Morgunblaðið - 16.07.2016, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016
Á réttri leið
til framtíðar
xd.isS JÁ L F S TÆÐ I S F L O KKUR I N N
Á réttri leið
Auglýst er eftir framboðum
á lista Sjálfstæðisflokksins
fyrir komandi kosningar
Prófkjör og röðun á lista fara fram í september, en
framboðsfrestur rennur út í ágúst.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Suðvesturkjördæmi, Suðurkjördæmi og Norðvesturkjör-
dæmi hafa ákveðið að efna til prófkjara við val frambjóðenda á framboðslista flokksins fyrir komandi
alþingiskosningar. Sjá nánar:www.xd.is/profkjor
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi hefur ákveðið að fram fari röðun á fram-
boðslista á sérstökum fundi kjördæmisráðsins þar sem bæði aðal- og varamenn eiga sæti.www.xd.is/
rodun
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs og til röðunar. Skal framboð vera bundið við flokks-
félaga, enda liggi fyrir skriflegt samþykki um að viðkomandi gefi kost á sér.
Eyðublöð fyrir framboð, skipulags- og prófkjörsreglur Sjálfstæðisflokksins,
reglur um röðun á framboðslista, auk nánari upplýsinga um prófkjörin og
röðunina, er hægt að nálgast á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins og á heimasíðu
flokksins,www.xd.is/profkjor ogwww.xd.is/rodun. Framboðummá skila á
skrifstofu flokksins eða til kjörstjórna einstakra kjördæmasamtaka.
Laugardaginn 3. september
fara fram prófkjör og röðun í:
Norðausturkjördæmi – röðun. Framboðsfrestur: Ummiðjan ágúst (nákvæm dag-
setning verður auglýst síðar áwww.xd.is/rodun)
Norðvesturkjördæmi – prófkjör. Framboðsfrestur: Föstudagur 5. ágúst kl. 16:00.
Reykjavík – prófkjör. Framboðsfrestur: Föstudagur 12. ágúst kl. 16:00.
Laugardaginn 10. september
fara fram prófkjör í:
Suðurkjördæmi – prófkjör. Framboðsfrestur: Miðvikudagur 10. ágúst kl. 24:00.
Suðvesturkjördæmi – prófkjör. Framboðsfrestur: Föstudagur 19. ágúst kl. 16:00.
Rússneskar herþotur hafa fellt að
minnsta kosti átján vígamenn Ríkis
íslams í loftárásum sínum undan-
farna sólarhringa. Eftirlitsaðilinn
Syrian Observatory for Human
Rights sagði að evrópskir vígamenn
væru á meðal þeirra sem hefðu fallið,
en sprengjum var varpað á skotmörk
við bæinn Sukhna og í nágrenni Pal-
mýru, þar sem fornar rústir frá tím-
um Rómverja eru.
Þá hafa Rússar einnig gert árásir í
nágrenni bæjarins Arak og víðar í
Homs-héraði. Sex Tupolev-
sprengjuvélar flugu frá Rússlandi til
þess að framkvæma árásirnar. Bæði
Arak og Sukhna eru á valdi Ríkis ísl-
ams, en fyrrnefndi bærinn er nálægt
mikilvægum olíulindum.
Rússar hófu fyrst loftárásir sínar í
Sýrlandi í september síðastliðnum,
en þeir eru á meðal helstu banda-
manna Bashars al-Assad Sýrlands-
forseta. Rússar tilkynntu fyrr í vik-
unni að flugher þeirra hefði
framkvæmt meira en fimmtíu loft-
árásir á tveimur dögum gegn Ríki
íslams. Sagði á Facebook-síðu flug-
hersins að árásirnar væru hluti af
herferð Rússa gegn alþjóðlegum
hryðjuverkasamtökum.
Árásirnar eru taldar vera svar
Rússa við árás Ríkis íslams á Pal-
mýru, sem stjórnarher Sýrlands
náði að hrinda. Þá fylgja árásirnar í
kjölfar þess að tveir rússneskir flug-
menn létust þegar sýrlensk þyrla
var skotin niður á laugardaginn. Tólf
Rússar hafa nú fallið í sýrlenska
borgarastríðinu.
Rússar fella 18
Loftárásir við Palmýru Evrópskir
vígamenn meðal hinna látnu
Guðni Einarsson
Kristján H. Johannessen
Tyrkneski herinn hratt af stað valda-
ráni og sagðist í gærkvöldi hafa steypt
af stóli Recep Tayyip Erdogan Tyrk-
landsforseta. Sýndi tyrkneska sjón-
varpið NTV m.a. myndir af skriðdrek-
um og þungvopnuðum hermönnum
fyrir utan Ataturk-flugvöll í Istanbúl,
á brúm yfir Bosporus-sund og við hin-
ar og þessar eftirlitsstöðvar í borginni.
Þá flugu einnig nokkrar orrustuþotur
og herþyrlur lágflug yfir Istanbúl.
Útgöngubann um allt land
Fljótlega eftir að fyrstu fregnir bár-
ust af valdaráninu lýsti herinn yfir út-
göngubanni í landinu öllu og sagði svo-
kallað „friðarráð“ hafa tekið völdin. Á
sama tíma hvatti Erdogan forseti þjóð
sína til að fjölmenna á götum landsins
– sér til stuðnings.
Ástæða valdaránsins er að sögn
hersins „til að tryggja og endurreisa
stjórnskipulega reglu, lýðræði, mann-
réttindi og frelsi“. Þá sagði einnig í til-
kynningu frá hernum að vonast sé til
að allir alþjóðasamningar og -skuld-
bindingar haldi gildi sínu. „Við vonum
að góð samskipti okkar haldi áfram við
öll ríki heims.“
Fréttamenn AFP í Tyrklandi sögðu
Istanbúl hafa breyst í draugaborg á
afar skömmum tíma. En áður en
valdarán hófst voru fjölmargir að
njóta næturlífsins í miðborginni.
„Mun verða þeim dýrkeypt“
Binali Yildirim, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði aðgerðir hersins
ólöglegar með öllu. „Við eigum nú við
tilraun [til valdaráns]. Við munum
ekki leyfa þessa tilraun,“ sagði hann í
símaviðtali við sjónvarpsstöð NTV.
„Það mun verða þeim dýrkeypt sem
taka þátt í þessu.“
Borgaraþjónusta utanríkisráðu-
neytisins var virkjuð í gærkvöldi
vegna ástandsins í Tyrklandi. „Flestar
samskiptaleiðir aðrar en símalínur
virðast lokaðar í Tyrklandi og tekið
hefur gildi útgöngubann í helstu borg-
um,“ sagði í tilkynningu frá ráðuneyt-
inu. Var þeim tilmælum beint til Ís-
lendinga í landinu að halda sig
innandyra og fylgjast um leið náið með
framvindu mála.
Herinn snerist gegn Erdogan
Hermenn og skriðdrekar lokuðu samgöngumannvirkjum og alþjóðaflugvell-
inum í Istanbúl í tilraun til valdaráns Flestar samskiptaleiðir duttu einnig út
AFP
Útgöngubann Tyrkneskar hersveitir risu skyndilega upp í gærkvöldi í von
um að koma Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta frá völdum.
Tyrkneski herinn tók völdin í
Tyrklandi í gær. Það var í
fimmta skipti sem völdum hefur
verið rænt af kjörnum stjórn-
völdum síðan Tyrkland varð lýð-
veldi árið 1923.
Ungir herforingjar rændu
völdum 27. maí 1960 sem var
fyrsta valdaránið í sögu lýðveld-
isins. Tyrkneski herinn tók aftur
völdin 12. mars 1971 þegar for-
ingi herráðsins afhenti for-
sætisráðherra minnisblað með
skilyrðum hersins. Tyrkneski
herinn hrifsaði aftur völdin hinn
12. september 1980. Herinn af-
henti minnisblað 28. febrúar
1997 sem varð til þess að for-
sætisráðherra sagði af sér.
Tyrkjaher
tekur völdin
TYRKLAND
Guðni Einarsson
Freyr Bjarnason
„Við höfum heyrt frá bróður kon-
unnar minnar sem var staddur hjá
vini sínum Asíumegin í Istanbúl og
komst ekki þaðan. Það voru miklar
bílaraðir á götunum. Erdogan
hvatti almenning til að fara út á
göturnar að mótmæla og var tölu-
vert af fólki komið út þar sem
mágur minn var staddur,“ sagði
Ármann Snævarr. Hann er kvænt-
ur Zeynep Sidal Snævarr sem er
frá Tyrklandi og með íslenskt rík-
isfang. Þau eru búsett hér á landi.
Ármann sagði að þau hefðu ekkert
heyrt frá tengdaforeldrum hans.
„Maður upplifir það að fólk er
óttaslegið og veit ekki alveg hvað
er að gerast. Það er lítið vitað fyrir
víst hvað um er að vera. Herinn er
búinn að taka yfir sjónvarps-
stöðvar og þar eru lesnar tilkynn-
ingar frá hernum.“
Óttaslegin í Istanbúl
„Mér hefði aldrei dottið í hug í
gær að þetta gæti gerst hérna í
Tyrklandi á 21. öldinni. Þetta á að
vera lýðræðisríki,“ segir Saadet
Özdemir Hilmarsson. Hún hefur
tyrkneskt og íslenskt ríkisfang og
er í sumarfríi í Istanbúl. Sadeet
var ein í borginni með syni sínum
og kvaðst vera hrædd. Hún fylgd-
ist vel með sjónvarpinu til að sjá
hvað var að gerast.
„Bróðir minn er í Ankara. Hann
ætlar að reyna að koma til mín en
það er ekki víst að hann geti það
því allt er lokað. Ég ætla alla vega
ekki að fara neitt,“ sagði Sadeet.
Hún frétti að búið væri að loka
tveimur brúm og óttaðist þá að
Ríki íslams væri að hefja aðgerðir
í landinu og fylltist skelfingu.
Skömmu síðar greindi forsætisráð-
herra landsins frá því að um mögu-
legt valdarán hersins væri að
ræða.
Saadet sagðist áður hafa upp-
lifað valdarán í Tyrklandi en það
var árið 1980 þegar hún var lítil
stúlka. Þá hefði enginn vitað hvað
var að gerast en núna gæti fólk
fylgst með í sjónvarpinu.
Þegar hún var spurð nánar út í
valdaránstilraunina núna sagði
hún að óvild hersins í garð forset-
ans Recep Erdogans kæmi henni
ekki á óvart miðað við þróun mála
síðustu misseri. Sadeet ætlaði að
fara heim til Íslands í næstu viku
en vonaðist til að komast fyrr heim
vegna atburðanna í landinu.
Fólk er óttaslegið og
veit ekki hvað gerist
Ein á ferð í Tyrklandi með son sinn