Morgunblaðið - 09.07.2016, Síða 17
að vera í hólfum. En æðardúnninn
tollir allur saman og á ekki að vera í
hólfum. Það er mín skoðun.“
Sem fyrr segir kemur fjöldi Ís-
lendinga við á Hraunum. Björk
finnst það mjög skemmtilegt.
„Ég auglýsi reyndar allt á ís-
lensku því ég er að gangast upp í
þessu hlutverki, að sýna landanum
hvað þetta er frábær efniviður. Mig
langar til að kynna æðardúninn fyr-
ir Íslendingum.“
Sumarvertíð og jólavertíð
„Ég vinn mest hérna,“ segir
Björk, „kem á vorin, er að sauma
pínulítið fyrir opnun, en svo sauma
ég alla daga, þannig að það eru allt-
af til nýir litir og eitthvað nýtt á
hverjum einasta degi. Ég er með af-
skaplega marga liti í gangi, 20-30, af
hverri vörutegund, þannig að ég
bara framleiði þetta jafnóðum. Ég
er hér frá 10 á morgnana og fram á
kvöld allt sumarið og alveg fram á
haust, en auglýstur opnunartími er
frá 13 til 18 alla daga, frá því ég set
skiltið upp, 20. júní. Svo þegar skilt-
in eru farin, þá bara loka ég.“
Hún segist ekki hafa þorað að
tala við ferðaskrifstofur því hún geti
ekki tekið við stórum rútum.
„Mér finnst 16 manns alveg nóg,
gæti tekið upp í 20, en ég vil frekar
geta náð utan um þetta, það er
meira gaman. Því ég er ekki bara að
selja heldur líka að fræða þau sem
hingað koma um lifnaðarhætti æð-
arfuglsins og hvernig þetta nú ger-
ist allt. Útlendingarnir sem koma
hingað segja að þetta sé vel falið
leyndarmál,“ segir hún. Þegar Björk
kemur heim til Akureyrar, í lok sept-
ember, þá hvílir hún sig en byrjar
svo aftur í nóvember að undirbúa
jólamarkaðinn. Þá notar hún Face-
book, er þar með síðuna „Hrauna
Æðardúnn“, sem er fyrst og fremst
póstverslun. Síðan tekur hún sér
pásu til vors, þannig að þetta er því
sumarvertíð hjá henni og jólavertíð.
„Ég er með sængur til sölu eins og
ég vil hafa þær, með 500 grömmum í,
en auglýsi þær ekkert sérstaklega.
Ég er líka með ungbarnasængur,
með 100 grömmum í. Svo er ég með
trefla sem ég get tekið dúninn úr,
þeir eru líka eyrnaskjól í leiðinni, og
sömuleiðis er ég með eitt sem ég
kalla hálsskjól, það er styttri gerð,
og þau þarf að þvo með dúninum í,
það er ódýrari útfærsla. Svo er ég að
framleiða sjöl og húfur, úr hvoru
tveggja er hægt að taka dúninn. Ég
var að gera miklu fleira hér í byrjun
en endaði með þetta, ætlaði mér að
nota dúninn svona fyrir heilsuna,
framleiða eitthvað til að vefja utan
um auma liði, skó til að hafa á fót-
unum á næturnar, til þess að sofa í,
hafa eitthvað hlýtt á höndunum, t.d.
fyrir hjartasjúklinga; mamma notaði
t.d. alltaf dúnvettlingana sína á
kvöldin við sjónvarpið og sagði að sér
liði þá miklu betur í hjartanu. Og svo
var ég með fyrir augun og eitthvað
fleira. En allt þetta sem átti að vera
svona heilsutengt, það bara var ekk-
ert að seljast. Svo að ég bara hætti.
Nú er svo mikið að gera hjá mér í
hinu að ég einbeiti mér að því ein-
göngu, að hafa það til sem allir vilja
kaupa, og í mörgum litum. Það er
bara það. Svona er lífið.“
æðardúninn
Hreiður Kollan sem átti þetta hreiður ákvað að verpa í heysátu.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
Æðurin, eða æðarfuglinn eins og teg-
undin er oftast nefnd, er af ættbálki
gásfugla eða andfugla. Hún er yf-
irleitt talin stærst allra anda, 50-71
cm að lengd, um 2.000 g að þyngd að
meðaltali og með 80-108 cm væng-
haf. Vísindaheiti tegundarinnar,
Somateria mollissima, þýðir eig-
inlega „líkaminn sem geymir hinn af-
ar mjúka fiðurdún.“
Útbreiðslusvæðið er að heita má
allt norðurhvel jarðar. Um fimm deili-
tegundir er að ræða og greinast þær
einkum eftir mismunandi formi nefs
og litar við rótina, frá gulu yfir í
rauðgult.
Æðurin hefur verið friðuð á Íslandi frá árinu 1847. Hún er staðfugl hér
við land og mjög félagslynd. Hún er mestan hluta ársins bundin við sjó,
einkum meðfram ströndum, og hefur reyndar allt lífsviðurværi sitt þaðan.
Að vetrarlagi geta hóparnir talið jafnvel þúsundir fugla. Snemma vors
gengur hún á land í auknum mæli, í fjöruna til að byrja með eins og til að
búa sig undir aukna dvöl á þurru yfir varptímann. Og þar er líka oft margt
um fuglinn. Svo gerist hún djarfari og fer ofar og innar þegar líða tekur að
sjálfum eggjatímanum sem er breytilegur eftir landshlutum en víðast hvar
þó í hálfnuðum maí.
Hreiðrið er oftast einhverskonar skál eða dæld í snögglendi, ýmist í
fjöru, á bökkum og töngum voga og lóna, í eyjum og á hólmum eða jafnvel
með ám alllangt inn til landsins, allt að 30 km frá sjó. Það er fóðrað með
þykkum dúni sem hefur borið nafn og hróður þessarar andategundar víða.
Eggin er yfirleitt 4-6 talsins en geta verið 1-8. Þau eru oftast grænleit en
stundum blá. Útungunartími er 25-28 dagar og sér kollan ein um áleguna.
Blikinn stendur oft nærri hreiðrinu, einkum í upphafi varpsins. Fyrr eða síð-
ar, mislengi eftir varpi og einstaklingum, dregur hann sig gjarnan í hlé
ásamt öðrum félögum sínum, og heldur á fellistöðvar.
Nýklaktir ungarnir eru dökkgráir að lit, alþaktir dúni. Þeir eru hreið-
urfælnir; leiðir móðirin þá til sjávar um leið og hinn síðasti er kominn úr
eggi og allir orðnir þurrir. Yfirleitt drepst mikið af ungunum fyrstu dagana
og talið að orsakarinnar sé að leita í fæðuframboðinu hverju sinni, eins og
hjá öðrum andarungum. Mikil áraskipti eru að afkomunni. Þeir ungar sem
lifa verða að fullu sjálfstæðir 55-60 daga gamlir og fleygir 65-75 daga.
Æðurin er einn mesti nytjafugl á Íslandi. Úr hverju hreiðri fást 15-20
grömm af æðardún, þannig að um 60 hreiður þarf til að fá í 1 kíló.
Einn mesti nytjafugl á Íslandi
ÆÐUR FRIÐUÐ HÉR Á LANDI FRÁ 1847
Æðarhjón Beðið á meðan dúnninn
er tekinn úr hreiðrinu.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
MOGGAKLÚBBURINN
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að
skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
2 FYRIR 1 Á PERLUR ÍSLENSKRA SÖNGLAGA
Í HÖRPU JÚNÍ, JÚLÍ OG ÁGÚST
Draumalandið, Maístjarnan, Á Sprengisandi – söngperlur sem hver íslendingur þekkir.
Í Hörpu í sumar er hægt að rifja upp kynnin við þessi lög og mörg fleiri sem fyrir löngu eru orðin hluti af
íslenskri þjóðarsál. Flutningur er í höndum frábærra ungra listamanna sem margir hverjir eru vel þekktir,
bæði hér heima og erlendis.
Kynningar eru á ensku til að auðvelda menningarþyrstum gestum okkar að njóta tónleikanna.
Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Bjarni Thor Kristinsson
Hvernig fæ ég afsláttinn?
Til að fá afsláttinn þarf að fara inn á moggaklubburinn.is
og smella á „Perlur íslenskra sönglaga“.
Þá opnast síða þar sem þú klárar miðakaupin með afslætti.
Allar nánari
upplýsingar
á www.pearls.is
Bjarni Thor Kristinsson,listrænn stjórnandi
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á EÐA Í SÍMA