Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Page 44
Sjónvarp Bandaríski grínistinn Larry David er að
hugsa um að setja í gang framleiðslu á níundu seríu
þáttaraðarinnar Curb Your Enthusiasm. Þetta segir
einn leikari þátttanna, JB Smoove, í samtali við Var-
iety. Síðasti þáttur hinnar geysivinsælu seríu fór í
loftið árið 2011, þannig að þættirnir kunna að vera
búnir að renna sitt skeið í huga margra. Þáttunum
var hinsvegar aldrei aflýst og Larry David hefur
sagt að hann geri aðra seríu „ef og þegar“ hann
langar til. JB Smoove segist munu hliðra til
hvaða verkefni sem er til að geta tekið aftur
þátt í Curb Your Enthusiasm en formlega
hefur ekkert verið tilkynnt um endurkomu
þáttanna. Larry David
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2016
LESBÓK
Kvikmyndir Kvikmyndin Warcraft, sem
byggð er á samnefndum tölvuleikjum,
hefur slegið rækilega í gegn sína fyrstu
sýningardaga í Kína. Áætlað er að
myndin hafi halað inn um 90 milljónir
Bandaríkjadala fyrstu tvo dagana sem
hún var í sýningu þar í landi, sem er met
samkvæmt frétt Variety.
Þá var 81% af allri miðasölu í kvik-
myndahús í Kína á fimmtudaginn síðast-
liðinn til komið vegna myndarinnar, sem
slær annað met. Kostnaður við gerð
myndarinnar nam um 160 milljónum
Bandaríkjadala.
Warcraft slær í gegn í Kína
Tónlist frá 2017
Auðunn Lúthersson kemur fram á Solstice undir nafninu Auður.
Hvernig tónlist spilarðu?
2017.
Hvaða erlenda nafni ertu spenntastur fyrir á Solstice?
Die Antwoord.
En bara almennt í tónlistarlífinu í sumar?
Ef ég má vera eigingjarn hlakka ég til að geta loksins gefið út meira
efni, bæði efni eftir sjálfan mig og svo er ég að pródúsera annað lag með
Emmsjé Gauta. Ég pródúseraði lagið Strákarnir með honum í fyrra. Svo
fer ég í Red Bull Music Academy í Kanada í haust.
Hverjir eru mest spennandi í íslensku senunni?
Ég er að vinna með Loga Pedro að efni fyrir söngkonuna Karó. Hún á
bjarta framtíð fyrir sér. Svo hlakka ég til að heyra meira efni frá Gangly
Hvaða lag ertu mest að hlusta á þessa dagana?
Taboo með Seiho.
Þórður Ingi Jónsson kemur fram undir nafninu Lord Puss-
whip ásamt Svarta Laxness á Solstice. Hann gaf út plötuna
Lord Pusswhip is Wack í lok árs 2015.
Hvernig tónlist spilarðu?
Það sem ég segi vanalega er tilraunakennt hip-hop en ég
kýs helst ekki að setja mér einhverjar skorður hvað varðar
stefnu.
Hvaða erlenda nafni ertu spenntastur fyrir á Solstice?
Ég er langspenntastur fyrir Novelist frá London og er mjög
stoltur af að við Svarti Laxness spilum á sama sviði og kvöldi.
En bara almennt í tónlistarlífinu í sumar?
Það er mjög mikið af spennandi tónlist í gangi í dag, að-
allega í rappi og raftónlist þó að rappsenan sé orðin mjög
„oversaturated“ eins og Kaninn segir.
Hverjir eru mest spennandi í íslensku senunni?
Án þess að vera með vott af íslenskri frændhygli þá er þetta
listinn minn: GKR, Marteinn, Geimfarar, Mælginn, Beige Bo-
ys, Aron Can, GP. Síðan eru margir frábærir pródúserar eins
og vrong, Ultraorthodox, LV Pier og Beatmachinearon.
Hvaða lag ertu mest að hlusta á þessa dagana?
OCB með Pussolini III Vandræðaskáldi.
Rappsenan helst
til mettuð
Hulda Kristín syngur með hljómsveitinni
Kiriyama Family sem verður í góðu fjöri á
Solstice.
Hvernig tónlist spilið þið?
Við spilum einhvers konar 80‘s blöndu af
poppi og fönki.
Hvaða erlenda nafni ertu spenntust fyrir á Solstice?
Deftones, Radiohead og Die Antwoord eru mínar
þrjár uppáhalds hljómsveitir, næstum því í öllum heim-
inum.
En bara almennt í tónlistarlífinu í sumar?
Það er mikið í gangi. Ég ætla að kíkja á Hróarskeldu
að sjá uppáhalds rappkonuna mína, Little Simz. Það er
spennandi.
Hverjir eru mest spennandi í íslensku senunni?
Ég er rosalega mikið fyrir Mammút og Moses Highto-
wer. Svo er ég líka að hlusta á Agent Fresco og Emmsjé
Gauta og þetta allt.
Hvaða lag ertu mest að hlusta á þessa dagana?
Ég er með svona lista af lögum sem ég spila á re-
peat. Ég ætla að segja Ain‘t Nobody með Little Simz.
Hvað
eru þau að
hlusta á?
Enn nálgast hin geipilega spennandi tónlistar-
hátíð Secret Solstice og sunnudagsblaðið ræðir
á léttum nótum við íslenska tónlistarmenn sem
koma munu fram.
Matthías Tryggvi Haraldsson mth@mbl.is
Reykjavíkurdætur hefja tónleikaferðalag sumarsins á Secret Solstice og Steiney
Skúladóttir verður þar með í för.
Hvernig tónlist spilið þið?
Við gefum okkur út fyrir að vera rapphópur
Hvaða erlenda nafni ertu spenntust fyrir á Solstice?
Ég segi Die Antwoord. Ég er að missa mig, ég er svo spennt að sjá þau.
En bara almennt í tónlistarlífinu í sumar?
Það er svo margt spennandi sem ég ætla að sjá. Ég er mjög spennt að sjá Muse,
því ég hlustaði svo mikið á þá þegar ég var lítil. Þeir verða á Fiberfib-hátíðinni á
Spáni í júlí, þar sem við erum að spila. Við verðum líka á Hróarskeldu, Belgíu og
einhvers staðar lengst norður í Norður-Noregi.
Hverjir eru mest spennandi í íslensku senunni?
Ég er búin að vera að hlusta svolítið á Aron litla. Aron Can. Svo voru Sturla Atlas
að gefa út nýja plötu, ég er aðeins að tékka á henni. Karó er líka ótrúlega nett og
tryllt söngkona og ég er bara að bíða eftir að hún droppi sumarsmelli. Þetta er
formleg áskorun.
Hvaða lag ertu mest að hlusta á þesa dagana?
Nýja hóplag Reykjavíkurdætra sem við munum frumflytja á Solstice. Það er mjög
ólíkt hinum hóplögunum okkur og þarf að æfa vel. Þannig, já, það er á repeat.
Skorar formlega á Karó
Popp og
fönk í bland
Fara Curb Your Enthusiasm aftur í gang?