Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Blaðsíða 34
FERÐALÖG Heimasíðan mylittlenomads.com er frábær fyrirbarnafjölskyldur. Þar má meðal annars finna lista yfir barnvænar baðstrandir, barnvæn söfn og áfangastaði. Ferðast með börnum 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is ÞÚ ERT LÍKLEGRI TIL AÐ GRÍPA INNÍ EF ÞÚ HEFUR ÞEKKINGU Á ÓÆSKILEGRI HEGÐUN Sjá útsölustaði á www.heggis.is SILKIMJÚKAR hendur Sænska Scandic-hótelkeðjan rekur hótel í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Finnlandi sem eru sérstaklega miðuð að þörfum barna. Þannig eru frábær leik- herbergi á hótelunum með leikföngum og föndurdóti, fótboltaspil á göng- unum, stór og góð fjölskylduherbergi og hægt er að panta sérstök unglinga- herbergi sem eru við hliðina á herbergi foreldranna. Barnamatseðlarnir eru úthugsaðir og öll börn fá sérstaka gjöf þegar þau koma. Einn vinsælasti skemmtigarður Bretlands, Chessington, er stór og skemmti- legur tívólí- og dýragarður og þar að auki er í garðinum vinsælt og eftir- minnilegt hótel fyrir fjölskyldur. Eftir langan dag í garðinum er mjög gott að geta gist í umhverfi sem er sérbúið til að þóknast börnum og hægt er að velja milli mismunandi þema; vera í safaríherbergi eða fjársjóðsleitarherbergi til dæmis. Ef þið eruð á ferðalagi í Svíþjóð og langar að eyða einni nótt á farfugla- heimili sem mun gera börn hugfangin má mæla með Jumbo Jet farfugla- heimilinu í Stokkhólmi. Þar hefur stór Boeing 747-200 flugvél verið útbúin sem farfuglaheimili. Að gista í flugstjórnarklefanum þykir til dæmis mikið ævintýri. Hótelkeðjan Kinderhotels Europa rekur hótel víða í Evrópu sem miðuð eru að þörfum barna. Eitt slíkt, Kinderhotel Oberjoch, er að finna í Alpaþorp- inu Allgäu. Bæði innandyra og úti eru ævintýralegar sundlaugar, hægt er að fara í keilu, go-cart, bíósalur er á hótelinu og fjöldinn allur af leikherbergjum. Úti við er nóg af leiktækjum og hoppuköstulum og mikið af fallegum gönguleiðum í Alpanáttúrunni. Fólki með ung börn sem langar að dvelja í rólegu fjölskylduvænu umhverfi án mikils áreitis má benda á dásamlegan gististað í Arezzo sem er nýlega uppgerð gömul mylla en eigandinn býr einnig á staðnum. Í garðinum er trjáhýsi og heillandi leikumhverfi sem þó er með rólegt yfirbragð. Fullkominn staður til slökunar. Gististaðurinn heitir einfaldlega Tuscan Mill eða il Molino. Í Bandaríkjunum er að finna ótrúleg hótel ætluð barna- fólki, litríka ævintýraheima með leiktækjum og ekki síst í Orlando. Fyrir utan fjölmörg hótel í Disney-garðinum sjálfum og Universal Or- lando-skemmtigarðinum eru óteljandi hótel sem líkjast ævintýraheimum fyrir börn, enda Orlando nánast sér- hannað fyrir fjölskyldufrí. Eitt af þeim er Marriott́s Harbour Lake sem er um- lukið töfrum og vatnaver- öldin í kringum hótelið er ótrúleg, sérstaklega er sjó- ræningjalaugin vinsæl og minigolfvöllurinn. Í Andalúsíu er dásamlegt hótel, Hotel dos Mares, nr Tarifa. Marokkóskt þema svífur yfir vötnum enda má sjá ljósin frá Marokkó á kvöldin. Yngri börn dunda sér á ströndinni, fallegu garð- og laugarsvæði meðan þau sem eru að- eins eldri hafa endalaust við að vera í tennis, seglbrettum og komast meira að segja í útreiðartúra. Frábærar fjölskyldusvítur er að finna á hótelinu. Hótel að hætti barna Um víða veröld er að finna hótel sem eru sérstaklega miðuð að þörfum barna og unglinga sem vert er að hafa í huga þegar næsta frí er bókað. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.