Morgunblaðið - 09.07.2016, Page 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
Hamraborg 10 – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18
AFMÆLISTILBOÐ
VIÐ ERUM 20 ÁRA
Með hverjum keyptum gleraugum
fylgja sólgleraugu með í kaupbæti
Verið velkomin í sjónmælingu
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Sænski verslunarrisinn H&M hefur
undirritað samning við fasteigna-
félagið Regin og dótturfélag þess,
Eignarhaldsfélagið Smáralind, um
leigu á húsnæði sem hýsa mun tvær
verslanir fyrirtækisins. Samningur-
inn nær til tveggja staða á höfuðborg-
arsvæðinu, annars vegar í Smáralind
og hins vegar á Hafnartorgi í miðbæ
Reykjavíkur. Verslanirnar tvær
verða opnaðar á næsta ári og árið
2018. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins verður þriðji aðili ekki
fenginn að rekstrinum og mun H&M
sjálft reka verslanirnar hér á landi
líkt og annars staðar í heiminum.
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri
Regins, segir í samtali við Morgun-
blaðið að fyrirtækið hafi unnið að
þessu verkefni í tvö ár í samstarfi við
erlenda ráðgjafa sem hafi mikla
reynslu af því að starfa með stórfyr-
irtækjum á borð við IKEA og mörg
önnur.
„Það er mikill áfangi að ná þessum
samningi við H&M sem er eitt sterk-
asta vörumerki í heimi og þetta mun
hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag
því nú mun samkeppni aukast á þess-
um markaði og Íslendingar búa við
samkeppnishæfara verð á markaðn-
um en áður.“
Helgi segir að samningur Regins
við H&M sé mjög traustur og til langs
tíma.
„Það verður ekki litið fram hjá því
að þær breytingar sem urðu um síð-
ustu áramót með afnámi tolla á fatnað
höfðu mjög jákvæð áhrif á stöðuna.
Allar breytingar sem auka samkeppn-
ishæfni Íslands, hvort sem það eru
breytingar á tollum, vörugjöldum eða
virðisaukaskatti, hafa gríðarleg áhrif á
tækifærin sem bjóðast,“ segir Helgi.
Kanna einnig Kringluna
Í kjölfar þess að Reginn sendi frá
sér fréttatilkynningu um að samning-
ar væru í höfn milli fyrirtækisins og
H&M sendi fasteignafélagið Reitir
frá sér fréttatilkynningu þess efnis
að fyrirtækið hefði að undanförnu átt
í viðræðum við H&M ásamt Kringl-
unni um opnun verslunar í verslunar-
miðstöðinni. Segir í tilkynningunni að
viðræðum sé ekki lokið en að þó sé
ráðgert að verslun undir merki H&M
verði opnuð í Kringlunni á seinni
hluta ársins. 2017.
Stórt á alla mælikvarða
Hennes & Mauritz AB er sænskt
fyrirtæki sem stofnað var árið 1947.
Fyrirtækið er nú skráð í kauphöllina í
Stokkhólmi og miðað við gengi þess í
lok viðskipta í gær er það metið á ríf-
lega 5.300 milljarða íslenskra króna
og velta þess á síðasta ári nam um
3.000 milljörðum króna. Til saman-
burðar er heildarvirði allra fyrirtækj-
anna sem skipa aðallista Kauphallar
Íslands um 1.000 milljarðar króna
eða innan við fimmtungur af virði
H&M.
H&M rekur yfir 4.000 verslanir í
62 löndum. Hjá því starfa ríflega
148.000 manns. Það rekur ekki aðeins
verslanir undir merkinu H&M og
H&M Home heldur einnig COS,
Monki, Weekday, Cheap Monday og
& Other Stories.
Verslunarrisi til Íslands
Tölvuteikning/PK arkitektar
Uppbygging H&M hyggst meðal annars opna verslun við Hafnartorg sem gæti litið svona út, séð frá Stjórnarráðinu.
H&M opnar tvær verslanir hérlendis Í miðborg Reykjavíkur og Smáralind
Forsvarsmenn Kringlunnar einnig í viðræðum við fyrirtækið um verslunarrými
● Capacent spáir því að vísitala neyslu-
verðs lækki um 0,1% í júlí, sem hefur í
för með sér að 12 mánaða verðbólga
minnkar úr 1,6% í 1,4%. Gangi spá
Capacent eftir myndi mælast 0,3%
verðhjöðnun í júlí þegar litið væri fram
hjá húnæðislið vísitölunnar.
Spá minni verðbólgu
9. júlí 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.72 123.3 123.01
Sterlingspund 159.2 159.98 159.59
Kanadadalur 94.32 94.88 94.6
Dönsk króna 18.251 18.357 18.304
Norsk króna 14.519 14.605 14.562
Sænsk króna 14.353 14.437 14.395
Svissn. franki 125.46 126.16 125.81
Japanskt jen 1.2226 1.2298 1.2262
SDR 170.84 171.86 171.35
Evra 135.82 136.58 136.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.5611
Hrávöruverð
Gull 1356.1 ($/únsa)
Ál 1637.0 ($/tonn) LME
Hráolía 49.12 ($/fatið) Brent
Stefnir hefur lok-
ið fjármögnun á
12,8 milljarða
framtakssjóði.
Hluthafar eru líf-
eyrissjóðir,
tryggingafélög og
aðrir fagfjár-
festar, samtals
um 40 talsins.
Sjóðurinn fær
nafnið SÍA III og
er stofnaður í framhaldi af SÍA II
sem hefur á síðastliðnum árum fjár-
fest í Skeljungi, Festi, Verne Global
og Kynnisferðum. SÍA III mun fjár-
festa í hlutafé óskráðra fyrirtækja
með það að markmiði að taka þátt í
uppbyggingu, vexti og virðisaukn-
ingu þeirra. Stefnir er dótturfélag
Arion banka og stærsta sjóðastýr-
ingarfyrirtæki landsins.
Stefnir með
nýjan sjóð
Flóki
Halldórsson
Hefur lokið 12,8
milljarða fjármögnun
● Framtakssjóður Íslands, Horn II og
sjóður í eigu stofnanda samheitalyfja-
fyrirtækisins Invent Farma á Spáni
hafa, ásamt öðrum
hluthöfum, náð sam-
komulagi um sölu á
fyrirtækinu. Kaup-
endur eru sjóðir sem
leiddir eru af al-
þjóðlega framtaks-
sjóðafyrirtækinu
Apax Partners. Verð-
ið í viðskiptunum er
ekki gefið upp.
Framtakssjóðurinn, sem er að
mestu í eigu lífeyrissjóða og Lands-
bankans, á 38% hlut í félaginu. Horn
II á um 17%, en það er framtaks-
sjóður í stýringu hjá Landsbréfum,
dótturfélagi Landsbankans. Ásamt
sjóðunum tveimur er Silfurberg
stærsti hluthafinn en það er í eigu
Friðriks Steins Kristjánssonar, stofn-
anda Invent Farma. Í tilkynningu um
söluna segir að fjárfestingin hafi skil-
að Framtakssjóðnum og Horni af-
bragðs arðsemi.
Framtakssjóðurinn og
Horn selja Invent Farma
Friðrik Steinn
Kristjánsson
STUTT
fasteignir og lóðir færðar á 21,8
milljarða í lok síðasta árs, en árið
2014 nam sá liður 10,2 milljörðum.
Við matið kom í ljós að munur var á
bókfærðu virði eignanna og mats-
virði þeirra. Kemur fram í skýr-
ingum við ársreikninginn að mun-
urinn sé verulegur og varanlegur og
fasteignirnar því færðar samkvæmt
matinu. Nema áhrif þessa tæpum 5
milljörðum króna.
Skuldir félagsins námu 16,7 millj-
örðum í árslok, en voru 10,5 millj-
arðar í árslok 2014. Eigið fé sam-
stæðu Íslandshótela var 10
milljarðar í árslok 2015 og jókst um
8,1 milljarð á árinu. Eiginfjárhlutfall
var 37% í árslok. Leggur stjórn til að
greiddur verði 100 milljóna króna
arður í ár til hluthafa vegna síðasta
rektrarárs.
Íslandshótel reka 16 hótel um
landið undir merkjum Grand Hótel
Reykjavík, Hótel Reykjavík Centr-
um, Best Western Hótel Reykjavík,
Hótel Reykjadalur og Fosshótel.
Tæplega 70% hlutafjár í félaginu er í
eigu Ólafs D. Torfasonar og tengdra
aðila. jonth@mbl.is
Hagnaður Íslandshótela á síðasta ári
nam 613 milljónum króna. Þetta
kemur fram í ársreikningi félagsins
fyrir árið 2015. Hagnaður ársins
2014 var 551 milljón. Nokkur aukn-
ing varð í umsvifum Íslandshótela á
síðasta ári. Tekjur námu samtals 6,9
milljörðum króna saman borið við
5,2 milljarða árið á undan. Alls voru
rekstrargjöld 4,8 milljarðar á síðasta
ári en 3,6 milljarðar árið á undan.
Endurmat var gert á fasteignum
félagsins á síðasta ári. Þannig eru
Vaxand umsvif Íslandshótela í fyrra
Endurmat eigna stóreykur eigið fé
Morgunblaðið / Baldur Arnarson
Fosshótel Nýtt hótel Íslandshótela.