Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2016
MATUR
Morgunblaðið/Ásdís
Hollt og gott
millimál
Matgæðingurinn Ebba Guðný Guðmundsdóttir
er með margar hugmyndir um hvernig börn og
unglingar geta búið til hollt og gott snarl til að
borða eftir skóla og á milli mála. Hér gefur hún
lesendum nokkrar einfaldar og góðar uppskriftir
sem henta öllum sem vilja góðan millibita.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
F
lestir íslenskir foreldrar
eru útivinnandi og sjá því
ungmenni oftast sjálf um
að fá sér í svanginn á
daginn. Þau koma gjarn-
an heim úr skólanum og af íþrótta-
æfingum glorsoltin. Þá er gott að
kunna að útbúa sér snarl sem ekki
er stútfullt af hvítum sykri, hveiti
eða óhollum aukaefnum. Ekki er
verra ef hægt er að nýta afganga
sem til eru í ísskápnum.
Snarl úr góðum hráefnum
Ebba hefur mikinn áhuga á að
breyta venjum barna og unglinga og
fá þau til að borða hollari mat á milli
mála. Hún er með margar góðar
hugmyndir að einföldum réttum.
„Þetta er í rauninni mestmegnis
millimál sem henta vel til dæmis eft-
ir skóla. Ungir krakkar og ungling-
ar eru oft að kaupa sér tilbúin mat-
væli eða kvarta undan því að
„ekkert sé til“ af því þau kunna ekki
að búa sér til eitthvað ljúffengt úr
því sem til er heima.“ segir Ebba
sem mælir t.d. með að nota afganga
í vefjur eða ofan á pizzu.
Hollt er ekki
endilega dýrara
Ebba segist nota mikið ólífuolíu,
smjör og rjóma í matargerð. „Fita
er svo mikilvæg fyrir krakka til að
fá orku og til að tempra blóðsyk-
urinn. Ef þau fá of lítið af góðri fitu
sækja þau í sætindi til að fá orkuna
þar. Þannig á alls ekki að skera nið-
ur fitu, því þá er maður alltaf svang-
ur og langar í eitthvað sætt. Svo er
upplagt að ræða mikið heima hvað
vatn sé ofboðslega hollt. Drekka
bara vatn og aftur vatn! Fólk hefur
oft áhyggjur af því að það sé dýrt að
kaupa hollt en hægt er að spara
mikið með því að nýta betur af-
ganga og drekka bara ferskt ís-
lenskt gæðavatn. Fyrir utan að lík-
aminn verður fyrr saddur og glaður
af næringarríkum mat en næring-
arsnauðum. Þannig borðar maður
ósjálfrátt minna þegar maður borð-
ar mat sem inniheldur næringu
heldur en eftirlíkingar af mat.“
Heimatilbúið betra en
keypt
„Hugmyndin er að ungmenni venj-
ist því að fara heim og útbúa sér
hollan mat sjálf,“ segir Ebba sem
sýnir handtökin á vefsíðunni snar-
lid.is. „Ég gef líka alls kyns ráð, til
dæmis um geymslu og nýtingu mat-
ar,“ segir Ebba sem reynir að fræða
ungmennin um gildi þess að nýta
mat og henda minna því matarsóun
sé orðið mikið vandamál í heim-
inum. „Ég hvet foreldra til að sýna
krökkunum sínum þessi myndbönd.
Þau eru mjög einföld og þægileg og
ættu að hvetja krakka til dáða sem
og gera þau meðvitaðri um mat og
eldamennsku. Ég hugsa reyndar að
þau nýtist miklu fleirum en ungling-
um!“
Fyrir tvo
2 dl lífræn möndlu-
mjólk, möndlu- og hrís-
mjólk eða lífræn grísk
jógúrt (allt mjög gott)
2 dl frosin ber eða
ávextir eða bland af
báðum, notið það sem
þið eigið og elskið
1 1/2 banani (eða 3
döðlur)
5-10 dropar vanillu-
stevia (setjið í lokin ef
þið viljið sætara bragð.
Byrjið með 5 dropa.
Geymið glasið í kæli)
Setjið allt í blandara og blandið þar til silkimjúkt og bætið við vatni/
möndlumjólk ef þið viljið hafa drykkinn þynnri eða ef blandarinn
ykkar á í erfiðleikum. Ef blandarinn er ekki mjög kröftugur getið
þið látið ávextina bíða í um 5-10 mínútur í blandaranum áður en
þið byrjið að blanda, svo þeir byrji að þiðna og maukist betur.
Góð ráð frá Ebbu: Gott er að setja 1 msk af hörfræolíu út í drykk-
inn. Athugið að ef þið eruð bara með ber og enga ávexti þurfið þið
að minnsta kosti 1 ½ banana og jafnvel 2 banana af því berin eru
súr. Mér finnst best að blanda saman 1 dl af mangó eða peru og 1 dl
af berjum og þá nota ég 1 ½ banana.
Ef þið notið gríska jógúrt þá verður drykkurinn aðeins súrari
heldur en ef þið notið möndlumjólk. Einnig er misjafnt hvort
möndlumjólkin er sæt eða ósæt.
Athugið líka að ber eru missúr á bragðið. Bætið við banana eða
stevíu ef ykkur finnst drykkurinn of súr.
Það er frábært að setja
stundum smá af þroskaðri
lárperu (avókadó) í þeyt-
inga. Setjið þá lárperuna út
í síðast og blandið með í
blálokin. Lárperur eru
stútfullar af góðri næringu
og fitu fyrir okkur öll. Þeyt-
ingurinn verður þá meira
eins og búðingur, bæði
þykkari og saðsamari.
Helmingið uppskriftina
ef þið eruð að gera fyrir
ykkur ein drykkinn.
Þið verðið mjög fljót að
finna ykkar uppáhalds út-
gáfu, ekki gefast upp!
Berjasjeik
½ dl af möndlum (lagðar í bleyti
í um 12 klst. eða
yfir nótt til dæmis) eða
1 msk. möndlumauk
1 msk. kakó
3 dl kalt vatn
1 stór banani, (gott ef hann er
frosinn en ekki nauðsynlegt)
5-10 dropar vanillustevía (bæta við í
lokin, ef þið viljið hafa drykkinn
sætari)
Skolið möndlurnar vel í köldu
vatni. Skellið þeim í blandara með
vatninu og blandið vel. Bætið ban-
ana og kakó saman við og blandið
aðeins lengur. Ef bananinn var
ekki frosinn er gott að setja
nokkra klaka. Smakkið til með
stevíunni í lokin ef þið viljið. Ef þið
notið möndlumauk setjið þið bara
allt í blandarann og blandið vel.
Góð ráð frá Ebbu: Athugið að
einnig má sæta drykki t.d. með
döðlum eða mórberjum í staðinn
fyrir banana. Hér þyrfti um 3-4
döðlur.
Kakó-
möndlu-
mjólk
400 g spelt (til dæmis gróft og fínt
til helminga - eða það mjöl sem
er til heima)
1/2 tsk sjávarsalt
2 tsk vænar kardimommuduft
2 egg, til dæmis hamingjusöm (má
sleppa eggjunum ef einhver er með
eggjaofnæmi)
40 g kaldpressuð ólífuolía, kókosolía
eða brætt smjör
3-4 dl mjólk að eigin vali (ég nota oft
lífræna hreina jógúrt, hrísgrjónamjólk
eða möndlumjólk)
3-4 dl vatn
Setjið vöfflujárnið í samband.
Blandið saman þurrefnum. Bætið
blautu efnunum við og hrærið þar
til deigið er orðið eins og grautur.
Bakið.
Góð ráð frá Ebbu: Það má borða
vöfflur með smjöri, sultu og osti
eða súkkulaði og rjóma.
Vöfflur