Morgunblaðið - 28.06.2016, Side 19

Morgunblaðið - 28.06.2016, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2016 Í NICE Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Stundum hefur verið erfitt að finna réttu orðin til að lýsa tilfinningum sínum á prenti, eftir stórkostlega íþróttaviðburði síðustu áratugi. Hvað þá í gær. Hvað var eiginlega að gerast? Voru þetta tár eða svita- dropar? Sennilega sitt lítið af hvoru... Að Ísland skuli leggja England að velli í sextán liða úrslitum Evr- ópumóts karlalandsliða í fótbolta er með nokkrum ólíkindum. Eitt af því sem fæstir í fótboltaheiminum reiknuðu með, nema stuðningsmenn Íslands auðvitað, leikmenn, þjálf- arar og aðrir sem koma að liðinu. Þetta er heimssögulegur viðburður sem fjallað verður um mjög víða á næstunni, og rifjaður upp reglulega næstu áratugi. Það er víst. Íslensku stuðningsmennirnir fjör- ugu í miðborg Nice í gærdag voru margir hverjir mjög bjartsýnir. Kannski vegna þess hve gaman var á staðnum, veðrið gott og allir í góðu skapi, en líka vegna þess hve liðið er gott, að sjálfsögðu. En er það nógu gott? Svar við því fékkst í gærkvöldi og það fór ekkert á milli mála. Harðasti spámaðurinn sem ég ræddi við í miðborg Nice í gærdag var engin önnur en Dorrit Moussai- eff forsetafrú. Hún sagði einfaldlega bannað að tala um þann möguleika að Ísland tapaði fyrir Englandi! Það vissi ekki á gott. Þegar ofanritaður tjáði henni að með sigri á Englandi myndu Íslendingar leika gegn Frökkum næst, í París á sunnudag- inn, kallaði Dorrit spennt: „Ólafur!“ Vildi strax fara að skipuleggja helgina. Stemningin hefur verið frábær hjá íslensku stuðningsmönnunum allt mótið og engin undantekning var frá þeirri reglu í gær. Sigurinn var frábær, líklega ómetanlegur fyr- ir þjóðarsálina til lengri tíma. Það var svo súrrealískt að leik loknum, þegar forkólfar KSÍ, nú- verandi og fyrrverandi, ásamt for- setahjónunum, gengu út á völlinn til að klappa fyrir stuðningsmönnunum að sjá Dorrit og Eggert Magnússon, heiðursformann KSÍ, stíga trylltan dans! Dásamlegt og einhvern veg- inn í anda þess sem hér hefur gerst síðustu vikur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lokadansinn ekki í boði alveg strax  Eggert og Dorrit fögnuðu fyrir framan áhorfendur Tár Jóna Arnórsdóttir móðir Arons Einars felldi tár af geðshræringu þegar fyrirliðinn kom að áhorfendabekkjunum þegar glæsilegur sigur var í höfn. Fyrirmyndir Íslendingar fjölmenntu í miðborgina eftir leik og voru glaðir. Stórkostlegt Ríkharður Daðason fyrrverandi landsliðsmaður, Bjarni Magnússon og margir fleiri voru hreinlega stjórnlausir af gleði i leikslok. Stórkostleg stemning Íslensku lands- liðshetjurnar fögnuðu með hetjunum á áhorfendapöllunum á hefðbundinn hátt að leikslokum. Allir klöppuðu vel, fast og lengi í takt þannig að undir tók á leikvanginum. Íslenska klappið hefur vakið mikla athygli allra sem fylgjast með Evrópumótinu. Aron Einar fyr- irliði stjórnaði aðgerðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.