Morgunblaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016
Andrea Göppner, 45 ára Þjóðverji,
var í gær fundin sek um að hafa
banað fjórum nýfæddum börnum
sínum og var hún í kjölfarið dæmd í
14 ára fangelsi. Fyrrverandi eigin-
maður hennar, Johann Göppner,
var sýknaður, en hann hafði verið
ákærður fyrir að hafa ekki reynt að
koma í veg fyrir morðin.
Jarðneskar leifar barnanna fund-
ust í íbúð Göppner í bænum Wallen-
fels í Bæjaralandi, mörgum árum
eftir að þau voru myrt, og voru þær
vafðar inn í plastpoka. Voru nýbur-
arnir myrtir á tíu ára tímabili, þ.e.
frá árinu 2003 til 2013.
Þá fundust einnig fjögur önnur
barnslík í húsinu. Saksóknara tókst
hins vegar ekki að fá Andreu
dæmda seka fyrir morð á þeim þar
sem eitt barnanna fæddist andvana
en lík hinna þriggja voru svo illa
farin að ekki var hægt að segja til
um banamein þeirra.
Andrea viðurkenndi morðin og
sagðist hafa fætt öll börnin heima,
vafið þau inn í handklæði og kæft
þau sem hreyfðu sig eða grétu.
AFP
Morðingi Andrea Göppner huldi andlit sitt með möppu fyrir fjölmiðlum.
Móðir myrti börn
sín eftir fæðingu
Ódæðismaðurinn
Mohammed
Riyad, sem vopn-
aður exi og hnífi
réðst á lestarfar-
þega nálægt
Würzburg sl.
mánudagskvöld,
er talinn vera
hælisleitandi frá
Pakistan, en í fyrstu var hann sagð-
ur vera Afgani. Þrír særðust alvar-
lega og einn hlaut minni áverka.
Thomas de Maiziere, innanríkis-
ráðherra Þjóðverja, segir að Riyad
hafi staðið einn að árásinni en að-
hyllst stefnu og málstað víga-
samtaka Ríkis íslams.
ÞÝSKALAND
Nú sagður hælisleit-
andi frá Pakistan
„Bandaríski sjó-
herinn mun
áfram halda úti
sínum venju-
bundnu og lög-
legu aðgerðum
um allan heim,
þar á meðal í
Suður-Kínahafi,“
segir John Rich-
ardson flotaforingi, en stjórnvöld í
Kína segjast eiga rétt á því að eigna
sér svæði á Suður-Kínahafi þrátt
fyrir að gerðardómstóll við Al-
þjóðadómstólinn í Haag segi annað.
Bandaríkjamenn hafa ítrekað
boðið Kínverjum birginn með því
að sigla tundurspillum inn á svæðið.
SUÐUR-KÍNAHAF
Bandaríkin halda
óbreyttri stefnu
Evrópulögreglan (Europol) segir
ríki Evrópu nú standa frammi fyrir
mikilli ógn og að árásum, þar sem
árásarmaður er einn að verki, eigi
eftir að fjölga mjög. Europol segir
að þær aðgerðir sem notast hafi
verið við í árásunum í Nice í Frakk-
landi og í lest við Würzburg í
Þýskalandi séu í uppáhaldi hjá Ríki
íslams og al-Kaída. „Bæði samtök
hafa beðið múslima á Vestur-
löndum um að framkvæma árásir í
sínum heimalöndum.“
EUROPOL
Mikil ógn steðjar nú
að ríkjum Evrópu
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Skjót viðbrögð Receps Tayyips Erd-
ogans, forseta Tyrklands, við valda-
ránstilrauninni misheppnuðu í vik-
unni sem leið hafa vakið mikla athygli
um heim allan, en í gær höfðu yfirvöld
handtekið eða leyst frá störfum yfir
50.000 manns.
Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir
frá því að búið sé að ákæra 99 hers-
höfðingja og flotaforingja fyrir að hafa
skipulagt og tekið þátt í valdaránstil-
rauninni. Fleiri bíða ákæru úr röðum
tyrkneska hersins.
Að sögn tyrkneskra fjölmiðla hefur
menntamálaráð stjórnvalda farið
fram á að 1.577 deildarforsetar tyrk-
neskra ríkisháskóla segi af sér auk
þess sem búið er að reka um 15.200
aðra starfsmenn ríkisrekinna skóla.
Þá hafa um 21.000 kennarar misst
kennsluréttindi sín. Áðurnefndir ein-
staklingar eru sakaðir um tengsl við
klerkinn Fethullah Gülen sem sagður
er hafa staðið fyrir valdaránstilraun-
inni. Hefur fræðimönnum einnig verið
bannað að yfirgefa Tyrkland.
Aðgerðir Erdogans forseta hafa
snert fleiri ríkisstarfsmenn. Má þann-
ig nefna að búið er að reka um 8.000
lögreglumenn, 1.500 starfsmenn í
fjármálaráðuneytinu, 257 starfsmenn
í forsætisráðuneytinu og um 750
dómara og saksóknara. Þá hafa
minnst 24 fjölmiðlafyrirtæki í land-
inu misst leyfi sín til reksturs.
Verða að fara eftir lögum
Mannréttindasamtökin Amnesty
International segja alþjóðasam-
félagið nú verða vitni að gríðarlega
viðamiklum hreinsunum í Tyrk-
landi.
„Þó það sé skiljanlegt og löglegt
að stjórnvöld vilji rannsaka og refsa
þeim sem bera ábyrgð á þessari
blóðugu tilraun til valdaráns, verða
þau að fara eftir lögum og virða
frelsi og tjáningarrétt,“ segir And-
rew Gardner hjá Amnesty
International, í samtali við BBC.
Fréttamaður AFP, sem staddur
er í Istanbúl, gaf sig á tal við nokkra
íbúa. Þeir vildu ekki koma fram
undir nafni en sögðust uggandi yfir
gangi mála innanlands.
„Nornaveiðar virðast hafnar,“
sagði 25 ára gamall háskólanemi.
„Ég styð ekki stjórnvöld, en valda-
rán er aldrei lausnin,“ sagði annar
karlmaður og hélt áfram: „Allir eru
hræddir um hvað gerist næst.“
Um 300 manns eru sögð hafa fall-
ið í þeim átökum sem fylgdu valda-
ránstilrauninni og 1.100 manns til
viðbótar eru sögð hafa særst.
Nornaveiðar í fullum gangi
Viðbrögð Erdogans Tyrklandsforseta við valdaránstilrauninni hafa snert um
50.000 manns Búið að ákæra 99 yfirmenn í hernum Margir óttast næstu skref
AFP
Í haldi Hermenn sem tóku þátt í valdaránstilrauninni fluttir í dómhús.
„Við fengum tilkynningu um mann
sem hegðaði sér grunsamlega. Ein-
hver sem er í þykkum vetrarjakka í
þessum hita – hann er mjög grun-
samlegur,“ segir Christian De Con-
inck, hjá lögreglunni í Brussel, í
samtali við breska ríkisútvarpið
(BBC), en hiti var þá um 30 stig.
Vísar hann í máli sínu til þess að
lögreglan í Brussel í Belgíu rýmdi
verslanir og lokaði götum eftir að
fólk veitti manni, sem það taldi grun-
samlegan, eftirtekt. Var óttast að
hann væri með sprengjuvesti innan-
klæða, að sögn BBC. „Það sáust
einnig vírar koma út úr jakkanum.
Við tókum enga áhættu og var við-
komandi stöðvaður og haldið í
öruggri fjarlægð,“ segir Coninck.
Sérfræðingar sendir á staðinn
Maðurinn var fljótlega yfirbugað-
ur af fjölmennu lögregluliði og skoð-
uðu sprengjusérfræðingar fatnað
hans. Engin hætta reyndist á ferðum
og er hinn grunaði sprengjumaður
nemandi í kjarnorku- og geislunar-
fræði í háskólanum í Brussel.
Töldu nema vera sprengjumann
AFP
Lokað Fólki var haldið frá vettvangi og hermenn voru kallaðir út.
Lögregla kölluð út eftir að vetrar-
jakki háskólanema vakti athygli fólks