Morgunblaðið - 09.07.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það er mjög spennandi að sjá hvern-
ig þetta sumar þróast, það virðist
vera fullt af laxi í ánni,“ segir Árni
Pétur Hilmarsson, staðarhaldari á
Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal,
kampakátur yfir frábærri byrjun á
laxveiðinni í ánni. Fyrsta hollið, sem
hóf veiðar 1. júlí, landaði 91 laxi sem
er betri afli en nokkrar heimildir
geta um þetta snemma sumars. Og
laxveiðin byrjar vel um land allt;
veiðin fyrstu vikurnar er víðast hvar
meiri en elstu menn muna og þá er
stórlaxahlutfallið afar gott. Víða
velta menn fyrir sér hvort átak síð-
ustu ára í að sleppa veiddum stórlaxi
aftur sé ekki að skila sér; meira er
eftir af honum í ánum að hrygna og
stórlaxagenið erfist.
„Þessi opnun var ævintýri líkust,“
segir Árni Pétur um veiðina í Að-
aldalnum. „Síðan hefur skiljanlega
aðeins hægst á þessu en síðasta holl
landaði um þrjátíu, sem er líka frá-
bært svona snemma í júlí. Ef öll holl
enduðu með þrjátíu laxa myndi ég
aldrei kvarta,“ segir hann og hlær.
Margir laxar í Nesi eru gríðar-
vænir. Tveir 106 cm laxar hafa
veiðst, 23 pund samkvæmt viðmið-
unarkvarðanum, en í fyrsta hollinu
voru 11 laxar 99 cm og lengri. Þeir
stóru hafa haldið áfram að veiðast; í
síðasta holli veiddu tveir sína fyrstu
tuttugu pundara. „Þetta er þannig
ævintýri,“ segir Árni Pétur.
Allir veiðimenn í „axjón“
Þegar spurt er hvort smálaxinn sé
eitthvað farinn að sýna sig segir
Árni Pétur fjóra hafa veiðst strax í
opnun, sem viti á gott fyrir fram-
haldið hvað smálaxagöngur varðar,
en þrátt fyrir að þeir hafi eitthvað
dregið meðallengdina niður þá var
hún engu að síður 86 cm.
Þegar spurt er um samanburð
segir Árni að sumarið 1987, en þá
hófust veiðar 20. júní, hafi tveir
reyndir veiðimenn fengið að veiða á
bændadögum fyrir opnun og landað
mörgum löxum; engu að síður var
heildarveiðin þá um 90 laxar á svæð-
inu í júlíbyrjun. Þetta hafi því verið
miklu meiri hvellur nú. „En það
sumar dró heldur betur úr veiðinni
og endaði í 440 löxum eftir góða
byrjun. Maður getur því aldrei vitað
hvað sumarið ber í skauti sér. En við
skulum ekki gleyma því að 1987 var
allur lax drepinn en nú er honum öll-
um sleppt og þótt ekki sé jafn brjál-
uð veiði og fyrstu dagana, þá eru all-
ir veiðimenn í „axjón“, að reisa fiska
og setja í og landa sumum.“
Stórlaxafjöld í Eystri-Rangá
Miklu meiri veiði var í klakveið-
inni í Eystri-Rangá í júní en nokk-
urn tíma áður og þá var formleg
opnun glæsileg, þá var um 350 löx-
um landað og allt stórlax. Einar
Lúðvíksson, umsjónarmaður árinn-
ar, segir þessa miklu veiði á stórum
löxum gleðilega en þó ekkert endi-
lega koma sér á óvart. „Nú er að
ganga önnur kynslóð af stórlaxi sem
við höfum verið að ala sérstaklega,“
segir hann en eins og menn vita eru
Rangárnar hafbeitarár.
„Mömmur, pabbar, ömmur og af-
ar þessara laxa eru stórlaxar og það
skilar sér því stórlaxagenið erfist,“
segir hann. „Nú eru 40 til 50 prósent
veiðinnar í Eystri-Rangá stórlaxar
og ganga snemma en svo ölum við
smálax sem gengur inn í haustið.“
„Virðist vera fullt af laxi í ánni“
Einstök byrjun á Nessvæðinu í Aðaldal Meðallengd laxanna í byrjun var 86 cm Tveir 106 cm
hafa veiðst og margir um 100 cm Önnur kynslóð stórlaxaræktunar í Eystri-Rangá er að skila sér
Morgunblaðið/Einar Falur
Fumlaust Kristinn Á. Ingólfsson háfar nýgenginn lax fyrir skoskan veiði-
mann við Djúpós, neðsta veiðistað í Ytri-Rangá. Mikil veiði er í ánni.
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is* Tölur liggja ekki fyrir
Eystri-Rangá (17)
Blanda (14)
Ytri-Rangá & Hólsá (12)
Þverá-Kjarrá (14)
Norðurá (15)
Miðfjarðará (6)
Haffjarðará (6)
Langá (12)
Laxá í Aðaldal (18)
Víðidalsá (8)
Elliðaárnar (6)
Vatnsdalsá (6)
Hítará (4)
Flókadalsá (8)
Haukadalsá (5)
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama
tíma í
fyrra
Á sama
tíma
2014
Staðan 6. júlí 2016
91
515
209
488
630
301
185
130
132
95
129
79
83
130
*
160
615
61
334
329
203
197
60
131
75
125
125
88
72
*
1111
1020
916
721
634
608
472
374
266
251
227
220
173
149
153
Lukkulegur Cédric Hannedouche við Kirkjuhólmakvísl á Nessvæðinu í Aðaldal með rúmlega tuttugu punda lax, 101 cm langan.
Reykjavík
Tangarhöfða 8
Sími: 590 2000
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
og laugardaga frá 12 til 16.
Verið velkomin í reynsluakstur.
FJÖLHÆFUR OG SPARSAMUR VINNUFÉLAGI
Opel Vivaro
1,6 dísel ECOFLEX notar aðeins 6,1l/100 km
miðað við blandaðan akstur.
Verð frá 3.379.000 kr. án vsk.
Kynntu þér Opel Vivaro á opel.is eða á benni.is
OPELVIVARO