Morgunblaðið - 21.07.2016, Page 31

Morgunblaðið - 21.07.2016, Page 31
Sumt fólk hefur svo sterka nærveru að það er sama hvar það kemur, á það er alltaf horft. Soffía var svoleiðis fólk. Litfríð og ljóshærð, glæsileg svo eftir var tekið, sjálfsörugg og hlý. Hafði þann hæfileika að hlusta með athygli og áhuga á því sem viðmælandinn hafði að segja en lá síður en svo á eigin skoðunum sem gjarnan voru settar fram af hispursleysi og húmor. Sýndi samkennd og samhygð á einlæg- an hátt og hún kunni sko að hlæja. Eins og sólin dreifði hún kærleik sínum yfir alla þá sem hún umgekkst. Soffía átti yndislega fjöl- skyldu sem hæfði hennar stór- brotna persónuleika. Hún var af- ar vel gift og var iðulega talað um þau hjón bæði í einu þegar um annað hvort þeirra var rætt. Hún var Soffía hans Sverris og Sverrir var Sverrir hennar Soffíu. Hún var mikil fjölskyldu- kona og var dætrum sínum tveimur, frábær fyrirmynd og vinur. Fyrir ári byrjaði Soffía að kenna sér meins og greindist fljótlega með afar sjaldgæfan og erfiðan sjúkdóm. Með von í hjarta fylgdist ég með henni úr fjarlægð glíma við þennan vá- gest. Að lokum hafði sjúkdóm- urinn betur. Við sem kynntumst henni stöndum eftir sorgmædd og hljóð en um leið þakklát fyrir að hafa þekkt hana og elskað. Sverrir, Berglind, Hanna Soffía og fjölskyldur, við Ragnar sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Anna Þóra Jónsdóttir. Nú hefur Soffía okkar sungið sig yfir á annað tilverusvið. Það er auðvelt að ímynda sér hana koma syngjandi að Gullna hlið- inu, með hárið slegið, refinn um hálsinn, armböndin og á hæla- skónum. Hún syngur Foli, foli, fótalipri fyrir Lykla-Pétur, lagið um heilsuspillandi drykkinn kaffi eða óperuaríu. Pétur kem- ur auðvitað strax út með hörpu og afhendir Soffíu því í himna- ríki vantaði einmitt glæsilega dívu, mannkostakonu, fagurkera og gleðigjafa. Haustið 1971 hóf hópur ungra stúlkna nám í Fóstruskóla Sum- argjafar. Þetta var fríður og föngulegur hópur og auðvitað gjarnan glatt á hjalla. Í þessum hópi var Súgfirðingurinn Soffía. Frá fyrsta degi mátti öllum vera ljóst að þar fór ekki stúlka sem læddist með veggjum. Það geisl- aði frá henni lífsgleði, hrifnæmi og hlýja. Neikvæðni, smámuna- semi eða almenn leiðindi til- heyrðu ekki hennar orðaforða. Soffía varð strax prímus mótor í sönglífi skólasystra enda lék hún á gítar og söng af mikilli list. Þessi tilhögun hefur reyndar haldist síðan og gilt jafnt um barnaskemmtanir, sem við héld- um til fjáröflunar fyrir útskriftarferðina okkar til Sví- þjóðar og Danmerkur, stóraf- mæli bekkjarsystra eða vorpartí hópsins. Þó búið væri að velja lög við ákveðin tækifæri og jafn- vel æfa, gat Soffíu dottið í hug að við syngjum önnur lög og þá var það ekkert tiltökumál. Þannig var bara Soffía okkar. Við skólasystur nutum margra mannkosta Soffíu en einn af þeim var einlægur og fölskvalaus áhugi hennar á öðru fólki og högum þess. Hitti maður Soffíu á förnum vegi þá var upp- lifunin að vera einmitt sú mann- eskja sem Soffía hefði allra helst viljað hitta í dag. En nú er skarð fyrir skildi, Soffía er farin frá okkur. Hóp- urinn verður ekki samur eftir. Á þessum erfiðu stundum er hugur okkar hjá Sverri. Við sendum honum og dætrunum innilegustu samúðarkveðjur. Minning Soffíu mun lifa með okkur öllum. Fyrir hönd bekkjasystra úr Fósturskóla Íslands 1974, Ragnheiður Halldórsdóttir. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016 Nokkur orð frá ömmu. Vertu sæl, vor litla, hvíta lilja, lögð í jörð með himnaföður vilja, leyst frá lífi nauða, ljúf og björt í dauða lést þú eftir litla rúmið auða. Þannig kvað Matthías Joch- umsson eftir dótturmissi. Í dag finnst mér þetta ljóð tala til mín vegna andláts Klöru okk- ar. Blómið, liljan, hvít með ynd- islegan ilm. Þannig minnist ég Klöru, viðkvæm, brothætt, en þó með sterkan vilja um að halda áfram, þótt gangan hafi oft á tíð- um verið óyfirstíganleg. Henni var ekki gefið langt líf í upphafi, en með góðri hjálp frá heilbrigðisþjónustunni náði hún að komast yfir hvern hjallann af öðrum. Það kom fljótt í ljós hvað hún vildi, hvernig ég átti að koma fram við hana, hvort sem ég átti að „dansa“, klappa lófunum eða syngja. Þetta voru dýrmætar stundir. Hennar helsta áhugamál var að róla. Því voru settar upp rólur, bæði úti sem inni á heimili for- eldranna. Seinna kom svo tram- pólínið sem var oft hoppað á. Eins voru baðkerstímarnir vin- sælir og stóðu lengi yfir í hvert skipti. Það voru forréttindi að fá að fylgjast með, þótt mörg orð væru kannski ekki á vörum. Svo kom að því að hún flytti að heiman, þangað sem foreldrarnir höfðu gert henni fallega búna íbúð og vakað var yfir henni næt- ur og daga. Rólan var að sjálf- sögðu þar í aðalhlutverki. Ljúf er minningin um síðustu heimsókn- ina til hennar á nýja heimilið og samverustundin með henni. En skjótt skipast veður í lofti og á augabragði dregur ský fyrir sólu. Aftur vil ég vitna í skáldið frá Sigurhæðum: Klara Smith Jónsdóttir ✝ Klara SmithJónsdóttir fæddist 27. sept- ember 1993. Hún lést 6. júlí 2016. Klara var jarð- sungin 15. júlí 2016. Vertu sæl vor litla ljúfan blíða, lof sé Guði, búin ertu að stríða. Upp til sælu sala saklaust barn án dvala. Lærðu ung við engla Guðs að tala. Elsku Palli, Ásdís og Hekla. Ég hef engin orð til að lýsa aðdáun minni á þolinmæði, kær- leika, umburðarlyndi og kjarki, sem þið hafið sýnt og sannað í öll þessi ár. Þið eruð svo sannarlega góðar fyrirmyndir og hetjur. Megi góður Guð veita ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Guði falin, Klara mín, fegursta blómið. Takk fyrir allt. Amma Sjöfn. Ég gleymi aldrei deginum sem þú fæddist. Það var fallegur haustdagur og ég var á leiðinni úr skólanum. Mamma stendur á tröppunum heima skælbrosandi og segir mér að ég sé búin að eignast litla frænku. Þvílíkur gleðidagur. Allan daginn hlógum við og skríktum; að lítil stúlka væri fædd. En það er oft stutt á milli gleði og sorgar, því daginn eftir beið mamma líka eftir mér á tröppunum en að þessu sinni grátandi. Hún sagði mér að litla frænka mín væri veik, vart hugað líf og væri mikið fötluð. Heimur- inn hrundi; hvernig gat þetta ver- ið? Fallega litla ljósið mitt svona veikt? Þetta var svo óréttlátt og sárt. Ég vildi ekki trúa þessu; ég bara grét. Ég fékk að sjá þig fyrst í gegnum gler, þú varst í súrefniskassa. Við tóku dagar ótta og sorgar. Ég fékk að heim- sækja þig oft upp á spítala. Þú varst svo falleg stúlka. Falleg- asta barn sem ég hafði séð. Með þetta mikla og fallega hár sem var þitt einkenni. Og fallega húð- litinn þinn – sem stafaði kannski af því að þú varst svo hrifin af gulrótarmauki. Mér fannst þú bara fullkomin. Þú komst öllum á óvart. Varst alltaf svo dugleg al- veg sama hvað þú varst veik. Allt- af var stutt í fallega brosið þitt. Þú hafðir mikið skap og þú vissir alltaf hvað þú vildir. Hláturinn þinn var svo smitandi að það var ekki annað hægt en hlæja líka þegar þú byrjaðir. Innilegri hlát- ur hef ég ekki heyrt. Við eyddum mörgum góðum stundum saman. Þú komst í heimsókn á Eiríksgöt- una og gistir hjá mér. Þá var vak- að lengi og sofið frameftir „í kósí“. Þú gast ekki valið þér betri foreldra fyrir lífið, svo um- hyggjusöm og pössuðu þig svo vel. Þú varst hetja sem kenndi okkur svo mikið um lífið. Gafst okkur svo ótrúlega margt. Þú elskaðir tónlist og uppáhaldið þitt var að dansa. Alltaf þegar ég kom í heimsókn var mér boðið í dans og þá dunaði dansinn dátt. Strák- arnir mínir, litlu frændur þínir, höfðu líka svo gott af því að um- gangast þig og kynnast þér. Ég þakka þér innilega fyrir það. Eft- ir stendur minning um fallegan einstakling sem gafst aldrei upp þrátt fyrir mótbyr. – Nú hvílir þú í friði. Verndi þig englar, elskan mín, þá augun fögru lykjast þín, líði þeir kringum hvílu hljótt á hvítum vængjum um miðja nótt. (Steingr. Th.) Blessuð sé minning þín, elsku Klara mín. Dagmar Una Ólafsdóttir. Kveðja frá Lyngási Í dag kveðjum við góða vin- konu okkar, Klöru Smith. Klara hefur verið með okkur í Lyngási síðastliðin sjö ár. Klara var lífs- glöð ung kona og naut þess að vera til. Það hentaði henni ekki að sitja auðum höndum svo hún var mikið á ferðinni. Hún naut þess að sækja tónleika, fór mikið í sund og var mikið úti. Henni þótti skemmtilegt að róla sér og vildi þá fara mjög hátt og hratt. Klara hafði dillandi, smitandi hlátur svo það var líf og fjör í kring um hana. Hún var þeim eiginleikum gædd að hún átti sér- stakan stað í hjörtum okkar allra. Hennar verður sárt saknað hér í Lyngási en við erum þakklát fyr- ir allar góðu minningarnar og að hafa fengið að kynnast henni. Þegar einhver fellur frá fyllist hjartað tómi. En margur síðan mikið á í minninganna hljómi. (Kristján Hreinsson) Við sendum Jóni Páli, Ásdísi og fjölskyldu Klöru okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Valgerður Unnarsdóttir. Ég er gríðarlega þakklátur fyrir þann tíma sem ég fékk með afa mín- um, ég á svo marg- ar yndislegar og frábærar minn- ingar um hann, sem munu lifa alla tíð. Fyrsta minning mín um afa er þegar hann kom og sótti mig á Stokkseyri og dró mig með sér að veiða í fyrsta sinn, þá var ég um það bil sex ára. Við byrjuðum á að tína orma og fórum svo í Hraunsá með Hercon-veiðistöng sem ég nota enn þann dag í dag. Þetta var fallegur sumardagur og að sjálfsögðu fengum við fisk. Þetta var fyrsta veiðiferðin af mörgum hjá okkur saman. Yfirleitt fórum við í Ölfusárós að veiða, ýmist upp á Engjar eða við brúna. Við í raun veiddum alls staðar í ósnum, gengum um og prófuðum allt. Við vorum með all- ar tegundir beitu; hrogn, makríl eða orm. Afi notaði alltaf fugla- fjöður til að fylgjast með flóði og Pétur Pétursson ✝ Pétur Péturs-son fæddist 13. september 1924. Hann lést 9. júlí 2016. Útför hans var gerð 15. júlí 2016. háskólaalmanakið til að fylgjast með hve- nær það væri stór- streymt. Hann átti vöðlur af gerðinni Daiwa sem ég notaði í flest skiptin, þang- að til þær einfald- lega pössuðu ekki lengur. Ein ferðin er mér sérstaklega minnisstæð. Við mokveiddum þenn- an dag. Veiðin var svo mikil og æsingurinn, að þegar afi sá hvað ég veiddi vel á minn spún var ekki annað í stöðunni en að skipta. Ég hljóp í verkið fyrir gamla, einhver orðaskipti fóru okkar á milli meðan ég var að skipta og rífur afi upp stöngina í miðjum klíðum og spúnninn fer á bólakaf í lúkuna á mér. Gamli lét þetta ekki hindra veiðina, náði í spóakjaftinn, reif spúninn úr, teipaði og sagði mér að byrja að kasta. Nú værum við í göngu og þá þýddi ekkert væl! Eitt sinn þegar ég var að rölta um Stokkseyri sá ég bílinn hans afa standa við kirkjuna. Það gat ekki annað verið en að afi væri mættur í fjörugöngu. Ég gekk út í fjöru og fljótlega sá ég í rass- gatið á honum og ætlaði að laum- ast að honum. Ég var þó varla kominn að honum þegar ég sá stóra flóðbylgju koma að okkur. Ég stökk á afa og rak hann upp í varnargarðinn með mér. Hann lítur á mig, brosir og segir hlæj- andi: „Hún amma þín sendi þig í þetta skiptið.“ Við fórum iðulega í sund. Mér fannst reyndar skelfilegt að fara með honum í sund. Það var þó ekki sundið sem var skelfilegt, heldur það sem gerðist eftir sundið. Yfirleitt þegar við kom- um upp úr tók hann æfingar í búningsklefanum og neyddi mann til að taka þátt. Hopp, arm- beygjur og ýmsar skrítnar hreyf- ingar sem manni þóttu mjög vandræðalegar. Stundirnar sem við áttum í bílnum voru líka skemmtilegar, það var alltaf til blár ópal. Yfir- leitt tók hann lagið í bílnum og situr lagið „Undir dalanna sól“ fast í minningunni. Það þarf ekki að spyrja að því að maður var að sjálfsögðu neyddur til að syngja með og þótti mér það alls ekki leiðinlegt. Afi á svo mikið í mér og hann gaf mér svo mikið. Hann steig ekki feilspor í afahlutverkinu og met ég það mikils. Ég er gríð- arlega þakklátur fyrir að hafa átt hann að og mun kveðja hann með bros á vör. Hann er trúlega ánægðastur núna, enda kominn til ömmu. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Bjarki Gylfason. Ég ætla að reyna af veikum mætti að lýsa reynslu minni af kynnum mínum af Ólafi Gunnarssyni, sem að mínu mati var vægast sagt gull af manni í minn garð og ekkert áhlaupaverk. Fyrir um 20 árum og algjöra tilviljun hafði Gunnar sonur hans samband við mig, mér alveg ókunnugur. Hann bar upp erindið við mig og töldum við báðir að ég gæti lið- sinnt vegna kunnugleika og auk þess bjargað mér á ákveðnu tungumáli. Svo fór að hann bauð mér til sín í foreldrahús til að ræða málin. Við það að hitta foreldra hans, þau Ólaf og Elísabetu, þá kynntist ég heimi sem ég vissi ekki að væri til og fór næstum úr sambandi af undrun. Mér fannst Ólafur gæddur öll- um þeim kostum sem skaparinn gat komið fyrir í einum manni og ekki var kona hans síðri. Eftir þetta hlýnaði mér ætíð Ólafur Gunnarsson ✝ Ólafur Gunn-arsson fæddist 20. júlí 1931. Hann lést 8. júlí 2016. Útför Ólafs fór fram 20. júlí 2016. um hjartarætur ef ég átti erindi á þetta góða heimili. Ólafur var hafsjór af fróðleik um ætt- fræði auk margs annars sem hann var vel heima í þeg- ar við ræddum sam- an. Eitt sinn er ég staldraði við hjá honum og hann þá kominn á spítala, þá ræddum við allt mögulegt, m.a. garðyrkju og var ég þá að glíma við mosann heima. Þá aldeilis lifnaði yfir hon- um varðandi lausn á sínu garð- vandamáli og ég var maðurinn í það. Síðan var slegið á létta strengi með gamanmál og nutum við í botn augnabliksins sem reyn- ist svo það síðasta. Hann var flísalagningarmeist- ari að ég tel af Guðs náð og hefur eflaust smitað son sinn Gunnar af þeim áhuga og starfi. Kynni mín af Gunnari eru á þann veg að það er alveg sama hvað snýr upp eða niður, ætíð eru á hraðbergi vandaðar og góðar lausnir, svo af ber – hvaðan skyldi það nú koma? Ég votta fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Valdimar Elíasson. Elsku Lista, elsku besta Lista, hvað liggur á? Ég veit vel að þú ert alltaf að og nóg að gera. En þú hefðir ekki átt að hlaupa svona fljótt frá okkur. Við hefðum getað gert meira saman. Við höfum reyndar gert ým- islegt þó þú hafir verið hinum megin við hafið. Það sem við gerðum fyrir nokkrum árum þegar þú skipulagðir og varst fararstjóri í ferð fyrir mig og Sævar um París og Versali. Allt á fullu, strætó tekinn á milli borgarhluta, farið í Lapera, te- búðina og á tónleika, stoppað á kaffihúsi, aðeins að pústa og svo „allez“, aftur á stað. Við fórum líka víða um Ísland, t.d. Lóns- öræfi. Þar var labbað alveg upp að herðablöðum og við orðin græn í framan. Í Núpstaðar- skóg fórum við fjórar systur, löbbuðum þar og klifruðum upp hamravegg í bandi – reyndar með aðstoð farastjórans – í sól og blíðuveðri. Á heimleiðinni daginn eftir komum við við á Kirkjubæjarklaustri og þú príl- aðir í keðju upp brattan hamra- vegg á Systrastapa og Sif líka ef ég man rétt. Síðan var haldið inn í Fjaðrárgljúfur, það vaðið inn í botn. Þú og Sif voruð á Evuklæðum og stunguð ykkur til sunds í volgan hylinn, sem er þar. Ykkur var svo heitt. Þú komst frá hitanum í París og Sif frá Ameríku, en við Áslaug bjuggum og búum á kalda land- inu og þurftum því ekki að kæla okkur. Ekki má gleyma ferð okkar upp á Langjökul. Þú vildir leggjast í jökulinn, þetta var einhver þráhyggja hjá þér. Ég skildi það ekki þá en ég skil það núna. Á Langjökul fórum við þrjár; ég, þú og Katrín Helga. Þetta var mikil ferð. Við fórum á jeppanum mínum og ég keyrði – og það er sko saga til næsta bæjar – að Langjökli miðjum, um Kaldadal. Vegurinn um Katrín Jónsdóttir ✝ Katrín Jóns-dóttir fæddist 11. janúar 1954. Hún lést í París 27. júní 2016. Minningarathöfn fór fram í Stykk- ishólmskirkju 15. júlí 2016. hann hefur aldrei verið góður. Við upp á jökulinn, en ekki hvað. Farar- stjórinn datt ofan í sprungu, úpps. Ekki á bólakaf, en alveg nóg. Það var smá panik en allir fljótir að átta sig og hann komst upp. Þegar hann var kominn upp aftur, sagði hann: „Ég er með allar græjurnar á mér, talstöð ofl., ofl. Ég hefði átt að láta ykkur vera með talstöð líka.“ Ekki tók nú betra við þegar við fórum niður af jöklinum. Þessi líka svaka stóra og djúpa sprunga sem við urðum að ganga fyrir, púff. Þú varst ekki lofthrædd eða neitt, bara „allez allez“. Við komumst öll niður af jöklinum. Ég fékk alveg nóg og fer aldrei á jökul, alveg nóg að horfa á þá. Við fóru líka upp í Hrútfellið á Kili, þar var ein þráhyggja hjá þér að fara upp í Fjallkirkju í Langjökli. Við keyrðum sem leið liggur norður Kjöl á jepp- anum mínum. Á miðjum Kjal- vegi ca. er beygt við stóran stein og þar liggur vegurinn niður að Þverbrekkumúlaskála. Þaðan hefst gangan, labbað og labbað í átt að Fjallkirkju og til baka aftur. Við komumst aldrei alla leið en það er nú önnur saga. Á heimleiðinni heyrðum við í fréttum að það væri mikið hlaup eða flóð í Hagavatni og göngubrúin þar farin. Við að skoða þetta. Brekkan upp að brú sem einu sinni var, er svo svakalega brött að ég lagði ekki í að keyra svo við húkkuðum okkur far upp með tveimur strákum. Svo er alltaf eitthvað sem kemur upp í hugann frá ennþá lengri tíma. Ég var oft spurð af hverju er hún Lista kölluð Lista? Ég var farin að svara því þannig að hún Lista er lista- kona og þess vegna heitir hún Lista. Elsku Lista listakona með ljósa hárið og hvítu húðina. Nú sit ég hér og drekk te og pára þetta á blað en hvar ert þú? Kannski hér líka eða í París hjá börnunum þínum – hver veit? Sigríður Jóns Katrínardóttir. Meira: mbl.is/minningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.