Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016
» Myndlistarsýningin Hringrás var opnuðí BERG Contemporary við Klapparstíg
16 í gær. Þar sýna verk sín listamennirnir
Ásgeir Skúlason, Kjartan Ari Pétursson,
Sindri Leifsson, Sirra Sigrún Sigurð-
ardóttir og Veronika Geiger. Verk þeirra
eiga það öll sameiginlegt að vera líkamlega
krefjandi. Verkin byggjast öll á geómetríu
og grunnformum, en ákveðin hringrás á
sér stað milli verkanna og þannig er titill
sýningarinnar til komin. Gestunum sem
viðstaddir voru opnunina í gær virtist líka
vel það sem fyrir augu bar.
Hringrás opnuð í BERG Contemporary
Á svæðinu Sirra Sigrún Sigurðardóttir listamaður
og Margrét Áskelsdóttir í góðum gír.
Hringrás Listaverkin kallast á og gestir á sýningunni spá og spekúlera.
Hringur Gestir virða fyrir sér listina sem fyrir augu ber
á sýningunni, hvert sem litið er.
Gaman Mekkinó Björnsson og Sigurborg
Stefánsdóttir njóta andartaksins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Þetta er þráður sem ég hef verið
að vinna með lengi, hugmyndir um
ferli og flæði, innbyrðis tengsl og
hvernig eitt treystir á annað,“ segir
Anna Rún Tryggvadóttir, myndlist-
armaður, en hún opnar myndlist-
arsýninguna Kvikefni í Hverfisgall-
eríi við Hverfisgötu í dag kl. 16.
Titill sýningarinnar vísar í ferli
myndanna sem draga upp sinn eig-
in söguþráð. Kvikefni er úr eðl-
isfræði eða vökvaaflfræði og þýðir
efni sem er á hreyfingu.
„Mér finnst áhugavert að vísa í
eðlisfræðina fyrir þessa sýningu,
hvernig við sem manneskjur notum
flokkunarkerfi og höfum þörf fyrir
að skrásetja og orða hlutina á sama
tíma og ég nota efni sem tala mjög
til skynfæranna,“ segir hún en með
verkum sínum reynir hún að skapa
umhverfi þar sem mjög margar og
margræðar túlkanir eru mögu-
legar.
Gaf efnunum ramma
til að afhjúpa sig
Á sýningunni eru bæði tvívíð
vatnslitaverk og lifandi skúlptúr-
innsetning.
„Tvívíðu verkin sýna ákveðna
heimild ferlis sem þegar hefur átt
sér stað, þar sem ég gaf efnunum
ramma til að afhjúpa sig og skrá-
setja ákveðinn söguþráð,“ segir
hún en í skúlptúr-innsetningunni sé
hún að vinna með efnin sjálf lifandi
í rýminu meðan á sýningunni
stendur.
„Aflvaki innsetningarinnar eru
klakaskúlptúrar en þegar þeir
ganga inn í það óreiðukennda stig
að bráðna þá hafa þeir áhrif á aðra
þætti innsetningarinnar, byggjast
upp, brotna niður, herðast og æt-
ast.“
Sýningin stendur til 3. september
en Anna Rún segir ómögulegt að
segja til um hver upplifun fólks
kunni að verða. „Hún er frekar
mild í sér þessi sýning en ég veit
ekkert hvernig hún leggst í fólk að
öðru leyti.“ Verkin eru öll unnin á
síðustu tveimur árum en Anna Rún
hefur vinnuaðstöðu í Royal vinnu-
stofunum við Nýlendugötu í Vest-
urbæ.
Innsetningin á rætur að rekja
til óperunnar UR_
Anna Rún fékk einnig afar góða
innsýn inn í það hvernig hægt væri
að nýta efnin sem leika hlutverk í
verkum hennar þegar hún starfaði
nýverið við uppsetningu óperunnar
UR_ eftir Önnu Þorvaldsdóttur.
„Innsetningin á ákveðnar rætur
að rekja til þess að ég vann leik-
mynd og búninga fyrir óperuna
UR_,“ segir hún. Þá hafi hópurinn
farið í vinnuferð til Grænlands en
klakaskúlptúrarnir hafi byrjað sem
hugmynd fyrir leikmyndina. „Ég
varð mjög upptekin af ís og klökum
og vann rannsóknarvinnu í kring-
um það en svo rataði þetta ekkert
inn í leikmyndina á sínum tíma en
er komið inn í þessa sýningu.“
Segist hún þó fyrst og fremst
vera myndlistarmaður þó leikhúsið
hafi togað hana til sín í ýmis verk-
efni í gegnum tíðina.
Ný og spennandi ævintýri
Sýningin Kvikefni markar viss
kaflaskil í lífi Önnu Rúnar en hún
og fjölskyldan halda á vit ævintýr-
anna til Þýskalands bráðlega. „Ég
er ánægð núna með að vera komin
með þetta upp og mér finnst sýn-
ingin vera að takast vel,“ segir hún
en gott sé að setja allt upp, klára
og fara svo að gera eitthvað alveg
nýtt. Vonast hún til að ný og
skemmtileg ævintýri taki við í list-
inni ytra.
Anna Rún útskrifaðist úr mynd-
listardeild Listaháskóla Íslands ár-
ið 2004 og lauk síðar mastersnámi í
myndlist við Concordia-háskólann í
Montreal í Kanada árið 2014.
Er þetta ekki í fyrsta sinn sem
Anna Rún heldur einkasýningar á
Íslandi en hún hefur einnig haldið
slíkar sýningar í Kanada og tekið
þátt í samsýningum á Íslandi,
Þýskalandi og Kanada.
Auk þess hefur hún fengist við
leikmynda- og búningahönnun inn-
an leikhúsa víða um heim.
Mikilvægur ráð-
gjafi í ferlinu
Hverfisgallerí hýsir sýningu
Önnu að þessu sinni og segir hún
ástæðuna fyrir því vera að Aldís
Snorradóttir, framkvæmdastjóri
Gallerísins, hafi boðið henni sýn-
ingu en mikill áhugi hafi verið hjá
þeim báðum á því að vinna saman.
Segir Anna Rún að Aldís hafi
verið mikilvægur ráðgjafi í ferlinu.
„Þó listamaðurinn sé einráður um
listrænar ákvarðanir er ómetanlegt
að eiga gott samtal. Það ýtir við
hinu listræna ferli að eiga upp-
byggilegt og gagnrýnið samtal um
viðfangsefnið hverju sinni, ekkert
gerist í tómarúmi.“
Aðspurð hvernig sýningin Kvik-
efni sé ólík öðrum einkasýningum
sem hún hefur sett upp í gegnum
tíðina segir hún ómögulegt að svara
því að svo stöddu. „Ég er enn svo
inni í þessu núna, er enn að anda að
mér stemningunni og verkunum –
aðskilnaðurinn er í gangi,“ segir
hún, en oft sé erfitt að skilja sig frá
eigin verkum þegar ferlinu lýkur
með sýningu. „Það er það alls ekki
núna enda er þetta í mjög góðu
flæði, finnst mér.“
Kvikefni höfða til skynfæranna
Anna Rún Tryggvadóttir opnar myndlistarsýninguna Kvikefni í Hverfisgalleríi Tvívíð vatns-
litaverk og lifandi skúlptúr-innsetning Sækir innblástur í störf sín í leikhúsinu Markar kaflaskil
Morgunblaðið/Ófeigur
Listin Anna Rún Tryggvadóttir, myndlistamaður, opnar í dag myndlistarsýninguna Kvikefni í Hverfisgallerí.
Listaverk Á sýningunni eru meðal annars tvívíð vatnslitaverk sem sýna ákveðna heimild ferlis og söguþráð.
THE INFILTRATOR 5, 8, 10:35
ÍSÖLD ÍSL.TAL 1:50, 3:50, 5:50
MIKE AND DAVE 8, 10:10
INDEPENDENCE DAY 2 8
LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 1:50, 3:50, 5:50
WARCRAFT 2D 10:30
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 1:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 1:50
TILBOÐ KL 1:50