Morgunblaðið - 16.07.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Geirsgata til austurs, á móts við Tollhúsið, hefur
verið þrengd úr tveimur akreinum í eina. Þreng-
ingin í austurátt er gerð til að auðvelda aðgengi
stórra ökutækja að byggingarlóðunum í kring,
að því er fram kemur í svari frá Reykjavík-
urborg. Þrengingin verður þarna svo lengi sem
þörf er á. Sótt er um leyfi til borgarinnar vegna
þessa til eins mánaðar í senn. Ekki hefur verið
mælt sérstaklega hversu mikið þrengingin dreg-
ur úr afkastagetu götunnar, en umferð um göt-
una, vestan Lækjargötu, er um 20 þúsund bílar á
sólarhring. Framkvæmdir eru þegar hafnar á
Hörpulóðinni en ekki hefur reynst nauðsynlegt
að þrengja að umferð þar.
Til stendur að breyta legu Geirsgötu þannig
að hún myndi T-gatnamót við Lækjargötu. Ekki
verður þó ráðist í þá framkvæmd á þessu ári en
líklega á því næsta. sisi@mbl.is
Geirsgata þrengd vegna framkvæmda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Íslendingum sem eru á ferð erlendis
er ráðlagt að notast ekki við þann
valkost að greiða í eigin gjaldmiðli
fyrir vörur, þjónustu og við úttekt í
hraðbönkum. Þetta kemur fram í
grein Gyðu Gunnarsdóttur á vef
Landsbankans. Þessi viðskipti nefn-
ast DCC en mjög hefur færst í
aukana að fólki sem er á ferð erlend-
is og notar greiðslukort standi til
boða að greiða fyrir vörur og þjón-
ustu í eigin gjaldmiðli.
Þægilegt að sjá verð í krónum
Á vef Landsbankans segir að
mörgum korthöfum þyki þetta þægi-
legt því með þessu þurfa þeir ekki
reikna út hver upphæðin er í íslensk-
um krónum því hún blasir við á pos-
anum. Greiðsla sem samþykkt er
með þessum hætti er heldur ekki
háð sveiflum á gengi frá þeim tíma
sem færslan er staðfest og þangað til
upplýsingar um færsluna berast til
kortaútgefanda, eins og venja er
hérlendis. Upphæðin helst óbreytt
þar sem fjárhæðinni hefur þegar
verið skipt yfir í íslenskar krónur.
Engar reglur gilda hins vegar um
þóknunargjöld milliliða sem færslu-
hirðar, t.d. rekstraraðli hraðbanka
eða verslun, tekur fyrir þjónustuna.
Gengið reyndist tvöfalt hærra
Þannig er tekið dæmi á vef Lands-
bankans af Íslendingi sem boðið var
að upphæðin yrði færð í íslenskum
krónum en ekki í evrum, sem hann
þáði. Honum yfirsást hins vegar að
gengið á evru var um tvöfalt hærra
en opinber gengisskráning segir til
um. Eftir að hann hafði slegið inn
pinnið var of seint að hætta við.
Helgi Teitur Helgason, fram-
kvæmdastjóri einstaklingssviðs hjá
Landsbankaum, segir að slík dæmi
séu ekki algeng en að full ástæða sé
til þess að vera meðvitaður um
þetta. „Þetta fyrirkomulag hefur
aukist mikið undanfarin tvö ár eða
svo,“ segir Helgi Teitur. Hann segist
ekki vita til þess að færsluhirðar á
Íslandi á borð við Visa eða Borgun
bjóði slíkt þeim sem nota hraðbanka
á þeirra vegum. „Í útlöndum eru t.d.
fyrirtæki sem eiga og reka hrað-
banka. Þeir taka þóknanir og að auki
eru svo einhverjir færsluaðilar á
borð við Mastercard, Visa, American
Express og fleiri sem geta líka tekið
þóknanir.“
Halda skal því til haga að fólki
gefst ávallt kostur á því að velja
hvort það tekur út fé eða kaupir
vörur í eigin gjaldmiðli eður ei.
Ráðlagt að velja ekki krónur
Víða erlendis býðst að taka fé út úr hraðbönkum eða kaupa vörur fyrir krónur
Yfirsást að gengi evru var tvöfalt hærra en skráð gengi Engar reglur um þóknun
Morgunblaðið/ÞÖK
Krónur Ekki er ráðlegt að velja ís-
lenskan gjaldmiðil við úttekt.
Að fengnu leyfi frá álfum og huldu-
fólki komst jarðborun á kirkju-
staðnum Ríp í Hegranesi á skrið og
er nú lokið. Eins og sagði frá í Morg-
unblaðinu um síðustu helgi gengu
framkvæmdir mjög illa framan af
svo tæki biluðu og borstangir brotn-
uðu. Töldu heimamenn að þar væri
um að kenna að ekki hefði verið ósk-
að samþykkis huldra íbúa, sem
Hegranesingar trúa mjög sterkt á.
„Strákarnir voru að bora eftir
köldu vatni hér við bæinn þar sem
ég held að sé gamall kirkjugarður.
Þegar allt hafði stöðvast lagði ég til
að borað yrði á nýjum stað eins og
gekk eftir. Áður en hafist var handa
leituðum við samþykkis, til dæmis
með því að ganga á staðinn þar sem
bora skyldi og óska leyfis í hljóðri
bæn. Einnig kom hingað maður sem
er þekktur fyrir að sjá það og
skynja sem öðrum er hulið. Hann
gekk um svæðið og kom síðan til
baka með þau skilaboð að öllu væri
óhætt,“ segir Birgir Þórðarson,
bóndi á Ríp, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Það voru starfsmenn verktaka-
fyrirtæksins VCK ehf. sem önn-
uðust framkvæmdir á Ríp. Þegar
verkið stöðvaðist í síðustu viku
héldu þeir suður til Reykjavíkur til
að sækja varahluti í tæki og fleira.
Komu svo aftur norður og þá var
áðurnefnt samþykki úr huldu-
heimum í höfn. Að því fengnu gekk
allt eins og í sögu og nú vellur upp
úr borholunni á Ríp á hverri
klukkustund eitt tonn af köldu og
góðu neysluvatni.
Þetta eru staðreyndir
„Já, það höfðu margir samband
við mig eftir að fréttir af þessari
óvæntu atburðarás hér á Ríp komu
í Mogganum. Sumum finnst þetta
skrýtið en í mínum huga eru þetta
bara blákaldar staðreyndir. Hér í
Hegranesi býr huldufólk og við
verðum að taka tillit til þess,“ segir
Birgir að síðustu. sbs@mbl.is
Álfar samþykktu boranir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skagafjörður Jarðboranir á Ríp
trufluðust af óvenjulegum ástæðum.
Vatnið rennur í
Ríp og huldufólkið
varð sátt við verkið
Um 50 björgunarsveitarmenn Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar tóku
þátt í þremur aðgerðum nánast á
sama tíma í gær þar sem bjarga
þurfti erlendum ferðamönnum og
hestakonu.
Björgunarsveitir frá Hellu að Vík
í Mýrdal ásamt undanförum af
höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar
út rétt fyrir kl. 14.00 vegna slyss við
Sólheimajökul. Erlendur karlmaður
hrapaði þar 30-40 metra og slasaðist
alvarlega. Þurfti að bera hann nokk-
urn spöl að lendingarstað þyrlu
Landhelgisgæslunnar. Hún flutti
hinn slasaða til Reykjavíkur.
Kona missté sig á gönguleið í
Reykjadal í Ölfusi og voru
björgunarsveitir frá Hveragerði,
Selfossi, Eyrarbakka og Þorláks-
höfn kallaðar út. Bera þurfti konuna
um tvo kílómetra niður dalinn til
móts við sjúkrabíl.
Þriðja útkallið barst björgunar-
sveitinni Tindi á Ólafsfirði. Það var
vegna konu sem féll aftur fyrir sig af
hestbaki og slasaðist á fæti.
gudni@mbl.is
Annir hjá
björgunar-
sveitum
Þrjú útköll nánast
á sama tíma í gær
Morgunblaðið/Rósa Braga
Björgunarsveitir Þær höfðu í nógu
að snúast við að hjálpa slösuðum.
Draga á úr rigningu í dag sem var á
sunnan- og austanverðu landinu í
nótt. Einnig á vind að hægja og er
spáð skúrum á víð og dreif en þoku-
lofti eða súld fyrir austan. Hiti verð-
ur 10-19 stig, hlýjast vestantil.
Á morgun, sunnudag, spáir Veð-
urstofan suðaustan 8-13 m/s vindi
við suðurströndina en annars hægri
breytilegri átt. Skýjað verður með
köflum og stöku skúrir. Hiti víða 12-
17 stig. Á mánudag verður hæg suð-
læg eða breytileg átt. Svo á að ganga
í austan 8-13 m/s með rigningu.
Fremur
hlýtt veður
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM
hjá volvo penta á íslandi
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi
teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum
Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt.
Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa.
HAFÐU SAMBAND Í DAG
• Sími: 515 7070
• Netfang: volvopenta@brimborg.is
• Ný heimasíða: volvopenta.is
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta
á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar
okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.