Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016 Í línuriti sem birtist með grein eftir Vilhjálm Bjarnason í blaðinu í gær, Um samkeppni sem skaðar, víxluðust ferlar í línuriti. Ferillinn sem sýnir fram- leiðslu í samkeppni átti að vera utar en ferill í framleiðslu án samkeppni. Bil- ið á milli ferla sýnir framleiðsluaukningu án aukinna aðfanga eins og sést á meðfylgjandi skýringarmynd. Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Landsframleiðsla með og án samkeppni Bil milli ferla sýnir ávinning af samkeppni Án samkeppni Með samkeppni F r a m l e i ð s l a Aðföng Ferlar víxluðust Guðni Einarsson gudni@mbl.is Samtök atvinnulífsins (SA) segja að taka verði fyrirkomulagið í kringum kjararáð til gagngerrar endurskoð- unar. „Úrskurðir kjararáðs hafa ekki haldið í við almenna launaþró- un, þrátt fyrir skýr ákvæði laganna þar að lútandi. Slíkt kallar á leiðrétt- ingar á borð við þær sem við erum að sjá núna, sem ávallt virðast valda uppnámi á vinnumarkaði óháð því hver launaþróun þessa hóps hefur verið í víðara samhengi,“ segir í grein á heimasíðu SA. SA segir að launaþróun helstu hópa á vinnumarkaði frá nóvember 2006 til nóvember 2015 hafi verið mjög sambærileg og hóparnir hafi notið rétt tæplega 80% launahækk- ana á tímabilinu. Launaþróun hópa sem taki laun samkvæmt úrskurði kjararáðs hafi verið öllu lakari. „Þannig hafa alþingismenn hækk- að um 41,5% á sama tímabili, ráð- herrar um 39,3% og ráðuneytisstjór- ar um 35,9%. Með öðrum orðum hefur þessi hópur dregist aftur úr viðmiðunarhópum SALEK-sam- komulagsins sem nemur um 21-24% á þessu tímabili,“ segir í grein SA. Þá segir SA að í ljósi þessa verði ekki séð hvernig nýgengnir úrskurðir kjararáðs eigi að stefna SALEK- samkomulaginu í uppnám. Miðað var við nóvember 2013 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði að afstaða SA kæmi sér á óvart. Hann sagði að skiptar skoð- anir hefðu verið um við hvaða grunn- ár ætti að miða þegar sameiginleg launastefna var mótuð sl. haust. „Niðurstaðan var að nota nóvem- ber 2013 sem viðmiðun,“ sagði Gylfi. Hann sagði að sátt hefði verið um þá viðmiðun, a.m.k. í viðræðum ASÍ og BSRB við SA, ríki og sveitarfélög. Aðrir hópar, t.d. BHM og kennarar, hefðu viljað nota aðrar viðmiðanir. „Ég veit að iðnaðarmenn og versl- unarmenn vildu líka aðrar viðmiðan- ir. Þeir máttu þola verulegar launa- lækkanir í hruninu, miklu meiri en þessir hópar sem nú eru að fá leið- réttingu sinna kjara,“ sagði Gylfi. „SA verða að lesa aftur þær forsend- ur og samninga sem við skrifuðum undir áður en þeir skrifa svona vit- leysu, að þetta hafi ekkert með for- sendur kjarasamninga að gera. Við notuðum nóvember 2013 en ekki nóvember 2006.“ Gylfi segir að ef miða eigi við nóvember 2006 þá taki SA því væntanlega fagnandi þegar hópar í ASÍ vilji fá réttmæta leið- réttingu á þeirri lækkun launa sem varð 2009 og 2010. Gylfi segir að þeir sem heyra undir kjararáð séu nú m.a. að fá leiðréttingu launalækkana sem urðu á því tímabili. SA bera blak af kjararáði  Afstaða SA kemur ASÍ á óvart Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirritun Samningur ASÍ og SA var samþykktur í janúar sl. Vertu upplýstur! blattafram.is SUMUM LEYNDARMÁLUM Á EKKI Að ÞAGA YFIR. GEYMIR ÞÚ MÖRG SLÍK? HVAÐ MEÐ KYNFERÐISOFBELDI? ÚT SA LA Kjólar í úrvali! gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA Fylgist með okkur á facebook 40% afsláttur Kringlunni 4c – Sími 568 4900 kjólar kápur jakkar frakkar skyrtur pils peysur o.m.fl buxur blússur Opið í dag 10-15 Bæjarlind 6, sími 554 7030 | Við erum á facebook Buxur á útsölu 40-50% afsláttur Str. 36-56 Laugavegi 52 | 101 Reykjavík Sími 552 0620 | gullogsilfur.is Sparidress - Sumaryfirhafnir - Peysur - Blússur - Bolir Laugavegi 63 • S: 551 4422 STÓRÚTSALA Enn meiri afsláttur 40% - 50% www.laxdal.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á —með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.