Fréttablaðið - 18.01.2017, Blaðsíða 1
kemur ekki aftur en skipið heldur út
skömmu síðar. Bíllinn er bílaleigubíll
og var í útleigu óviðkomandi aðila
þegar lögregla tók hann til rann-
sóknar upp úr hádegi í gær.
Hafnarfjarðarhöfn hefur afhent
lögreglu upptökur eftirlitsmynda-
véla, úr tíu til tuttugu mynda-
vélum sem eru á svæðinu. Mynda-
vélar hafnarinnar beinast þó ekki að
svæðinu þar sem Dr. Martens-skór
Birnu fundust í um 300 metra fjar-
lægð frá þeim stað þar sem togarinn
lá við bryggju. – snæ / sjá síðu 8
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 5 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 1 8 . j a n ú a r 2 0 1 7
Fréttablaðið í dag
FrÍtt
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
ALLT FYRIR
ÞORRABLÓTIÐ
lögregluMál Forsvarsmenn Polar
Seafood, fyrirtækisins sem á græn-
lenska togarann Polar Nanoq, tóku
í gærkvöldi ákvörðun um að snúa
skipinu við og sigla aftur til Íslands.
Ástæðan er fjölmiðlaumfjöllun um
togarann en fjölmiðlar á Íslandi
greindu í gær frá því að skipverji
væri grunaður um að hafa haft á
leigu rauðan Kia Rio sem lögreglan
hefur leitað logandi ljósi frá því á
mánudag, vegna hvarfsins á Birnu
Brjánsdóttur. Ekkert hefur spurst
til Birnu síðan snemma á laugar-
dagsmorgun.
Jörgen Fossheim, forsvarsmaður
Polar Seafood, segir það hafa verið
einróma ákvörðun skipverja að
snúa skipinu við til að hreinsa
borðið, að hans sögn. Skipverjar
séu hissa og ringlaðir vegna frétta
frá Íslandi og ekki hafi verið haft
samband við þá frá danska her-
skipinu Triton, sem fjölmiðlar hafa
greint frá að sigli til móts við skipið.
Mönnum á skipinu þyki undarlegt
að þeim hafi ekki verið greint frá
umfangsmiklum lögregluaðgerðum
sem beinast að skipinu. Búist er við
því að Polar Nanoq komi til Íslands
um kvöldmatarleytið í kvöld.
Staðfest hefur verið að íslensk lög-
regluyfirvöld hafi óskað aðstoðar
danska herskipsins til að ná til Polar
Nanoq en Mads Lynte, yfirmaður í
grænlensku lögreglunni, sagði í gær-
kvöldi að íslensk lögregluyfirvöld
hefðu enn ekki upplýst hann um
rannsóknina á hvarfi Birnu.
Starfsmaður Hafnarfjarðarhafnar
skoðaði eftirlitsmyndavélakerfi
hafnarinnar í gærmorgun og varð þá
rauða bílsins var. Á myndböndum
sást bíllinn koma að togaranum
Polar Nanoq á milli sex og hálf sjö að
morgni laugardags, um hálftíma eftir
að slökkt var á síma Birnu Brjánsdótt-
ur á Hafnarfjarðarsvæðinu. Heimildir
Fréttablaðsins fullyrða að Birna sjáist
ekki stíga um borð þegar bílinn ber
að garði um morguninn. Skömmu
síðar sé bílnum ekið aftur í burtu
frá skipinu og sé á nokkru rápi fram
og til baka fram yfir hádegi og þykja
ferðir hans grunsamlegar. Seinni part
dags fer bíllinn aftur frá höfninni og
Húsfyllir var í Hallgrímskirkju í gærkvöld þegar bænastund var haldin fyrir Birnu Brjánsdóttur, sem saknað hefur verið síðan á laugardagsmorgun. Fréttablaðið/anton
birna brjánsdóttir bænastund
Grunsamlegar ferðir rauða
bílsins rannsakaðar nánar
Grænlenskum togara, sem lagði úr Hafnarfjarðarhöfn á laugardagskvöld, hefur verið snúið aftur til Íslands
vegna rannsóknarinnar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur. Ferðir skipverja á rauðum Kia Rio þykja grunsamlegar.
Hér fundust skórnir
hennar birnu
30
0
m
Polar nanoq lá við Hvaleyr-
arbakka. Einn skipverja hafði
rauðan Kia Rio til umráða.
✿ Hafnarfjarðarhöfn
sKOðun Guðmundur Ingi Guð-
brandsson skrifar um ferða-
menn og umhverfisáhrif. 11
spOrt Frábær lokakafli bjargaði
skylduverkinu þegar strákarnir
okkar unnu sinn fyrsta leik á
HM í handbolta í gær. 16
plús 2 sérblöð l FólK l lÍFið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
1
8
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
A
-5
A
D
8
1
B
F
A
-5
9
9
C
1
B
F
A
-5
8
6
0
1
B
F
A
-5
7
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K