Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016
Landsmót skáta verður sett næst-
komandi sunnudagskvöld við Úlf-
ljótsvatn. Um er að ræða alþjóðlegt
skátamót sem mun standa fram til
23. júlí. Þema mótsins í ár er „Leið-
angurinn mikli.“ Á mótinu verður
hefðbundin landsmótsdagskrá með
nýjum áherslum til að tengja við
þema mótsins og staðhætti við Úlf-
ljótsvatn.
Þegar mest verður er reiknað
með að um 6-7000 manns verði á
mótssvæðinu. Þátttakendur verða
um 1000 og koma víða að, til dæmis
frá Bretlandi, Bandaríkjunum og
Danmörku
Fjölskyldubúðir eru rótgróinn
þáttur á landsmóti og að venju eru
starfræktar sérstakar tjaldbúðir
þar sem fjölskyldur skátanna,
vandamenn og aðrir gestir mótsins
geta sett niður tjaldið sitt, tjald-
vagn eða fellihýsi og tekið þátt í
landsmótsævintýrinu. „Allir sem
vilja geta komið og notið útivist-
arinnar, samverunnar og um leið
upplifað töfra skátastarfsins,“ segir
í tilkynningu frá skátunum.
Þúsundir á skáta-
móti við Úlfljótsvatn
Skátamót Allir skemmta sér saman.
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Enn er myljandi góð laxveiði í ám
landsins, eins og glögglega má sjá á
vikulegum tölum Landssambands
veiðifélaga. Í flestum aflahæstu ám
landsins er veiðin miklum mun meiri
en á sama tíma undanfarin ár; það
er aðeins í Norðurá og Langá sem
veiðitölur voru hærri eða svipaðar á
þessum tíma í fyrra en þá var afar
gott smálaxasumar. Eins og þekkist
þá er von á góðum stórlaxagöngum í
kjölfar slíkra smálaxagangna og sú
hefur heldur betur verið raunin.
Ekki gekk laxinn bara óvenju
snemma í sumar heldur er meira af
stórum löxum í öllum ám en veiði-
menn hafa áður séð; fréttir af tutt-
ugupundurum berast nú daglega
alls staðar að. Og sami maðurinn
fær jafnvel fjóra í sömu veiðiferð-
inni, eins og fréttist af í Aðaldalnum
í vikunni, þar sem meðalvigt sjö laxa
sem Bubbi Morthens veiddi var vel
rúm 19 pund – laxarnir vegnir í
háfnum.
Dofnar yfir töku á Vesturlandi
En nú er tími smálaxagangnanna
og verður spennandi að sjá hvað
gerist í næsta stóra straumi eftir
helgi; hvort bæti í eða hvort það sé í
eðli allra laxa þetta sumarið að
mæta snemma heim. Veiðimenn
vona að sú sé ekki raunin, þá gæti
orðið erfitt að fá tökur víða þegar
kemur fram í ágúst og haustveiðin
nálgast.
Blaðamaður var sjálfur við veiðar
í einni Dalaánni í vikunni og þar sem
víðar á Vesturlandi hafði dregið
nokkuð úr tökugleði laxins eftir
langvarandi veðurblíðu. Mun meira
mátti sjá af stórum fiski í hyljum en
síðustu tvo áratugi en á milli veidd-
ust ansi litlir nýrenningar, 52 til 55
cm að lengd. Aðrir bústnir og lengri,
eins og veiðimenn vonast eftir.
Veiðimaður sem var að koma úr
Norðurá sagði svipaða sögu þaðan,
mikið af stórum og fallegum tveggja
ára laxi í ánni en á milli afar smáir
smálaxar.
„Þetta er fjör“
Sannkallað mok er í Ytri-Rangá
og á vesturbakka Hólsár. Á 20
stangirnar veiddust 804 laxar í lið-
inni viku, eða 5,7 laxar á stöng á dag
og göngur sagðar mjög öflugar.
Veiði á dagsstöng er einungis meiri í
Miðfjarðará, þar sem veiðin er aftur
frábær eftir metveiðisumarið í
fyrra; meðalveiðin á stöng í liðinni
viku var þar 6,7 laxar. Og vikan gaf
469. Heldur ævintýrið síðan í fyrra
bara áfram?
„Nei, ég held ekki. Það átti annars
enginn von á því hér að smálax kæmi
af neinu viti eftir kalda vorið í fyrra.
Hann er samt mættur, hellingur af
smálaxi hefur gengið,“ segir Rafn
Valur Alfreðsson, leigutaki Mið-
fjarðarár. „En enginn veit hvað ger-
ist svo, ég óttast svolítið að fiskurinn
sé allur að mæta snemma, miðað við
hvað mikið gekk snemma. Mér
finnst ólíklegt annað en að nokkuð
gangi í næsta stóra straumi en svo
er spurningin með framhaldið; 2010
og 2012 gekk enginn fiskur af neinu
viti eftir verslunarmannahelgi. En
nú erum við að nálgast 1.200 laxa
veidda og þetta verður aldrei annað
en gott veiðisumar hjá okkur.“
Rafn segir töluvert af smálaxi í
veiði síðustu viku, hann giskar á
hlutfallið 65 á móti 35 af tveggja ára
laxi.
„Auðvitað hefur verið frábær veiði
hjá okkur og í raun „prime-time“
síðan við opnuðum,“ segir hann og
bætir við að flestir veiðimannanna
sem sæki ána séu vanir og flinkir.
Og enn séu stórlaxar að ganga í
bland við smærri. „Í næstsíðasta
holli fékk einn 11 nýgengna laxa í
beit í Kistunum, allt smálaxa 62 til
65 cm. Á næstu vakt setti veiðimað-
ur í Grjóthyl í átta laxa, tveir slitu og
hann missti einn en hann landaði
fimm frá 85 til 93 cm! Það var allt
splunkunýr fiskur. Þetta er fjör.“
„Auðvitað hefur verið
frábær veiði hjá okkur“
Nær sjö laxar veiðast á stöng á dag í Miðfirði 804 laxa vika í Ytri-Rangá
Lukkulegur Finnski leikarinn Jasper Pääkköne, sem er þekktur fyrir að fara með hlutverk Hálfdáns svarta í sjón-
varpsþáttunum Víkingunum, er einn þeirra veiðimanna sem hafa lent í ævintýrum í Miðfjarðará í sumar.
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is
Ytri-Rangá & Hólsá (20)
Eystri-Rangá (18)
Blanda (14)
Miðfjarðará (10)
Þverá - Kjarrá (14)
Norðurá (15)
Haffjarðará (6)
Langá (12)
Laxá í Aðaldal (18)
Víðidalsá (8)
Elliðaárnar (6)
Vatnsdalsá (6)
Hítará (6)
Haukadalsá (5)
Laxá í Dölum (4)
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama
tíma í
fyrra
Á sama
tíma
2014
Staðan 13. júlí 2016
502
202
993
649
735
1068
407
475
229
192
238
159
190
80
49
189
363
882
328
505
470
285
90
208
130
200
176
122
50
18
1720
1442
1300
1077
1003
801
565
471
378
331
300
292
239
218
233
Tveir sænskir
bormenn hafa
verið að störfum
utan í Fjarð-
arheiði und-
anfarnar vikur
og safnað jarð-
sýnum. Tilgang-
urinn er að leita
að hugsanlegum
stæðum fyrir
gangamunna
Fjarðarheiðaganga, að því er fram
kemur í frétt Austurfréttar
(www.austurfrett.is).
Við verkefnið er beitt bortækni
sem ekki er til hér á landi og því
voru Svíarnir fengnir til verksins.
Þeir eru að störfum Seyðisfjarð-
armegin, skammt frá skíðasvæðinu,
þar sem bora á 170 metra djúpa
holu og á þeirri borun að ljúka nú
um helgina. Fyrsta holan var boruð
nokkru neðar og var hún um 350
metra djúp. Auk þess hafa þeir bor-
að holu Egilsstaðamegin sem er um
300 metra djúp. Þá er fjórða og
seinasta holan eftir. Þeir hófu störf
í lok janúar og vonast til að ljúka
störfum sínum um miðjan sept-
ember. gudni@mbl.is
Undirbúa gerð Fjarð-
arheiðarganga
Bora könnunar-
holur eystra.
Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í
stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma,
ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Má ekki nota á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki
á slímhúðir, augu, sár, exem, vessandi húðbólgu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð
ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á altækum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Getur dregið úr frjósemi en þau áhrif ganga til baka. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Viltu meðhöndla liðverkinn
án þess að taka töflur?
Prófaðu að meðhöndla liðverkina
með Voltaren geli.
Lyfjaauglýsing
www.apotekarinn.is
- lægra verð
15%
G
ildir fyrir 100g o
g 1
50
gafsláttur