Morgunblaðið - 09.07.2016, Blaðsíða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
Söfn • Setur • Sýningar
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Með kveðju – Myndheimur íslenskra póstkorta í Myndasal
Dálítill sjór – Ljósmyndir Kristínar Bogadóttur á Vegg
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
Norðrið í norðrinu á 3. hæð
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
LISTASAFN ÍSLANDS
BERLINDE DE BRUYCKERE 21.5 - 4.9.2016
LJÓSMÁLUN – LJÓSMYNDIN OG MÁLVERKIÐ Í SAMTÍMANUM 7.5 - 11.9.2016
UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST
UPPHAF KYNNINGAR Á ÍSLENSKRI MYNDLIST Í KAUPMANNAHÖFN
21.1 - 11.9 2016
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016
HRYNJANDI HVERA 17.6 - 11.9 2016
Gagnvirk videó-innsetning eftir Sigrúnu Harðardóttur
Leiðsagnir á ensku alla þriðjudaga og föstudaga kl. 12:10
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið daglega í sumar kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
GYÐJUR 5.2. - 4.9.2016
Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
KAFFISTOFA heimabakaðar kökur - Sumartónleikar næsta þriðjudagskvöld kl. 20:30
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI 5.2.-16.9.2016
Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Reykjanesbæjar
MANNFÉLAGIÐ
4. júní – 21. ágúst
ÍSLENSK NÁTTÚRA, verk úr safneign
15. janúar – 21. ágúst
Byggðasafn Reykjanesbæjar
ÞYRPING VERÐUR AÐ ÞORPI
SÖGUR ÚR BÆNUM
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið alla daga 12.00-17.00
Duusmuseum.is
DUUS SAFNAHÚS
DUUS MUSEUM
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Sýningin opin daglega frá 10-17
Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Hús án eirðar
Lagaffe Tales er lítil útgáfa,
einbeitir sér að djúphúsi eins og
segir í inngangi, og allar útgáfur
hafa verið bundnar við netheima
þar til nú, en RVK Moods er fyrsta
„platan“ sem kemur út á föstu
formi.
Ég ræddi stuttlega við piltana
og þeir sögðu mér að fyrst og síð-
ast stýrði ástríðan þessum aðgerð-
um, fjárhagslegur ávinningur væri
svo gott sem ekki í kortunum. „Ég
man að þegar ég sá fyrstu sölutöl-
urnar þá langaði mig bara til að
ganga frá þessu,“ sagði Viktor og
hló. „En … hér erum við. Og get-
um ekki annað.“
Nokkrar raftónlistarútgáfur
eru nú starfandi á landi elds og ísa,
misvirkar. Möller Records hefur
verið iðinn við kolann en svo eru
nöfn eins og Borg Ltd, Geysir Re-
cords, Rafarta og Raftónar. Mörg-
um kann að þykja það sérstakt að
ekki stærra samfélag en Ísland
geti borið nokkur svona merki en
það gleymist oft í umræðunni um
Ísland og stærð þess að þó það búi
ekki nokkrar milljónir hérna þá
eru þó yfir 300.000 manns hérna
sem er þokkalegasta tala. Þannig
að það er heldur ekki bundið í eitt-
hvert kraftaverk að hér séu starf-
andi mörg þúsund tónlistarmenn
innan hinna og þessara geira.
Þorgrímur Þorsteinsson, nem-
andi við LHÍ, skrifaði skemmtilega
BA-ritgerð þar sem hann fór í
saumana á þessum málum, m.a.
með djúpviðtölum við nokkra aðila
úr þessari raftónlistarsenu og voru
þeir Jónbjörn og Viktor þar á með-
al. Í samtali við Þorgrím leggja
þeir áherslu á að tilgangur
Lagaffe Tales sé fyrst og síðast
varðveisluþátturinn, að koma
» Taktfastur en blíð-ur bassinn bærðist
fallega um veginn, sál-
ríkar raddir þar í bland
eins og djúpir húsmenn
vilja hafa það
Útgáfumerkið Lagaffe Tales var stofnað árið 2012 með það að
markmiði að halda utan um íslenska hústónlist af dýpra taginu
(„deep house“) Útgáfur eru nú orðnar á annan tuginn og fyrir
stuttu kom fyrsta platan á föstu formi út, á forláta vínyl nema hvað.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég var á gangi niður Lauga-veginn í rjómablíðu fyrirstuttu og gekk þá fram á
tvo pilta, plötusnúða, sem þeyttu
djúpum hússkífum af mikilli list.
Takfastur en blíður bassinn bærð-
ist fallega um veginn, sálríkar
raddir þar í bland eins og djúpir
húsmenn vilja hafa það, og strák-
arnir hinir hressustu. Vínylnördið
í mér rak þá óðar augun í tólf-
tommu sem var á borði hjá þeim og
ég fór að leggja saman tvo og tvo.
Þarna voru komnir þeir Jónbjörn
og Viktor hjá Lagaffe Tales, ég
hafði heyrt af útgáfunni en aldrei
hitt manneskjurnar á bak við hana.
Platan góða, sem ég tók trausta-
taki vegna þeirra skrifa sem þú ert
að fara í gegnum núna, er eftir þá
Davíð & Hjalta, kallast RVK Moods
og er fjögurra laga stuttskífa.
Mono no aware / Slices of life /
Mildi tregi nefnist sýning sem Anita
Jensen, ljósmyndari og grafík-
listamaður frá Finnlandi, opnar í
Grafíksalnum, að Tryggvagötu 17
hafnarmegin, í dag kl. 15-17.
Titill sýningarinnar vísar til þess
að í japanskri menningu á samleið
tíma og fegurðar sér langa hefð.
Listakonan útskýrir verk sín sem
„augnablik er líða hjá í lífinu hvað
varðar trega, samkennd og samúð.
Hún gerir það með þeim hætti að
sameina þætti úr náttúrunni og
gamlar japanskar ljósmyndir m.a.
frá Kyoto, og brot úr gömlum þögl-
um kvikmyndum og tekur að láni
og blandar saman ljósmyndunum
með mismunandi mótífum og hlut-
um eins og blómum og fræjum frá
Finnlandi og Japan,“ segir í til-
kynningu frá sýningarhaldara. Þar
kemur fram að Anita Jensen út-
skrifaðist frá finnsku listaakademí-
unni árið 1985 og hefur kennt graf-
ík við Aalto-háskólann í rúm 26 ár.
Hún hefur sýnt verk sín víða um
heim og hlotið fjölda viðurkenn-
inga, sem dæmi er hún handhafi
Gran-verðlaunanna árið 2015.
Kuðungar Meðal mynda Anitu Jensen.
Mildi tregi
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Óperugala um sumar nefnist tón-
leikasýning sem hefst sunnudaginn
10. júlí kl. 16 í Kaldalóni Hörpu. Sýn-
ingin verður sýnd fimm sunnudaga í
röð að verslunarmannahelginni und-
anskilinni.
Í þessari tónleikasýningu munu
ungir og hæfileikaríkir íslenskir óp-
erusöngvarar skauta í gegnum sögu
óperuflutnings á Íslandi sem er
styttri en margur gæti haldið. Þau
munu flytja margar af perlum óp-
erubókmenntanna og þess á milli
munu þau líka segja frá ýmsu
skemmtilegu og sprellið verður held-
ur ekki langt undan.
Bjarni Thor Kristinsson söngvari
er höfundur sýningarinnar. Flytj-
endur eru þau Lilja Guðmundsdóttir
sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
messósópran, Kristján Jóhannesson
baritón, Egill Árni Pálsson og Matt-
hildur Anna Gísladóttir leikur undir
á píanó.
Sigríði Ósk þekkja margir óperu-
unnendur en hún söng hlutverk Ros-
inu í Rakaranum frá Sevilla í Ís-
lensku óperunni sl. haust. Hún lærði
í Royal College of Music í London og
hefur starfað þar og víða í Evrópu.
Lilja er nýútskrifuð frá Vínarborg,
þar sem Kristján er enn í námi, en
þau voru bæði með hlutverk í Car-
men í Íslensku óperunni. Egill hefur
svo verið á föstum samningi Þýska-
landi.
Myndbönd, leikur og söngur
„Fyrsta óperusýningin á Íslandi
var haldin í Iðnó árið 1937, þannig að
tímabilið sem við segjum frá er 1937-
2016. Við segjum söguna, fléttum inn
í hana ýmsum áhugaverðum atrið-
um, eins og upptökum frá gömlum
sýningum og skemmtilegum við-
tölum við íslenskt óperufólk. Þarna
blandast saman myndbandsbrot,
leikur og sungin atriði úr óperusýn-
ingum,“ útskýrir Sigríður Ósk.
Það er Bjarni Thor sem semur
handrirtið að sýningunni og Sigríður
segir hann alveg frábæran leikstjóra.
„Hann er sjálfur rosalega flinkur
söngvari og leikari, og hefur rosalega
góðan húmor þannig að um leið og
þetta er fræðilegt er þetta svo
skemmtilegt að oft hefur verið erfitt
að springa ekki úr hlátri í miðri senu
á æfingum. Við erum t.d. að gera
grín að steríótýpunum af söngv-
urum, eins og tenórnum sem vill
syngja allt á ítölsku og ekkert annað
kemur til greina.“
Sigríður Ósk segir að allar kynn-
ingarnar séu á íslensku og því sé sýn-
ingin ekki stíluð sérstaklega inn á
ferðamenn. „Þeir geta auðvitað notið
þess að hlusta á tónlistina þótt þeir
skilji ekki leikinn inni á milli. Við tök-
um líka atriði úr íslenskum óperum,
m.a. Ragnheiði eftir Gunnar Þórð-
arson sem sló svo rækilega í gegn.
Annars erum við að syngja á ýmsum
tungumálum óperunnar.“
Gaman að leika karl
„Ég held upp á flestar aríurnar
sem ég syng í sýningunni,“ svarar
Sigríður þegar hún er spurð hvort
hún fái að syngja uppáhaldsaríuna
sína. „Mér finnst rosalega fallegt tríó
sem við flytjum úr Cosí fan tutte. Svo
held ég alltaf mikið upp á Hab-
aneruna úr Carmen og Rosinu úr
Rakaranum. Ég fæ líka að syngja
Olowski úr Leðurblökunni og er þá
að leika karl og mér finnst það alltaf
rosalega skemmtilegt,“ segir Sigríð-
ur Ósk sem getur ekki dulið hversu
spennt hún er fyrir sýningunni.
„Þetta er alveg svakalega gaman.
Þau eru öll frábærir listamenn.
Matta er líka algjör snillingur við pí-
anóið, en hún tekur þátt í leiknum
með okkur. falleg og sýningin ein-
faldlega mjög skemmtileg.“
„Fræðilegt og skemmtilegt“
Óperugala um
sumar hefst á
morgun í Kaldalóni
Morgunblaðið/Ófeigur
Sönggleði Egill
Árni Pálsson og
Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir
taka þátt í
Óperugala
um sumar.