Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Side 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2016 B irgitta Jónsdóttir, formaður þing- flokks Pírata, stóð sl. þriðjudag fyrir sérstökum umræðum um stöðu fjöl- miðla á Íslandi. Staða fjölmiðla er áhugavert og mikilvægt umfjöllunar- efni og ekki aðeins á Íslandi, því að staða þeirra er eðli máls samkvæmt að ýmsu leyti svipuð víða um heim. Þeim sem fylgst hafa með umfjöllun um fjölmiðla annars staðar í veröldinni á síðustu árum hefur orðið ljóst að staða þeirra er viðkvæm og að ýmsu leyti hafa fjölmiðlar gengið í gegnum mikla erfiðleika. Er þá átt við þau fyrirbæri sem hefðbundið er að kalla fjölmiðla, eru til að mynda með formlega ritstjórn sem vinnur eigið efni, flytja almennar fréttir eða afþreyingarefni og reyna að ná til fjöldans. Sjónvarpsstöðvar sem bjóða upp á hefðbundna dagskrá glíma við minnkandi áhorf í harðri sam- keppni við margvíslegt efni frá annars konar efnis- veitum, svo sem Netflix og Hulu eða jafnvel Youtube, svo dæmi séu nefnd. Dagblöð keppa nú orðið við netið, þar með talda eigin vefi á netinu, og hafa mörg átt í miklum erfiðleikum. Fjöldi dæma er erlendis um dagblöð, líka þekkt og rótgróin blöð, sem lagt hafa upp laupana eftir erfiðan slag við nýja miðla og breytta fjölmiðlanotkun almennings. Enn fleiri eru dæmin sennilega um dagblöð sem sameinast öðrum eða renna inn í stærri fjölmiðlafyrirtæki sem reka marga miðla, ekki síst svæðisbundna miðla. Loks eru nýleg innlend dæmi um stóra blaðaútgáfu og sjón- varpsrekanda sem segjast skoða möguleikann á að flytja starfsemina úr landi. Það segir sitt um rekstrarumhverfið hér. Dagblöðin uppspretta umfjöllunar Krafan um hagræðingu í rekstri fjölmiðla er mikil til að mæta breyttum veruleika og tryggja að áfram sé unnið gæðaefni fyrir neytendur. Staðreyndin er nefnilega sú að þó að netið sé yfirfljótandi af upplýs- ingum og þar sé svo að segja allt að finna eru hefð- bundnar traustar fréttir ekki jafn algengar. Margir halda úti síðum með eigin skoðunum og áliti á hinu og þessu, sem er mikilvægt framfaraspor og tryggir að erfiðara er að þagga niður í ákveðnum sjónarmiðum. Þau sjónarmið geta fundið sér farveg, hafi fólk áhuga á að koma þeim á framfæri. Það er jákvætt en breytir ekki því að nauðsynlegt er að áfram séu starfandi hefðbundnir fjölmiðlar sem hafa bolmagn til að vinna fréttir, sem oft tekur langan tíma og kostar mikið fé. Sú vinna og slíkar fréttir eru almennt undirstaða um- ræðunnar í þjóðfélaginu, meðal annars undirstaða mikils meirihluta þess sem almenningur skrifar á eig- in síður á netinu og þeirra sjónarmiða sem hann læt- ur í ljós, jafnt á netinu sem annars staðar, um helstu þjóðmál og annað sem miklu varðar. Í tímans rás hafa dagblöð verið helsta uppspretta þess háttar umfjöllunar og eru enn í dag þrátt fyrir mikla tækniþróun og breytt fjölmiðlaumhverfi. Það eru dagblöðin, og fréttavefir sem þeim tengjast, sem yfirleitt hafa í senn burði og rými til að fjalla um mál af þeim þunga sem þörf er á til að viðhalda nauðsyn- legu upplýsingaflæði um þjóðfélagið. Aðrir miðlar gera vitaskuld einnig gagn í þessu efni en hafa tak- markað rými, sem sést best á því hve miklu knappari og færri fréttir eru yfirleitt í útvarpi og sjónvarpi en í þeim blöðum sem taka sig alvarlega sem fréttamiðla. Ótrúverðug umræða Allt er þetta afar þýðingarmikið þegar rætt er um stöðu fjölmiðla, hvort sem er á Íslandi eða annars staðar, en það er því miður lýsandi fyrir þá umræðu sem oft fer fram á Alþingi að inn á þetta, eða hvað væri til ráða, var varla komið í fyrrnefndri sérstakri umræðu um stöðu fjölmiðla á Íslandi. Birgitta hafði einkum áhuga á að ræða tvennt, annars vegar ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla og hins vegar eignarhald þeirra. Þetta er hvort tveggja mikilvægt en eins og við var að búast er sýn Birgittu og annarra sem þátt tóku í umræðunni ekki endilega mjög skýr eða trúverðug hvað þetta varðar. Birgitta hélt því til að mynda fram að til væri nýlegt dæmi um „þær kvaðir sem settar voru á blaðamenn Morgunblaðsins þar sem reynt er að þröngva stjórn- málaskoðunum upp á fólk af yfirmanni þeirra, manni sem er þekktur fyrir að hafa í valdatíð sinni kallað fjöl- miðlamenn og rithöfunda á teppið ef honum, sem þá var forsætisráðherra, hugnaðist ekki umfjöllunarefni þeirra“. Þarna var þingmaðurinn sennilega að ýja að ósannindum sem fram hafa komið nýlega í ómerki- legum fjölmiðlum um að blaðamenn á ritstjórn Morg- unblaðsins hafi verið neyddir til að skrifa undir stuðn- ing við framboð annars ritstjórans. Þetta hefur verið hrakið en engu að síður sér þingmaðurinn sóma sinn í að endurtaka ósannindin í skjóli þinghelginnar. Fullyrðingin um að yfirmaðurinn, sem engum blandast hugur um hver á að vera, hafi kallað fjöl- miðlamenn og rithöfunda á teppið eru vitaskuld einn- ig ósannindi, eins og þingmanninum hlýtur að vera fullkunnugt um. Á hinn bóginn er það auðvitað svo að blaðamenn eða ritstjórar, og það þekkja þeir vel sem stýrt hafa Morgunblaðinu, þurfa iðulega að sæta gagnrýni þeirra sem til umfjöllunar eru, ráðherra, þingmanna og annarra, án þess að kveinka sér undan því. Það er eðlilegur hluti af skoðanaskiptum og ekk- ert sem fjölmiðlar þurfa að fárast yfir, enda er það nær aldrei gert að umfjöllunarefni þó að það sé nán- ast daglegt brauð og hafi alla tíð verið. Óþarfar áhyggjur þingmanna af Ríkisútvarpinu Flestir þeirra sem þátt tóku í umræðunni, einkum úr stjórnarandstöðunni, höfðu mestar áhyggjur af fram- tíð Ríkisútvarpsins, sem er sérkennilegt í ljósi þess að það er eini fjölmiðillinn sem nýtur margra millj- arða króna forskots í samkeppninni, eins og Sigríður Andersen alþingismaður benti raunar á, ein þing- manna. Flestir aðrir höfðu þungar áhyggjur af að Ríkisútvarpið fengi ekki nægar tekjur og þeir sem vildu ýta stofnuninni út af auglýsingamarkaði tóku fram að yrði það gert þyrfti að tryggja að stofnunin yrði ekki fyrir tekjuskerðingu. Þetta er sérkennileg nálgun þeirra sem segjast tala fyrir frjálsri fjölmiðlun og segjast hafa áhyggjur af ritstjórnarlegu sjálfstæði og fjölbreytni á fjölmiðla- markaði, sem vissulega eru mikilvægir þættir en afar vafasamt að verði tryggðir með fréttaflutningi af hálfu ríkisins. Óeðlileg afskipti ríkisins í gegnum fjölmiðlanefnd Sú leið sem helst var mælt með við að bæta fjölmiðlun hér á landi í þessum umræðum var að efla fjölmiðla- nefndina, sem vinstristjórnin setti á fót á síðasta kjör- tímabili og hefur ekkert gagn gert síðan, nema síður sé. Fjölmiðlanefnd safnar upplýsingum um eignar- hald fjölmiðla, sem er ágætt að liggi fyrir á einum Sérstaka umræðan verður varla mikið sérstakari en þetta ’ Vinstristjórnin sem setti fyrrgreind lög fór frá en sú sem tók við hefur ekki fellt þau úr gildi þrátt fyrir að þau gangi þvert á eðlileg sjónarmið um frelsi í fjölmiðlun. Næsta vinstristjórn getur því haldið áfram þar sem frá var horfið og skorið eina sneið enn af frelsi fjölmiðla. Reykjavíkurbréf27.05.16

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.