Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 6. J Ú L Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  165. tölublað  104. árgangur  NÝ STAFGILDI Í ÍSLENSKU SKRAFLI ÁTTA TÓNLEIKAR OLGA VOCAL ENSEMBLE 38LAUSN VANDA 12 Heilbrigð- ismálin í forgang  Bjarni Benediktsson segir að stórbæta þurfi ýmsa samfélagsþjónustu Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, segir að flokkurinn muni forgangsraða stefnumálum sínum á næsta kjörtímabili, þar sem stóraukin áhersla verði lögð á bætta sam- félagsþjónustu, minni greiðsluþátttöku sjúklinga, eflingu Landspítalans og bætta heilbrigðisþjónustu með stórauknum fjár- framlögum. Bjarni kveðst í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins í dag, deila þeirri tilfinningu með stórum hluta fólksins í landinu að það sé víða pottur brotinn í opinberri þjónustu og nota beri góðærið til þess að bæta þar úr. Bjarni nefnir sem dæmi að 20% sjúklinga treysti sér ekki til að leita heilbrigðisþjónustu vegna bágrar fjárhagsstöðu og langir biðlistar hafi myndast eftir lífsnauðsynlegum aðgerðum eins og hjartaþræðingum. Stórbæta Landspítalann „Við ætlum að auka fjárframlög til heilbrigð- isþjónustunnar með það að markmiði að stór- bæta Landspítalann og aðrar stofnanir kerf- isins og minnka greiðsluþátttöku sjúklinga þannig að það verði enginn fjárhagslegur þröskuldur sem komi í veg fyrir að fólk nýti sér þjónustuna. Við höfum of mörg dæmi þess að fólk er að falla á milli skips og bryggju og því finnst mér ekki annað verjandi en að segja að þetta séu málin sem við ætlum núna að setja í forgang. Það má treysta því að við munum halda skött- um og gjöldum í lágmarki, en það er okkar for- gangsmál núna, að koma samfélagsþjónust- unni í betra lag,“ segir Bjarni Benediktsson. Bjarni Benediktsson Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Hann var hryðjuverkamaður sem tengdist að líkindum öfgakenndu íslam á einn eða annan hátt,“ sagði Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, í viðtali við franska sjónvarpsfréttastöð í gær. Vísar hann í máli sínu til ódæðis- mannsins Mohameds Lahouaiejs Bou- hlels sem vísvitandi ók vörubifreið á mikilli ferð yfir hóp fólks í frönsku borginni Nice í fyrrakvöld, á þjóðhátíð- ardegi Frakka. Seint í gærkvöldi var fjöldi látinna 84, þeirra á meðal eru minnst 10 börn og ungmenni. Alls voru um 200 manns fluttir á sjúkrahús eftir árásina, af þeim eru um 50 lífshættulega særðir. Tala látinna gæti því hækkað enn frekar næstu daga. Bouhlel var 31 árs gamall, fæddur í bænum Msaken í Túnis í janúar árið 1985. Hann hafði dvalar- og atvinnuleyfi í Frakklandi, var fráskilinn og þriggja barna faðir. Hann hefur nokkrum sinn- um verið staðinn að afbrotum, flestum þeirra smávægilegum, en að sögn sak- sóknarans Francois Molins var Bouhlel „algerlega óþekktur“ meðal leyniþjón- ustunnar í Frakklandi. Ódæðið í Nice hefur vakið sterk við- brögð víða um heim. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði það „átakanlegt og ógeðfellt.“ „Við getum ekki látið und- an ótta eða snúist gegn hvert öðru eða fórnað lífsháttum okkar,“ sagði Obama í ávarpi í Hvíta húsinu. Fjölmargir komu saman í Nice í gær til þess að minnast þeirra sem létu lífið við götuna Promenade des Anglais og lögðu m.a. blóm og kerti þar. »4, 18 og 20 AFP Sorg Fjölmargir minntust í gær fórnarlamba árásarinnar í frönsku borginni Nice. Alls voru í gærkvöldi 84 látnir, þeirra á meðal 10 börn. „Við getum ekki látið undan ótta“  Minnst 84 týndu lífi í árásinni í frönsku borginni Nice í fyrrakvöld  Fjölmargir minntust þeirra sem létu lífið Mohamed L. Bouhlel Guðni Einarsson Kristján H. Johannessen Skotbardagar og sprengingar heyrðust í Ankara, höfuðborg Tyrk- lands, í gærkvöldi eftir að hluti tyrk- neska hersins hóf tilraun til valda- ráns í landinu í þeirri von að koma Recep Tayyip Erdogan Tyrklands- forseta frá völdum. Þegar Morgunblaðið fór í prent- un eftir miðnætti var enn óljóst hvor hafði yfirhöndina. Þannig lýsti upp- reisnarhluti hersins því yfir að hann hefði tekið yfir stjórn landsins, en á sama tíma sagði forsætisráðherra landsins ástandið „að mestu undir stjórn.“ Tyrkneska sjónvarpið NTV sagði orrustuþotur, af gerðinni F-16, hafa skotið niður herþyrlur með „sam- særismenn“ innanborðs. Þá bárust einnig fregnir af því að almennir borgarar og lögreglumenn hefðu fallið í skotbardögum í Istanbúl. Eru tyrkneskir hermenn einnig sagðir hafa skotið á hóp fólks sem gerði tilraun til að komast yfir brú sem þverar Bosporus-sund í Istan- búl, en hersveitir höfðu áður lokað fyrir alla umferð fólks þar. Fljótlega eftir að herinn hóf að- gerðir sínar lýsti hann yfir útgöngu- banni í landinu öllu, en á sama tíma hvatti Erdogan forseti þjóð sína til að fjölmenna á götum úti sér til stuðnings. Var hann þá í símaviðtali við NTV, en staðsetning hans var þá ekki gefin upp. Fólk réðst á skriðdreka Skriðdrekum og þungvopnuðum hermönnum var komið fyrir á lyk- ilstöðum í mörgum borgum Tyrk- lands, s.s. við mikilvægar brýr og önnur mannvirki. Skriðdrekar voru hemil á sér og forðast ofbeldi og blóðsúthellingar“, að sögn BBC. Kerry og Sergei Lavrov, utanrík- isráðherra Rússlands, ræddu einnig ástandið. Kerry lýsti yfir von um að Tyrklandi, lykilbandamanni í bar- áttunni gegn Ríki íslams, tækist að varðveita friðinn. Borgaraþjónusta utanríkisráðu- neytisins hér á landi var virkjuð vegna ástandsins og ræður ráðu- neytið nú öllum Íslendingum frá því að ferðast til Tyrklands nema í ýtr- ustu nauðsyn. Íslendingar sem staddir eru í landinu eru beðnir um að sýna varkárni og fylgjast með fregnum af ástandi mála. urnar til að mótmæla aðgerðum hermanna. „Flestir gegna því að það er út- göngubann og herlög. Ég held að flestir séu heima hjá sér. Fólk er samt vakandi að fylgjast með því hvað er í gangi. Einhverjir sem eru ósáttir fóru að mótmæla,“ sagði Viggó. Hann sagði að aðalgatan sem liggur meðfram Bosporus og að Marmarahafi væri undirlögð af her- bílum og hermönnum. Barack Obama Bandaríkjaforseti ræddi við John Kerry utanríkisráð- herra sem staddur var í Rússlandi. Þeir voru sammála um að allir hlut- aðeigandi í Tyrklandi ættu að styðja „lýðræðislega kjörin“ stjórnvöld í landinu. Þeir hvöttu alla til að „hafa t.a.m. fyrir utan Ataturk-flugvöll í Istanbúl. Seint í gærkvöldi sýndi fréttastöð Sky myndir af því þegar fjölmennur hópur almennra borgara veittist að áðurnefndum skriðdreka við flug- völlinn. Klifraði fólk upp á hann og neyddist áhöfn hans til að loka sig inni í bryntækinu. Bænaturnar kölluðu út fólk „Það er skothríð ekki langt und- an,“ sagði Viggó Örn Jónsson, einn eigenda Jónsson & Le’Macks. Hann var á hóteli í Galata í Istanbúl í gær- kvöldi. Þyrlur flugu yfir og stöðug bænaköll heyrðust úr turnum moskanna þótt komið væri fram á nótt. Verið var að kalla fólk út á göt- Valdaránstilraun gegn Erdogan í Tyrklandi  Istanbúl og Ankara í Tyrklandi minntu einna helst á vígasvæði í gærkvöldi AFP Upplausn Þungvopnaðir hermenn og almennir borgarar fylltu götur helstu borga Tyrklands í gærkvöldi. M Herinn snerist »19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.