Morgunblaðið - 28.06.2016, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2016
Ég og konan mín hún Inga Rós vorum að festa kaup á raðhúsi ogerum að taka í gegn, það er það helsta sem er á döfinni þessadagana,“ segir Tómas Eric margmiðlunarhönnuður sem á 40
ára afmæli í dag.
„Við fluttum í Torfufell í Breiðholti en þetta er algjörlega falin
perla og erum virkilega ánægð með staðsetninguna. Það er þvílík
kyrrð hérna, við erum í endahúsi með 130 fermetra pall, mat-
jurtargarð og falleg tré. Við erum að færa til eldhúsið og setja upp
heimaskrifstofu þar sem ég get unnið auglýsingar, ljósmyndir, kvik-
myndun og fleira.
Við gerum allt sjálf en konan sér um garðinn og ég um aðrar fram-
kvæmdir. Ætli við reynum ekki að klára undir lok júlí og í kjölfarið
halda smágarðpartí þar sem vinum og fjölskyldu er boðið í léttar
veitingar.“
Tómas ólst upp í Kópavogi en bjó í Bandaríkjunum 1992-1996, faðir
hans er bandarískur en móðir hans er íslensk. Tómas hefur unnið
sjálfstætt með hléum í fimmtán ár og vinnur við grafíska hönnun og
vöruljósmyndun og er með stúdíó heima hjá sér.
„Utan vinnu þá ljósmynda ég mikið, er í kvikmyndatökum og
mynda helst landið í nágrenni Reykjavíkur.“
Tómas er í sambúð með Ingu Rós Guðnadóttur, þroskaþjálfa hjá
Reykjavíkurborg, og börn hennar eru Burkni Þór 21 árs kokkanemi
hjá Kex hostel og Sóley Edda 14 ára.
Í Torfufelli Tómas að háþrýstisprauta vegg sem á að múra.
Nýfluttur og er að
taka allt í gegn
Tómas Eric Woodard er 40 ára í dag
U
nnsteinn og María
fæddust í Reykjavík
28.6. 1966 en ólust
upp í Grundarfirði og
hafa átt þar heima
alla tíð. Þau voru í grunnskóla
Grundarfjarðar og fóru síðan ung að
starfa við fyrirtæki föður síns í
Grundarfirði, G.Run. hf.
Guðmundur, faðir þeirra, hóf út-
gerð í Grundarfirði árið 1947, gerði
fyrst út báta og lét síðan smíða fyrir
sig togarann Runólf sem var smíð-
aður í Stálvík í Garðabæ árið 1975.
Togarinn var gerður út til 1988. Síð-
an voru gerðir út ýmsar togarar og
bátar hjá fyrirtækinu sem einnig
festi kaup á frystihúsi: „Móðir okkar
lagði mikið upp úr því að fyrirtækið
ræki einnig frystihús og fiskvinnslu
til að tryggja atvinnu fyrir konurnar
í byggðarlaginu,“ segir Unnsteinn.
„Við systkinin höfum alla tíð starf-
að hjá fyrirtækinu og vinnum þar öll
systkinin nema einn bróðir okkar
sem er búsettur í Reykjavík.
Unnsteinn vélamaður og María ráðskona Guðmundsbörn – 50 ára
Fjölskylda Unnsteins Í hægra horninu er önd sem Unnsteinn stoppaði upp.
Fjölskylda Maríu Í stúdentsveislu í Grundarfirði.
Tvíburarnir María Magðalenda og Unnsteinn Guðmundsbörn fimm ára gömul.
Samheldni í rekstri
fjölskyldufyrirtækisins
Andrea Rós Andradóttir, Sigrún Björk Björnsdóttir og María Sigurðardóttir
héldu tombólu við Krónuna á Selfossi. Þær seldu fyrir 15.106 krónur og afhentu
Rauða krossinum í Árnessýslu peninginn.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
fenix 3 sameinar glæsilega hönnun og fjölnota GPS snjallúr
Íþrótta- og útivistarfólk þarf ekki lengur að velja á milli – fenix 3 er bæði fullkomið íþróttaúr, útivistarúr,
snjallúr og úr sem þú notar daglega í vinnu og leik. Þú getur einnig sérsniðið úrið að þínum þörfum með
mismunandi upplýsingagluggum, forritum eða úraskífu með Connect IQ appinu frá Garmin.
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
toppaðu
gærdaginn