Fréttablaðið - 18.01.2017, Blaðsíða 33
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
Stærð: 370 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 648,5 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 1.501 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is
Íslenska ríkið er eigandi þeirra fasteigna sem auglýstar eru. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, sem fer með umsjón og þróun svæðisins, óskar
eftir tilboðum í þær. Við mat á tilboðum verður einkum horft til kaupverðs. Þó er áskilinn réttur til að meta hugmyndir bjóðenda um nýtingu og ráðstöfun
eignanna, s.s. áhrif á eftirspurn eftir öðrum eignum á svæðinu og almennt á nærsamfélagið. Ekki er um útboð á eignunum að ræða heldur sölu. Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem það telur hagstæðast, m.a. út frá ofangreindum þáttum, eða hafna þeim öllum.
Þú getur skoðað eignirnar nánar á kadeco.is
Stærð: 2.385 m2
Tegund: Skrifstofur/Vöruhús
Stærð: 400 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
SUÐURBRAUT 890 VALHALLARBRAUT 891
Fasteignir til sölu á Ásbrú
Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt samfélag með öfluga menntastofnun, fjölda spennandi fyrirtækja,
gróskumikla nýsköpun og blómstrandi mannlíf. Hröð uppbygging í gagnaveraiðnaði og örþörungarækt, ásamt nálægð við Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að sönnu vaxtarsvæði til framtíðar.
BOGATRÖÐ 17BOGATRÖÐ 2BOGATRÖÐ 1
Handbolti Þeim fer að fækka met-
unum hjá handboltalandsliðinu
sem Guðjón Valur Sigurðsson er
ekki kominn með í sína vörslu. Guð-
jón Valur bætti í gær met Ólafs Stef-
ánssonar yfir flesta leiki Íslendings
á heimsmeistaramóti í handbolta.
Guðjón Valur er fimmti maðurinn
til að eignast þetta met á undanförn-
um 27 árum en hann er eini horna-
maðurinn í þessum úrvalshóp.
Guðjón Valur hafði bætt markamet
Ólafs Stefánssonar á HM á Spáni
fyrir fjórum árum en á nú einn bæði
leikja- og markametið.
Ólafur Stefánsson lék sinn 54. og
síðasta HM-leik á HM í Svíþjóð árið
2011 en Ólafur hefur átt metið í sjö
ár eða síðan að hann tók það af Guð-
mundi Hrafnkelssyni á HM í Þýska-
landi. Guðmundur lék á sínum
tíma 43 leiki fyrir Ísland á HM.
Geir Sveinsson, núverandi lands-
liðsþjálfari, átti síðan metið á undan
Guðmundi Hrafnkelssyni en Geir
spilaði sjálfur 32 leiki á HM. Guð-
mundur tók metið af Geir á HM í
Frakklandi 2001.
Guðjón Valur er nú á sínu tutt-
ugasta stórmóti og hefur leikið
fleiri stórmótaleiki og skorað fleiri
stórmótamörk en nokkur annar
íslenskur leikmaður. Hann hefur á
þessum tuttugu stórmótum mætt
36 þjóðum en Angóla bættist í hóp-
inn í gærkvöldi.
Angóla varð jafnframt 29. þjóðin
sem Guðjón Valur mætir á HM.
Ólafur Stefánsson spilaði sína 54
HM-leiki á móti 31 þjóð. Guðjón
Valur hefur ekki mætt Hvíta-Rúss-
landi, Bandaríkjunum, Litháen,
Sádí-Arabíu, Suður-Kóreu og Sviss
sem voru öll á meðal mótherja
Íslands á HM þegar Ólafur lék með.
Guðjón Valur hefur aftur á móti
leikið á móti Angóla, Brasilíu, Make-
dóníu og Síle en það eru allt þjóðir
sem Ólafur mætti aldrei á HM.
Guðjón Valur hefur spilað flesta
HM-leiki á móti Rússlandi, Spáni og
Frakklandi eða fjóra á móti hverri
þjóð. Hann hefur hins vegar skorað
flest HM-mörk á móti Ástralíu eða
alls 29 í aðeins tveimur leikjum sem
gera 14,5 mörk að meðaltali í leik.
Það eru næstum því fimmtán ár
síðan Guðjón Valur spilaði sinn
fyrsta leik á HM en það var einmitt
í Frakklandi og á móti Svíþjóð í
Montpellier 23. janúar 2001. Guð-
jón Valur skoraði 3 mörk í 21-24
tapi. Guðjón Valur hefur síðan
skorað þrjú mörk eða fleiri í 44 af
54 leikjum sínum á heimsmeistara-
móti. ooj@frettabladid.is
Leikur númer
55 á HM og
Guðjón Valur
tók metið af Óla
Guðjón Valur Sigurðsson er nú orðinn leikjahæsti
íslenski landsliðsmaðurinn í sögu HM en hann setti
nýtt met í Metz í gærkvöldi. HM-ferill hans hófst líka í
Frakklandi í janúar árið 2001. Guðjón Valur Sigurðsson fagnar einu marka sinna á HM í Fraklandi en hann bætir metið með hverju marki. Fréttablaðið/Getty
Síðustu fimm hand-
hafar leikjamets
Íslands á HM
einar Þorvarðarson 14
Átti metið með Hjalta einarssyni frá
1990 til 1993
Geir Sveinsson 32
Átti metið frá 1993 til 2001
Guðmundur Hrafnkelsson 43
Átti metið frá 2001 til 2007
Ólafur Stefánsson 54
Átti metið frá 2007 til 2017
Guðjón Valur Sigurðsson 55
Núverandi methafi, 2017-
Flestir leikir Íslendings
á HM í handbolta
Guðjón Valur Sigurðsson* 55 leikir
Ólafur Stefánsson 54 leikir
Guðmundur Hrafnkelsson 43 leikir
róbert Gunnarsson 36 leikir
Vignir Svavarsson 36 leikir
Ásgeir Örn Hallgrímsson* 35 leikir
Patrekur Jóhannesson 34 leikir
Dagur Sigurðsson 33 leikir
Geir Sveinsson 32 leikir
Snorri Steinn Guðjónsson 32 leikir
arnór atlason* 32 leikir
Sverre Jakobsson 31 leikur
alexander Petersson 30 leikir
* Núverandi leikmenn íslenska hand-
boltalandsliðsins og geta því bætt
við leikjum á HM í Frakklandi.
s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 17M i ð V i K U d a G U r 1 8 . j a n ú a r 2 0 1 7
1
8
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
A
-7
D
6
8
1
B
F
A
-7
C
2
C
1
B
F
A
-7
A
F
0
1
B
F
A
-7
9
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K