Morgunblaðið - 21.07.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016
Ljósmynd/Freyja Gylfa
Ungir frumkvöðlar Hópurinn á bak við SÖLVA Chocolates er sá yngsti sem tekur þátt í Startup Reykjavík í sum-
ar. Efri röð frá vinstri: Sveinn Ólafur, Lára Borg og Áshildur. Neðri röð frá vinstri: Jórunn María og Unnur Svala.
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
SÖLVA Chocolates sam-anstendur af Láru BorgLárusdóttur, Sveini ÓlafiLúðvíkssyni, Áshildi Frið-
riksdóttur, Jórunni Maríu Þor-
steinsdóttur og Unni Svölu Vil-
hjálmsdóttur, bekkjarfélögum úr
Verzló. Þau útskrifuðust í vor og
meðal áfanga sem þau sátu á síðustu
önninni var valáfangi í frum-
kvöðlafræði sem nemum á við-
skipta- og hagfræðibraut stendur til
boða. „Við vorum vinir fyrir en ekki
svona góðir. Þetta er búið að ýta
okkur mikið saman,“ segir Lára og
Unnur tekur undir. „Það hefur
gengið mjög vel að vinna saman, en
hóparnir voru myndaðir af bekkjar-
félögum.“ „Við neyddumst því til að
vera saman,“ segir Áshildur, og
hlær.
Vinirnir eru sammála um að
áfanginn ætti að vera í boði fyrir
nemendur á öllum brautum skólans.
„Það hafa allir áhuga á að taka þátt,
þetta er spennandi áfangi sem nýt-
ist öllum. Við værum ekki hér ef við
hefðum ekki tekið þennan áfanga,“
segir Unnur. Hópurinn tekur þátt í
viðskiptahraðlinum Startup Reykja-
vík í sumar, en þær dyr opnuðust
þegar fyrirtækið var valið fyrirtæki
ársins í vor í samkeppni ungra
frumkvöðla, Junior Achievement, á
Íslandi. Í kjölfarið var hópnum boð-
ið á fund í Arion banka, en bankinn
veitir 2,4 milljóna króna fjárfestingu
til sigurvegarans. Áhuginn á frum-
kvöðlastarfi virðist mikill um þessar
mundir þar sem 250 teymi sóttu um
að komast að. Tíu teymi urðu fyrir
valinu að þessu sinni. „Við erum
ótrúlega ánægð hjá Startup Reykja-
vík, þetta er mikill skóli og við erum
að læra alls konar hluti,“ segir Lára.
„Við erum yngst hérna en það eru
allir rosa duglegir að hjálpa hver
öðrum,“ segir Sveinn.
En hvað er svona sérstakt við
frumkvöðlasúkkulaðið?
Sveinn segir svarið einfalt:
„Það elska allir súkkulaði.“ „Við
vildum öll gera vöru sem væri auð-
velt að ná til fólks með og sem allir
myndu elska. Þá kom súkkulaði-
hugmyndin fljótt upp og við urðum
skotin í henni,“ segir Lára. „Það
hefur enginn framleitt matvæli áður
í þessum áfanga, fyrr en núna. Okk-
ur fannst skemmtilegt að gera eitt-
hvað sem allir hafa aðgang að,“ seg-
ir Unnur.
Stunda siðferðileg viðskipti
Hugmyndin varð að veruleika í
frumkvöðlafræðinni í Versló. „Við
þróuðum konseptið á bak við vör-
una, þetta er ekki bara súkkulaði,
heldur hágæðavara. Súkkulaðið er
unnið úr kakóbaunum frá fyrirtæk-
inu Kokoa Kamili í Tansaníu. Fyr-
irtækið notar stóran hluta af hagn-
aði sínum í að byggja upp skóla,
spítala og munaðarleysingjaheimili í
landinu,“ segir Lára. „Fyrirtækið
leggur einnig mikið upp úr því að
bæta kjör bænda í Tansaníu,“ bætir
Sveinn við. „Við vildum vera með-
vituð um það og vekja einnig athygli
á því meðal almennings. Við völdum
því „fair trade“-fyrirtæki því okkur
finnst mikilvægt að stunda siðferði-
leg viðskipti,“ segir Áshildur.
Hönnun og útlit súkkulaðisins
skiptir einnig máli og hefur hóp-
urinn leikið sér með litað kakósmjör
sem setur skemmtilegan svip á
súkkulaðið. „Við litum kakósmjörið
sem er hluti af innihaldi súkku-
laðisins og slettum því í formin og
setjum svo súkkulaði yfir,“ segir
Lára. Varan er í sífelldri þróun og
nafnið, SÖLVA Chocolates, er nýtt
og ferskt, en áður hét fyrirtækið
Moon Chocolate. „Okkur finnst nýja
nafnið passa betur við hágæða-
súkkulaðið sem varan okkar er.
Þetta er sænskt nafn, við vildum
vísa í Norðurlöndin og vekja athygli
bæði meðal Íslendinga, annarra
Norðurlandabúa og vonandi ferða-
manna,“ segir Lára.
Fyrirtækið er komið með eigið
húsnæði og von er á framleiðslu-
vélum innan skamms. Framleiðsla á
SÖLVA Chocolates mun því að öll-
um líkindum hefjast í haust. Þegar
fyrirtækið steig sín fyrstu skref í
byrjun árs fékk hópurinn góða leið-
sögn hjá súkkulaðiframleiðend-
unum hjá Omnom. „Þeir voru frá-
bærir og gáfu sér tíma til að kenna
okkur. Þeir sögðust fagna sam-
keppninni, sem er frábært,“ segir
Unnur.
Í dag eru bragðtegundirnar
fjórar en fleiri eru í þróun. „Við er-
um með 45% súkkulaði í nokkrum
útgáfum: mjólkursúkkulaði, súkku-
laði með þurrkuðum berjum, salt-
karamellu og lakkríssalti. Svo mun-
um við koma inn með dökkt
súkkulaði og hvítt súkkulaði,“ segir
Lára. „Okkar draumur er svo að
fara til Tansaníu, hitta bændurna og
kynnast starfseminni þar. Við erum
mjög spennt fyrir framhaldinu,“
segir Unnur. Framtíðarsýnin er að
auka vöruúrvalið enn frekar og
bjóða upp á trufflur og konfekt.
„Seinna meir langar okkur að bjóða
upp á árstíðabundnar vörur, eins og
páskaegg,“ segir Sveinn.
Taka þátt í Evrópukeppni
ungra frumkvöðla í Sviss
Það eru svo sannarlega spenn-
andi tímar framundan. Næstkom-
andi mánudag heldur hópurinn til
Sviss þar sem þau munu taka þátt í
Evrópukeppni Junior Achievement,
ásamt 40 öðrum frumkvöðlafyr-
irtækjum. „Við förum í viðtal hjá
dómnefnd og verðum með vöru-
kynningu. Á lokadeginum kynnum
við svo vöruna fyrir öllum,“ segir
Unnur. Ásamt öllu þessu mun hóp-
urinn sitja alls konar námskeið.
„Svo má ekki gleyma samfélags-
miðlakeppninni á Facebook,“ segir
Lára. Á Facebook-síðu Junior Achi-
evement í Evrópu má finna stutta
umfjöllun og mynd af öllum kepp-
endunum og sá hópur sem fær flest
„like“ fyrir 26. júlí fær aukna at-
hygli frá dómnefndinni. „Við erum í
forystu eins og er,“ segir Lára, sem
er ánægð með hversu öflugir Íslend-
ingar eru á samfélagsmiðlum.
Hópurinn hyggst einnig ætla að
nýta sér þann mikla meðbyr sem Ís-
land hefur fengið í sumar í kjölfar
góðs gengis á Evrópumótinu í
knattspyrnu í Frakklandi. „Það hafa
allir áhuga á Íslandi og við tökum
örugglega bara eitt gott Hú! í lok
kynningarinnar,“ segir Unnur og
hlær. Þau eru öll sammála um að
það muni koma þeim langt í keppn-
inni að vera að vinna að uppbygg-
ingu fyrirtækisins í allt sumar. „Við
erum líklega eina fyrirtækið í þeirri
stöðu,“ segir Unnur. „Þetta er mjög
skemmtilegt ævintýri sem hefur
gerst bara á nokkrum mánuðum.
Við erum með hundraðþúsund hug-
myndir, en við vitum hvar við ætlum
að byrja og vitum að það tekur tíma
að byggja þetta upp.“
„Það elska allir súkkulaði“
SÖLVA Chocolates er fyr-
irtæki sem selur handgert
hágæðasúkkulaði úr
kakóbaunum frá Tansan-
íu. Fyrirtækið er skipað
fimm nýstúdentum úr
Verzló og var valið fyrir-
tæki ársins í samkeppni
ungra frumkvöðla, Junior
Achievement, á Íslandi. Í
næstu viku taka þau þátt
í Evrópukeppni ungra
frumkvöðla í Sviss.
Litadýrð Útlitið skiptir máli jafnt sem bragðið. Kakósmjör í ýmsum litum
er notað til að gefa súkkulaðinu frá SÖLVA Chocolates skemmtilegan blæ.
Þegar allir
fimm með-
limir fyrirtæk-
isins völdu
frumkvöðla-
áfangann á
síðustu önn-
inni sinni í
Verzló í vor
grunaði þau
ekki að lífið
myndi snúast nánast alfarið um
súkkulaði nokkrum vikum
seinna. Einhver þeirra höfðu
hugsað sér að taka sér frí,
ferðast eða vinna að lokinni út-
skrift. „Þetta verður bara okkar
vinna,“ segir Lára. Áshildur er
sú eina sem ætlar í nám í haust,
en hún komst inn í grafíska
hönnun í Listaháskólanum.
„Hún er hönnuðurinn okkar og
þetta er bara fjárfesting og mun
nýtast mjög vel,“ segir Lára.
Lífið snýst
um súkkulaði
HÁSKÓLANÁM OG
FERÐALÖG SETT Á BIÐ Í BILI
SÖLVA Með
saltkaramellu
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.