Morgunblaðið - 16.07.2016, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 16.07.2016, Qupperneq 44
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 198. DAGUR ÁRSINS 2016 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Mótorhjól elti flutningabílinn 2. Þarf að tilkynna kynlíf með fyrirvara 3. „Þetta er valdarán“ 4. Hentu börnunum yfir girðingar  Tónleikahátíðin Kexport verður haldin í fimmta skipti í portinu fyrir aftan Kex hostel í dag frá kl. 12 á há- degi til miðnættis. Tónleikarnir eru haldnir til heiðurs KEXP í Seattle sem sótt hefur Ísland heim árlega frá 2009 og unnið ötult starf til kynn- ingar íslenskrar tónlistar í Bandaríkj- unum og víðar í heiminum. Fram koma dj flugvél & geimskip, $ig- mund, Hórmónar, Hildur, Auður, Mug- ison, Alvia Islandia, Tómas Jónsson, Tilbury, Singapore Sling, Misþyrming og Grísalappalísa, en hver listamaður eða hópur leikur í klukkutíma. Mynd- bandsupptöku af tónleikunum í ár verður streymt beint í gegnum kexp.- org, kexland.is og musicreach.tv og er það í annað skipti sem það verður gert. Morgunblaðið/Styrmir Kári Kexport í 5. sinn  Kvartett djasssöngkonunnar Krist- jönu Stefánsdóttur kemur fram á sjö- undu tónleikum sumartónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu í dag kl. 15. Með Krist- jönu leika Eyþór Gunnarsson á píanó, Þórður Högnason á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Þau munu flytja djassstandarda úr ýmsum átt- um. Tónleikarnir, sem fram fara utan- dyra á Jómfrúartorginu, hefjast kl. 15 og standa til kl. 17. Aðgangur er ókeypis. Þess má geta að sami kvart- ett kemur fram í Hofi á Akureyri á morgun, sunnudag, kl. 13. Þar verður leikið á veit- ingastaðnum 1862 Bistro, ut- andyra ef veður leyfir en annars inni. Aðgangur þar er einnig ókeypis. Kvartett Kristjönu Stefáns á Jómfrúnni FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægari en í gær og skúrir á víð og dreif, en þokuloft eða súld fyrir austan. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast vestantil. Á sunnudag Suðaustan 8-13 m/s við suðurströndina, en annars hæg breytileg átt. Skýj- að með köflum og stöku skúrir. Hiti víða 12 til 17 stig. Á mánudag Hæg suðlæg eða breytileg átt og þurrt í fyrstu, en gengur síðan í austan 8- 13 m/s með rigningu sunnantil. Hiti 11 til 20 stig, hlýjast fyrir norðan og austan. „Þátttaka krefst þess að lið þarf að safna peningum með fjáröflun og öðru. Leikmenn og stjórnin ákváðu í fyrra að einbeita sér að deildinni hérna heima og láta Evrópukeppni bíða betri tíma ef svo má segja,“ seg- ir Kári Garðarsson þjálfari Íslands- meistara Gróttu í handknattleik kvenna sem taka ekki þátt í Evr- ópukeppni í vetur. » 2 Evrópukeppnin látin bíða betri tíma „Ég er í skýjunum með þessa niðurstöðu. Danska úrvals- deildin er spennandi og sterk deild, Randers er flott- ur klúbbur með Óla Kristjáns sem þjálfara. Randers sótti mjög hart að fá mig og liðið sýndi mér mikinn áhuga frá því það hafði fyrst samband við mig,“ segir Hannes Þór Hall- dórsson landsliðs- markvörður. » 2-3 Í skýjunum með þessa niðurstöðu Hinn reyndi bandaríski kylfingur Phil Mickelson hélt í gær forystu sinni á Opna breska meistaramótinu í golfi á Royal Troon í Skotlandi. Mickelson er þó aðeins með eins höggs forskot á Svíann Henrik Stenson þegar mót- ið er hálfnað. Annar Norður- landabúi, Sören Kjeldsen frá Danmörku, er í þriðja sæti, þremur á eftir Mickelson. Allir eru þessir kylf- ingar orðnir fer- tugir en Mickel- son er sá eini þeirra sem sigr- að hefur á risa- móti. »1 Fimmtugsaldurinn eng- in endastöð í golfinu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sundlaugin á Hofsósi, arkitekt hennar og staðsetning, setur ný við- mið fyrir laugar á Íslandi í framtíð- inni. Þetta segir Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður sundlauganna í Skagafirði. Í óformlegri sam- antekt sem Morgunblaðið gerði og birtist á dögunum kom fram að Hofs- óslaugin skipar sérstakan sess í huga landans, en hún stendur í brekkubrún á fjörukambi, hvaðan er frábært útsýni út á haf og til Drang- eyjar. Aðrar laugar sem lesendur settu í öndvegi eru á Patreksfirði og Krossnesi en staðsetning þessara þriggja er svipuð; við sjó og útsýnið er einstakt. Stormur og Saga „Gestum hér er alltaf að fjölga. Í fyrra voru þeir um 30 þúsund en af þeim voru um 80% á ferðinni í sum- armánuðunum þremur. Ég geri ráð fyrir að heildartalan eftir þetta ár verði eitthvað hærri en á því síðasta, sé tekið mið af stígandinni að und- anförnu,“ segir Þorvaldur. „Ég tel okkur líka nokkuð vel sett hér hvað varðar þá aðstöðu sem fólk almennt krefst að sundlaugar hafi.“ Hafist var handa um byggingu sundlaugarinnar á Hofsósi haustið 2008 og lauk framkvæmdum tveim- ur árum síðar. Mannvirki þetta er gjöf frá athafnakonunum Steinunni Jónsdóttur og Lilju Pálmadóttur sem báðar eiga rætur og tengsl á þessum slóðum. Er sundlaugin og atbeini þeirra stallna stundum nefndur sem gott dæmi um eftir- breytnivert framlag einstaklinga til fjöldans. Þess má geta að í sumar starfar sonur Lilju Pálmdóttur og Baltasars Kormáks við sundlaugina, Stormur Kormákur, 12 ára starfs- maður Vinnuskóla Skagafjarðar. Stormur hefur mikið verið fyrir norðan á sumrin, en foreldrar hans eiga glæsilegt hús á Hofi við Hofsós. Með Stormi starfar ung stúlka úr byggðarlaginu, Saga Þórarinsdóttir. Hluti af grunnþjónustu „Að laugin hér á Hofósi hafi skor- að hátt í könnun Moggans kemur ekki á óvart,“ segir Þorvaldur Grön- dal, sem hefur umsjón með laug- unum á Hofsósi, Varmahlíð, Sauð- árkróki og Sólgörðum í Fljótum. Til stendur að hefjast handa um end- urbætur á Króknum nú síðsumars, hvar bæta á aðgengi og búnings- aðstöðu, koma upp leiktækjum, fjölga pottum og svo framvegis. Hafa þessar framkvæmdir lengi ver- ið í bígerð og þykja brýnar. 30 þúsund laugargestir á ári  Ný viðmið á Hofs- ósi  Sjór og útsýni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Laugarstarfsmenn Stormur Baltasarsson og Saga Þórarinsdóttir. Sundlaugin og Drangey í sjást hér baksýn. Sauðárkrókur Sundlaugin á Króknum sem nú stendur til að endurbæta. Þorvaldur Gröndal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.