Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 17
hafi eflt mig sem persónu og leikmann og
ákvað strax að gera aðeins meira en áður til
þess að komast út. Áttaði mig á því að þetta
var það sem ég vildi og lagði því meira á mig
en áður. Svo einfalt var það. Ég var mættur út
á sparkvöll eftir heimavinnu, fór svo á æfingu
og á eftir hér heima gerði ég magaæfingar,
armbeygjur og lyfti fullri skúringafötu sem ég
var búinn að útbúa, þangað til ég var úrvinda
og fór upp í rúm. Allir dagar voru eins. Þarna
var hugurinn strax kominn út þótt ég hafi ver-
ið ungur. En ég hefði ekki verið tilbúinn að
fara út 14 eða 15 ára.“
Aron fór fyrst til AZ Alkmar í Hollandi, þar
sem hann var í tvö ár. „Ég fékk oft mikla
heimþrá þá. Ég get ekki ímyndað mér hvernig
ég hefði verið einn úti 14 ára. Í Hollandi bjó ég
hjá fjölskyldu sem lifði fyrir klúbbinn, virki-
lega almennilegu fólki, og átti þar mitt eigið
herbergi. Fyrsta mánuðinn var ég reyndar á
hóteli og grét mig þá oft í svefn því ég var ein-
mana; var einn, skildi ekki tungumálið og
fannst ég hálfpartinn einn í heiminum. Velti
því fyrir mér hvað ég væri eiginlega að gera
þarna. Þá var gott að eiga fjölskyldu sem
stendur við bakið á manni. Sérstaklega voru
símtölin við mömmu góð á þessum tíma þegar
ég var að gefast upp. Hún nefndi oft það sama:
Hvað með strákana sem dreymir um að vera í
sömu stöðu og þú? Ég gerði mér ekki grein
fyrir því hve heppinn ég var í raun. En þarna
greip ég tækifærið báðum höndum og hef ekki
litið til baka eftir það.“
Aron fór út 17 ára en var fljótlega orðinn
fyrirliði liðs 19 ára og yngri. „Ég braust fljót-
lega inn í varaliðið og æfði með aðalliðinu árið
eftir. Ég náði þó aldrei að festa mig þar í sessi
enda liðið frábært á þeim tíma. Louis van Gaal
var þjálfari, Grétar Rafn var í liðinu og nokkr-
ir flottir hollenskir landsliðsmenn. Þarna voru
miklir peningar í spilinu og alveg skiljanlegt
að erfitt væri fyrir unga leikmenn að komast
inn.“
Aron ákvað að einbeita sér vel þegar hann
fór heim til Íslands og tók þátt í öðrum A-
landsleik sínum. Upptaka af honum rataði til
margra félaga í útlandinu stóra og það varð til
þess að Coventry, sem lék í næstefstu deild á
Englandi, keypti hann frá AZ.
Þá var Aron orðinn 19 ára og úr varð að
Jóna móðir hans flutti með honum til Eng-
lands. „Ég þénaði meira og gat haldið okkur
báðum uppi. Það hjálpaði mér mjög mikið að
hafa mömmu hjá mér til að elda og sjá um að
halda mér á jörðinni. Pressan var orðin miklu
meiri; áhorfendur á leikjum allt í einu orðnir
23.000 í staðinn fyrir 200 á varaliðsleikjunum í
Hollandi. Með mömmu á staðnum var ég alltaf
næstum því „heima“ og hún hafði mjög gaman
af þessu. Var alveg til í að prófa eitthvað nýtt.“
Aron ákvað snemma á ferlinum að taka ekki
of stór stökk í einu. „Þegar ég fór frá Cov-
entry hefði ég til dæmis getað farið í úrvals-
deildina. Fundaði með Roy Hodgson [núver-
andi landsliðsþjálfara Englands] sem þá var
þjálfari West Bromwich Albion og hafði mik-
inn áhuga á að fara þangað en ég vissi að hann
gat ekki lofað mér sæti í byrjunarliðinu því lið-
ið var gott á þessum tíma. Ég var hugsaður
fyrir framtíðina en vildi fá að spila sem mest
og valdi því að fara til Cardiff og held að það
hafi verið rétt skref. Eftir fimm ár í Cham-
pionship-deildinni komumst við svo upp í Úr-
valsdeild en vorum þar því miður bara í einn
vetur sem var allt of stutt stopp. Þegar maður
er búinn að leggja mikið á sig er erfitt að taka
því að falla niður um deild.“
Erfiður vetur
Aron Einar átti í ákveðnum erfiðleikum í vetur
og lék mun minna en hann vonaðist til.
„Ég meiddist á undirbúningstímabilinu og
kom mér seint í gírinn. Þegar þjálfarinn er bú-
inn að velja lið og því gengur vel er erfitt að
komast að. Um mitt keppnistímabil komst ég
inn og spilaði eina 12 leiki í röð en veiktist þá
og missti af leik sem við unnum á móti góðu
liði og átti aftur erfitt með að komast í liðið
eftir það. Svo meiddist ég á ökkla undir lok
tímabilsins. Það var mjög svekkjandi en dreg-
ur ekkert úr sjálfstraustinu – það hefur alltaf
verið fyrir hendi.“
Hann segir Evrópukeppnina stóran
sýningarglugga og aldrei að vita hvað gerist
að henni lokinni. „Ég á tvö ár eftir af samningi
við Cardiff en sest niður eftir EM og skoða
mín mál og hvort Cardiff muni styrkja sig með
góðum leikmönnum og líkurnar aukist þannig
á því að við komumst aftur upp. Það er ekkert
leyndarmál að ég stefni á að komast í stærra
lið og þótt ég hafi lítið spilað í vetur gleymist
það fljótt ef ég stend mig vel á EM.“
Aron segir að koma verði í ljós hvort það
hái honum að hafa lítið leikið í vetur. „Ef ég
hefði spilað alla leikina væri ég kannski
þreyttur, ef ég hefði ekkert spilað gæti ég
verið í litlu leikformi, ef ég væri meiddur gæti
ég ekkert gert. Eina leiðin fyrir mig er að
hugsa sem svo að ég hafi fengið góða hvíld til
að taka almennilega á því í sumar. Maður
breytir engu eftir á.“
Aron hefur ekki gert upp við sig hvað hann
tekst á hendur eftir að keppnisskórnir fara á
hilluna enda vonandi mörg ár þangað til. Telur
þó fullvíst að fjölskyldan setjist að á Íslandi,
jafnvel á Akureyri. Hann nam einn vetur í
Menntaskólanum á Akureyri áður en hann
hélt utan og hefur síðan lokið tveimur árum í
fjarnámi við Verkmenntaskólann á Akureyri.
„Ég ætla að ljúka stúdentsprófi - einhvern
tímann,“ segir hann. Þá er Aron kominn með
B - gráðu UEFA, Knattspyrnusambands Evr-
ópu, í þjálfun en fullyrðir ekki hvort hann
muni einhvern tíma snúa sér að henni. Loka-
spurningin er borin upp að beiðni konu á rit-
stjórninni! Ætlar hann að skarta skegginu í
hitanum í Frakklandi? „Já, að minnsta kosti í
fyrsta leiknum, svo sé ég til...“
Aron Einar fagnar Gylfa Sigurðssyni eftir glæsilegt mark hans gegn Hollendingum í Laugardalnum.
Morgunblaðið/Golli
29.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Alta2 heyrnartækin frá Oticon búa yfir einstakri tækni sem
kallast BrainHearingTM. Þessi tækni hjálpar heilanum að
vinna betur úr hljóði þannig að þú upplifir það eins eðlilega
og hægt er. Með Alta2 heyrnartækjum verður auðveldara
fyrir þig að heyra og skilja, hvort heldur sem um lágvært
samtal er að ræða eða samræður í krefjandi aðstæðum.
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu
Sími 568 6880
www.heyrnartaekni.is
Ofurnett - ósýnileg í eyra eða falin á bak við eyra
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74
104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta
Einstök tækni – frábær hljómgæði
Prófaðu þessi
heyrnartæki í 7 daga