Morgunblaðið - 09.07.2016, Qupperneq 25
Hvítur er skiptamun yfir en peða-
staða svarts er sterk og einnig
kóngsstaðan. Samt eru vinnings-
möguleikarnir allir hvíts megin.
29. Be4! d4 30. f4 exf4! 31. gxf4
Kc5!
Kóngurinn heldur í tvísýnt ferða-
lag. Dæmigert fyrir Vaganjan.
32. He2 Kb4 33. Bc2 Bc4 34. He7
Ka3 35. Hd7 Be2 36. Hb1 Ka2 37.
Bxh7 Hf8 38. Kg3 He8
39. Hg1
Jóhann taldi að hann hefði leikið
skákinni niður með þessum leik rétt
fyrir tímamörkin. En tapleikurinn
kemur síðar þó að 39. h4! eða 39.
Kf2 hefði verið betra.
39. … Kb3 40. Hb1+ Kxa4 41.
Bc2+
41. h4! var best.
41. … Ka3 42. f5?
Og nú var best að leika 42. Hd6 og
enn á hvítur sigurmöguleika.
42. …Ka2 43. Hg1 Kb2! 44. Ba4
d3 45. Kf2 He5
Skyndilega er svartur kominn
með unnið tafl.
46. Hg5 Bd2 47. Hg3 Hxf5+ 48.
Kg2 Hg5 49. Hxg5 Bxg5 50. Kf2
Ka3 51. Hd4 Be7 52. Hc4 Bb4 53.
Bc2 dxc2
– og Jóhann gafst upp.
Rússar unnu flokk keppenda 65
ára og eldri, en í sveit þeirra voru
kunnir kappar á borð við Balasjov,
Vasjúkov og Svesnikov. Næsta
heimsmeistaramót öldunga fer fram
í strandbænum Eretríu í Grikklandi
undir lok apríl á næsta ári.
Þjóðverjar unnu nauman sig-ur á heimsmeistaramótiskáksveita skipaðra kepp-endum 50 ára og eldri –
þeir fengu 16 stig, jafnmörg Armen-
um, en aðrir þættir sem teknir eru
inn þegar sveitir verða jafnar voru
Þjóðverjum hagstæðari. Fyrsta
borðs maður þeirra, Uwe Bönsch,
náði frábærum árangri og hlaut 7½
vinning úr níu skákum. Brons-
verðlaun hlutu Englendingar, en
þeir höfðu innanborðs hina þekktu
stórmeistara John Nunn og Jonat-
han Speelman.
Íslensku sveitina skipuðu Jóhann
Hjartarson, sem fékk fjóra vinninga
af átta mögulegum á 1. borði, grein-
arhöfundur hlaut fimm vinninga af
átta á 2. borði, Margeir Pétursson
hlaut sex vinninga af átta og hlaut
silfurverðlaun 3. borðsmanna, 4.
borðsmaðurinn Jón L. Árnason
hlaut fimm vinninga af átta mögu-
legum og Friðrik Ólafsson hlaut
þrjá vinninga af fjórum mögulegum.
Fyrir fram var Íslandi raðað í
efsta sæti styrkleikalistans en alls
tóku 57 lið þátt í 50+ flokknum.
Þess vegna er 7. sæti vonbrigði. Þó
gerðist það einn góðan veðurdag í
Dresden að okkur leið öllum eins og
sigurvegurum og var það vegna ís-
lenska knattspyrnulandsliðsins sem
snerti einhvern streng út yfir alla
Evrópu og víðar sem náði langt út
fyrir knattspyrnuna.
Skák Jóhanns við Vaganjan í
viðureign Íslands og Armeníu er
kannski lýsandi fyrir lánleysi liðsins
en var þó einn af hápunktum móts-
ins og gat Jóhann verið stoltur af
taflmennsku sinni þrátt fyrir tapið:
Dresden 2016 HM 50+; 6. um-
ferð:
Jóhann Hjartarson( Ísland) –
Rafael Vaganjan (Armenía)
Frönsk vörn
1. e4
Gefur kost á franskri vörn, uppá-
haldsbyrjun Vaganjans.
1. … e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6
5. Rf3 Db6 6. Be2 Rh6 7. Bxh6!
gxh6
Jóhann vissi að b2-peðið er „eitr-
að“; eftir 7. … Dxb2 kemur 8. Be3!
Dxa1 9. Dc2! og svarta drottningin
er í vanda.
8. Dd2 Bg7 9. O-O O-O 10. Ra3
cxd4 11. cxd4 Bd7 12. Rc2 f6 13.
exf6 Hxf6 14. b4 a6 15.a4 Hxf3!?
Skiptamunsfórn sem sést hefur
áður. Vandinn er sá að það er auð-
veldara að tefla svörtu stöðuna. Og
Vaganjan tefldi mjög hratt!
16. Bxf3 Rxd4 17. Rxd4 Dxd4 18.
Dxd4 Bxd4 19. Ha2 Hc8 20. Hb1
Kf7 21. g3 Ke7 22. Kg2 Kd6
23. Bg4 h5!? 24. Bxh5 e5 25. b5 a5
26. Hd1 Bc3 27. Bf3 Be6 28. Hc2 b6
Þjóðverjar sigruðu
á HM skáksveita
50 ára og eldri
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V. S. Wiium
hdl., lögg. fasteignasali.
s. 896 4013
GÓÐ OG VÖNDUÐ SÉRHÆÐ MEÐ BÍLSKÚR, SAMTALS 190,5 FM. SÉR
ÞVOTTAHÚS Í KJALLARA. HÚSIÐ ER Í GÓÐU ÁSTANDI AÐ UTANVERÐU.
FRÁBÆR STAÐSETNING. Á hæðinni er hol, forstofuherbergi / skrifstofa,
stofa, borðstofa, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi og
tvennar svalir. Í kjallara er þvottahús og geymslur.
Bílskúr og stæði fyrir 2 bíla.
Verð 76,9 millj.
Opið hús mánudaginn 11. júlí 17:30-18:00
Ólafur Guðmundsson
sölustjóri
s. 896 4090
Þórarinn Friðriksson
lögg. fasteignasali
s. 844 6353.
TIL SÖLU Ásvallagata 20
Eitt eftirminnileg-
asta atriði Monty Pyt-
hon grínaranna hefst
með því að húsráðandi
kemur til dyra og
mætir þar tveimur
embættismönnum.
Embm.: Góðan dag-
inn. Getum við fengið
lifrina þína?
Húsr.: Hvað?
Embm.: Lifrina, það
er stórt líffæri í kviðarholinu þínu?
Húsr.: Ég veit hvað lifrin er, en
ég er eiginlega að nota hana.
Embm.: En þú ert búinn að
skrifa upp á viljayfirlýsingu um
lifrargjöf, og við viljum fá hana
núna.
Húsr.: En ég þarf hana til að
lifa.
Embm.: Engar áhyggjur, það
hefur enginn lifað af lifrargjafaað-
gerð hjá okkur fram að þessu.
Eftirleikurinn varð síðan blóð-
ugur.
Oft er því kastað fram að listin
endurspegli raunveruleikann, en
aldrei grunaði mann að það ætti
við um þennan svarta húmor.
Það á nefnilega að fara að fjar-
lægja neyðarbraut Reykjavík-
urflugvallar sem enn verið er að
nota. Bara á fyrstu fimm mán-
uðum síðasta árs þurfti sjúkra-
flugið að lenda á brautinni 16 sinn-
um. Brautin er einnig mikilvæg
öryggi allra minni flugvéla auk
björgunar- og leitarflugs, sem oft
er farið við erfiðar veðuraðstæður.
Flest venjulegt fólk skilur að þeg-
ar öryggisþjónusta er skert þá er
lífi fólks stofnað í hættu. Í áhættu-
matinu sem unnið var vegna fyr-
irhugaðrar lokunar brautarinnar
voru þessir stærstu áhættuþættir
hins vegar undanskildir, sem eru
hreint óskiljanleg vinnubrögð því
áhættumat án tillits til stærstu
áhættuþátta er ekki pappírsins
virði.
Veifandi þessu ónýta plaggi og
viljayfirlýsingu fyrrverandi innan-
ríkisráðherra, þá hefur núverandi
borgarstjórn gengið fram af mikilli
óbilgirni til að knýja á um að neyð-
arbrautinni verði lokað strax í
haust.
Puntlýðræði valdaelítu
Það sem er hvað undarlegast við
þessa framgöngu alla
er að um 70% borg-
arbúa og 80% lands-
manna vilja halda
Reykjavíkurflugvelli í
óbreyttri mynd. Enn
merkilegra er að þar
sem lokunin kemur
til með að skerða
heilbrigðisþjónustu
landsbyggðarinnar
varanlega, þá má í
raun segja að lokun
brautarinnar stríði
gegn tveimur stærstu
undirskriftasöfnunum í sögu lýð-
veldisins: Undirskriftasöfnuninni
sem Hjartað í vatnsmýrinni stóð
fyrir og nýlegri undirskriftasöfnun
um eflingu heilbrigðiskerfisins.
Hvað varð um lýðræðið? Hvernig
stendur á því að valdhafar í borg-
inni hlusta ekki á almenning í
þessu mikla hagsmunamáli? At-
hyglisvert er að við stjórnartaum-
ana í Reykjavík eru sömu flokkar
og hvað mest hafa talað fyrir að
festa eigi þjóðaratkvæðisákvæði í
stjórnarskrá. Þessi lýðræðisást
þeirra virðist þannig eitthvað val-
kvæð, og hverfur um leið og þeir
halda sjálfir um stjórnartaumana.
Lýðræðishjal sem er blekkingar
einar.
Varnarleysi var ekki besta
vörnin
Frededric Bastiat sagði eitt sinn
að það versta sem gæti komið fyrir
góðan málstað væri ekki það að fá
óvægna gagnrýni, heldur að vera
varinn af vanhæfni
Þessi aðvörun kemur ofarlega í
huga þegar Reykjavíkurflugvall-
ardómsmálið er skoðað. En við
málsvörn gleymdist að taka fram
að áhættumatið undanskildi áhrif
lokunar á sjúkraflutninga. Þar
gleymdist að benda á að eitt að-
alsönnunargagn ákæranda var
skýrsla sem var það óskiljanleg að
yfirferðaraðilinn neitaði að rýna
hana. Þar gleymdist að benda á að
eini nothæfistuðullinn sem rétt-
urinn fjallaði um uppfyllti engan
veginn kröfur íslenskra reglugerða
þar sem hann var reiknaður fyrir
ranga stærð flugvéla og tók hvorki
tillit til skyggnis né almennra
brautarskilyrða eins og ísingar.
Þar gleymdist að nefna að allar
veðurforsendur áhættumatsins
byggðust á mildasta og stilltasta
veðurtímabili frá upphafi mælinga.
Eins gleymdist öll efnisleg gagn-
rýni á orðalag viljayfirlýsing-
arinnar sem dómsmálið fjallaði um.
En nú er dómur fallinn og því of
seint að deila á þennan vitleys-
isdóm. Það sorglega við þetta mál
er að þótt íslenska ríkið hafi verið
var ákært í málinu, þá var í raun
verið að rétta yfir sjúklingum
sjúkraflugsins. Dómurinn gæti
reynst dauðadómur því hann gæti
haft áhrif á hátt í 30 sjúkraflutn-
inga á ári. Það er síðan algjört met
í tilætlunarsemi að ætlast eft-
irleiðis til þess að sjúkra-, björg-
unar- og leitarflugmenn þurfi að
taka enn meiri áhættu í starfi sínu
en þeir þegar gera. Hvernig á
flugmaður að velja á milli þess að
reyna hættulega lendingu eða snúa
við með sjúkling í lífshættu? Þetta
skilningsleysi valdaelítunnar á
kringumstæðum venjulegs fólks er
algjör siðblinda. Í stað þess að yf-
irvöld séu þjónn fólksins þá er
valtað yfir hagsmuni almennings
með blekkingum og yfirgangi.
Hvað er til ráða?
Enn er von, því Alþingi getur
gripið inn í með lagasetningu, sem
festir völlinn í sessi eða leitar álits
þjóðarinnar, t.d. samhliða næstu
alþingiskosningum. Viðleitni Al-
þingis fram að þessu hefur þó ekki
verið neitt til að hrópa húrra yfir.
Það vill hins vegar þannig til að á
næstu mánuðum þarf Alþingi að
endurnýja umboð sitt. Ætlar rík-
isstjórnin virkilega að láta það
verða sitt síðasta verk fyrir kosn-
ingar að gera ekkert meðan heil-
brigðisþjónusta landsbyggðarinnar
er skert á þennan hátt? Til að
Reykjavíkurflugvöllur verði að
kosningamáli þá þarf fólk að láta
sína kjörnu fulltrúa vita að af-
stöðuleysi í þessu máli er ekki
lengur ásættanlegt. Aðeins þannig
má koma í veg fyrir skemmd-
arverkið.
En við erum enn að
nota neyðarbrautina
Eftir Jóhannes
Loftsson » Lokun neyðarbraut-
arinnar stríðir gegn
tveimur stærstu undir-
skriftasöfnunum í sögu
lýðveldisins.
Jóhannes Loftsson
Höfundur er verkfræðingur og frum-
kvöðull.
Mikill fjöldi lausna barst við sum-
arsólstöðugátunni og voru flestir
með rétta lausn á henni.
Lausnin er:
Leiðarljós á lífsins braut
lýsir þegar varir minnst,
ef berð í hjarta þunga þraut
sem þarf að leysa í hólfi innst.
Þrjú nöfn voru dregin úr inn-
sendum lausnum.
Kristín Jónsdóttir
Eyrarholti 6 4HH
220 Hafnarfirði
fær bókina Stúlkurnar eftir
Emmu Cline.
Hrefna Óttarsdóttir
Sandfelli
566 Hofsósi
fær bókina Þar sem fjórir vegir
mætast eftir Tommi Kinnunen.
Hörður Friðþjófsson
Heiðarbrún 3
810 Hveragerði
fær bókina Sögu Borgarættarinn-
ar eftir Gunnar Gunnarsson.
Vinningshafar geta vitjað vinn-
inganna í móttöku ritstjórnar
Morgunblaðsins eða hringt í 569-
1100 og fengið bækurnar sendar
heim. Morgunblaðið þakkar þeim
sem sendu lausnir.
Lausn sumar-
sólstöðugátu
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsend-
ar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morg-
unblaðslógóinu efst í hægra horni
forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á
lógóið birtist felligluggi þar sem lið-
urinn „Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið
er notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbein-
ingar fylgja hverju þrepi í skráning-
arferlinu.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka daga
í síma 569-1100 frá kl. 8-18.