Morgunblaðið - 16.07.2016, Page 27
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Lágafellskirkja í Mosfellsbæ.
ÁRBÆJARKIRKJA | Sameiginleg úti-
guðsþjónusta Árbæjar-, Grafarvogs- og
Grafarholtssafnaða kl. 11 á Nónhæð,
rétt austan við sjúkrastöðina Vog. Graf-
arholtssöfnuður fer fyrir guðsþjónust-
unni í ár og Sr. Karl Matthíasson þjónar
og prédikar. Hægt er að komast á stað-
inn á einkabíl eða ganga frá sóknar-
kirkjunum að Nónhæð. Lagt af stað frá
Árbæjarkirkju kl. 10.30.
ÁSKIRKJA | Vegna sumarleyfa sókn-
arprests og starfsfólks Áskirkju fellur
helgihald niður á morgun. Næst verður
messað í Áskirkju sunnudaginn 31. júlí
kl. 11.
BÚSTAÐAKIRKJA | Sumarmessa
með léttum söngvum og sálmum
sunnudag kl. 11. Kantor Jónas Þórir
þenur hammond-orgel og flygil og
stjórnar félögum úr Kór Bústaðakirkju.
Messuþjónar aðstoða og boðið er upp
á molasopa eftir messu. Prestur er
Pálmi Matthíasson.
Dómkirkja Krists konungs, Landa-
koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á
pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á
pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl.
18 og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er sunnudags-
messa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Minni á bílastæðin gegnt Þórs-
hamri.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Í messunni verður
ungur maður fermdur og barn borið til
skírnar. Arngerður María Árnadóttir org-
anisti leiðir tónlistina.
GRAFARVOGSKIRKJA | Útiguðsþjón-
usta kl. 11 að Nónholti, ásamt Árbæj-
ar- og Grafarholtssöfnuði. Nónhæð er
rétt austan við sjúkrastöðina Vog. Graf-
arholtssöfnuður fer fyrir guðsþjónust-
unni í ár. Sr. Karl Matthíasson prédikar
og þjónar. Hægt er að komast að
staðnum á einkabíl eða ganga frá
sóknarkirkju. Frá Grafarvogskirkju fer
sr. Sigurður Grétar Helgason í píla-
grímagöngu á Nónholt og sr. Guðrún
Karls Helgudóttir býður upp á 3 km.
hlaup og verður lagt af stað kl. 10.30.
GRENSÁSKIRKJA | Vegna sum-
arleyfa er Grensáskirkja lokuð til 12.
ágúst. Bent er á guðsþjónustur í öðrum
kirkjum.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Útimessa á Nónhæð kl. 11. Prestur er
sr. Karl V. Matthíasson og Guðmundur
Samúelsson spilar á hamoniku. Fyrir
þau sem vilja koma akandi að Nónholti
þá er best að fara niður hjá meðferð-
arstöðinni Vogi og ganga stuttan spöl
þaðan. Fötluðum verður veitt aðstoð
við að komast á staðinn.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Orgelleikur, sálmasöngur,
ritningarlestur, hugleiðing, bænagjörð
og heilög kvöldmáltíð. Prestur er sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Organisti er Dou-
glas A. Brotchie. Kaffisopi eftir stund-
ina í safnaðarheimlinu. Orgeltónleikar
þriðjudaga í júlí kl. 12.15. Douglas A
Brothcie leikur. Aðgangur ókeypis.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt hópi messu-
þjóna. Félagar úr Mótettukórnum
syngja. Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson. Sögustund fyrir börnin. Al-
þjóðlegt orgelsumar, tónleikar laugard.
kl. 12 og sunnud. kl. 17. Katelyn Emer-
son frá Bandaríkjunum leikur. Fyrir-
bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30.
Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Hádeg-
istónleikar Schola cantorum miðvikud.
kl. 12. Orgeltónleikar fimmtudag kl.
12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa í Háteigs-
kirkju kl. 11. Prestur er Eiríkur Jóhanns-
son, organisti er Kári Allansson.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 14 í umsjá Félags fyrrum þjón-
andi presta. Séra Guðjón Skarphéð-
insson prédikar og þjónar fyrir altari.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Lesmessa kl.
20 í Kapellu vonarinnar, Keflavík-
urkirkju. Prestur er séra Eva Björk Valdi-
marsdóttir.
KLYPPSSTAÐARKIRKJA í Loð-
mundarfirði | Sumarmessa í Klypp-
staðarkirkju kl. 14. Félagar úr Kór Seyð-
isfjarðarkirkju leiða almennan
safnaðarsöng. Séra Jóhanna Sigmars-
dóttir og séra Sigríður Rún Tryggvadótt-
ir þjóna. Eftir messu er boðið upp á
kaffi og meðlæti í skála ferðafélags
Fljótsdalshéraðs.
Ath! Það þarf að áætla um 1,5 klst.
akstur frá Borgarfirði eystra. Vegurinn
er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Guðni Már Harðarson prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Organisti er
Lenka Mátéová kantor kirkjunnar.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta í
Lágafellskirkju, Mosfellsbæ, kl. 11.
Prestur er Ragnheiður Jónsdóttir. Bryn-
dís Eva Erlingsdóttir leiðir safn-
aðarsöng. Kjartan J. Ognibene er org-
anisti.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr Kór Neskirkju leiða sönginn undir
stjórn Maríu Jónsdóttur. Prestur er sr.
Skúli S. Ólafsson. Samfélag, ávextir og
kaffisopi á Torginu eftir messu.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju
leiðir safnaðarsöng. Organisti er Tóm-
as Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11 í umsjá sóknarprests.
Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson, sókn-
arprestur, annast prestsþjónustuna.
Organisti er Jón Bjarnason. Í messunni
verður flutt tónlist frá sumartónleikum
helgarinnar.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson, Skálholts-
biskup, annast prestsþjónustuna. Org-
anisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Orð dagsins: „Hegð-
ið ykkur því eins og
börn ljóssins. – Því
að ávöxtur ljóssins
er einskær góðvild,
réttlæti og sann-
leikur.“ (Ef. 5.8b-9)
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016
✝ Helga Hans-dóttir fæddist
4. september 1925
á Látrum í Að-
alvík. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Eyri á Ísa-
firði 3. júlí 2016.
Foreldrar henn-
ar voru María
Friðriksdóttir frá
Efri Miðvík, f.
1905, d. 1996, og
Vernharð Jósepsson frá Atl-
astöðum í Fljótavík, stjúpfaðir,
f. 1906, d. 1982. Systkini Helgu
sem upp komust eru Þórunn
Friðrika, f. 1931, Herborg, f.
1932, Bára Freyja Ragna, f.
1934, d. 2011, Sigrún, f. 1940,
og Jósef Hermann, f. 1943. Á
barnsaldri létust Ragnar
Bjarni, Margrét og Steinunn
Selma.
Helga giftist 22. október
1943 Hólmgeiri Líndal Magnús-
ssyni sjómanni frá Bolung-
arvík, f. 1913, d. 2001. For-
eldar hans voru Magnús
Magnússon, f. 1885, d. 1959, og
Margrét Guðbrandsdóttir f.
1885, d. 1980. Líndal ólst upp í
Bolungarvík hjá hjónunum
Pétri Oddssyni útgerðarmanni
og Guðnýju Bjarnadóttur. Árið
1946 misstu þau Helga og Lín-
dal fullburða stúlkubarn í fæð-
ingu. Kjördóttir þeirra er
Guðný Ragnheiður Hólmgeirs-
dóttir, f. 1957. Eig-
inmaður hennar er
Sigurður Mar Ósk-
arsson, f. 1956.
Börn þeirra eru:
Elvar Már, f. 1975.
Vilborg Guðrún, f.
1983, sambýlis-
maður hennar er
Hjalti Einarsson,
þau eiga Ragnheiði
Elísabetu, Hildi
Katrínu og Vigdísi
Margréti. Helga Lind, f. 1988.
Jóhann Mar, f. 1992, unnusta
hans er Klara Dís.
Helga ólst upp í Fljótavík
þar sem foreldrar hennar
stunduðu búskap. Hún flutti að
heiman 15 ára gömul til Ísa-
fjarðar. Þar fór hún í vist hjá
Jónasi og Hansínu á Heklunni.
Þar kynntist hún Líndal sem
var kostgangari á sama stað.
Helga og Líndal bjuggu alla
sína búskapartíð á Hlíðarveg-
inum á Ísafirði. Fyrst á Hlíðar-
vegi 12 og síðar á Hlíðarvegi
44. Helga var að mestu leyti
heimavinnandi en starfaði um
tíma við rækjuvinnslu og ræst-
ingar. Hún var virk í Kvenna-
félaginu Hlíf og var þar heið-
ursfélagi. Helga var alla tíð
mikill fagurkeri, listræn og
flink í höndunum.
Helga verður jarðsungin frá
Ísafjarðarkirkju í dag, 16. júlí
2016, klukkan 10.30.
Elsku Helga frænka.
Nú þegar við kveðjum þig í
hinsta sinn er gott að minnast
þeirra góðu stunda sem við höf-
um átt. Þú varst alltaf höfðingi
heim að sækja og ekki brást það
þegar mamma og pabbi komu
vestur með allan skarann að það
var farið í veislu til Helgu á
Hlíðarveginum og sú hefð hélst
þegar ég kom með mína fjöl-
skyldu seinna. Þar var vel veitt
og heimilið ykkar var alltaf eins
og ævintýraland. Þú varst alveg
einstaklega listræn, saumaðir
tískuflíkur líkt og væru úr fín-
ustu verslun. Mér fannst alltaf
svo gaman að útstillingunum
hjá þér í gluggunum. Þú tíndir
fallega steina, skeljar og þurrk-
aðir falleg blóm. Þú bjóst til
hinar fallegustu fígúrur úr
sælgætisbréfum og þessu öllu
var stillt upp í eldhúsgluggan-
um og glugganum í holinu. Ég
man líka eftir fallegu flöskunum
sem þú áttir og fylltir með
grænu og rauðu vatni og stilltir
upp á skáp í eldhúsinu. Ég fékk
líka að vera hjá ykkur nokkrum
sinnum á sumrin, bæði þegar ég
var smástelpa og sem unglingur
þegar ég fór að vinna. Við vor-
um líka oft saman á sama tíma í
Fljótavíkinni og þar gekk nú oft
mikið á þegar allar systurnar
voru komnar þar saman. Ég
man líka eftir því þegar þú
varst að púla í stígnum niður að
læk og hreinsa lækinn við Atl-
astaði. Þú gast verið óttaleg
óhemja þegar þú beist eitthvað
svoleiðis í þig og hugsaðir
kannski ekki um hvernig
skrokkurinn yrði daginn eftir.
Okkur hjónum þótti vænt um
það þegar þú komst í heimsókn
til okkar fyrir 20 árum og við
nýflutt á Krókinn. Við minn-
umst oft á það hvað það var
gaman við eldhúsborðið þegar
Tommi sat við að hnýta flugur
og þú hafðir svo mikinn áhuga á
öllum fallegu perlunum og lit-
fjöðrunum. Það var mikið hlegið
og skemmtilegar sögur sagðar
og ekki síst þegar þú náðir í
viskífleyginn og þið Tommi
fenguð ykkur snafs. Þú hafðir
yndi af hvers konar handavinnu
og ég er svo heppin að þú gafst
mér alltaf eitthvert smáræði
sem þú hafðir perlað, heklað
eða föndrað og í raun byrjaði
áhugi minn á handgerðu jóla-
skrauti með litlu perlubjöllunum
þínum. Mér verður því alltaf
hugsað til þín með hlýju í hjarta
þegar ég skreyti jólatréð mitt á
Þorláksmessu og skrautið frá
þér er alltaf í heiðursessi. Ég
kom vestur fyrir ári og heim-
sótti þig og þú ljómaðir þegar
þú áttaðir þig á því hver var
komin í heimsókn. Þú viður-
kenndir strax að þú myndir
ekkert hvað ég á mörg börn eða
hvað þau hétu en þú mundir
samt eftir þeim en þetta vildi
bara flækjast svolítið fyrir þér.
Við gerðum okkur enga rellu yf-
ir því og fórum bara yfir málin
og ég sagði þér hvað hver var
að gera og þú varst svo stolt af
þeim líkt og þau væru þín eigin
barnabörn því þér fannst þú
alltaf eiga svolítið í mér. Þú
ljómaðir líka þegar þú sýndir
mér myndir af börnunum og
barnabörnunum sem þú varst
svo stolt af og sagðir mér hvað
þau væru dugleg. Þegar ég
kvaddi þig þá var ég nokkuð
viss um að þetta væri í síðasta
sinn og knúsaði þig og kyssti al-
veg einstaklega vel. Þú átt alveg
sérstakan stað í hjarta mínu og
því fær ekkert breytt. Hvíl í
friði, elsku frænka.
Selma
Hjörvarsdóttir.
Helga
Hansdóttir
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
VAÐNES - sumarbústaðalóð
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir m.
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt
ár. Allar nánari upplýsingar
gefur Jón í síma 896-1864 og á
facebook síðu okkar vaðnes-lóðir
til sölu.
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Iðnaðarmenn
Til sölu
Járnbakkar
Tengijárnskúffur
Framleiðum
fjölmargar gerðir
af járnbökkum
Margar skeyti-
lengdir í boði
Vír og lykkjur ehf
Lyngás 8, 210 Grb.
víroglykkjur@internet.is
víroglykkjur.is
S. 772 3200/692 8027
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Leiga Norðlingaholt
Íbúð til leigu í ca 3 mánuði.
Leigist með öllum húsbúnaði.
105 fermetrar á stærð.
Reglusemi og snyrtimennska áskilin.
Áhugasamir sendi inn upplýsingar á
box@mbl.is merkt „Norðlingaholt“
Húsnæði íboði
Ford húsbíll
Eddehus Húsbill til sölu. Árg. 1993.
Ekinn um 180 þús. 5 gíra. Beinskiptur.
Disel. Skráður 7 manna. Sólarsella,
ísskápur, salerni og miðstöð. TILBOÐ
1.190.000 kr. Upplýsingar í síma : 897
8705 Kristjana.
Húsbílar
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
FRÁBÆR
KYNNINGARVERÐ Á
LEGSTEINUM
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi
sími: 537-1029, www.bergsteinar.is