Morgunblaðið - 09.07.2016, Qupperneq 28
28 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
✝ Kristín Þor-björg Ólafs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 13. maí
1959. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Fossheimum á
Selfossi 3. júlí
2016.
Foreldrar henn-
ar voru Ólafur
Halldór Torfason,
f. 28. júlí 1936 í
Reykjavík, og Margrét Sæ-
mundsdóttir, f. 28. janúar 1926
í Selparti, Gaulverjabæj-
arhreppi, d. 20. maí 2015.
Systkini Kristínar: 1) Ragnheið-
ur, f. 7. apríl 1956. Maki Þór-
arinn Theódór Ólafsson. 2) Ól-
ína Margrét, f. 8. janúar 1961.
Maki Ásgeir Þorkelsson. 3)
Torfi Jóhann, f. 13. apríl 1965.
Maki Ásdís Stefánsdóttir. Eig-
inmaður Kristínar var Ingjald-
ur Ásmundson, f. 7. maí 1944 í
Ferjunesi, Villingaholtshreppi.
Foreldrar Ingjalds voru Ás-
göngu í Ísaksskóla, en hún
gekk einnig í Álftamýrar- og
Fellaskóla, hún lauk sinni
grunnskólagöngu í Gagnfræða-
skóla Selfoss. Kristín gekk
einnig í Húsmæðraskólann á
Laugarvatni. Hún byrjaði
snemma að vinna og vann fjöl-
breytt störf í gegnum tíðina.
Hún vann í Hampiðjunni, við
fiskvinnslu og í sláturhúsinu á
Húsavík. Hún vann sem mat-
ráður á sjó, á Reykjalundi, í
Villingaholtsskóla, og á Sjúkra-
húsinu á Selfossi. Einnig kenndi
hún matreiðslu við Vill-
ingaholtsskóla. Kristín var sem
barn mikið í sveit hjá ættingjum
sínum í Flóanum. 19 ára gömul
réði hún sig svo sem kaupakonu
í Ferjunesi Flóa, þar kynnist
hún eiginmanni sínum Ingjaldi,
og hófu þau búskap í Ferjunesi.
Hinn 7. desember 2001 gengu
þau í hjónaband. Kristín tók
virkan þátt í félagsstöfum í
sveitinni. Hún var m.a. í kven-
félaginu, kirkjukórnum og
sóknarnefnd. Síðastliðin tvö ár
dvaldi hún á Hjúkrunarheim-
ilinu Fossheimum á Selfossi
vegna veikinda.
Kristín verður jarðsungin frá
Selfosskirkju í dag, 9. júlí 2016,
og hefst athöfnin klukkan 14.
mundur Eiríksson,
f. 20. maí 1908 í
Efri-Gróf í Vill-
ingaholtshreppi, d.
27. nóvember 2006,
og Oddný Krist-
jánsdóttir, f. 3.
september 1911 á
Minna-Mosfelli,
Mosfellshreppi, d.
5. maí 2007. Börn
Kristínar og Ingj-
alds eru: 1) Mar-
grét Ósk, f. 7. júlí 1980, maki
Guðjón Birgir Þórisson, f. 18.
janúar 1978. Börn þeirra eru
Freyja Kristín og Hugrún
Svala. 2) Ólafur, f. 1. ágúst
1981. 3) Oddný Ása, f. 14. mars
1988, sambýlismaður Jakob
Nielsen Kristjánsson, f. 5. októ-
ber 1986. Barn þeirra er Egill
Ingi Nielsen. 4) Ásmundur, f.
24. september, 1991.
Kristín Þorbjörg, eða Stína
eins og hún var venjulega köll-
uð, fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Kristín hóf sína skóla-
Elsku mamma er fallin frá,
betri mömmu er ekki hægt að
hugsa sér. Mamma skildi okkur
krakkana svo vel, en hún hafði
einstakan skilning á börnum og
unglingum, enda sjálf alltaf ung-
lingur í anda. Við þessi leiðarlok
koma upp endalausar skemmti-
legar minningar um hana
mömmu. Réttirnar á haustin voru
ævintýri líkastar. En þá var keyrt
á seinna hundraðinu upp Skeiða-
veginn og tekið fram úr öllum og
flautað á þá sem fyrir voru, þvílíkt
fjör. Þegar við urðum eldri feng-
um við krakkarnir að halda
ógleymanleg réttarpartí heima í
Nesinu, en þá var mamma yfir-
leitt miðpunktur fjörsins og aðal-
skemmtikrafturinn. Mamma
hafði einstaklega skemmtilegan
húmor og var einkar orðheppin,
hún var engum lík, fór sína eigin
leiðir og var ekki að spá í hvað
öðrum fannst.
Hún var mjög vel að sér í ætt-
fræði og þekkti marga, enda var
helst ekki farandi með henni inn í
búð nema maður hefði góðan
tíma. Á sumrin var hún mjög dug-
leg að fara með okkur krakkana í
sund og í aðrar skemmtiferðir,
enda hafði hún mikinn skilning á
flökkuþörf okkar.
Mamma var ekki mikið fyrir
óþarfa væl og fékk maður æði oft
að heyra það að maður þyrfti nú
bara að herða sig.
Heimilinu okkar var ansi oft
líkt við félagsmiðstöð og því jafn-
vel fleygt fram að það tæki því
varla að hafa útihurð, því það tæki
því ekki að loka dyrunum. Alltaf
var sett vel í pottana og það skipti
litlu máli á hvaða tíma fólk kom,
alltaf var nóg af öllu. Það var því
æði oft líflegt í Nesinu enda alltaf
taumlaus gleði í kringum
mömmu, og ansi oft sem maður
sofnaði út frá einstaka hlátrinum
hennar.
Veislurnar sem mamma hélt
voru sko ekkert slor, en hún var
ekki lengi að hrista hnallþórur
fram úr erminni. Oftast var byrj-
að að baka rétt eftir miðnætti
nokkrum tímum fyrir veislu, en
mamma sagðist ekki vilja bera
fram gamlar kökur með frysti-
húsbragði. Jólin voru alltaf hátíð-
leg hjá mömmu, hún græjaði allt
korteri fyrir jól og því gekk oft
ansi mikið á, eða svona rétt að-
eins. Allt var þrifið hátt og lágt og
Ajax-lyktin lá í loftinu, sex sortum
af smákökum vippað fram úr
erminni og jólin keypt í einni ferð
til Reykjavíkur rétt fyrir jól.
Mamma gerði nánast allt fyrir
okkur og reddaði öllu, sama hvort
það var að hjálpa manni að safna
fyrir utanlandsferð með salernis-
pappírssölu, redda vinnu eða
redda manni á Þjóðhátíð, enda
mjög lausnamiðuð manneskja.
Hún hvatti okkur endalaust
áfram í því sem við tókum okkur
fyrir hendur, hafði óbilandi trú á
okkur og var alltaf til staðar.
Mamma lét veikindin ekki
stoppa sig og hélt sínu striki eins
lengi og hún gat. Með góðri hjálp
pabba náði hún að búa lengur
heima í Nesinu, þrátt fyrir að hún
þyrfti mikla umönnun. Mamma
hafði einstakt geðslag, hún brosti
í gegnum erfiðleikana og barðist
hetjulega til síðasta dags. Við er-
um einstaklega þakklát að hafa
fengið að eiga hana sem mömmu.
Hverfur margt
huganum förlast sýn
þó er bjart
þegar ég minnist þín.
Allt er geymt
allt er á vísum stað
engu gleymt,
ekkert er fullþakkað.
(Oddný Kristjánsdóttir.)
Takk fyrir allt, elsku mamma.
Margrét, Ólafur, Oddný Ása
og Ásmundur.
Ég var svo heppinn að fá að
kynnast Stínu í Nesi fyrir sex ár-
um, þá var Stína sest í stólinn og
búin að vera veik lengi, en það
sem þessi kona var mikill jaskur,
og hún kallaði ekki allt ömmu
sína. Ég sá hjá henni að hugurinn
ber mann alla leið eða það reyndi
hún alla vega, það voru ófá skiptin
sem hún var komin í klípu og
vantaði smáaðstoð til að geta
framkvæmt það sem hana lang-
aði. Hvort sem það var að kveikja
í vindli eða hjálpa sér upp í hjóla-
stóllinn, þegar hún var búin að
velta honum á hlaðinu.
Þegar ég og dóttir hennar
Oddný Ása, byrjuðum að stinga
saman nefjum var ég tekinn í ætt-
fræðikönnun á heimilinu. Þar ætl-
aði Stína að komast að því af
hvaða kyni ég væri. Þegar henni
varð ljóst að ég var hálfur Íslend-
ingur og hálfur Dani leist henni
nú ekkert á þetta val dóttur sinn-
ar. „Eigum við ekki bara að skjóta
þennan Dana?“ var það sem kom
upp úr henni. Ég held að það sé
óhætt að segja að húmorinn hjá
henni hafi verið í góðu lagi til síð-
asta dags, allaf brosandi, og það
skemmdi ekki fyrir ef það var ein
Café cream í munnvikinu.
Ég og Oddný Ása eignuðumst
son fyrir fimm árum sem veitti
henni töluverða gleði þar sem við
bjuggum hjá þeim Stínu og Ingj-
aldi um nokkra hríð. Það voru
margir ísrúntarnir sem við fórum
með Stínu, og var það í miklu
uppáhaldi hjá henni. Eða bara
fara á rúntinn til að komast aðeins
út og viðra sig.
Egill Ingi var alltaf til í að leika
með ömmu, henda bolta á milli
var töluvert stundað til að halda
ömmu í sínu rétta formi.
Sögurnar sem maður hefur
heyrt af henni og mörg skemmti-
leg augnablik sem maður hefur
notið með henni lifa nú innra með
manni, og er óhætt er að segja að
Stína hafi sett nokkur strik eða
bara fullt af krassi á lífsblað mitt.
Blessuð sé minning þín.
Jakob Nielsen Kristjánsson.
Elsku systir mín er dáin eftir
erfið veikindi til margra ára. Það
hamlaði henni þó ekki að hafa von
og væntingar um lækningu. Ég
hef þekkt hana frá því hún fædd-
ist í þennan heim, fallega systir
mín með ljósa krullaða hárið. Það
var ekki til fallegra barn. Minn-
ingarnar um hana eru því marg-
ar. Þær fyrstu þegar hún var
skírð. Einnig þegar við fórum til
ömmu í stóra þvottabalann í bað á
laugardögum og vorum færðar í
ullarboli og krossað á brjóst okk-
ar. Svo stækkuðum við og hún
varð bæði stærri og sterkari en ég
þó að ég sé þremur árum eldri.
Við áttum góða barnæsku. Við
fórum austur fyrir fjall í sveit hjá
móðursystur okkar og lærðum
þar bæði margt og mikið og vor-
um því meira fyrir sveit en borg
og þar af leiddi að við fórum báðar
að búa í okkar góðu Árnessýslu,
ég á Eyrarbakka með Þórarni
mínum og hún með Ingjaldi sín-
um í Ferjunesi þar sem hún naut
sín vel. Þau Ingjaldur byggðu sér
fallegt hús í sveitinni, allt gert eft-
ir efnum. Barnalán var mikið hjá
þeim Stínu; Magga, Óli, Oddný og
Ásmundur, allt gott fólk. Ég gæti
rifjað upp margar fleiri minning-
ar um Stínu. Hún var oft hjá mér
á Eyrarbakka áður en hún fór að
búa og vann í frystihúsinu. Fólk-
inu hér í þorpinu þótti fljótt vænt
um hana. Hún var hverjum og
einum eftirminnileg. Allir þekktu
Stínu, hún var svo opin og frjáls-
leg í fasi og ætíð glöð.
Við náðum að ferðast nokkuð
saman bæði stutt og langt. Eft-
irminnileg er ferðin sem við fór-
um til Ágústu dóttur minnar í
Manchester í Englandi ásamt
Lóu systur okkar og Þórarni mín-
um. Stína var þá orðin nokkuð
veik og var nánast í hjólastól. Þar
lýsti þrautseigjan í henni sér vel
þegar hún þurfti að komast á bað-
herbergið uppi á efri hæðinni hjá
Ágústu og reif sig upp stigann á
handafli.
Það er mjög ósanngjarnt að sjá
á eftir yngri systur sinni svo
snemma, en vegir Guðs eru
órannsakanlegir og við fáum engu
ráðið í þessum efnum. Mig langar
að þakka frábæru starfsfólki
Fossheima fyrir allt þess framlag
til að gera Stínu lífið léttara á
meðan hún dvaldi þar. Megi Guð
blessa Ingjald og börnin þeirra.
Ragnheiður systir.
Kristín Þorbjörg
Ólafsdóttir
ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl.
11. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
þjónar og prédikar. Félagar úr kirkju-
kórnum leiða söng undir stjórn Kriszt-
inu Kalló Szklenár organista. Sverrir
Sveinsson leikur á kornett. Kaffi og
meðlæti á eftir.
ÁSKIRKJA | Vegna sumarleyfa sókn-
arprests og starfsfólks Áskirkju fellur
helgihald niður á morgun. Næst verð-
ur messað í Áskirkju sunnudaginn
31. júlí kl. 11.
BORGARNESKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Steinunn Árna-
dóttir. Prestur Elínborg Sturludóttir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Sumarmessa
kl. 11. Kór Bústaðakirkju leiðir söng-
inn undir stjórn kantors Jónasar Þór-
is. Messuþjónar aðstoða. Heitt á
könnunni eftir messu. Prestur er
Pálmi Matthíasson.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18 og má. mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18
er sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11,
Sveinn Valgeirsson sóknarprestur
þjónar við messuna. Kári Þormar er
organisti og Dómkórinn syngur. Bíla-
stæði eru gegnt Þórshamri.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11.
Ferming og skírn. Sr. Friðrik J. Hjartar
prédikar og þjónar við undirleik Magn-
úsar Ragnarssonar organista.
GLERÁRKIRKJA | Helgistund kl.
20. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar
og Valmar Väljaots leiðir söng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Séra Arna Ýrr Sigurð-
ardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Forsöngvari leiðir safnaðarsöng.
Organisti er Hilmar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10 og bænastund kl. 10.15.
Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot
til Kristniboðsins. Messuhópur þjón-
ar. Félagar úr kór Grensáskirkju
syngja. Organisti er Ásta Haralds-
dóttir. Prestur Ólafur Jóhannsson.
Kaffi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Orgelleikur, sálma-
söngur, hugvekja, bænagjörð, altaris-
ganga. Organisti er Douglas Brotchie.
Prestur er Þórhildur Ólafs. Kaffi eftir
stundina í Ljósbroti Strandbergs,
safnaðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju.
Orgeltónleikar þriðjudag kl. 12.15.
Douglas Brotchie leikur á bæði orgel
kirkjunnar. Aðgangur ókeypis. Kaffi
eftir tónleikana.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt hópi
messuþjóna. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Björn Steinar Sólbergsson. Sögu-
stund fyrir börnin. Alþjóðlegt orgels-
umar, tónleikar laugard. kl. 12 og
sunnud. kl. 17. Kári Þormar leikur.
Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl.
10.30. Árdegismessa miðvikud. kl.
8. Hádegistónleikar Schola cantorum
miðvikud. kl. 12. Orgeltónleikar fimm-
tud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
María Ágústsdóttir héraðsprestur og
Kári Allansson organisti þjóna og
leiða söng. Efni sálma og prédikunar
er traustið til Guðs sem gefur lífið.
HJALTASTAÐARKIRKJA | Kvöld-
messa kl. 20. Um tónlistina sér Sig-
ríður Laufey Sigurjónsdóttir ásamt
sínu söngfólki. Prestur er Sigríður
Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er
Hildigunnur Sigþórsdóttir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Púttmessa
kl. 12.30 á púttvellinum Mánagötu.
Helgistund í upphafi, púttmót og svo
kaffi og verðlaunaafhending í Kirkju-
lundi. Lára og Hafsteinn sjá um tón-
listarflutning í Kirkjulundi, prestur er
Eva Björk Valdimarsdóttir.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Gunnar Sigurjónsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Almennur
safnaðarsöngur.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Bryndís Eva Erlingsdóttir leiðir
safnaðarsöng. Organisti er Ragnar
Jónsson. Prestur Arndís G.
Bernhardsdóttir Linn.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11, messa kl. 20, þema
kvöldsins eru amerískir trúarsálmar í
flutningi gospelsöngkonunnar Áslaug-
ar Helgu og Óskars Einarssonar. Sr.
Guðni Már Harðarson þjónar.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Fjallað
verður um málefni hælisleitenda í
ljósi nýliðinna atburða í Laugarnes-
kirkju. Félagar úr Kór Neskirkju leiða
sönginn. Prestur er Skúli S. Ólafs-
son. Ef veður leyfir sitjum við úti í
blíðunni. Samfélag og kaffisopi.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni |
Guðsþjónusta kl. 14. Sigrún Stein-
grímsdóttir organisti stjórnar almenn-
um safnaðarsöng. Sr. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson þjónar fyrir altari og
predikar.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur Guðbjörg Arnardóttir, organ-
isti Ingi Heiðmar Jónsson, Kirkjukór
Selfosskirkju leiðir safnaðarsöng.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Seljakirkju leiðir safnaðarsöng.
Organisti er Tómas Guðni Eggerts-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Sóknarprestur þjónar.
Ólafur Þórisson guðfræðingur flytur
hugleiðingu. Kaffiveitingar eftir at-
höfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Egill Hallgrímsson sóknar-
prestur annast prestsþjónustuna.
Hljómeyki syngur í messunni. M.a.
verður flutt tónlist frá sumartón-
leikum helgarinnar.
STRANDARKIRKJA | „Englar og
menn“ kl. 14.
ÚTHLÍÐARKIRKJA | Hátíðarmessa
kl. 14. Minnst verður 10 ára afmælis
kirkjunnar. Egill Hallgrímsson sókn-
arprestur annast prestsþjónustuna.
Jóhann Friðgeir Valdimarsson syngur
einsöng. Félagar úr Úthlíðarkór
syngja. Organisti er Jónas Þórir.
Kirkjukaffi í Réttinni strax að messu
lokinni. Erindi flytur Örn Erlendsson,
trésmíðameistari Lindartungu. Jó-
hann og söngsveinar taka lagið við
undirleik Jónasar Þóris.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14.
Sr. Jóhanna Magnúsdóttir annast
prestsþjónustuna. Organisti er Guð-
mundur Vilhjálmsson.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Djúpavogskirkja eldri.
Orð dagsins: Jesús
mettar 4 þús.
manna.
(Mark. 8)