Fréttablaðið - 18.01.2017, Blaðsíða 6
Orkumál Forsvarsmenn Skeiða- og
Gnúpverjahrepps eru mjög ósáttir við
hversu lágt fasteignamat hins opin-
bera er á vindmyllum Landsvirkjunar
á Hafinu við Búrfell. Fasteignamat
þeirra tilraunamyllna sem hafa fram-
leitt rafmagn frá árinu 2014 er aðeins
32 milljónir. Hefur sveitarfélagið
ákveðið að kæra fasteignamatið.
„Já, okkur þykir nú þetta fasteigna-
mat heldur lágt. Það skiptir máli fyrir
sveitarfélögin í landinu að hafa fast-
eignamatið á þessum vindmyllum
sem réttast. Hér er um miklar tekjur
að ræða fyrir sveitarfélögin,“ segir
Björgvin Skafti Bjarnason, oddviti
Skeiða- og Gnúpverjahrepps. „Þetta
er í raun angi af stærra máli sem
snýr að því hvað er raforkubúnaður
og hvað er byggingin sjálf. Eins og í
vatnsaflsvirkjunum er aðeins stöðv-
arhúsið sjálft metið en ekki aðrar
byggingar til að mynda.“
Landsvirkjun áformar að byggja
upp vindmyllugarð á Hafinu við
Búrfell, svokallaðan Búrfellslund.
Reiknað er með að hámarkshæð
þegar spaðar eru í efstu stöðu sé um
150 metrar. Áætlar Landsvirkjun að
byggja 125 myllur á svæðinu á næstu
árum. Verða 58 þeirra með 3,5 MW
aflgetu og 67 þeirra með 3 MW afl-
getu. Munu framkvæmdir eiga sér
stað í landi Rangárþings ytra og
Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Ljóst er að miklar tekjur geta
skapast fyrir sveitarfélagið og vilja
Hreppamenn því láta reyna á hvort
fasteignamatið, um 32 milljónir
króna, sé rétt. Fasteignamat fyrir árið
2017 skal endurspegla staðgreiðslu-
verð fasteignar í febrúarmánuði
árinu áður. Deilt er hins vegar um
hvað sé mannvirki og hvað sé bún-
aður til raforkuframleiðslu.
Verði hugmyndir Landsvirkjunar
að veruleika gæti Búrfellslundur séð
öllum íslenskum heimilum fyrir raf-
orku. Nýtingarhlutfall vindmyllna á
Íslandi er í kringum 40 prósent, sam-
anborið við 28 prósent nýtingarhlut-
fall á heimsvísu. Því er talið ákjósan-
legt að virkja vindorku á Íslandi.
Búrfellslundur er nú í biðflokki
rammaáætlunar en Skipulagsstofn-
un metur umhverfisáhrif lundar-
ins neikvæðar. „Niðurstöður um
mikil umhverfisáhrif gefa, að mati
stofnunarinnar, tilefni til að skoða
hvort önnur landsvæði henta betur
fyrir uppbyggingu af þessu tagi og
umfangi,“ segir í áliti Skipulagsstofn-
unar. sveinn@frettabladid.is
Kæra 32 milljóna mat
vindmylla við Búrfell
Skeiða- og Gnúpverjahreppur krefst þess að fasteignamat á vindmyllum Lands-
virkjunar verði hækkað. Sveitarfélaginu finnst 32 milljónir króna fyrir 150
metra mannvirki allt of lág upphæð. Miklar tekjur í húfi fyrir lítil sveitarfélög.
Syrgja fallinn ástvin
Fjölskylda meints filippseysks eiturlyfjasala grætur eftir að maðurinn var felldur af lögreglumönnum. Frá því að Rodrigo Duterte tók við sem for-
seti landsins og skar upp herör gegn fíkniefnum í landinu, hafa meira en 6.000 manns, grunaðir um tengsl við undirheima, verið skotnir án dóms og
laga. Um milljón manns hefur gefið sig fram til að komast undan byssuskúlum sjálfskipaðra böðla forsetans. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Landsvirkjun áætlar að byggja 125 vindmyllur við Búrfell. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það skiptir máli
fyrir sveitarfélögin í
landinu að hafa fasteigna-
matið á þessum
vindmyllum
sem réttast.
Björgvin Skafti
Bjarnason, oddviti
Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps.
Þóra Valsteinsdóttir, fararstjóri, kynnir
tvær sérferðir um Grikkland á morgun,
fimmtudaginn 19. janúar.
Kynningin verður hjá Ferðaskrifstofunni
VITA, Skógarhlíð 12 og hefst kl. 17:30.
Gengið er inn neðan við húsið, á endanum,
gegnt Hlíðarenda.
VITA | Skógarhlíð | Sími | VITA.IS
FERÐAKYNNING
Tvær skemmtilegar Grikklandsferðir
Mamma Mia og
Perlur Grikklands
SVÍÞJÓÐ Tífalt fleiri hælisleitendur í
Svíþjóð fengu greitt til að snúa aftur
til heimalands síns í fyrra en árið á
undan. Þeir sem draga sjálfir hæl-
isumsókn sína til baka, eða hefur
verið synjað um hæli, eiga rétt á
fjárstuðningi til að snúa aftur heim.
Árin 2013 og 2015 fengu 215
greiðslu hvort ár. Í fyrra var fjöld-
inn 2.521. Flestir voru frá Írak og
Afganistan.
Peningarnir eru greiddir þegar
viðkomandi er kominn til heima-
lands síns. Fullorðnir fá 30 þúsund
sænskar krónur eða um 380 þúsund
íslenskar krónur. Greiðsla vegna
barns er helmingi lægri eða um 190
þúsund íslenskar krónur. Hámarks-
greiðsla til fjölskyldu er 75 þúsund
sænskar krónur eða um 950 þúsund
íslenskar krónur.
Hælisleitendur eru sagðir vilja
snúa heim þar sem þeim þyki
afgreiðslutími umsókna of langur
eða að lífið í Svíþjóð sé öðruvísi en
þeir áttu von á. – ibs
Tífalt fleiri fá
peninga til að
snúa aftur heim
Samfélag Á fundi hverfisráðs Kjalar-
ness í síðustu viku var bókað um
stöðu ljósleiðara og nettengingar fyrir
íbúa á Kjalarnesi. Finnst hverfisráð-
inu það mjög alvarlegt að fyrirspurn
ráðsins hafi ekki verið svarað, tveim
mánuðum eftir að hún var send.
Míla kynnti árið 2015 að fyrirtækið
ætlaði að hefja ljósleiðaraþjónustu
í eldri hverfum á höfuðborgarsvæð-
inu og átti það að ná frá Kjalarnesi til
Hafnarfjarðar. – bb
Leið yfir ljósleiðaraleysinu
Flóttafólk við komuna til Svíþjóðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Ljósleiðari bætir hraðann á Internetinu
til muna. Mynd/AÐSEnd
1 8 . J a n ú a r 2 0 1 7 m I Ð V I k u D a g u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð
1
8
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
A
-8
7
4
8
1
B
F
A
-8
6
0
C
1
B
F
A
-8
4
D
0
1
B
F
A
-8
3
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K