Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vinátta er mikils virði og sönn vinátta
er gulls ígildi. Gættu þess að bregðast ekki of
hart við, því hófleg festa dugar alveg.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að hafa hemil á eigingirninni og
mundu að ekkert samband stendur, nema
báðir aðilar leggi sitt af mörkum. Slíkir eru
vandfundnir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Skipulagning er allt sem þarf til að
þú getir klárað þau verkefni sem bíða þín.
Leyfðu öðrum að njóta lífsins með þér. Þú
færð snilldarlega hugmynd á meðan þú ferð
út að ganga.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú átt ekki í vandræðum með að tala
hreint út. Í dag mætirðu áskorun. Þú ert ör-
yggið uppmálað, passaðu bara að lenda ekki í
valdabaráttu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Leggðu þig fram um að sýna börnum
umburðarlyndi í dag. Stundum eru það ein-
mitt litlu hlutirnir í lífinu sem ríða baggamun-
inn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt erfitt með að einbeita þér
vegna innri togstreitu. Taktu þér tíma til þess
að sinna sjálfum þér og byggja þig upp til
nýrra átaka. Mundu að allir eiga leiðréttingu
orða sinna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Notaðu tímann í dag til þess að skýra
óljós atriði sem tengjast sameiginlegum
eignum. Leggðu í námsferðalag – eitthvað
létt og skemmtilegt sem gerir þig skapandi
enn á ný.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ferðaáætlanir eða ráðagerðir
sem tengjast útgáfu og menntun virðast
mögulegar um þessar mundir. En mundu að
dramb er falli næst.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Samtöl við móður þína eða ein-
hvern þér eldri um fjármál ganga vel í dag.
Láttu aðra ekki draga úr þér kjarkinn, því bak
við úrtölur býr öfund.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu á varðbergi í dag þegar þú
gengur eða ekur. Viðurkenndu varnarleysið
og fagnaðu því að vera mannlegur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Truflanir gætu orðið á vinnurútínu
bogmannsins í dag. Hugsaðu vel um heilsuna
og gefðu þér tíma til að stunda líkamsrækt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur fulla ástæðu til að vera
ánægður því allt virðist ætla að ganga upp
hjá þér. Ef þér finnst að einhver beri ekki hag
þinn fyrir brjósti er hyggilegast að halda vöku
sinni.
Ýmsir hafa orðið til að rifja upp orðrithöfundarins Virginiu Wolf um
að í kringum „desember 1910 breytt-
ist mannlegt eðli“. Wolf átti þar við
innreið módernismans. Víkverji rakst
í vikunni á grein eftir Edward Men-
delson þar sem vísað var í þessi orð og
því bætt við að þau hefðu verið mælt
100 árum of snemma. Mannlegt eðli
hafi breyst í kringum desember 2010
þegar allir að því er virtist byrjuðu að
ganga um með snjallsíma. „Í fyrsta
skipti var hægt að finna nánast alla og
trufla þá, ekki bara á einhverjum til-
teknum stað, heima eða í vinnu, held-
ur alls staðar og alltaf,“ skrifar hann í
The New York Review of Books.
„Fyrir þetta gætu allir vænst þess að
einhvern tímann í dagsins vana-
bundnu önn gæfist í það minnsta ein-
hver stund sem hægt væri að vera
einn, án þess að fylgst væri með, án
þess að vera studdur eða íþyngt af op-
inberum eða fjölskylduhlutverkum.
Þeim tíma lauk þá.“
x x x
Menn velta nú fyrir sér hvaða áhrifþessi tæknibylting muni hafa á
manninn. Þessi bylting þrengir að
einkalífinu en sé eitthvað að marka at-
hafnasemi manna á netinu stendur
mörgum nokkurn veginn á sama um
það. Margir virkja jafnvel þann kost
sjálfviljugir að fram komi á fé-
lagsvefjum hvar þeir séu staddir þá
stundina. Mun þetta hafa áhrif á per-
sónuleika fólks?
x x x
Á netinu geta allir fundið eitthvaðvið sitt hæfi. Þar grasserar alls
konar óþverri, en það er líka athvarf
fyrir ýmsa, sem annars væru einangr-
aðir, hvort sem það er vegna kyn-
hneigðar eða annars.
x x x
Snjallsímarnir gera ekki aðeins aðverkum að alltaf er hægt að ná í
fólk. Það er líka hægt að nota þá til að
vekja athygli, jafnvel heimsathygli,
eins og gerðist þegar árás lögreglu-
manns á svartan bílstjóra var í beinni
útsendingu á Facebook. Nú er svo
komið að allir geta verið í beinni út-
sendingu öllum stundum. En þá er
enginn eftir til að horfa.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Sofa ögn enn, blunda ögn enn,
leggja saman hendur til að hvílast
ögn enn.
(Orðskv. 6:10)
Komdu hreyfingu á loftið
Sími 555 3100 www.donna.is
gæðaviftur
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Gott úrval af
gæðaviftum frá
Honeywell. Margar
stærðir og gerðir.
Kr. 15.520
Kr. 13.598
Kr. 4.189
Kr. 8.658
Kr. 4.806
Kr. 4.806
Kr. 4.238
Síðasta laugardagsgáta var semendranær eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Loftsgatinu yfir er hann.
Einatt kallast pottlokið.
Í það feikna orku ver hann.
Oft þar rónar höfðust við.
Árni Blöndal svarar:
Lokar hlemmur loftgati,
líka hlemmur pottloki,
hlemm og hlass af alefli,
oft var bytta á Hlemmtorgi.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Hlemmur loftgati lokar
líka á pottunum er
Hlemmþungum hleranum þokar
á Hlemmi menn undu sér.
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
þannig
Í fjórum línum leynist svar,
ég leita og tek af skarið.
Hugur reikar hér og þar,
en hlemmurinn er svarið.
Þessi er skýring Guðmundar:
Í húsum stigahlemmur er.
Hlemm á potti sáum vér.
Í starfi hlemm og hlasśann ber.
Á Hlemmi rónar undu sér.
Síðan er limran:
Hjá Hlemmi sást Valdi á vakki,
hann vatt sér að lögreglupakki
og öskraði æfur:
„Burt asnar og skræfur,
þið pirrið mig fullan á flakki!“
Og loks bætir Guðmundur við:
„Hér kemur nú gátan með sínu
sniði og eru skv. venju gefnar fjór-
ar vísbendingar:
Höfuðból ég hugsa mér.
Hér í tímasetning felst.
Sama hvernig unnið er.
Athvarf þess sem heima dvelst.“
Hjámar Freysteinsson orti á
Boðnarmiði, – „af mörgum“:
Nærri mörgum það mein gekk
að margur sæti ekki nein fékk.
Læra af því má
lexíu þá
að stóla aldrei á steinbekk.
Svo að farið sé út í aðra sálma.
Sagt er að Eggert Ólafsson hafi
kveðið þessa vísu eftir að hann hafi
misst hest í gjá á Þingvöllum:
Hér eru gjár og í þeim ár,
auka fár þeim reisa,
undir stár þar dökkur dár,
djöfullinn grár og eisa.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margir hafa hlemminn
og hlassið af lífinu
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
FÁUM OKKUR
EFTIRRÉTT
JÓN! LÍSA! AÐ ÉG SKYLDI
REKAST Á YKKUR HÉRNA!
HVAÐ
MEINARÐU?
USS, EKKI
SVONA HÁTT
HMMM… ÉG VEIT EKKI
HVAÐ ÉG Á AÐ DREKKA…
ÞÚ ÆTTIR AÐ FÁ ÞÉR ÞAÐ
SEM ÉG ER AÐ DREKKA!
TAKK! MÍN ER
ÁNÆGJAN!!
„ÉG BAÐ ALDREI UM AÐ FÆÐAST – EN ÉG
KANN AÐ HAFA ÝTT Á „ACCEPT“ ÁÐUR EN
ÉG LAS ÖLL SKILYRÐIN.“
„SPÁDÓMSKAKAN SEGIR, „ÉG BIÐ INNILEGA
AÐ AFSAKA, EN FRAKKANUM ÞÍNUM HEFUR
VERIÐ STOLIÐ.““
…það stærsta!