Fréttablaðið - 18.01.2017, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 18.01.2017, Blaðsíða 40
Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 18. janúar Viðburðir Hvað? Tungumál er gjöf Hvenær? 16.00 Hvar? Borgarbókasafnið, Grófinni Öll börn þurfa að læra tungumál og sum börn þurfa að læra fleiri en eitt tungumál strax á unga aldri. Vefurinn „Tungumál er gjöf“ er verk- færakista fyrir leikskólakennara full af hugmyndum um það hvernig hægt er að efla leikskólastarf með fjöltyngdum börnum og foreldrum þeirra. Sá vefur verður opnaður og samhliða verður sýning á barna- bókum á fjölbreyttum tungumálum. Hvað? Hvernig byrja ég að spara? Hvenær? 17.00 Hvar? Útibú Íslandsbanka í Norðurturni við Smáralind Yfir 1.000 manns hafa sótt fræðslu- fundi VÍB um fyrstu skref við fjár- festingar og sparnað en á fundunum fer Björn Berg, fræðslustjóri VÍB, yfir gagnlegar þumalputtareglur í fjár- festingum. Markmið fundarins er að auðvelda gestum að fóta sig við fjár- festingar, forðast algengustu mistök og ná góðum fjárhagslegum árangri. Frítt er á fundinn og boðið verður upp á léttar veitingar. Skráning á vef VÍB Hvað? Hrútskýrir kynntur til leiks Hvenær? 17.30 Hvar? Bryggjan Brugghús Þorrabjór Bryggjunnar Brugghúss, Hrútskýrir, kveður sér hljóðs á dælunum og í tilefni þess mun yfir- bruggari Bryggjunnar, Bergur Gunn- arsson, kynna bjórinn. Bjórstíllinn er Gose, gamall þýskur bjórstíll sem átti miklum vinsældum að fagna í Þýskalandi og hefur komið sterkur inn í handverksbjórsenuna undan- farin ár. Hrútskýrir verður fáanlegur í takmörkuðu magni og einungis á dælum Bryggjunnar. Þeir sem vilja smakka þurfa að hafa hraðar hendur áður en kútarnir tæmast. Hvað? Imposter Syndrome umræður Hvenær? 19.00 Hvar? Kvennaheimilið Hallveigarstaðir Hefur þér einhvern tíma liðið eins og fólk haldi að þú sért klárari en þú telur þig vera? Þú ert ekki sú eina! Ungar athafnakonur halda fyrsta viðburð ársins í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Túngötu 14. Tölvunarfræðingurinn Berglind Ósk Bergsdóttir verður fengin til að flytja erindi um hugtakið imposter synd- rome sem hefur sérstaklega ein- kennt ungar konur. Imposter synd- rome, eða svikaraheilkennið eins og það hefur verið þýtt á íslensku, felur það í sér að manneskju líður eins og svikara og það sé tímaspursmál hvenær aðrir komast að því að hún sé að þykjast og sé í raun ekki eins klár og allir halda. Þessi tilfinning er viðvarandi þrátt fyrir ytri merki um árangur sem er vísað frá sem heppni, góðri tímasetningu eða öðrum utanaðkomandi þáttum. Berglind mun jafnframt deila sinni upplifun og reynslu við að vinna gegn þeirri upplifun sem fylgir imposter syndrome. Hvað? Heimspekikaffi um samband vinsemdar og ónæmiskerfis Hvenær? 20.00 Hvar? Borgarbókasafnið, Gerðubergi Vinskapur er lykill að hamingju en hvað með heilsu? Hvert er t.d. sam- band vinsemdar og ónæmiskerfis? Hefur einsemd áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma? Sterkt samband vin- semdar og heilsu verður til umræðu og Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur, stýrir umræð- unni og mun spyrja lækninn Láru G. Sigurðardóttur um rannsóknir sem sýna að styrkleiki vinsemdar hafi áhrif á heilsufar fólks. Heimspeki- kaffið í Gerðubergi hefur verið vin- sælt undanfarin misseri, en þar er fjallað á mannamáli um hvers konar líferni er eftirsóknarvert. Hvað? Stefnumót vinnustofa Hvenær? 20.00 Hvar? Gerðuberg Vinnustofan Stefnumót byggir á dagbókinni Árið mitt 2017, en þar er að finna tólf hamingjulykla sem geta hjálpað okkur að taka markviss skref á árinu til aukinnar sjálfsþekkingar og gleði. Á þessari vinnustofu verður fræðst um ýmis hagnýt en ólík verkfæri til persónu- legrar stefnumótunar, fá innblástur og hugmyndir að leiðarlýsingu fyrir nýtt ár. Þeir sem eiga bókina Árið mitt 2017 taka hana með sér, en einnig verður hún til sölu á staðnum á góðu verði. Leiðbeinandi er Áslaug Björt Guðmundardóttir, höfundur bókarinnar. Sýningar Hvað? Þorskastríðin Hvenær? 10.00 Hvar? Sjóminjasafnið í Reykjavík Sýningin Þorskastríðin, for Cod’s Sake fjallar um pólitískar deilur milli Íslands og Bretlands um fiskveiði- réttindi á Íslandsmiðum á árunum 1958-1976. Saga þorskastríðanna er rík og margslungin. Í henni koma við sögu fagurklæddir sjómenn frá Hull, ármenn Íslands eða strákarnir okkar, grjótkast og árekstrar bæði á hafi og í landi. Á sýningunni er varpað ljósi á ýmsa þætti þessarar sögu, suma lítt þekkta. Sýningin er afrakstur vinnu meistaranema í hagnýtri menningarmiðlum við Háskóla Íslands í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur. Hvað? Gísli á Uppsölum Hvenær? 18.30 og 21.00 Hvar? Þjóðleikhúsið Einn stærsti viðburður íslenskrar sjónvarpssögu er Stikluþáttur Ómars Ragnarssonar um einbúann Gísla Oktavíus Gísla- son. Enn er Gísli landanum kær og hugleikinn. Hér er á ferðinni áhrifamikil sýning sem hefur hrifið áhorfendur líkt og saga sögu- hetjunnar. Góða skemmtun í bíó! Á nýrri sýningu á Sjóminjasafninu er farið yfir sögu þorskastríðanna. ÁLFABAKKA LIVE BY NIGHT KL. 8 - 10:45 MONSTER TRUCKS KL. 5:40 COLLATERAL BEAUTY KL. 5:40 - 8 - 10:45 SYNGDU ÍSL TAL 2D KL. 5:30 ROGUE ONE 3D KL. 5:10 - 8 - 10:45 ROGUE ONE 2D KL. 10:20 ROGUE ONE 2D VIP KL. 5:10 - 8 - 10:45 VAIANA ÍSL TAL 2D KL. 5:30 ALLIED KL. 8 - 10:45 FANTASTIC BEASTS 2D KL. 8 LIVE BY NIGHT KL. 5:20 - 8 - 10:45 MONSTER TRUCKS KL. 5:40 COLLATERAL BEAUTY KL. 8 - 10:40 ROGUE ONE 2D KL. 8 - 10:10 VAIANA ÍSL TAL 2D KL. 5:30 EGILSHÖLL LIVE BY NIGHT KL. 5:20 - 8 - 10:20 - 10:35 MONSTER TRUCKS KL. 5:40 ROGUE ONE 3D KL. 5:20 - 8 - 10:35 OFFICE CHRISTMAS PARTY KL. 8 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI LIVE BY NIGHT KL. 8 - 10:35 MONSTER TRUCKS KL. 5:40 ROGUE ONE 3D KL. 8 - 10:35 VAIANA ÍSL TAL 2D KL. 5:40 AKUREYRI LIVE BY NIGHT KL. 8 PATRIOT’S DAY KL. 8 THE GREAT WALL KL. 10:35 ASSASSIN’S CREED KL. 10:35 KEFLAVÍK  TOTAL FILM  ENTERTAINMENT WEEKLY  ROLLING STONE  ROGEREBERT.COM  NEW YORK DAILY NEWS KVIKMYNDAVIÐBURÐUR ÁRSINS Will Smith Helen Mirren Kate Winslet Edward Norton FRÁBÆR NÝÁRSMYND MOVIE NATION   THE HOLLYWOOD REPORTER  96% OG FRÁ LEIKSTJÓRA ICE AGE Frábær mynd fyrir alla fjölskylduna THE GUARDIAN  ROLLING STONE  Ben Affleck Elle Fanning Brendan Gleeson Zoe Saldana Sienna Miller Chris Cooper Miðasala og nánari upplýsingar 2D ÍSL TAL - SÝND KL. 5.40 SÝND KL. 8, 10.40 2D ENS TAL - SÝND KL. 5.40 GLEÐILEGT NÝTT ÁR SÝND KL. 5.20, 8 SÝND KL. 10.40 SÝND KL. 8, 10.15 ÚTSALA! H E I L S U R Ú M A R G H !!! 1 10 11 7 #7 (* Mi ða ð v ið 12 má na ða va xta lau sa n r að gr eið slu sa mn ing m eð 3, 5% lá nt ök ug jal di og 40 5 k r. g re iðs lug jal di) COMO HÆGINDA TÓ LL Æðislega nettur og þægilegur. Þrír litir: brúnn, gr ár og ljós-kremað ur. Á MÁNUÐI AÐEINS 2.956 kr.* FULLT VERÐ 43.50 0 kr. ÚTSÖLUVERÐ 29.5 80 kr. 32% AFSLÁTTUR! HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 Graduation 17:30, 20:00 A Reykjavík Porno ENG SUB 18:00 Eiðurinn ENG SUB 17:45 Lion 20:00, 22:30 Captain Fantastic 20:00 Gimme Danger 2230 Embrace of the Serpent 22:30 Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hringhurðir, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. 1 8 . j a n ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r24 M e n n I n G ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð 1 8 -0 1 -2 0 1 7 0 5 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B F A -7 3 8 8 1 B F A -7 2 4 C 1 B F A -7 1 1 0 1 B F A -6 F D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.