Fréttablaðið - 18.01.2017, Blaðsíða 34
Bókin er afrakstur tveggja ára virkrar rannsóknar, þótt rótin sé raunar lengri og dýpri,“ segir Eiríkur Berg-mann, prófessor í stjórn-málafræði, spurður út í nýj-
ustu bók sína Nordic Nationalism and
Right-Wing Populist Politics, sem kemur
út hjá alþjóðlega bókarisanum Palgrave
Macmillan og fagnað verður hérlendis á
föstudaginn í Norræna húsinu.
Rannsóknin greinir þjóðernishyggju
á Norðurlöndum og uppgang þjóðernis-
popúlískra flokka í löndunum fimm.
„Uppgangur þjóðernispopúlisma út
um alla Evrópu hefur verið töluvert til
umræðu. Við höfum líka séð framrás
slíkra flokka út um Norðurlöndin, þótt
það hafi verið með nokkuð öðrum blæ
en á meginlandinu,“ útskýrir hann og
bætir við að hann hafi viljað rannsaka
þá þróun sögulega, það hafi ekki verið
gert áður.
Í bókinni er grafist fyrir um sögulegar
rætur norrænnar þjóðernishyggju og svo
gerður samanburður á þróuninni í lönd-
unum fimm. Eiríkur telur sögu Norður-
landanna vera eins og smættaða sögu
Evrópu.
„Þetta er saga átaka, yfirráða þjóða yfir
öðrum, sjálfstæðisbarátta undirokaðra,
og svo framvegis. Sundrungar og sam-
stöðu. Allt mótar þetta ákveðna sjálfs-
mynd á Norðurlöndunum,“ segir hann.
Í greiningu Eiríks er þjóðernishyggja á
Norðurlöndunum tveggja laga.
„Annars vegar samnorræn þjóðernis-
hyggja, sem þróaðist með líku lagi og sú
sem þrýsti Þýskalandi og Ítalíu saman.
Sú tilraun mistókst á Norðurlöndunum,
svo úr varð sérstök þjóðernishyggja í
hverju landi. Í bókinni er kafað ofan í
þessi tengsl. Til að mynda var Danmörk
stórt fjölþjóðlegt ríki sem réð mörgum
minni, t.d. okkur. Svo skreppur Danmörk
saman í lítið einsleitt land og „lille Dan-
mark“ verður að trámatísku hugtaki sem
af sögulegri rót skýrir hluta þeirra erfið-
leika í samskiptum Dana og innflytjenda
sem orðið hafa á götum Kaupmanna-
hafnar. Það eru alls konar svona huldir
þættir sem ég er að reyna að draga saman
í bókinni og svo framrás þjóðernispopúl-
ískra flokka í hverju landi fyrir sig.
Bókin er gefin út af virtu alþjóðlegu
forlagi, samtímis í Evrópu og í Banda-
ríkjunum.
„Norðurlöndin eru sérstök menn-
ingarheild og í kjölfar vinsælda hins
nýja Nordic noir, sem víða birtist í kvik-
myndum og bókum, hefur umheimurinn
sýnt þessum heimshluta aukinn áhuga.
Útgefandi minn vildi kafa dýpra ofan
í grundvöll þessara samfélaga,“ segir
Eiríkur.
„Framrás þjóðernispopúlískra flokka
hefur verið breytileg í löndunum fimm,
komið upp á mismundi tíma og við ólíkar
aðstæður. Í bókinni eru þrjár almennar
bylgjur greindar eftir seinni heimsstyrj-
öld. Opinn fundur og útgáfuhóf fer fram
í Norræna húsinu síðdegis á föstudaginn.
Auk Eiríks verða í pallborði þau Guð-
mundur Hálfdánarson söguprófessor,
Hulda Þórisdóttir, lektor í sálfræði, og
Jóna Sólveig Elínardóttir hjá Viðreisn.
„Vel fer á því að hafa útgáfufögnuðinn
sama dag og Donald Trump er svarinn
í embætti Bandaríkjaforseta. Hér eru
nefnilega álíka hugmyndastraumar til
skoðunar,“ segir Eiríkur.
gudrunjona@frettabladid.is
Rýnt í rætur Norðurlanda
Eiríkur Bergmann prófessor gefur út bókina Nordic Nationalism and Right-Wing Popul-
ist Politics og birtir þar meðal annars rannsókn á þjóðernishyggju á Norðurlöndum.
Ástkær bróðir minn,
Jóhann Björgvinsson
frá Vestmannaeyjum,
lést laugardaginn 14. janúar.
Útförin fer fram frá Landakirkju
laugardaginn 21. janúar kl. 11.00.
Birna Björgvinsdóttir
Ástkær dóttir okkar, systir,
barnabarn og frænka,
Alma Þöll Ólafsdóttir
Mánagötu 25, Grindavík,
lést af slysförum,
fimmtudaginn 12. janúar.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju,
föstudaginn 20. janúar kl. 14.
Ólafur Már Guðmundsson Lóa Mjöll Ægisdóttir
Hulda Björk Ólafsdóttir
Guðmunda Ösp Ólafsdóttir
Guðmundur Sverrir Ólafsson Guðmunda Jónsdóttir
Ægir Sigurðsson Alma Vestmann
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og
langamma,
Helga Sæmundsdóttir
frá Sigurðarstöðum,
Melrakkasléttu,
lést á Landakoti 14. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 26. janúar kl. 13.
Sigurður Alexandersson
Sæmundur Sigurðsson Ingibjörg Eyþórsdóttir
Hermann Sigurðsson Ólína Arnkelsdóttir
Valgarður Sigurðsson
Guðbjörg Alda Sigurðardóttir Helgi Þorsteinsson
Unnur Sigurðardóttir Jóhannes Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
María Sigurðardóttir
frá Fagurhól í Sandgerði,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði hinn
9. janúar. Útför fer fram frá Lindakirkju,
föstudaginn 20. janúar kl. 11.00.
Kjartan Már Kjartansson Guðný Sigurðardóttir
Ásþór Kjartansson Hildur Kristín Ásmundsdóttir
Sigurður Kjartansson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Jónína Guðrún
Kjartansdóttir
matsveinn,
lést 10 janúar sl.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 20. janúar klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð.
Rannveig Hreinsdóttir Sturla Helgi Magnússon
Hrafnhildur Hreinsdóttir Guðmundur Árnason
Saga Rut Hrafnhildardóttir Hekla Rún Rannveigardóttir
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hreinn Óskar Árnason
Ósabökkum, Rangárvöllum,
lést á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum 22. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Vigdís Hreinsdóttir Gísli Gíslason
Ólafur Hreinsson Svava B. Sigurbjörnsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Þórdís Todda Jónsdóttir
Nýbýlavegi 56, Kópavogi,
lést 16. janúar.
Páll Snorrason
Helgi Snorrason Þóra Sigurþórsdóttir
Jón Snorrason Guðrún Úlfhildur Grímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Unnur Dóróthea
Haraldsdóttir
lést 12. janúar síðastliðinn á
hjúkrunarheimilinu Ísafold.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 20. janúar kl. 13.
Dúfa Sylvía Einarsdóttir Guðmundur Ragnarsson
Anna Sigríður Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Einar Brynjólfsson
rennismiður,
Fróðengi 5,
áður Rjúpufelli 21, Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 11. janúar sl. á Land-
spítalanum, verður jarðsettur frá Fella- og Hólakirkju
mánudaginn 23. janúar nk. klukkan 13.00.
Kristinn Þór Einarsson Margrét K. Daníelsdóttir
Linda Björk Hávarðardóttir
Brynjar Einarsson Steinunn Björg Ingvarsdóttir
Brynjólfur Einarsson
Valdimar Einarsson Fanný Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Bjarni G. Gunnarsson
frá Hæðarenda, Grindavík
Hraunvangi 1, Hafnarfirði,
lést 9. janúar sl. á Vífilsstöðum.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
F.h. fjölskyldunnar,
Jenný S. Þorsteinsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Kjartan Jónsson
Háabarði 9, Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. janúar.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju,
föstudaginn 20. janúar kl. 13.00.
Emilía Líndal Jóhannesdóttir
Jenný L. Kjartansdóttir Jón Friðrik Jónsson
Sigurjón L. Kjartansson Jóna Anna Heiðarsdóttir
Erna L. Kjartansdóttir Jón Haukur Daníelsson
Jóhannes L. Kjartansson Guðlaug Elsa Ásgeirsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Bók Eiríks Bergmanns á alþjóðlegum bókamarkaði. FréttaBlaðið/Eyþór
1 8 . j a n ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r18 t í M a M ó t ∙ F r É t t a B L a Ð I Ð
tímamót
1
8
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
A
-7
8
7
8
1
B
F
A
-7
7
3
C
1
B
F
A
-7
6
0
0
1
B
F
A
-7
4
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K