Morgunblaðið - 21.07.2016, Síða 23

Morgunblaðið - 21.07.2016, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016 ✝ AðalheiðurÍsleifsdóttir fæddist 17. júní 1928 á Læk í Ölf- usi. Hún lést á Landspítalanum 13. júlí 2016. Foreldrar henn- ar voru Ísleifur Einarsson, f. 5. október 1874, frá Ási í Holtum í Rangárvallasýslu, d. 24. júlí 1960, og Kristín Jóhannsdóttir, f. 28. september 1883 á Eyrarbakka, d. 6. apríl 1955. Alsystir Aðalheiðar var Kristín Ísleifsdóttir, f. 1927, d. 1969. Sammæðra átti Að- alheiður fimm systkini og eru þau öll látin. Samfeðra átti hún tvær systur, önnur þeirra er lát- in en Sigríður Ísafold Ísleifs- dóttir, f. 1935, lifir systur sína. Aðalheiður giftist 1. október 1949 Kára Söebeck Kristjáns- syni, f. 11. ágúst 1928, frá Ísa- firði, d. 27. apríl 2013. For- eldrar hans voru Kristján Rannveigu Rafnsdóttur banka- manni. Sonur Tryggva er Sig- urður Tryggvi. 4) Trausti Kára- son, f. 11. janúar 1960, giftur Selmu Rut Magnúsdóttur og eiga þau þrjú börn, Tinnu Rut, Írisi Ösp og Davíð Örn. Barna- barnabörnin eru tólf og eitt á leiðinni. Aðalheiður fæddist á Læk í Ölfusi og ólst þar upp í for- eldrahúsum. Aðalheiður var heimavinnandi sín fyrstu bú- skaparár að hugsa um börnin fjögur. Nokkur ár var hún erlendis, fyrstu fjögur árin í Austur-Þýskalandi frá 1958 til 1962, eitt ár í Hollandi, 1974, og þrjú ár í Póllandi, frá 1988 til 1991, en árin erlendis var hún að fylgja manni sínum sem starfaði fyrir Siglingamála- stofnun ríkisins. Aðalheiður starfaði í Þvottahúsi ríkisspít- ala, þaðan færði hún sig til Osta- og smjörsölunnar og um langt skeið starfaði hún við mötuneytið hjá Ríkisútvarpinu, bæði á Skúlagötunni og svo í Efstaleiti. Einnig starfaði hún í matsölu fyrir nemendur í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Útför Aðalheiðar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 21. júlí 2016, og hefst athöfnin kl. 13. Söebeck Jónsson, f. 28. mars 1906 að Gröf í Bitrufirði á Ströndum, d. 22. ágúst 1975, og Sig- ríður Ingibjörg Tryggvadóttir, f. 23. september 1900 á Skálanesi í Gufu- dalssveit, d. 16. desember 1942. Að- alheiður og Kári eignuðust fjögur börn: 1) Kristín Káradóttir, f. 1. maí 1949, d. 20. febrúar 2014, en maður hennar var Hlöðver Einarsson vélstjóri, sem fórst með Suðurlandinu á jólanótt 1986 og eignuðust þau tvö börn, Sigurð Helga og Hlín. Seinni maður Kristínar er Albert Sig- tryggsson sjómaður og á hann þrjá syni. 2) Sigríður Káradótt- ir, f. 11 janúar 1951, gift Guð- jóni Guðmundssyni rafvirkja- meistara og eiga þau tvö börn, Kára Þór og Unni. 3) Tryggvi Kárason vélstjóri, f. 9. desem- ber 1956, kvæntur Guðrúnu Það var erfitt að kveðja mömmu eftir snarpa baráttu við krabbamein. Mamma, eða Alla á Mikló eins og hún var oftast köll- uð, var kærleiksrík og traust og umfram allt skemmtileg. Ég hef oft sagt að það hafi verið forréttindi að eiga svona heimili og foreldra. Alltaf hægt að koma og ræða málin við rauða borðið í eldhúsinu á Mikló. Ýmsar uppá- komur yfir árið voru skipulagðar og tóku allir þátt. Mamma var hrókur alls fagn- aðar, orðheppin og sagði skemmtilegar sögur. Mamma naut sín mjög þegar hún gat haft alla sína í kringum sig. Hún var skapgóð, hlý og mikil fjölskyldumanneskja. Mamma fæddist árið 1928 á Læk í Ölfusi, hún var afar stolt af því og minnti okkur reglulega á að við værum af Lækjarættinni. Mamma og pabbi kynnast ung og hann lærði vélfræði, þau búa svo í Austur-Þýskalandi í fjögur ár og þar kynnist hún mörgu fólki sem hefur ennþá samband við okkur. Þetta voru bestu árin, sagði mamma, síðan nokkur ár í Pól- landi. Mamma og pabbi voru af kyn- slóð eftirstríðsáranna og upplifðu miklar þjóðfélagsbreytingar. Mamma vann aðallega á þremur vinnustöðum; Osta- og smjörsöl- unni, Rás 2 og Menntaskólanum við Hamrahlíð. Mamma fékk áhuga á málara- list og málaði nokkrar myndir, einnig hlustaði hún á óperettur. Síðustu æviárin voru róleg en hún fylgdist vel með þjóðmálum og dægurmálum og oft settist maður niður við rauða borðið og spjallaði við hana, hún hafði sínar sterku skoðanir. Hún fylgdist ekki síður vel með fjölskylduni í gegnum Fa- cebook, þá 88 ára. Hvíl þú í friði, elsku mamma. Tryggvi. Í dag kveðjum við elskulega tengdamóður mína, hana Öllu. Það sem ég var heppin að kynnast og eyða rúmlega þrjátíu árum með þessari skemmtilegu, dug- legu og hlýju konu. Það var gott að vera með Öllu, endalaust hægt að spjalla um allt milli himins og jarðar og þá var helst setið við eldhúsborðið. Eld- húsborðið var hjarta heimilisins, alltaf gat Alla bætt stólum við borðið eftir því sem gestum fjölg- aði og svo töfraði hún fram eitt- hvað að borða handa öllum. Heim- ili Öllu og Kára var alla tíð gestkvæmt, enda alltaf vel tekið á móti öllum og gott að koma til þeirra. Það var skemmtilegt þegar Alla datt í sögustuð, hún hafði ein- staklega gott lag á að krydda sög- ur til, gera þær spennandi, fyndn- ar og merkilegar. Þetta voru sögur frá æskuheimilinu, Læk í Ölfusi, og því gjarnan bætt við að Lækjarættin væri sú allra besta. Þetta voru sögur frá þeim tíma þegar þau Kári bjuggu erlendis vegna vinnu hans í Þýskalandi, Hollandi og Póllandi. Þetta voru sögur úr veiðiferðum þeirra hjóna, þær sögur voru oftast þær allra bestu. Já, þær voru margar sögurnar, sumar voru svo skemmtilegar að hún var margoft beðin um að segja sömu söguna aftur og aftur. Áratugir skilja eftir margar minningar, við Trausti og börnin okkar eyddum miklum tíma með ömmu Öllu. Fyrir allar þær stundir er ég afar þakklát og geymi minningar um einstaka konu í hjarta mér. Selma Rut Magnúsdóttir. Ein af okkar uppáhalds er fall- in frá, við kveðjum elsku ömmu Öllu í dag. Amma Mikló eins og við kölluðum hana var hlý og góð og sérstaklega góð vinkona. Er- um við systkinin einstaklega heppin með allar þær ljúfu og góðu minningar sem við eigum. Nokkrar minningar standa upp úr, svo ótal margar þeirra eru við eldhúsborðið. Amma að taka til fyrir okkur skyr og smyrja brauð í hádeginu. Yfir hádegismatnum var margt rætt, amma vildi alltaf vita hvað við værum að bralla og svo var lífið og tilveran rædd líka. Eftir hádegismatinn og spjallið þótti sjálfsagt að leggja sig smá- stund í afasófa, það gerði manni bara gott, sagði amma. Það var einhvern veginn þannig að amma var alltaf að útbúa eitthvað fyrir okkur að borða, hvort sem það var á Mikló, í húsbílnum eða í Veiði- vötnum. Í áraraðir héldu amma og afi alltaf jólaboð á jóladag fyrir fjölskylduna. Það var dansað í kringum jólatréð, krakkarnir léku sér saman og það var sett upp langborð svo allir gætu setið sam- an til að snæða hangikjöt. Hinar sívinsælu mömmukökur voru í boði líka og það var gaman að fá að hjálpa ömmu að baka smákök- urnar, af þeim þurfti að vera nóg til fyrir jólin og var þeim skammt- að út bróðurlega svo að allir fengu að smakka. Amma var skemmtileg kona, mikill húmoristi sem ekki lá á skoðunum sínum og oft fylgdi smá látbragð með þegar hún var að segja frá. Sögustundirnar hennar ömmu eru okkur dýrmætar og eigum við eftir að sakna þess að koma við á Mikló og heilsa upp á ömmu. Takk fyrir allt, amma, við elsk- um þig að eilífu og erum þakklát fyrir allt sem þú hefur kennt okk- ur. Við munum sakna þín sárt. Þín barnabörn, Tinna Rut, Íris Ösp og Davíð Örn. Elsku besta amma Alla. Í dag göngum við síðasta spöl- inn þinn saman en áfram held ég þótt nokkrir dýrgripir séu fallnir af trénu mínu. Einn af þessum dýrgripum varst þú. Þegar þú varst fimmtug áttir þú að fá mig í afmælisgjöf en þar kom þrjóskan í mér í ljós sem ég held ég hafi frá þér og kom ég fimm dögum fyrir stórafmælið þitt. Við tvíburarnir áttum eftir að verða miklar vinkonur þótt við værum ákaflega líkar á mörgum sviðum og gátum þráttað um hluti en endað samt báðar með því að hafa rétt fyrir okkur. Svo vorum við líka báðar gæddar þeim hæfi- leika að geta verið á tveimur stöð- um í einu eða við héldum það alla- vega. Ótal stundir átti ég á Mikló sem barn með ykkur afa og oftar en ekki fékk ég aura úr buddunni góðu til að fara í Árnasjoppu og kaupa nammi handa okkur báð- um. Ég upplifði gleði og sorg á Mikló en alltaf gastu samt komið mér til að brosa með faðmlagi og eða góðu eyra og ef það dugði ekki þá smurðirðu bara brauð, helltir upp á te og sóttir eitthvert góð- gæti upp í skáp. Fjölskyldan var þér allt og ef maður var ekki bú- inn að koma í einhvern tíma varstu búin að komast að því hvernig maður hefði það eftir öðr- um leiðum. Það er fjölskyldu minni mikil- væg minning að þú skulir hafa skellt þér í sparidressið og skund- að í ferminguna hjá Kristínu Sól í vor þótt veik værir orðin og erum við fjölskyldan afar þakklát fyrir þá stund. Elsku amma, ég trúi að það hafi verið partí í draumalandinu þegar þú mættir og fagnaðar- fundir. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér og alla hlýjuna sem þú gafst mér. Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá. (Matt. 5:8.) Þín Hlín. Elsku amma Alla, það er svo margt fallegt og gott sem þú skil- ur eftir þig. En að sama skapi svo stór hlekkur sem er horfinn. Þér tókst það sem þú ætlaðir þér, að halda utan um hópinn þinn með ást og kærleik og gerðir það á skemmtilegan hátt. Ástríkari og samheldnari fjölskyldu er ekki hægt að finna. Í gegnum árin hefur þú alltaf verið svo hvetjandi og skilnings- rík og hefur mér þótt svo vænt um að eiga þig sem vinkonu, sem ég gat leitað til og spjallað við þegar á reyndi. Ég hef alltaf dáðst að styrkleika þínum og hvernig þú gast séð hlutina í skýru ljósi. Eftir þín eigin áföll og missi, sem höfðu veruleg áhrif á þig, þá hélstu samt áfram og fannst gleðina að nýju. Þú leyndir nú aldrei skoðunum þínum, en þegar allt kom til alls, þá hafðir þú oft rétt fyrir þér. Þú sást hluti sem við hin sáum ekki. Já, þú með þína drauma og draumaráðningar, en það er nú bara þannig, þú bjóst yfir ein- hverjum æðri mætti. Sem stelpa labbaði ég oft til þín á Mikló, fékk budduna þína „með aurum“ og keypti handa okkur rjómakúlur í Árnabúð, við horfð- um svo á sápuóperur eða fórum í sólbað. Það var alltaf gaman að vera í kringum þig. Fjölskyldu- ferðirnar í Veiðivötn á sumrin skilja ótal minningar eftir sig. Það eru bara tvö ár síðan þú varst svo dugleg að koma til okkar í heimsókn til Manchester rétt eftir að afi dó. Þú ráfaðir búð úr búð og svo mikill hugur í minni, og keyptir þér það sem hugurinn girntist. Endalaust að kenna manni að lífið sé ekki búið. Þín verður sárt saknað, elsku vinkona og amma. Hvíl þú í friði. Unnur Guðjónsdóttir. Elsku amma mín. Með þessum fáu orðum vil ég þakka þér og afa fyrir öll árin sem ég fékk að eiga með ykkur. Betri fyrirmyndir af ömmu og afa er vart hægt að hugsa sér. Heimili ykkar á Miklubraut 64 var stund- um meira eins og félagsheimili en heimili. Þannig var fjörið og gestagangurinn og allir sem „komu við á Mikló“ fengu höfð- inglegar móttökur. Ef það leið langt á milli heimsókna fékk mað- ur annaðhvort símtal eða skilaboð í gegnum aðra. Sem elsta barna- barnið þitt fannst mér ég alltaf hafa smá forskot. Á jólum mátti eiginlega enginn nema ég borða mömmukökurnar þínar og þú beiðst með fallega brosið þitt eftir að ég myndi smakka og gefa þeim einkunn. Við erum líklega háværasta fjölskylda landsins, gríðarlega mikið hlegið og talað og jafnvel allir að tala í einu og þá leið þér vel. Að hafa allt fólkið þitt í kring- um þig. Að fá að þjóna fólkinu þínu og láta alla finnast þeir sér- stakir. Jólaboðið ykkar afa og svo afmælið þitt 17. júní eru stundir í mínu lífi sem ég gleymi aldrei. Mér fannst alla tíð svo frábært að eiga ömmu sem átti afmæli 17. júní því þá voru allir svo kátir og glaðir, alveg eins og þú. Þú varst fyndnasta og skemmtilegasta amma allra tíma. Alltaf að grínast, orðheppin og hlæjandi. Sögurnar þínar og spjallið okkar í gegnum tíðina geymi ég í hjarta mínu og mun rifja þær upp ef ég vil brosa út í annað. Þegar ég gekk í gegnum minn foreldramissi gat ég alltaf treyst á þinn styrk, gat alltaf leitað til þín og spjallað. Þú varst alltaf til stað- ar. Þvílíkur klettur sem þú varst fyrir okkur hin. Takk fyrir að vera amma mín. Þinn Helgi (Sigurður H. Hlöðversson). Kom, vornótt og syng þitt barn í blund! (Jón frá Ljárskógum.) Að minnast Aðalheiðar, þá á þessi texti vel við. Alla, eins eins hún var ávallt kölluð, minnti á vor- ið og sumarnóttina, eins og sú ár- stíð getur allra best verið, fersk, falleg, ljúf. Við kynntumst Öllu fyrir 30 ár- um er Selma, dóttir okkar, giftist Trausta, syni Öllu og Kára Sö- beck. Það urðu hamingjuár. Og margar voru þær gleðistundirnar sem við áttum með Öllu, Kára og stórfjölskyldunni. Það eru forrétt- indi að vera í þeim hópi. Að leið- arlokum í þessu lífi erum við þakklát fyrir samfylgdina. Gleðinnar dyr standa ekki allt- af opnar; veikindi, erfiðleikar og sorgir banka upp á einhvern tím- ann á lífsleiðinni. Þá reynir á mannveruna. Kári átti við mikil veikindi að stríða árum saman, en bar þau af reisn og lét engan bil- bug á sér finna ef fagnaður var í boði. Þau hjón voru sannkallaðir gleðigjafar. Mikið álag var oft á eiginkon- una sem annaðist mann sinn af stakri alúð eins og hennar var lag- ið. Ég vissi að oft var hún yfir sig þreytt. En Kári gekk fyrir. Kári lést fyrir fjórum árum og mikil var sorg Öllu er dóttir þeirra, Kristín, lést tveimur árum síðar eftir erfiða sjúkdómsbaráttu. Mikill missir og sorg á stuttum tíma dró úr þreki Öllu auk þess sem hún átti sjálf við veikindi að stríða sem að lokum lögðu hana líka að velli. En hún var sátt. Þau hjón voru lánsöm að eiga sérlega vel gerð börn, tengdabörn og barnabörn, sem önnuðust þau af kærleik alla tíð. Á góðum stundum spjölluðum við ömmurn- ar saman og dáðumst þá gjarnan að sameiginlegum barnabörnum okkar, þeim Tinnu, Írisi og Davíð. Þau eru hamingjubörn, sögðum við og brostum breitt hvor til ann- arrar. Ömmustoltið! Heimur listarinnar heillaði Öllu. Hún var efnilegur listmálari. En heimur kvenna í þá daga kall- aði á að giftast og stofna heimili. Seinna á ævinni naut Alla listar sinnar og mörg falleg málverk liggja eftir hana. Litið yfir farinn veg, sjáum við fallega, brosmilda konu standa í anddyrinu á heimili þeirra á Mikló, opna faðminn og bjóða inn. Hún var drottning á sínu heimili. Já, minningarnar eru margar og góðar. Í þeim faðmi minninganna er gott að búa. Sá bústaður mun ylja fjölskyldu Öllu og Kára um ókomna tíð. Kom ljúfa nótt, sigra sorg og harm, svæf mig við þinn barm, … (Jón frá Ljárskógum.) Við Ingvar vottum elsku Trausta, Selmu og fjölskyldu þeirra einlæga samúð sem og fjöl- skyldunni allri. Hanna Elíasdóttir, Ingvar Sveinsson. Með örfáum orðum vil ég þakka Öllu móðursystur minni samfylgdina. Hún var hvíldinni fegin og hlakkaði til að hitta fólkið sitt hinumegin. Þótt hún væri um- vafin kærleik og umsjón barna og barnabarna var hún án efa oft ein eftir að Kári féll frá, því sam- rýmdari hjón og félaga var vart hægt að hugsa sér. Þær voru afar nánar systurnar, mamma og Alla, og þær voru ófá- ar ferðirnar sem farnar voru af Digranesveginum í strætó niður á Miklubraut, með sultutau eða kökur eða bara eitthvað af því sem mamma hafði verið að baka handa litlu systur. Þetta gekk auðvitað svona langt fram á full- orðinsár. Fráfall mömmu var Öllu gríðarlegt áfall sem hún komst aldrei yfir. Þetta var hávaðaheimili – fullt af krökkum og gargandi umræður um pólitík, mikið hlegið og svo var þessi sérstaka tenging við Þýska- land. Kári var umsjónarmaður með smíði fjölmargra báta, svo- kallaðra tappatogara, í skipa- smíðastöð í Stralsund í Austur- Þýskalandi snemma á sjöunda áratugnum. Þau dvöldu þar í nokkur ár og mikil var hátíðin á vindsorfnum og berum Hálsinum í Kópavogi þegar bréf barst frá Stralsund með myndum úr fram- andi skógivöxnu Þýskalandi af krökkunum á baðströndum og í skógartúrum. Frá þessum tímum er einnig vitneskja okkar um „Fledermás“ – en það var uppá- haldstónlist Öllu í Þýskalandi og allar götur síðan, Leðurblakan eftir Jóhann Strauss, sem var oft blastað á fullum styrk á Mikló. Kári kom með þennan líka flotta Bens þegar þau fluttu loks heim. Þessi fjölskylda var ekki há- vaxin, en bíllinn stór og við grín- ararnir á Digranesveginum köll- um bílinn alltaf mannlausa bílinn. Við Birna og krakkarnir okkar þökkum Öllu og Kára fyrir okkur. Við bjuggum lengi í Hlíðunum í námunda við þau og samskiptin voru mikil. Þau einkenndust af hlýju og gleði og opnum faðmi okkar nánustu fjölskyldu. Helgi Pétursson. Aðalheiður Ísleifsdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, INGA K. GUÐMUNDSDÓTTIR CIOTTA, frá Litlabæ í Keflavík, lést 11. júlí á Mary Immaculate sjúkrahúsinu í Newport News VA., Bandaríkjunum. . Anthony Ciotta og fjölskylda, Lúðvík, Halldóra, Þórhallur, Gréta, Edda Guðmundsbörn og fjölskyldur. Móðir okkar, ÁSTA PÉTURSDÓTTIR, húsfreyja á Björgum, lést 19. júlí. . Hlöðver, Sólveig, Þorgeir og Kristjana. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.