Fréttablaðið - 18.01.2017, Blaðsíða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Seltjarnarnesbær hlaut Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC í desember sl. Ég vil fagna að Þorsteinn Víg-lundsson, nýr ráðherra félags- og jafnréttismála,
ætli að láta það vera sitt fyrsta verk að leggja fram frum-
varp um að fyrirtæki með 25 starfsmenn eða fleiri láti
framkvæma jafnlaunavottun. Þetta hefði átt að vera
komið á fyrir löngu. Með jafnlaunaúttekt geta bæjar-
fulltrúar sveitarfélaga séð hvernig launasetning sveitar-
félagsins er meðal starfsmanna bæjarins og þannig
komið í veg fyrir kynbundinn launamun.
PwC framkvæmdi jafnlaunaúttekt á launagögnum
hjá Seltjarnarnesbæ fyrir launatímabilið febrúar 2016.
Í tilkynningu frá PwC er þessi mæling sögð sú fyrsta
sem þeir hafa framkvæmt meðal fyrirtækja og stofnana,
þar sem laun kvenna mælast hærri en laun karla bæði í
grunnlaunum og heildarlaunum.
Niðurstaðan var eftirfarandi: Grunnvinnulaun kvenna
voru 2,7% hærri en grunnlaun karla. Heildarlaun kvenna
voru 0,9% hærri en heildarlaun karla.
PwC veitir fyrirtækjum og stofnunum Gullmerki Jafn-
launaúttektar PwC ef bæði launamunur grunnlauna
og heildarlauna er undir 3,5% sem viðurkenningu fyrir
framúrskarandi árangur. Fulltrúar PwC segja að afar vel
hafi tekist til við að ná utan um og útskýra launadreifingu
í greiningunni á grundvelli þeirra fjölmörgu ólíku breyta
sem notaðar voru. Skýringargildi launadreifingar er sér-
lega hátt, eða 91% og því aðeins 9% launadreifingar sem
eru óútskýrð. Óvissa í túlkun niðurstaðna er því hverfandi.
Það er afar jákvætt fyrir bæjarfélagið að hljóta gull-
merkið, það sýnir staðfestu bæjarstjórnar að stuðla að
jafnrétti og gerir bæinn að eftirsóknarverðari vinnu-
stað. Launamunur hjá Seltjarnarnesbæ er mjög lágur
og engar vísbendingar að um kerfisbundinn launamun
sé að ræða. Seltjarnarnes er með lægsta launamun sem
mælst hefur á heildarlaunum meðal opinberra stofnana
og bæjarfélaga. Ég hvet félaga mína í sveitarstjórnum
til að láta framkvæma jafnlaunaúttekt sem allra fyrst,
þetta er tæki til að jafna kynbundinn launamun sé hann
til staðar. Sveitarstjórnarfólk á að vera stolt yfir því að
geta upplýst kjósendur sína og starfsmenn bæjarfélags-
ins um að ekki sé til staðar kynbundinn launamunur í
þeirra sveitarfélagi.
Jafnrétti í raun
Ásgerður Hall-
dórsdóttir
bæjarstjóri
Seltjarnarness
Seltjarnarnes
er með lægsta
launamun
sem mælst
hefur á
heildar-
launum
meðal opin-
berra stofn-
ana og
bæjarfélaga.
Gríptu lyfin á leiðinni heim
Apótek Garðarbæjar í alfaraleið
Litlatún 3, Garðarbæ | Sími 577 5010
Þjóðin heldur niðri í sér andanum vegna hvarfs Birnu Brjánsdóttur sem hefur verið saknað frá því snemma á laugardags-morgun. Hugur þjóðarinnar er hjá Birnu og ástvinum hennar. Þegar þessi orð eru skrifuð er enn óvíst um afdrif þessarar
ungu og hraustu stúlku í blóma lífsins. „Nú biðji sem
biðja, nú óski sem óska, nú voni sem vona, / nú hugsi
allir þá hlýju hugsun, þá einu ósk, þá bæn og von sem
býr með smárri þjóð.“ Þessar línur sem hér eru birtar
í breyttri uppsetningu orti Guðmundur Brynjólfs-
son, rithöfundur og djákni á Eyrarbakka, og deildi á
Facebook-síðu sinni í gær og undir þetta getum við öll
tekið. Við vonum, biðjum, óskum.
En við, þessi smáa þjóð, þurfum líka að finna með
okkur hugrekki til þess að horfast í augu við sam-
félagslegar staðreyndir. Horfast í augu við það að við
óttumst að Birna Brjánsdóttir hafi mögulega verið
fórnarlamb ofbeldis af hálfu karlmanna. Horfast
í augu í við það að það er hættulegt að vera kona í
heiminum og líka á Íslandi. Það er hættulegt fyrir
konur að vera einar á ferð að næturlagi í miðborg
Reykjavíkur. Það getur verið hættulegt fyrir konur
að fara í samkvæmi, á útihátíðir og skemmtistaði.
Hættulegt að kynnast manni á netinu eða að fara á
stefnumót. Hættulegt að klæða sig eins og kona vill
klæða sig. Það er hættulegt að vera kona vegna þess
að ofbeldið er alls staðar og valdbeiting karlmanna
inngróin í samfélagsgerðina í gegnum aldirnar. Hér
sem annars staðar. Í dag sem fyrr.
Auðvitað eru ekki allir karlmenn ofbeldismenn,
langt því frá. En það breytir ekki þeirri staðreynd
að líkurnar á því að kona verði fyrir ofbeldi karls er
langlíklegasta tegund mögulegs ofbeldis sem við sem
samfélag stöndum frammi fyrir. Það er óásættan-
legt með öllu. Og þó svo að við sem lítil þjóð getum
kannski ekki breytt heiminum, þá getum við breytt
samfélagi okkar til hins betra og verið öðrum þjóðum
fyrirmynd.
Ábyrgðin af því að framkvæma þessar breytingar
liggur fyrst og fremst hjá okkur karlmönnum. Okkur
sem erum afkomendur þessa hugmyndaheims, þessa
karllæga valds hvort sem okkur líkar það betur eða
verr. Konur hafa lengi talað um vandann og sumir
karlar veitt þeim liðsinni en til þess að sigrast á þeim
fjanda sem ofbeldið er þá þurfa allir að leggjast á
eitt. Við þurfum að margfalda fræðslu og forvarnir
til allra aldurshópa og virkja til þess allar mögulegar
leiðir. Við þurfum að heyja þessa baráttu með öllum
tiltækum ráðum á öllum vígstöðvum og til þess þarf
hvert og eitt okkar að taka ábyrgð á sinni orðræðu og
hegðun í dagsins önn án undantekninga.
Það er löngu tímabært að við sem þjóð útrýmum
kynbundnu ofbeldi á Íslandi og sendum veröldinni
skýr skilaboð um að slíkt sé ekki látið þrífast hér. Að
hér búi kærleikur og mannvirðing og að ofbeldi sé
ekki, aldrei nokkurn tíma, liðið. Það er hægt ef vilji
og úthald er fyrir hendi. Til þess að þetta sé gerlegt
þurfum við að halda í þessa hlýju hugsun, þá einu
ósk, þá bæn og von sem býr með smárri þjóð.
Von og trú
Við þurfum
heyja þessa
baráttu
með öllum
tiltækum
ráðum á
öllum víg-
stöðum og
til þess þarf
hvert og eitt
okkar að
taka ábyrgð
á sinni orð-
ræðu og
hegðun í
dagsins önn
án undan-
tekninga.
Byrjar með látum
Sigríður Andersen, nýr dóms-
málaráðherra, segir ríkisstjórnina
ekki ætla að láta það átölulaust
ef Albanar og Makedóníumenn
„misnota þá velvild sem við
viljum sýna“ með miklum fjölda
hælisumsókna hér á landi. Þetta
sagði hún í samtali við RÚV í gær.
Þó orðalagið sé óvenju harkalegt
miðað við það sem tíðkast frá
ráðherrum þá er línan sú sama og
hefur verið tekin áður í ráðu-
neytinu en í desember sagði Ólöf
Nordal, forveri hennar, að hér á
landi séu ekki aðstæður fyrir hæl-
isumsóknir frá þessum löndum.
Sigríður virðist ætla að blása til
stórsóknar gegn því sem hún
kallar tilhæfulausar umsóknir.
Það verður forvitnilegt að fylgjast
með hverjar undirtektirnar verða.
Fótboltadraumarnir
Kristín Ástgeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisstofu,
hefur vakið athygli fyrir vanga-
veltur um hvort strákar dragist
aftur úr í námi vegna drauma um
að verða atvinnumenn í knatt-
spyrnu. Ummælin hafa vakið hörð
viðbrögð enda sýna rannsóknir
ekki að strákar séu metnaðarlaus-
ari varðandi menntun en stúlkur,
miklu frekar að skólakerfið henti
þeim ekki. Þá hefur því verið velt
upp hvort launamunur kynjanna
skrifist á það að karlar fara fyrr
út á vinnumarkaðinn á meðan
konur dvelja í námi. Verðugt rann-
sóknarefni fyrir Jafnréttisstofu.
snaeros@frettabladid.is
1 8 . j a n ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r10 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð
SKOÐUN
1
8
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
A
-6
E
9
8
1
B
F
A
-6
D
5
C
1
B
F
A
-6
C
2
0
1
B
F
A
-6
A
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K