Fréttablaðið - 30.01.2017, Síða 13

Fréttablaðið - 30.01.2017, Síða 13
sport Golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lauk keppni á Pure Silk Bahama Classic mótinu á Bahamaeyjum í gærkvöldi. Þetta var frumraun henn- ar á stærsta sviðinu, LPGA mótaröð- inni, þeirri sterkustu í heimi. „Ég er mjög sátt. Það var geggjað að ná niðurskurði og vera undir pari á þremur dögum af fjórum,“ sagði Ólafía í samtali við Fréttablaðið  í gærkvöldi. Ólafía lauk keppni á fimm högg- um undir pari og endaði í 69.-72. sæti af 108 keppendum. Ólafía lék frábært golf fyrstu tvo keppnisdag- ana og var samtals á sjö höggum undir pari eftir þá. Dagur tvö var sérstaklega góður hjá Ólafíu en þar tapaði hún ekki höggi, lék á fimm höggum undir pari og komst auð- veldlega í gegnum niðurskurðinn. En fór frammistaðan fram úr hennar björtustu vonum? Hugsar væntingalaust „Ég myndi ekki segja það. Ég hugsa væntingalaust, þannig stend ég mig best. Ég trúi að ég geti spilað mjög vel en hugsa ekki mikið um það,“ sagði Ólafía. Henni tókst ekki jafn vel upp á þriðja deginum. Þar fékk Ólafía fimm skolla, aðeins einn fugl og tók tvisvar sinnum víti á hringnum. Hún lék þriðja hringinn á samtals fjórum höggum yfir pari. Leið skringilega Ólafía segir að henni hafi liðið undar lega á laugardaginn og hrein- lega ekki verið með sjálfri sér. „Dagar eitt, tvö og fjögur voru mjög svipaðir. Það fóru bara fleiri pútt ofan í annan daginn. Þriðji dagurinn var „off-dagur“. Mér leið skringilega og gat ekki einbeitt mér. Mér leið eins og einhverri allt ann- arri,“ sagði Ólafía sem útilokar ekki að þreyta hafi gert vart við sig. Hún fór í stóra kjálkaaðgerð fyrir jól en það getur tekið nokkrar vikur að jafna sig á henni. „Það gæti verið. Ég var svolítið þreytt. En ég var aðeins frísk- ari í dag og náði að hvíl- ast vel. Ég fór líka til sjúkra- þjálfara og fékk nudd,“ sagði Ólafía sem náði sér mun betur á strik í gær. Þar fékk hún fjóra fugla og lék alls á tveimur höggum undir pari. Vinkonan hjálpaði til Mótið á Bahama- eyjum er það stærsta á ferli Ólafíu. Þrátt fyrir það segist hún ekki hafa fundið fyrir stressi úti á vellinum. Það hafi líka hjálpað að vera með vinkonu sinni í ráshóp fyrstu tvo dagana. „Þetta var ótrúlega gaman og ekkert stress. Ég var hepp- in að vera með Cheyenne Woods í ráshóp, það hjálpaði mér mikið að vera afslöppuð. Það var mjög gaman hjá okkur,“ sagði Ólafía en þær Woods voru saman í Wake For- est-háskólanum í Norður-Karólínu. Ástralía næst á dagskrá Ólafía segir að frammistaðan á mót- inu á Bahamaeyjum gefi henni byr undir báða vængi fyrir framhaldið. „Þetta gefur mér meira sjálfstraust og meiri reynslu. Ég held áfram að reyna að bæta mig,“ sagði Ólafía sem ætlar að slappa af á Bahama- eyjum í dag. Síðan tekur við undir- búningur fyrir næsta mót sem fer fram í Adelaide í Ástralíu 16.-19. febrúar. „Ég tek einn aukadag hér og fer svo til Orlando í fimm daga. Ég kem svo til Íslands og nokkrum dögum síðar fer ég til Ástralíu,“ sagði Ólafía sem býst við að undirbúningurinn fyrir mótið í Ástralíu verði svipaður og fyrir mótið um helgina. „Mesta áherslan er á stutta spilið og gæði í slættinum. Ég held að ég sé á réttri leið með æfingarnar.“ Geggjað að vera undir pari þrjá af fjórum Ólafía Þórunn Kristinsdóttir þreytti frumraun sína á LPGA-mótaröð- inni í golfi á Bahamaeyjum. Ólafía lék samtals á fimm höggum undir pari. Hún átti erfitt uppdráttar á laugardaginn en náði sér á strik í gær. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fann sig vel á Ocean vellinum á Bahamaeyjum þar sem Pure Silk Bahama Classic-mótið fór fram. Þetta var hennar fyrsta mót á LPGA-mótaröðinni í golfi. LjÓSmynd/GOLf.iS/SetH Þetta gefur mér meira sjálfstraust og meiri reynslu. Ég held áfram að reyna að bæta mig. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 18 metra munur á högglengd Ólafíu Þórunnar á öðrum og þriðja degi mótsins. Ingvi Þór Sæmundsson ingvithor@365.is 3 0 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 1 8 -0 5 F 4 1 C 1 8 -0 4 B 8 1 C 1 8 -0 3 7 C 1 C 1 8 -0 2 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.