Morgunblaðið - 21.07.2016, Síða 12

Morgunblaðið - 21.07.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016 Ljósmynd/Freyja Gylfa Ungir frumkvöðlar Hópurinn á bak við SÖLVA Chocolates er sá yngsti sem tekur þátt í Startup Reykjavík í sum- ar. Efri röð frá vinstri: Sveinn Ólafur, Lára Borg og Áshildur. Neðri röð frá vinstri: Jórunn María og Unnur Svala. Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is SÖLVA Chocolates sam-anstendur af Láru BorgLárusdóttur, Sveini ÓlafiLúðvíkssyni, Áshildi Frið- riksdóttur, Jórunni Maríu Þor- steinsdóttur og Unni Svölu Vil- hjálmsdóttur, bekkjarfélögum úr Verzló. Þau útskrifuðust í vor og meðal áfanga sem þau sátu á síðustu önninni var valáfangi í frum- kvöðlafræði sem nemum á við- skipta- og hagfræðibraut stendur til boða. „Við vorum vinir fyrir en ekki svona góðir. Þetta er búið að ýta okkur mikið saman,“ segir Lára og Unnur tekur undir. „Það hefur gengið mjög vel að vinna saman, en hóparnir voru myndaðir af bekkjar- félögum.“ „Við neyddumst því til að vera saman,“ segir Áshildur, og hlær. Vinirnir eru sammála um að áfanginn ætti að vera í boði fyrir nemendur á öllum brautum skólans. „Það hafa allir áhuga á að taka þátt, þetta er spennandi áfangi sem nýt- ist öllum. Við værum ekki hér ef við hefðum ekki tekið þennan áfanga,“ segir Unnur. Hópurinn tekur þátt í viðskiptahraðlinum Startup Reykja- vík í sumar, en þær dyr opnuðust þegar fyrirtækið var valið fyrirtæki ársins í vor í samkeppni ungra frumkvöðla, Junior Achievement, á Íslandi. Í kjölfarið var hópnum boð- ið á fund í Arion banka, en bankinn veitir 2,4 milljóna króna fjárfestingu til sigurvegarans. Áhuginn á frum- kvöðlastarfi virðist mikill um þessar mundir þar sem 250 teymi sóttu um að komast að. Tíu teymi urðu fyrir valinu að þessu sinni. „Við erum ótrúlega ánægð hjá Startup Reykja- vík, þetta er mikill skóli og við erum að læra alls konar hluti,“ segir Lára. „Við erum yngst hérna en það eru allir rosa duglegir að hjálpa hver öðrum,“ segir Sveinn. En hvað er svona sérstakt við frumkvöðlasúkkulaðið? Sveinn segir svarið einfalt: „Það elska allir súkkulaði.“ „Við vildum öll gera vöru sem væri auð- velt að ná til fólks með og sem allir myndu elska. Þá kom súkkulaði- hugmyndin fljótt upp og við urðum skotin í henni,“ segir Lára. „Það hefur enginn framleitt matvæli áður í þessum áfanga, fyrr en núna. Okk- ur fannst skemmtilegt að gera eitt- hvað sem allir hafa aðgang að,“ seg- ir Unnur. Stunda siðferðileg viðskipti Hugmyndin varð að veruleika í frumkvöðlafræðinni í Versló. „Við þróuðum konseptið á bak við vör- una, þetta er ekki bara súkkulaði, heldur hágæðavara. Súkkulaðið er unnið úr kakóbaunum frá fyrirtæk- inu Kokoa Kamili í Tansaníu. Fyr- irtækið notar stóran hluta af hagn- aði sínum í að byggja upp skóla, spítala og munaðarleysingjaheimili í landinu,“ segir Lára. „Fyrirtækið leggur einnig mikið upp úr því að bæta kjör bænda í Tansaníu,“ bætir Sveinn við. „Við vildum vera með- vituð um það og vekja einnig athygli á því meðal almennings. Við völdum því „fair trade“-fyrirtæki því okkur finnst mikilvægt að stunda siðferði- leg viðskipti,“ segir Áshildur. Hönnun og útlit súkkulaðisins skiptir einnig máli og hefur hóp- urinn leikið sér með litað kakósmjör sem setur skemmtilegan svip á súkkulaðið. „Við litum kakósmjörið sem er hluti af innihaldi súkku- laðisins og slettum því í formin og setjum svo súkkulaði yfir,“ segir Lára. Varan er í sífelldri þróun og nafnið, SÖLVA Chocolates, er nýtt og ferskt, en áður hét fyrirtækið Moon Chocolate. „Okkur finnst nýja nafnið passa betur við hágæða- súkkulaðið sem varan okkar er. Þetta er sænskt nafn, við vildum vísa í Norðurlöndin og vekja athygli bæði meðal Íslendinga, annarra Norðurlandabúa og vonandi ferða- manna,“ segir Lára. Fyrirtækið er komið með eigið húsnæði og von er á framleiðslu- vélum innan skamms. Framleiðsla á SÖLVA Chocolates mun því að öll- um líkindum hefjast í haust. Þegar fyrirtækið steig sín fyrstu skref í byrjun árs fékk hópurinn góða leið- sögn hjá súkkulaðiframleiðend- unum hjá Omnom. „Þeir voru frá- bærir og gáfu sér tíma til að kenna okkur. Þeir sögðust fagna sam- keppninni, sem er frábært,“ segir Unnur. Í dag eru bragðtegundirnar fjórar en fleiri eru í þróun. „Við er- um með 45% súkkulaði í nokkrum útgáfum: mjólkursúkkulaði, súkku- laði með þurrkuðum berjum, salt- karamellu og lakkríssalti. Svo mun- um við koma inn með dökkt súkkulaði og hvítt súkkulaði,“ segir Lára. „Okkar draumur er svo að fara til Tansaníu, hitta bændurna og kynnast starfseminni þar. Við erum mjög spennt fyrir framhaldinu,“ segir Unnur. Framtíðarsýnin er að auka vöruúrvalið enn frekar og bjóða upp á trufflur og konfekt. „Seinna meir langar okkur að bjóða upp á árstíðabundnar vörur, eins og páskaegg,“ segir Sveinn. Taka þátt í Evrópukeppni ungra frumkvöðla í Sviss Það eru svo sannarlega spenn- andi tímar framundan. Næstkom- andi mánudag heldur hópurinn til Sviss þar sem þau munu taka þátt í Evrópukeppni Junior Achievement, ásamt 40 öðrum frumkvöðlafyr- irtækjum. „Við förum í viðtal hjá dómnefnd og verðum með vöru- kynningu. Á lokadeginum kynnum við svo vöruna fyrir öllum,“ segir Unnur. Ásamt öllu þessu mun hóp- urinn sitja alls konar námskeið. „Svo má ekki gleyma samfélags- miðlakeppninni á Facebook,“ segir Lára. Á Facebook-síðu Junior Achi- evement í Evrópu má finna stutta umfjöllun og mynd af öllum kepp- endunum og sá hópur sem fær flest „like“ fyrir 26. júlí fær aukna at- hygli frá dómnefndinni. „Við erum í forystu eins og er,“ segir Lára, sem er ánægð með hversu öflugir Íslend- ingar eru á samfélagsmiðlum. Hópurinn hyggst einnig ætla að nýta sér þann mikla meðbyr sem Ís- land hefur fengið í sumar í kjölfar góðs gengis á Evrópumótinu í knattspyrnu í Frakklandi. „Það hafa allir áhuga á Íslandi og við tökum örugglega bara eitt gott Hú! í lok kynningarinnar,“ segir Unnur og hlær. Þau eru öll sammála um að það muni koma þeim langt í keppn- inni að vera að vinna að uppbygg- ingu fyrirtækisins í allt sumar. „Við erum líklega eina fyrirtækið í þeirri stöðu,“ segir Unnur. „Þetta er mjög skemmtilegt ævintýri sem hefur gerst bara á nokkrum mánuðum. Við erum með hundraðþúsund hug- myndir, en við vitum hvar við ætlum að byrja og vitum að það tekur tíma að byggja þetta upp.“ „Það elska allir súkkulaði“ SÖLVA Chocolates er fyr- irtæki sem selur handgert hágæðasúkkulaði úr kakóbaunum frá Tansan- íu. Fyrirtækið er skipað fimm nýstúdentum úr Verzló og var valið fyrir- tæki ársins í samkeppni ungra frumkvöðla, Junior Achievement, á Íslandi. Í næstu viku taka þau þátt í Evrópukeppni ungra frumkvöðla í Sviss. Litadýrð Útlitið skiptir máli jafnt sem bragðið. Kakósmjör í ýmsum litum er notað til að gefa súkkulaðinu frá SÖLVA Chocolates skemmtilegan blæ. Þegar allir fimm með- limir fyrirtæk- isins völdu frumkvöðla- áfangann á síðustu önn- inni sinni í Verzló í vor grunaði þau ekki að lífið myndi snúast nánast alfarið um súkkulaði nokkrum vikum seinna. Einhver þeirra höfðu hugsað sér að taka sér frí, ferðast eða vinna að lokinni út- skrift. „Þetta verður bara okkar vinna,“ segir Lára. Áshildur er sú eina sem ætlar í nám í haust, en hún komst inn í grafíska hönnun í Listaháskólanum. „Hún er hönnuðurinn okkar og þetta er bara fjárfesting og mun nýtast mjög vel,“ segir Lára. Lífið snýst um súkkulaði HÁSKÓLANÁM OG FERÐALÖG SETT Á BIÐ Í BILI SÖLVA Með saltkaramellu Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Landsins mesta úrval af trommum í öllum verð�lokkum. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.