Morgunblaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Hátíðin verður styttri og þéttari í
ár og við erum í óðaönn að undir-
búa opnunarhátíðina. Í Listagilinu
verða skúlptúrar af skrímslum og
kynjaverum sem fá að njóta sín út
hátíðina, hljómsveitin Herðubreið
mun spila undir berum himni, það
verður opnun í Mjólkurbúðinni, svo
verður nýtt Gangandi Gallerí opnað
og gjörningar bæði inni og úti. Svo
mun dagurinn endar á háklassa
Bach-hátíð,“ segir Guðrún Þórs-
dóttir, verkefnastjóri Listasumars
Akureyrar, en Listasumar 2016
verður sett í dag í Listagilinu á Ak-
ureyri. Ákveðið var að þétta dag-
skrána og láta hana ná yfir einn og
hálfan mánuð í stað þriggja til þess
að skerpa fókusinn og ná fram
samfelldari dagskrá eins og segir í
tilkynningu. Enn sem fyrr markar
Akureyrarvaka laugardaginn 27.
ágúst lok Listasumars.
Tuttugu og fimm listamenn
„Listasumar var endurvakið í
fyrra eftir nokkurra ára hlé. Lista-
sumar er afsprengi Gilfélagsins og
er hugsað sem ákveðin umgjörð
fyrir lista- og menningarviðburði á
Akureyri. Í fyrra fór svolítið púst í
að endurvekja hátíðina og láta hjól-
in fara að snúast og í ár náum við
að setja peninga beint í verkefni,
sem er frábært því listafólk þarf
laun eins og tæknimennirnir. Lista-
fólk sótti um styrki til að koma
verkefnum sínum í gang og þar af
leiðandi framleiðir Listasumar
nokkur verkefni á þessu tímabili,“
segir Guðrún.
„Það verður öllu tjaldað sem til
er á opnunardaginn frá því klukkan
tvö til fimm. Það munu tuttugu og
fimm listamenn frá fimm þjóð-
löndum taka þátt í opuninni og
margt um að vera og ég hvet alla
til að koma og njóta þess með okk-
ur,“ segir hún.
Áhugaverðar smiðjur
„Við stöndum síðan fyrir gríðar-
lega áhugaverðum smiðjum. Það
skiptir máli að bera út boðskap
listarinnar og sá fræjum til
barnanna okkar og í raun til allra.
Viktoría Blöndal og Atli Sigþórs-
son, betur þekktur sem Kött Grá
Pje, hefja Ritlistasmiðjuna í sal
Myndlistarfélagsins í dag og er hún
opin öllum aldurshópum. Síðan
verður raftónlistarsmiðja á vegum
ungs tónlistarmanns sem heitir
Haraldur Örn Haraldsson, stutt-
myndasmiðja í boði Freyju Reyn-
isdóttur og svo er Jónborg Sigurð-
ardóttur ásamt Brynhildi Kristins-
dóttur með smiðju í endurvinnslu-
listum eins og þær orða það sjálfar,
þar vinnur hún list úr rusli. Undir
hatti Listasumars verða einnig
rokksumarbúðir,“ segir hún og
bætir við að efnt verði til raf-
tónleika þegar raftónlistarsmiðj-
unni lýkur en þar munu norð-
lenskir raftónlistarmenn koma
fram. Þess skal einnig getið að þeir
sem vilja leggja sitt af mörkum á
Listasumri 2016 geta fengið að-
stöðu í sal Myndlistarfélagsins og í
Deiglunni í Listagilinu. Hugmyndir
og óskir um tímasetningu skal
senda á netfangið listasumar@ak-
ureyri.is. Dagskráin er enn í smíð-
um en hægt er að fylgjast með
gangi mála á heimasíðu Listasum-
ars, listasumar.is.
Hátíð Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari mun leika þrjár sónötur
eftir J.S. Bach ásamt hinum franska Brice Sailly sembal á opnuninni.
Tjalda öllu sem til
er við opnun
Listasumar sett á Akureyri í dag
Dúó Viktoría Blöndal og Atli Sig-
þórsson standa fyrir smiðju í ritlist.
Kínversk yfirvöld hafa bannað sýningu kvikmyndar-
innar Ghostbusters sem frumsýnd verður hér á landi
nk. miðvikudag. Myndinni, sem er endurgerð Pauls
Feig á kvikmyndinni um draugabanana frá árinu 1984,
hefur verið ágætlega tekið af gagnrýnendum, þannig
gaf rýnir breska dagblaðsins The Guardian myndinni
fjórar stjörnur.
Samkvæmt upplýsingum frá Senu hefur það áður
gerst að kínversk stjórnvöld banni erlendar myndir
þar sem fjallað er um drauga. „Landið er þekkt fyrir
að banna sýningar á myndum sem fjalla um drauga og
setti til að mynda sýningabann á myndina Pirates of
The Caribbean: Dead Man’s Chest af þeirri ástæðu. Kínverskir embætt-
ismenn vilja þó einnig meina að lítið hafi farið fyrir upprunalegu mynd-
unum og því hafi þeir talið að myndin ætti ekki upp á borðið hjá kínversk-
um áhorfendum,“ segir í tilkynningu.
Draugabanar bannaðir í Kína
Paul Feig
Íkorninn Scrat gerir upp fyrir málleysið með
hugrekki og þrautsegju.
Metacritic 44/100
IMDb 6,1/10
Laugarásbíó 13.50, 15.50, 17.50
Smárabíó 13.00, 13.00, 15.30, 15.30, 17.45, 17.45
Háskólabíó 15.00, 17.30, 16.00, 18.30, 20.00
Sambíóin Álfabakka 13.00, 14.00, 15.20, 16.10, 18.20
Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.10, 17.40
Sambíóin Keflavík 15.20, 17.40
Borgarbíó Akureyri 14.00, 16.00, 17.50
Ísöld: Ævintýrið mikla 12
Draumalandið
Bíó Paradís 18.00
101 Reykjavík
Bíó Paradís 22.00
Bryan Cranston leikur tollvörðinn
Mazur sem hafði einnig dulnefnið
Bob Musella og laumaði sér í raðir
eiturlyfjabaróna Kólumbíu. Seinna
meir náði hann að koma sér inn í
innsta hring stórglæpamannsins
Pablo Escobar og aðgerðir sem
snéru að peningaþvætti.
Metacritic 66/100
IMDb 7,8/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.35
Háskólabíó 15.00, 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20
The Infiltrator 16
Now You See Me 2 12
Metacritic 47/100
IMDb 7/10
Sambíóin Álfabakka 12.00,
14.40, 17.20, 17.40, 20.00,
20.00, 22.40, 22.40
Sambíóin Egilshöll 15.00,
17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni
20.30, 22.20, 23.10
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.40
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.40
The BFG 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 65/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00, 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00
Sambíóin Kringlunni 13.00,
15.30, 18.00
Sambíóin Akureyri 14.00,
17.30
Sambíóin Keflavík 17.30
The Legend of
Tarzan 12
Metacritic 43/100
IMDb 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20, 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 17.40,
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.40
Mike and Dave need
Wedding Dates 12
Foreldrar bræðranna Mike
og Dave hafa fengið nóg af
partístandi þeirra. Nú skulu
þeir finna almennilegar
dömur fyrir brúðkaup systur
þeirra í Hawaii.
Metacritic 50/100
IMDb 6.7/10
Laugarásbíó 20.00, 22.10
Smárabíó 13.00, 15.00,
15.30, 17.15, 17.50, 19.30,
20.00, 22.00, 22.15
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Leitin að Dóru Metacritic 75/100
IMDb 9/10
Laugarásbíó 13.50, 15.50,
17.50
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.20, 17.40, 20.30, 22.45
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.10
Sambíóin Kringlunni 13.00,
13.00, 15.20, 15.20
Sambíóin Akureyri 13.00,
15.20, 17.40
Sambíóin Keflavík 15.10
Independence Day:
Resurgence 12
Metacritic 46/100
IMDb 7,4/10
Laugarásbíó 20.00
Smárabíó 20.00, 22.40
Háskólabíó 15.00, 18.00,
21.10
Borgarbíó Akureyri 22.00
Me Before You 12
Metacritic 51/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 20.30
Sambíóin Kringlunni 17.40,
20.00
Central Intelligence12
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Smárabíó 20.10, 22.40
Borgarbíó Akureyri 17.50
TMNT: Out of the
Shadows 12
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00
The Conjuring 2 16
Metacritic 8,1/10
IMDb 65/100
Sambíóin Álfabakka 22.40
Sambíóin Egilshöll 22.20
The Nice Guys 16
Metacritic 70/100
IMDb 7,9/10
Smárabíó 20.10, 22.50
Warcraft 16
Laugarásbíó 22.30
Goodnight
Mommy 16
Metacritic 81/100
IMDb 6,7/10
Háskólabíó 22.10
Angry Birds Smárabíó 13.00, 15.30,
17.50
The Witch 16
Metacritic 83/100
IMDb 6,8/10
Morgunblaðið bbbbn
Bíó Paradís 20.00
Arabian Nights: Vol.
2: Desolate one 16
Metacritic 80/100
IMDb7,2/10
Bíó Paradís 17.30
The assassin 12
Hin fagra og leyndardóms-
fulla Yinniang starfar sem
launmorðingi í Kína á tímum
Tang-keisaraveldisins á ní-
undu öld.
Metacritic 80/100
IMDb 6,4/100
Bíó Paradís 20.00, 22.00
Hross í oss
Bíó Paradís 20.00
The Treasure Costi hjálpar nágranna sín-
um að leigja málmleitartæki
til að leita að fjársjóði.
Bíó Paradís 20.00
Love
Mynd þessi er ekki við hæfi
yngri en 18 ára.
Metacritic 51/100
IMDb 6/100
Bíó Paradís 22.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio