Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2016
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
GM 3200
GM 7700
GM 9900
Borðstofuborð
Heiða Rún Sigurðardóttir, eða Heida Reed eins og hún
kallast í Bretlandi, hélt upp á 28 ára afmæli sitt í byrjun
vikunnar og fjallaði Daily Mail meðal annars um það að
hún hefði hitt vinkonur sínar á kaffihúsi og blásið á kerti
á afar lítilli köku sem hægt hefði verið að koma fyrir í lóf-
anum og birtir mynd af kökunni og leikkonunum. Meðal
þeirra vinkvenna Heiðu Rúnar var Eleanor Tomlinson,
sem leikur eiginkonu fyrrverandi heitmanns Heiðu en
þær bítast um hjartagullið Ross Poldark í þáttunum.
Blaðamaður blaðsins bendir á að smæð kökunnar
megi líklega skrifast á það að þær þurfi að komast aftur í
hin níðþröngu lífstykki sem tilheyra búningum Poldark.
Það hefur vakið athygli fjölmiðla ytra að utan þátt-
anna eru þær Tomlinson og Heiða Rún bestu vinkonur
því í þessum metáhorfsþáttum BBC; Poldark, andar afar
köldu á milli þeirra á skjánum.
Með afmæliskökuna: Eleanor Tomlinson, Heiða Rún og Ruby Bentall sem leikur frænku Ross Poldark í þáttunum.
Bestu vinkonur utan þátta
Vinskapur aðalleikkvenna Poldark utan vinnu vekur athygli
breskra miðla enda slást þær um sama manninn í þáttunum.
„Það var enginn smásálarskapur
á búrekstrinum hjá baróninum á
Hvítárvöllum, sem bjó búi sínu
hér á landi um síðustu aldamót.
Mynd þessi sýnir einn mjólkur-
brúsann frá Hvítárvallabúinu.
Hann er hinn rammbyggilegasti
og allur koparsleginn og tekur
100 lítra.“
Með þessum orðum hófst
frétt með meðfylgjandi mynd í
Morgunblaðinu fyrir réttum sex-
tíu árum.
„Á hann er grafið með
stórum skrautstöfum „Hvít-
árvöllum“. – Brúsinn er smíð-
aður úti í London og upp úr lok-
inu á honum er stútur fyrir
loftgat. Það er Magnús Rögn-
valdsson, vegaverkstjóri í Búð-
ardal, sem á brúsann. Hefur
hann gaman af að safna gömlum
og sérstæðum munum. Norður í
Dali mun brúsinn hafa flækzt
vegna þess að baróninn rak
smjörbú í Miðdölum.“
GAMLA FRÉTTIN
Brúsi
barónsins
Ljósmynd/Þ. Th.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Sally Brown, litla systir Charlie
Brown.
Guðríður Helgadóttir, garðyrkju-
fræðingur og sjónvarpskona.
Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir,
nýr ritstjóri Séð og Heyrt.