Morgunblaðið - 28.06.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2016
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
Eigum úrval af
28. júní 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.86 125.46 125.16
Sterlingspund 164.9 165.7 165.3
Kanadadalur 95.77 96.33 96.05
Dönsk króna 18.487 18.595 18.541
Norsk króna 14.644 14.73 14.687
Sænsk króna 14.655 14.741 14.698
Svissn. franki 127.96 128.68 128.32
Japanskt jen 1.2283 1.2355 1.2319
SDR 173.67 174.71 174.19
Evra 137.52 138.28 137.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.4194
Hrávöruverð
Gull 1324.6 ($/únsa)
Ál 1600.5 ($/tonn) LME
Hráolía 50.69 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Gengi hlutabréfa
hélt áfram að
lækka í Kauphöll-
inni í gær og lækk-
aði Úrvalsvísitalan
um 3,0% í 2,8
milljarða króna við-
skiptum yfir dag-
inn. Mest lækkaði
gengi bréfa í Ice-
landair Group, en
það fór niður um
3,7%. Hlutabréf félagsins enduðu í
29,85 krónur á hlut í lok dags, eftir að
hafa farið niður í 29,3 krónur innan
dags. Hæst fór dagslokagengi Ice-
landair Group í 38,9 krónur á hlut hinn
28. apríl síðastliðinn. Því nemur lækkun
á verði hlutabréfanna 23,3% á tveimur
mánuðum, sem jafngildir liðlega 45
milljörðum króna að markaðsvirði.
Gengi hlutabréfa allra innlendra fé-
laga á Aðalmarkaði lækkuðu í gær að
Össuri undanskildu, en bréf félagsins
stóðu í stað.
Nærri fjórðungslækkun
á tveimur mánuðum
Markaðir Enn
lækka hlutabréf.
STUTT
SVIÐSLJÓS
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Fjárhæð ríkisskuldabréfa í eigu er-
lendra aðila hefur hækkað umtals-
vert á 14 mánaða tímabili samkvæmt
tölum um lánamál ríkisins frá Seðla-
banka Íslands.
Þannig áttu er-
lendir aðilar um
27,6% útgefinna
ríkisverðbréfa í
apríl síðastliðn-
um, en það hlut-
fall var 18,8% í
janúar 2015.
Heildarútgáfa
ríkisverðbréfa
hafði á sama tíma
vaxið úr 850 milljörðum króna í tæpa
885 milljarða í apríl. Því var heildar-
eign erlendra aðila í útgefnum rík-
isverðbréfum komin í 245 milljarða
króna.
Eykst með auknum vaxtamun
„Það virðist sem hlutdeild erlendra
aðila aukist í júní 2015 og aukist svo
verulega í ágúst sama ár,“ segir
Yngvi Harðarson, framkvæmdastjóri
ráðgjafarfyrirtækisins Analytica.
„Það er töluvert skýr fylgni milli
þessarar aukningar og vaxtaþróunar
hér heima og vaxtamunar við útlönd.
Vaxtamunurinn eykst í júní á síðasta
ári og frá þeim tíma eru væntingar
um aukinn vaxtamun. Þetta sést ef
skoðaður er vaxtamunur annars veg-
ar og kaup erlendra aðila á ríkisverð-
bréfum hins vegar. Það má hins veg-
ar gera ráð fyrir að nýjar reglur um
stjórntæki Seðlabankans muni draga
úr áhuga erlendra aðila á íslenskum
skuldabréfum.“
Samkvæmt nýlegum reglum
Seðlabankans verða erlendir fjárfest-
ar nú að binda 40% af fjárfestingu
sinni í ár á nær vaxtalausum reikn-
ingi. „Það dregur verulega niður
ávöxtunina af eigninni, en þrátt fyrir
það eru vextirnir engu að síður háir í
alþjóðlegum samanburði,“ segir
Yngvi.
Í nýlegri Hagsjá Landsbankans
kemur fram að í OECD ríkjunum
hafi meðalávöxtun lífeyrissjóða verið
að vegnu meðaltali 0,4% á síðasta ári.
Talið er að meðal íslenskra lífeyris-
sjóða hafi raunávöxtun á síðasta ári
verið 6,8% að jafnaði, að því er fram
kemur í Hagsjánni.
Erlendir sjóðir eiga íslensk bréf
„Það er athyglisvert að stórir er-
lendir skuldabréfasjóðir eru nú búnir
að kaupa íslensk ríkisskuldabréf inn í
sitt safn. Til dæmis á JP Morgan Glo-
bal Government Bond Fund 0,5% af
safni sínu í slíkum bréfum í lok maí.
Stærð þessa sjóðs er 676 milljónir
evra, eða rúmir 93 milljarðar króna,
og nemur eignin því tæpum 500 millj-
ónum króna,“ segir Yngvi.
Séu fjárfestingar þessa tiltekna
sjóðs skoðaðar eftir löndum kemur í
ljós að íslensk ríkisskuldabréf vega
þar þyngra en til dæmis ríkisskulda-
bréf frá löndum eins og Danmörku og
Finnlandi og á svipuðu róli og Hol-
land og Ástralía. Sé raunávöxtun líf-
eyrissjóða þeirra landa skoðuð kem-
ur í ljós að meðal ríkja OECD var
hún hæst í Hollandi, 7,1%. Raun-
ávöxtun sjóðanna í Ástralíu var 6,4%.
Í Finnlandi 5,3% en 0,8% í Dan-
mörku.
Yfir fjórðungur ríkisverð-
bréfa í eigu erlendra aðila
20
2015
Í milljörðum
Heimild : Analytica, byggt á tölum úr lánamálum ríkisins
2016
m
aí
jú
ní jú
lí
ág
ús
t
se
pt
em
be
r
ok
tó
be
r
nó
ve
m
be
r
de
se
m
be
r
ja
nú
ar
fe
br
úa
r
m
ar
s
ap
ríl
m
aí
15
10
5
0
-5
Samhengi 3 mánaða vaxtamunar gagnvart evru (línurit) og
fjárfestingar erlendra aðila í ríkisskuldabréfum (súlur).
Ríkisverðbréf
í erlendri eigu
» Stórir erlendir skuldabréfa-
sjóðir meðal eigenda íslenskra
ríkisverðbréfa.
» Vextir hér á landi eru mun
hærri en innan OECD.
» Þrátt fyrir ný stjórntæki
Seðlabankans er eftir miklu
að slægjast fyrir erlenda
aðila.
» Reglur Seðlabankans gætu
hins vegar fælt fjárfesta frá
sem annars hefðu fjárfest til
langs tíma.
Ávöxtunin há í alþjóðlegum samanburði þrátt fyrir ný stjórntæki Seðlabankans
Yngvi Harðarson
Eignasafn Seðlabanka Íslands
(ESÍ) hefur gert sátt við Fjármála-
eftirlitið (FME) vegna brots á lög-
um um verðbréfaviðskipti. ESÍ við-
urkennir að hafa brotið gegn
lögunum í september árið 2014 þeg-
ar það vanrækti að senda flögg-
unartilkynningu til FME og Ný-
herja þegar atkvæðisréttur þess fór
yfir 5% flöggunarmörk.
Atkvæðisrétturinn kom í hlut
ESÍ í kjölfar þess að það tók við
5,8% eignarhlut í Nýherja af
Dróma. Yfirtakan var hluti af að-
gerð sem fól í sér ráðstöfun eigna
Dróma til ESÍ.
Sáttin felur í sér að ESÍ greiðir
sekt að fjárhæð 1,4 milljónir króna.
Með sama hætti hefur Drómi náð
sátt við FME vegna málsins. Brot
Dróma fólst í því að senda ekki
flöggunartilkynningu til FME og
Nýherja í kjölfar þess að hlutur
hans í fyrirtækinu fór undir 5%
mörkin fyrrnefndu. Sektargreiðslan
er ákveðin sú sama og í tilviki ESÍ.
ESÍ á ekki lengur í Nýherja
Þann 16. júní í fyrra auglýsti ESÍ
allan hlut sinn í Nýherja til sölu.
Þeir sem vildu gera tilboð í hlutinn
þurftu að skila þeim inn þann 18.
júní. Degi síðar var tilkynnt um að
allur 5,8% hluturinn hefði verið
seldur og var söluandvirðið tæpar
250 milljónir króna. Gengi bréfa í
félaginu á þeim tíma var um 10,35
krónur á hlut. Hann stendur nú í
16,7 krónum á hlut.
ses@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
ESÍ Seðlabankinn stofnaði félagið
2009 utan um fullnustueignir.
ESÍ greiðir sekt til
Fjármálaeftirlitsins
Flaggaði ekki
við yfirtöku á bréf-
um í Nýherja