Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 21
29.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21  Hrafnhildur Lúthersdóttir er íslensk landsliðskona í sundi úr Sundfélagi Hafnarfjarðar.  Hún er fyrsti íslenski ófatlaði sundmaðurinn til að stíga á verðlaunapall á Evrópumeist- aramóti í 50 m laug en hún vann tvenn silfurverðlaun á EM í sundi um síðustu helgi: Fyrir 50 metra og 100 metra bringu- sund og bronsverðlaun í 200 metra bringusundi.  Hrafnhildur bætti Íslands- metin í öllum þessum greinum um helgina en fyrri met átti hún sjálf en hún hefur margoft sett Íslandsmet bæði í 25 og 50 metra laug og á 10 Íslandsmet í 25 metra laug og 5 Íslandsmet í 50 metra laug. Þá á hún 18 Hafnarfjarðarmet.  Hrafnhildur varð í fyrra fyrsta íslenska sundkonan til að kom- ast í úrslit á Heimsmeist- aramóti í sundi og varð hún í 6. sæti í 100 metra bringusundi á því móti.  Hrafnhildur keppir á Ólymp- íuleikunum í Ríó í sumar en hún keppti einnig á síðustu leikum, í London 2012.  Hrafnhildur hefur nokkrum sinnum verið valin íþróttakona Hafnarfjarðar og verið valin sundkona ársins af Sund- sambandi Íslands. tilhlökkun en stress fyrir sundið. Hugsanir mínar snúast um það að ég sé búin að gera allt sem ég geti gert og það sé engu hægt að breyta nema bara synda og sjá hvað gerist.“ Notaðirðu einhverjar sérstakar aðferðir til að breyta hugarfarinu hvað þetta varðar? „Skólinn í Flórída er með heilan her af íþróttasálfræðingum og fag- fólki til að aðstoða okkur íþrótta- fólkið og ég hef nýtt mér það eins mikið og ég get. Það hefur hjálpað mér mjög mikið að geta alltaf gengið að einhverjum vísum til að ræða við um það sem mig langar til að ræða hverju sinni og það þarf ekki einu sinni að vera neitt alvarlegt eða tengjast sundinu og samtalið þarf ekki að vera tilkomið af því að það sé eitthvað að. Í þessum samræðum fór ég meðal annars að meðtaka það að það er enginn heimsendir þótt það gangi ekki vel – það er líka hluti af leiknum. Það varð til þess að ég fór að slaka meira á.“ Hvað hugsaðirðu síðustu mínút- urnar áður en þú fórst af stað í vinn- ingssundin um síðustu helgi? „Ég virðist hafa náð að fara í ein- hverja leiðslu og hætti að heyra í um- hverfinu. Margir sögðu mér að þeir hefðu verið að öskra á mig og hvetja mig áfram en ég bara heyrði það ekki. Ég heyrði heldur ekkert í kall- kerfinu þegar þeir lásu nafnið mitt upp. Ég held ég hafi verið of einbeitt til að heyra nokkuð, var bara að peppa sjálfa mig.“ Ertu haldin einhverri hjátrú – er eitthvað sem þú gerir alltaf fyrir sundin? „Ég er þannig að ef ég borða ein- hvern ákveðinn morgunmat fyrsta daginn verð ég að borða eins morgunmat allt mótið. Fyrsta morguninn borðaði ég hálfgerðan breskan morgunmat; hrærð egg, pylsu og ristað brauð með jarðar- berjasultu ásamt jarðarberjajógúrt. Út mótið var þetta alltaf morgun- maturinn nema að ég gat ekki gengið að jarðarberjasultu og -jógúrt vísri. Ég fór bak við í öngum mínum og bað þá um að reyna að finna jarðar- berjasultu og endaði einu sinni á því að fá mér vanillujógúrt og leið hálf- illa með það. Ég geri líka alltaf sömu upphitunaræfingarnar og ef ég gleymi einni ákveðinni teygjuæfingu verð ég stressuð!“ Aldrei komin seinna í rúmið en 10 Hrafnhildur er með þétta dagskrá og slær hvergi slöku við þrátt fyrir af- rek síðustu helgar. Nú um helgina keppir hún í Noregi ásamt Eygló Ósk Gústafsdóttur og yfirtaka æf- ingar fyrir Ríó alla dagskrá sumars- ins. Áfram heldur því rútínan að vakna, borða, synda og sofa. Og sofa vel, því að svefninn er mikið atriði til að halda dampi og Hrafnhildur er helst aldrei komin í rúmið seinna en 10 og leggur sig líka yfir daginn milli æfinga. Hún segir síðustu ár hafa verið ævintýri líkust en það sé ekki endilega endamarkið sem skipti öllu máli heldur ferðalagið sjálft. „Þetta er ekki endastöðin heldur leiðang- urinn sem er mikilvægasti hlutinn. Allt þetta sem maður upplifir á leið- inni til að geta búið til þessa stóru stund. Það er svo margt sem ég hef fengið að upplifa og er því svo þakk- lát; að fá að ferðast til allra þessara landa og hitta nýtt fólk. Stundum sér maður ekki mikið meira en flugvöll- inn og svo hótelið og sundlaugina en það er samt alltaf eitthvað nýtt að upplifa.“Morgunblaðið/Ófeigur Keppnismanneskjan í Hrafnhildi Lúthersdóttur kom snemma í ljós og reyndi hún meira að segja að stinga fjölskylduna af í göngutúrum þegar hún var yngri. ’ Ég varaði hann við áður en við fórum aðvera saman – að ef hann vildi fara út íþetta væri sundið yfirgnæfandi þáttur í lífimínu. Ég væri alltaf að ferðast, að keppa og æfa mikið og hann jánkaði bara og sagðist vera til. Það kom snemma í ljós að Hrafnhildur yrði afburða sundkona. Morgunblaðið/Eggert Fátt eitt af afrekunum Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig aukapening?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.