Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 33
Rihanna, sem sjálf er sendiherra franska tísku-hússins, hefur hannað ákaflega áhugaverðalínu af sólgleraugum fyrir Dior. Innblásturinn er framtíðin og segir söngkonan Star Trek hafa verið einn helsta áhrifavaldinn í hönnunarferlinu sem hún bætir jafnframt við að hafi gengið vel. Rihanna lýsti hönnunarferlinu í samtali við WWD og sagðist hún hafa hitt Dior-teymið, skoðað sögu sól- gleraugna hjá merkinu og hafist handa við að teikna. „Ég teiknaði og teikn- aði þar til ég varð sátt við útkomuna. Þá vann teymið hönnun út frá teikn- ingum mínum á staðnum. Við völdum síðan efnivið- inn og nokkrum vikum seinna fékk ég sýnishornið í hendurnar.“ Línan er væntanleg í verslanir í júní. Rihanna hannar sólgleraugu Söngkonan og tískugyðjan Rihanna hefur hannað sólgler- augnalínu í samstarfi við franska tískuhúsið Dior undir heitinu Rihanna. Sólgleraugun koma í verslanir í júní. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is 29.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Vinyl Couture eru nýir litaðir maskarar frá Yves Saint Laurent. Maskararnir gefa mikinn lit og eru fáanlegir í nokkrum spenn- andi litum og eru upplagðir fyrir sumarið. Nýtt Pastelpaper 21.000 kr. Falleg teikning frá Lindu Jóhanns- dóttur hjá Pastelpaper. Í þessari viku... Sigurborg Selma sigurborg@mbl.is Húrra Reykjavík 9.990 kr. Sólgleraugu í flottu sniði. Vero Moda 1.490 kr. Röndóttir bol- ir eru alltaf klassískir og alltaf í tísku. Vila 3.990 kr. Ég er mjög hrifin af gulllituðu skarti. Þessi hringur er fjarska fallegur. Zara 7.995 kr. Þessar galla- buxur eru málið. Lindex 7.675 kr. Þennan æðislega sundbol ætla ég að fá mér áður en ég skelli mér á ströndina í sumar. Ég var alvarlega að velta því fyrir mér að bóka helgarferð til Kaupmannahafnar í nóvember þegar ég heyrði fyrst af samstarfi Kenzo og H&M. Tískuhúsið Kenzo er með margt af því fegursta á tískuvikunni í París hverju sinni. Munstur og leikgleði að ógleymdu tígrisdýra- munstrinu skapa skemmtilegan heim og lín- urnar alltaf ferskar og spennandi. Það er því frábært að fá tækifæri til að geta keypt hönn- unina eða plata vinkonur mínar í Kaupmanna- höfn til að pikka nokkrar flíkur fyrir mig á ör- lítið betra verði … GK Reykjavík 72.900 kr. Leðurjakki frá Won Hundred er ofarlega á óskalistanum. Sænska tískukeðjan H&M hefur tilkynnt samstarf sitt og franska tískuhússins Kenzo. H&M hefur undanfarin ár verið í samstarfi við vinsælustu tísku- húsin og fengið þau til þess að hanna vetrarlínur í takmörkuðu upplagi fyrir keðjuna. Lína Kenzo fyrir H&M fer í sölu þann 3. nóvember næstkomandi í völdum verslunum H&M og á net- inu. Línan, sem hönnuð verður af yfirhönnuðum Kenzo, þeim Carol Lim og Humberto Lionmun, samanstendur af fatnaði og fylgi- hlutum fyrir dömur og herra. NÝTT SAMSTARF SÆNSKU KEÐJUNNAR Kenzo og H&M Úr vetrarlínu Kenzo fyrir næsta haust. AFP Sólgleraugun verða fáanleg í nokkrum útfærslum. Smart Profile er nýjung frá Clarisonic-hreinsi- burstunum. Tækið má nota á hendur, fætur og líkama. Tækið hreinsar húðina og gerir það að verkum að opnar húðholur dragast saman og húðin verður þéttari og jafnari.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.