Morgunblaðið - 28.06.2016, Page 31

Morgunblaðið - 28.06.2016, Page 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2016 þessum árum. En svo var ég fenginn í það af samkeppnisaðila í útgáfu- bransanum að syngja inn á plötu hjá honum sem var svona íslensk al- þýðulagaplata sem Gunnar Þórð- arson stjórnaði. Mér fannst þetta svo góð hugmynd að ég sagði við Gunnar að við yrðum að gera svona plötu þannig að við fórum af stað og Gunnar pródúseraði fyrstu plötuna. Hún fékk svakalega góðar viðtökur. Á plötunni voru mörg þekkt íslensk lög eins og „Sjá dagar koma“ og „Í fjarlægð“. Svo var Gunnar svo mikið upptek- inn þannig að ég tók bara við keflinu og gerði sex aðrar sem allar gengu vel. Við fórum í þennan tónlistarsjóð eins og með fyrstu vísnaplötuna og settum lögin í nútímabúning. Sum lögin voru aðallega þekkt með einum söngvara og píanóleik, svolítið hástemmt fyrir samtímann. Við vildum færa lögin til fólksins. Á flestum þessum plötum var ég með afbragðsfólk í pródúsjóninni, eins og Jón Kjell Seljeseth, sem er pabbi eins strákanna í Retro Stef- son. Svo komu Þórir Baldursson þarna og aðrir frábærir listamenn.“ Lög sem hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt „Á þessari safnplötu er hug- myndin að taka aðallega lögin sem ég hef sungið eða komið að ásamt gestum. En þarna innan um eru tvö lög sem eru erlend að uppruna en Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is „Mörg af þessum íslensku söng- lögum í okkar útgáfu hafa verið á vinsældalistum víða um heim og eru enn í dag, meðal annars er lagið „Ég bið að heilsa“ enn á vinsældalista hjá norska útvarpinu,“ segir Björgvin Halldórsson söngvari, en nú er 25 ára afmælisútgáfa á Íslandslögum. Björgvin stóð að útgáfu á mörg- um vísnaplötum sem seldust vel á sínum tíma og gera enn og nú mun safnplata koma út með 40 Íslandslögum. Lögin eru það mörg að það þarf tvo diska til. Fyrir 25 árum kom fyrsta plata Íslandslaga út. Þar höfðu Björgvin Halldórsson og Gunnar Þórðarson tekið höndum saman og gætt ís- lenskar söngperlur nýju lífi. Platan fékk afbragðsgóða dóma og fram- leiddi Björgvin sex aðrar í kjölfarið. Lögin vinsæl í Ástralíu, Noregi og Kanada „Já, þessar plötur gengu mjög vel,“ segir Björgvin. „Ekki bara hérna á Íslandi heldur úti um allan heim, í Noregi, Ástralíu, Kanada og víðar. En upphafið að þessu má rekja til þess að ég rak stúdíóið Sýrland á hafa fengið íslenskan ríkis- borgararétt.“ Á umslaginu er enskan meira áberandi en íslenskan og umslagið með svona fallegri sýn á Reykjavík, eruð þið eitthvað að reyna að ná frekar til túristanna með þessari plötu? „Nei, það er ekki markmiðið. Um- slögin hafa alltaf verið með þema, svona fjöll og dalir og eitthvað í haustlitunum. Við ákváðum núna að færa þetta inn í þéttbýlið. Þetta eru vandaðar útgáfur, við höfum alltaf haft bók með umsögn- um um hvert lag,“ segir Björgvin. Sérhvert lag á sér sögu Fylgir saga hvers lags með? „Já, sérhvert lag á sér sögu. Eins og lagið „Í fjarlægð“ eftir Karl O. Runólfsson. En tilurð lagsins er þeg- ar fyrri kona Karls, Margrét, lá á banabeði í Kristneshæli við Eyja- fjörð. Von var á Karli í heimsókn en veður hamlaði för hans og óvíst var hvort hann næði til hennar áður en yfir lyki. Þar lá á sömu deild hag- mæltur maður. Bað hún hann að yrkja sér í hugarstað ljóð til ástvinar síns ef hún héldi ekki út þar til hann kæmi. Þegar Karl komst á leiðarenda var konan hans látin en við rúmgafl- inn beið hans bréfkorn. Þar í var kveðja hennar og ástar- játning til hans, vinarins, sem fjöllin skildu að þegar kallið kom. Eins og segir í kvæðinu: Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur og fagrar vonir tengdir líf mitt við, minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum ljúfum dvel ég hjá. Já, það eru mörg falleg ljóð þarna,“ segir Björgvin. Íslensk sönglög vinsæl víða um heim Ljósmynd/Sigga Ella Vinsældir Íslensku sönglögin hafa ekki aðeins verið vinsæl á Íslandi heldur náð þó nokkrum vinsældum í Noregi, Kanada og jafnvel Ástralíu.  Björgvin Halldórsson er með safn- plötu af Íslandslögum  Sjö plötur af sönglögunum voru gefnar út Bandaríski ljósmyndarinn Bill Cunningham lést fyrir helgi, 87 ára að aldri. Cunningham var einn þekktasti götuljósmyndari New York-borgar og myndaði mannlífið þar í borg fyrir dag- blaðið The New York Times í nær 40 ár. Í frétt blaðsins um andlát Cunninghams segir að hann hafi mótað tískuljósmyndun, skrásett síbreytilegt mannlíf stórborg- arinnar fyrir dagblaðið og hafi beint linsunni að klæðaburði vegfarenda í marga áratugi. Cunningham lést á spítala í kjöl- far hjartaáfalls. Cunningham var svo þekktur meðal íbúa New York að hann var útnefndur lifandi kennileiti borgarinnar árið 2009. Hann var auðþekktur þar sem hann fór um á reiðhjóli í miðborginni með 35 mm myndavél, iðulega klæddur bláum jakka, kakíbux- um og svörtum strigaskóm. Í grein The New York Times seg- ir að engin tískufyrirbrigði hafi farið framhjá Cunningham og í störfum sínum hafi hann skrá- sett breytilega borgartískuna í um fjóra áratugi og þá bæði tísku hinna efnuðu og hinna efnaminni. Götuljósmyndarinn Bill Cunningham látinn AFP Þekktur Bill Cunningham ljósmyndari að störfum. Árleg heiðursverðlaun tónlistar- hátíðarinnar Eistnaflugs, Grjótið, eru nú veitt í þriðja sinn og er það útvarpskonan og tónlistarspekúl- antinn Andrea Jónsdóttir hlýtur þau. Grjótið er viðurkenning sem veitt er einstaklingi sem þakk- lætis- og virðingarvottur fyrir öt- ult og óeigingjarnt starf að fram- gangi þungarokks á Íslandi og sem hvati til góðra verka í fram- tíðinni. Í fyrra hlaut Kristján Kristjánsson Grjótið og árið 2014 Sigvaldi Ástríðarson. Rokkhátíðin Eistnaflug verður haldin í Neskaupstað í tólfta sinn 6.-9. júlí og verður þungarokk í öndvegi á hátíðinni sem fyrr þótt einnig verði leikin léttari tónlist. Af þeim sem koma fram á hátíð- inni má nefna Meshuggah, Opeth, Amorphis, Marduk, HAM, Sólstafi, Dynfara, Hatara og úr léttari deildinni Pál Óskar Hjálmtýsson. Andrea hlýtur Grjótið Morgunblaðið/Eggert Rokk-amman Andrea Jónsdóttir. Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 AFMÆLISTILBOÐ VIÐ ERUM 20 ÁRA Með hverjum keyptum gleraugum fylgja sólgleraugu með í kaupbæti Verið velkomin í sjónmælingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.