Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Qupperneq 27
29.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Enn snjallara
heyrnartæki
Beltone Legend
™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Uppskriftin gefur 10-12 sneiðar
KAKAN
1 bolli soðnar, kaldar, stapp-
aðar kartöflur án krydds
(venjulegar eru bestar en stór-
ar kartöflur ættu að duga)
1 bolli mjúkt smjör
2 bollar sykur
2 bollar hveiti
2 bollar egg
½ bollar kakó
1 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar
1 bolli mjólk
1 bolli saxaðar valhnetur eða
pekanhnetur
KREM
Hægt er að tvöfalda uppskriftina að
kreminu fyrir mikla sælkera
½ bolli smjör
1 bolli púðursykur
¼ bolli nýmjólk
2 bollar sykur
½ tsk vanilludropar
Hitið ofninn í 180°C og penslið 9
tommu kökuform vel með smjöri
eða olíu.
Hrærið saman í stórri skál í
hrærivél smjör og sykur þar til
blandan verður ljós og létt. Bætið
eggjum við, einu í einu, og hrærið
vel á milli. Bætið kartöflum saman
við ásamt vanilludropum. Blandið í
skál hveiti, kakói og matarsóda.
Bætið því við eggjablönduna. Mjólk-
inni er síðan hellt við varlega og
hrært á meðan ásamt hnetukurlinu.
Hellið blöndunni í formin tvö og
bakið í ofni í 25-30 mínútur eða þar
til gaffall eða prjónn kemur hreinn
upp úr kökunni þegar stungið er í
hana. Kakan er kæld í um 10 mín-
útur áður en hún er tekin úr form-
inu og færð á rimlaplötu til að kólna
enn betur.
Á meðan er kremið útbúið. Takið
pönnu og hitið á lágum hita. Út á
hana fer smjör og púðursykur þar
til sykurinn er bráðnaður og smjör-
ið hefur blandast vel saman við.
Hellið mjólkinni varlega út í og leyf-
ið suðunni að koma upp en athugið
að hræra stöðugt á meðan. Takið
pönnuna af hitanum og kælið þar til
kremið verður við stofuhita. Hrær-
ið þá sykri og vanilludropum var-
lega út í. Smyrjið kreminu á báða
botnana og smellið þeim síðan sam-
an, krem í krem. Smyrjið afgang-
inum af kreminu ofan á kökuna.
Kartöflukaka
með súkkulaði
Réttur fyrir 3-4
1 stór blómkálshaus eða 2
meðalstórir
ólífuolía
salt og pipar
2 skalotlaukar, saxaðir smátt
1 bolli skornir sveppir
1/3 bolli þurrt hvítvín
3 msk. ferskur sítrónusafi
1-2 msk. capers
4 örþunnar sneiðar af sítrónu
¼ bolli söxuð steinselja
2 tsk. smjör
Hitið ofninn í 220°C. Skerið
blómkálið í þrjár til fjórar
þykkar skífur líkt og brauð er
skorið. Hellið smá ólífuolíu á
pönnu og raðið skífunum á
pönnuna. Þær komast eflaust
ekki allar fyrir og því gott að
gera tvær í einu. Saltið og
piprið og hellið örlitlu af olíu
ofan á blómkálið. Ristið blóm-
kálið þar til það verður örlítið
brúnt á litinn. Endurtekið á
hinni hliðinni. Á meðan blóm-
kálið er að steikjast er sósan
útbúin. Hitið 2 tsk. af olíu á
pönnu yfir miðlungshita.
Blómkáls „piccata“ Skalotlaukurinn er steiktur íum 3 mínútur eða þar til hann
verður örlítið sveittur. Þá er
sveppunum bætt við og þeir
hafðir í um 2 mínútur til við-
bótar. Hellið víni, sítrónusafa
og capers út í og hrærið í á
meðan. Rétt áður en á að
bera fram réttinn er steinselja
sett út í og sítrónusneiðarnar
ásamt smjörinu og leyfið því
að bráðna. Raðið síðan blóm-
kálinu á diska og hellið sós-
unni smekklega yfir. Berist
fram heitt. Þessi réttur er
æðislegur.