallþáttadrottningin Ellen DeGeneres verður ekki varaforsetaefni Hillary Clinton í forseta- kosningunum í Bandaríkjunum í haust. Clinton bauð henni þetta í léttum tón þegar hún leit inn í þættinum í vikunni en Ellen afþakkaði gott boð eftir að hafa komist að því að varaforsetinn býr ekki í Hvíta húsinu. „En þú munt samt fá fínasta hús,“ sagði Clinton. „Nei, ég á ágætis hús. Mig vantar ekkert,“ svaraði Ellen. Clinton og væntanlegur mótframbjóðandi hennar, Donald Trump, nýta nú allar leiðir til að ná til kjósenda. Því er spáð að konur muni ráða miklu um það hvort þeirra hreppir hnossið og varla er hægt að finna betri leið til að ná eyrum þeirra, en mikill meirihluti áhorf- enda Ellenar eru konur. Ellen ekki í Hvíta húsið Hillary og Ellen á tali. AFP SJÓNVARP Nýir gamanþættir leikkonunnar og uppistandarans Mariu Bamford eru nú að- gengilegir á sjónvarpsveitunni Netflix. Þætt- irnir kallast Lady Dynamite og eru byggðir á lífi Bamford sjálfrar. Þar gerir Bamford stólpagrín að sjálfri sér og veikindum sínum, en hún glímir við geðhvörf. Lady Dynamite hefst á því að Bamford er nýútskrifuð af geðdeild og freistar þess að byggja upp líf sitt með hjálp umboðsmanns síns, Bruce Ben-Bacharach, en hann er leik- inn af Fred Melamed, og móður, en Mary Kay Place fer með hlutverk hennar. Allir þætt- irnir tólf eru nú aðgengilegir á Netflix. Gerir grín að eigin geðhvörfum Maria Bamford í störukeppni í nýju þáttunum. Ljósmynd/Netflix History-sjónvarpsstöðin sýnir á morgun, mánudag, fyrsta þáttinn af átta í endurgerð einnar vinsæl- ustu sjónvarpsseríu allra tíma, Róta. Þættirnir byggja á sam- nefndri bók eftir Alex Haley og fjalla um ungan Afríkumann, Kunta Kinte, sem hnepptur er í ánauð og fluttur í járnum til Bandaríkjanna, og afkomendur hans. Bandaríski leikarinn Roman Armstrong og breski leikarinn Malachi Kirby fara með hlutverk Kunta Kinte, en sagan fylgir hon- um allt frá vöggu til grafar. Af öðr- um leikurum má nefna Laurence Fishburne, Forest Whitaker, James Purefoy og Önnu Paquin. „Þetta fór með mig alla leið að þolmörkunum og lengra,“ segir Malachi Kirby í samtali við breska blaðið Guardian, en tökur stóðu yfir í hálfan sjötta mánuð. „Hver einasti dagur var áskorun – líkam- lega, andlega og tilfinningalega. Stundum var það hitinn, stundum kuldinn, moskítóflugurnar, hestur- inn. Stundum var það bara að hlaupa í allt of stórum skóm.“ Þess má geta að gömlu þætt- irnir, sem sýndir voru árið 1977, eru einhverjir þeir alvinsælustu í sögu sjónvarps. Hermt er að 140 milljónir Bandaríkjamanna hafi horft á lokaþáttinn. Breski leikarinn Malachi Kirby fékk það erfiða hlutverk að leika eina ástsælustu persónu sjónvarpssögunnar, Kunta Kinte, í endurgerðinni á Rótum. Ljósmynd/History Channel SJÓNVARPSÞÆTTIRNIR RÆTUR ENDURGERÐIR Yfir þolmörkin LeVar Burton í hlutverki Kunta Kinte í gömlu þáttunum frá árinu 1977. Refurinn, ný íslensk heimildarmynd um íslenska refinn, er á dagskrá Ríkissjónvarpsins á sunnudags- kvöldið. Að vori gýtur læða yrð- lingum og þá hefst ævintýralegur lífsferill refsins. Yrðlingarnir fæðast blindir, vandir af spena á tíundu viku og læra að bjarga sér. Tólf vikna gamlir tínast þeir að heiman og upp úr því bjarga þeir sér sjálfir. Þeir leita sér að maka, byggja upp óðal og árs- gamlir eru þeir komnir með sitt fyrsta got og byrjaðir að ala upp nýja kynslóð yrðlinga. Leik- stjóri er Guðbergur Davíðsson og framleiðandi Ljósop ehf. Rappi í Reykjavík lýkur Lokaþátturinn af Rappi í Reykjavík er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnu- dagskvöldið. Um er að ræða glæ- nýja þætti þar sem fjallað er um ferskustu straumana í tónlistar- menningu Íslendinga. Dóri DNA ræðir við Reykjavíkurdætur, Blaz Roca, Úlf Úlf, Tiny, Gísla Pálma, Cell7, Bent, Emmsjé Gauta, Kött Grá Pjé og marga fleiri. ÍSLENSK DAGSKRÁRGERÐ Í SJÓNVARPI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.