Fréttablaðið - 30.01.2017, Page 13
sport
Golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
lauk keppni á Pure Silk Bahama
Classic mótinu á Bahamaeyjum í
gærkvöldi. Þetta var frumraun henn-
ar á stærsta sviðinu, LPGA mótaröð-
inni, þeirri sterkustu í heimi.
„Ég er mjög sátt. Það var geggjað
að ná niðurskurði og vera undir pari
á þremur dögum af fjórum,“ sagði
Ólafía í samtali við Fréttablaðið í
gærkvöldi.
Ólafía lauk keppni á fimm högg-
um undir pari og endaði í 69.-72.
sæti af 108 keppendum. Ólafía lék
frábært golf fyrstu tvo keppnisdag-
ana og var samtals á sjö höggum
undir pari eftir þá. Dagur tvö var
sérstaklega góður hjá Ólafíu en þar
tapaði hún ekki höggi, lék á fimm
höggum undir pari og komst auð-
veldlega í gegnum niðurskurðinn.
En fór frammistaðan fram úr hennar
björtustu vonum?
Hugsar væntingalaust
„Ég myndi ekki segja það. Ég hugsa
væntingalaust, þannig stend ég mig
best. Ég trúi að ég geti spilað mjög
vel en hugsa ekki mikið um það,“
sagði Ólafía.
Henni tókst ekki jafn vel upp á
þriðja deginum. Þar fékk Ólafía
fimm skolla, aðeins einn fugl og
tók tvisvar sinnum víti á hringnum.
Hún lék þriðja hringinn á samtals
fjórum höggum yfir pari.
Leið skringilega
Ólafía segir að henni hafi liðið
undar lega á laugardaginn og hrein-
lega ekki verið með sjálfri sér.
„Dagar eitt, tvö og fjögur voru
mjög svipaðir. Það fóru bara fleiri
pútt ofan í annan daginn. Þriðji
dagurinn var „off-dagur“. Mér leið
skringilega og gat ekki einbeitt mér.
Mér leið eins og einhverri allt ann-
arri,“ sagði Ólafía sem
útilokar ekki að þreyta
hafi gert vart við sig.
Hún fór í stóra
kjálkaaðgerð fyrir jól
en það getur tekið
nokkrar vikur að jafna
sig á henni.
„Það gæti verið. Ég var
svolítið þreytt. En ég
var aðeins frísk-
ari í dag og
náði að hvíl-
ast vel. Ég fór
líka til sjúkra-
þjálfara og
fékk nudd,“
sagði Ólafía
sem náði sér
mun betur á
strik í gær. Þar
fékk hún fjóra
fugla og lék
alls á tveimur
höggum undir
pari.
Vinkonan
hjálpaði til
Mótið á Bahama-
eyjum er það
stærsta á ferli
Ólafíu. Þrátt fyrir
það segist hún
ekki hafa fundið
fyrir stressi úti á
vellinum. Það hafi
líka hjálpað að vera
með vinkonu sinni
í ráshóp fyrstu tvo
dagana.
„Þetta var ótrúlega
gaman og ekkert stress. Ég var hepp-
in að vera með Cheyenne Woods í
ráshóp, það hjálpaði mér mikið
að vera afslöppuð. Það var mjög
gaman hjá okkur,“ sagði Ólafía en
þær Woods voru saman í Wake For-
est-háskólanum í Norður-Karólínu.
Ástralía næst á dagskrá
Ólafía segir að frammistaðan á mót-
inu á Bahamaeyjum gefi henni byr
undir báða vængi fyrir framhaldið.
„Þetta gefur mér meira sjálfstraust
og meiri reynslu. Ég held áfram að
reyna að bæta mig,“ sagði Ólafía
sem ætlar að slappa af á Bahama-
eyjum í dag. Síðan tekur við undir-
búningur fyrir næsta mót sem fer
fram í Adelaide í Ástralíu 16.-19.
febrúar.
„Ég tek einn aukadag hér og fer
svo til Orlando í fimm daga. Ég kem
svo til Íslands og nokkrum dögum
síðar fer ég til Ástralíu,“ sagði Ólafía
sem býst við að undirbúningurinn
fyrir mótið í Ástralíu verði svipaður
og fyrir mótið um helgina.
„Mesta áherslan er á stutta spilið
og gæði í slættinum. Ég held að ég sé
á réttri leið með æfingarnar.“
Geggjað að vera undir
pari þrjá af fjórum
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir þreytti frumraun sína á LPGA-mótaröð-
inni í golfi á Bahamaeyjum. Ólafía lék samtals á fimm höggum undir
pari. Hún átti erfitt uppdráttar á laugardaginn en náði sér á strik í gær.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fann sig vel á Ocean vellinum á Bahamaeyjum þar sem Pure Silk Bahama Classic-mótið fór fram. Þetta var hennar fyrsta mót á LPGA-mótaröðinni í golfi. LjÓSmynd/GOLf.iS/SetH
Þetta
gefur
mér meira
sjálfstraust og
meiri reynslu.
Ég held áfram
að reyna að
bæta mig.
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
18
metra munur á högglengd
Ólafíu Þórunnar á öðrum og
þriðja degi mótsins.
Ingvi Þór
Sæmundsson
ingvithor@365.is
3
0
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
1
8
-0
5
F
4
1
C
1
8
-0
4
B
8
1
C
1
8
-0
3
7
C
1
C
1
8
-0
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K