Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016 Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Hinsti vilji Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomu- lag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Útfararstofa kirkjugarðanna Útfarar og lögfræðiþjónusta Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES ÞÓRÐARSON, fv. yfirlögregluþjónn, Hverfisgötu 31, Siglufirði, lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 5. júlí. Útförin verður gerð frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 23. júlí klukkan 14. . Soffía G. Jóhannesdóttir, Ólafur Kristinn Ólafs, Ólafía M. Guðmundsdóttir, Halldóra Sigurlaug Ólafs, Hobie Lars Hansen, Magnea Jónína Ólafs, Björgólfur Hideaki Takefusa, Jóhannes Már Jónsson, Halldóra Í. Sigurgeirsdóttir, Kjartan Orri Jónsson, Sigrún Ásgeirsdóttir, Margrét Finney Jónsdóttir, Eydís Ósk Jóhannesdóttir, Anna Lilja Kjartansdóttir, Jasmín Ósk Takefusa. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GRÓU SVANHEIÐAR ÁRNADÓTTUR, sem lést 19. júní. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Báruhrauni, Hrafnistu í Hafnarfirði, fyrir hlýhug og góða umönnun. . Ingibjörg Pálsdóttir, Kjartan Kjartansson, Árni Pálsson, Þuríður Ingvarsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Ástkær kona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF GEIRSDÓTTIR, Skúlagötu 14, Borgarnesi, lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi laugardaginn 9. júlí. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 16. júlí klukkan 14. . Þorvaldur Jósefsson, Guðlaug Örlaugsdóttir, Jósef Valgarð Þorvaldsson, Gunnþórunn Ingólfsdóttir, Þórdís M. Þorvaldsdóttir, Blængur Alfreðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur fósturfaðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, ÞÓRIR ATLI GUÐMUNDSSON, Akri, Eyrarbakka, sem lést 9. júlí, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju miðvikudaginn 20. júlí klukkan 14. . Aðalsteinn Brynjólfsson, Ágústa Sigurðardóttir, Anna Día Brynjólfsdóttir, Gísli Sæmundsson, Agnar Bent Brynjólfsson, Kolbrún Markúsdóttir, Sigríður Guðmundsd. McLean, afabörn og langafabörn. Elskulegur bróðir okkar, GUÐMUNDUR BJARNASON bóndi, Brennistöðum, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 20. júlí klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Minningarsjóð Brákarhlíðar – sjá á www.brakarhlid.is. . Sveinn Bjarnason, Helga Sólveig Bjarnadóttir, Eysteinn Bjarnason. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT KATRÍN VALDIMARSDÓTTIR, áður til heimilis að Ölduslóð 44, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. júlí. Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 21. júlí klukkan 13. . Steingrímur Guðjónsson, Sigríður Inga Svavarsdóttir, Valdís B. Guðjónsdóttir, Einar Kristján Jónsson, Þórdís Guðjónsdóttir, Sigurður Björgvinsson, Ólafía S. Guðjónsdóttir, Jón Auðunn Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI GUNNAR JÓNSSON húsasmíðameistari, Hlégerði 10, Kópavogi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 12. júlí. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 22. júlí kl. 13. . Ingibjörg María Gunnarsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, HELGI ELÍASSON, Miðvangi 98, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans 13. júlí. Útförin verður auglýst síðar. . Erla B. Bessadóttir, Bessi H. Þorsteinsson, Agnes Jóhannsdóttir, Sigurrós Elíasdóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR ÍSLEIFSDÓTTIR, Miklubraut 64, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 13. júlí. Útförin verður auglýst síðar. . Sigríður Káradóttir, Guðjón Guðmundsson, Tryggvi Kárason, Guðrún R. Rafnsdóttir, Trausti Kárason, Selma Rut Magnúsdóttir, Albert Sigtryggsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ólöf fæddist íReykjavík, 4. desember 1935. Hún lést úr krabbameini eftir skamma sjúkra- húslegu á Sjúkra- húsinu á Akranesi, 9. júlí 2016. Móðir Ólafar var Svanhvít Jó- hannesdóttir, kjör- foreldrar Geir Guðmundsson og Þórdís Ólafs- dóttir, þau hjón ólu einnig upp Ólaf Þór Kristjánsson. Eftirlifandi sambýlismaður Ólafar er Þorvaldur Jósefsson. Saman áttu Ólöf og Þorvaldur tvö börn. Jósef Valgarð, f. 10.8. 1956, sambýliskona hans er Gunnþórun Ingólfsdóttir og börn þeirra þrjú eru Ólöf Sæ- unn, Ingi Valur, unnusta hans er Lilja Dögg Vignisdóttir og dóttir þeirra er Védís Ólöf og Dagrún Drótt. Þórdís Margrét, Kristjönu Guðrúnu Guð- mundsdóttur, synir þeirra eru Sölvi Steinn og Elvar Magni, börn Ingvars úr fyrri sam- böndum eru Tryggvi Geir og Júlía. Berglind Ósk, sambýlis- maður Svavar Halldór Jó- hannsson, börn þeirra eru Alexandra Sif, Axel Smári og Lilja Karen. Ásgeir Jensson, f. 8.1. 1955, hann lést á Nýja- Sjálandi 16.5. 2016, eftirlifandi eiginkona hans er Dahlia Maria Tickelpenny, þau voru barnlaus. Ólöf ólst upp hjá kjörfor- eldrum sínum á Lundum í Stafholtstungum og stundaði nám við Héraðsskólann í Reyk- holti og Húsmæðraskólann á Ísafirði. Ólöf og Þorvaldur hófu sambúð 1956. Lengst af bjuggu þau í sveitum Borg- arfjarðar og stunduðu land- búnað, lengstum í Sveinatungu í Norðurárdal, allt þar til árið 1985, er þau létu þau af bú- skap og fluttu í Borgarnes. Útför Ólafar fer fram frá Borgarneskirkju, í dag, 16. júlí 2016, kl. 14. f. 5.7. 1962, gift Blængi Alfreðs- syni. Börn þeirra tvö eru Harpa Dröfn, gift Aðal- steini Mar Gunn- arssyni og Þor- valdur Bjarki, sambýliskona hans er Katrín Inga Gísladóttir Bass, börn Katrínar eru Ísak Hrafn, Adrían Kári og Móheiður Líf. Synir Blængs úr fyrra hjónabandi eru Pálmi, maki Helena Björk Guðmundsdóttir og þau eiga Elvar Daða og Guðmund Elís og Elís Bergmann, maki Telma Dögg Ægisdóttir og sonur þeirra er Aron Freyr. Börn Ólafar úr fyrri samböndum eru Guðlaug Örlaugsdóttir, f. 30.4. 1952, hún á þrjú börn, Geir, börn hans eru Guðjón Geir, Rakel Ýr og Steingrímur Geir. Ingvar Þór, giftur Nönu Hún Lóló tengdamóðir mín er látin. Hún var einstök kona, list- ræn, félagslynd, hjálpsöm og glaðlynd og lét sér annt um alla sem hún umgekkst, ekki síst þá sem minna máttu sín og hún hafði einstakt lag á að láta fólki líða vel í kringum sig. Ég kynnt- ist Lóló fyrst þegar ég kom með syni hennar heim í Sveinatungu og áreiðanlega kveið ég nokkuð fyrir að koma þannig inn á ókunnugt heimili, en hlýjar mót- tökur fékk ég og leið fljótlega eins og heima hjá mér. Undraði mig stundum atorkusemi og dugnaður Lólóar, en mannmargt var í Sveinatungu, auk fjölskyld- unnar voru sumarbörn, og ósjaldan vegfarendur sem ráku inn nefið, kostgangarar frá Vegagerðinni o.fl., við stóra eld- húsborðið var flesta daga þétt- setið og það var hlaðið veitingum frá morgni til kvölds. Alltaf var pláss fyrir fleiri við borð þeirra hjóna, enda gestrisin með ein- dæmum. Þrátt fyrir að nóg væri að gera við heimilisstörfin og vinnu- dagurinn langur, gaf Lóló sér tíma til að taka þátt í félagsstörf- um, söng í kirkjukór og starfaði með kvenfélagi sveitarinnar. Lóló var handlagin og listræn, þá hæfileika ræktaði hún enn frekar eftir að þau Valdi fluttu í Borgarnes, málaði myndir, brenndi glermuni, málaði á steina og heklaði og prjónaði fal- lega hluti, svo fátt eitt sé nefnt. Upp úr afmælis- og jólapökkum frá henni komu ósjaldan fallegir handunnir gripir, sem minna okkur nú á hve hæfileikarík hún var á svo fjölbreyttan hátt. Lóló var mikil fjölskyldukona, fylgdist vel með nýjum afkomendum og gjafalisti hennar lengdist hratt, því hún mundi flesta afmælis-og merkisdaga og hugsaði sífellt um að gleðja aðra. Litla ömmustelp- an mín er of lítil til að sakna Lóló langömmu, en önnur barnabörn og barnabarnabörn sakna nú sárt sinnar góðu og hlýju ömmu. Þau Lóló og Valdi áttu góða hesta og lögðu metnað sinn í að rækta sitt hrossakyn, sem þau kenndu við Sveinatungu, sem best. Mín tilfinning var að Lóló hefði yndi af hestum, þótt heim- ilisaðstæður gæfu henni ekki mikinn tíma til að sinna því hug- arefni. Ég sá hana þó nokkrum sinnum á hestbaki, hún bar sig tígulega og hesturinn fór vel hjá henni, þannig vil ég minnast hennar. Takk fyrir allt, kæra Lóló. Gunnþórunn Ingólfsdóttir. Ólöf Geirsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minning- argreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.